Þjóðviljinn - 27.01.1984, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 27.01.1984, Blaðsíða 5
Fóstudagur 27. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN SIÐA 5 Helgi H. Jónsson fréttamaður ætlar að hætta hjá útvarpinu BÚSETINN Málgagn húsnsoðissamvinnufélaga Búseti fái lán hefur ásamt fleirum stofnað nýtt fréttaþjónustufyrirtœki Helgi H. Jónsson fréttamaður hjá útvarpinu hefur stofnað fjöl- miðlafyrirtæki ásamt Magnúsi Bjarnfreðssyni og Vilhelm G. Kristinssyni. Um næstu mánaða- mót ætlar hann að segja upp starfi sínu á útvarpinu. Nýja fyrirtækið heitir Kynningarþjónustan sf. og mun m.a. aðstoða fyrirtæki og ein- staklinga við gerð fréttatilkynninga og bæklinga. Þjóðviljinn fór í heimsókn til þeirra félaga í gær og fékk upplýs- ingar um hið nýstofnaða frétta- þjónustufyrirtæki. Magnús Bjarn- freðsson er helsti starfskrafturinn ennþá, jafnframt því sem hann er í hlutastarfi hjá sjónvarpinu. Helgi H. Jónsson mun vinna hjá frétta- stofu útvarpsins, þangað til hann verður laus þar, en jafnframt starfa hjá Kynningarþjónustunni. Vil- helm G. Kristinsson er fram- kvæmdastjóri Sambands íslenskra bankamanna og ætlar að starfa þar áfram fyrst um sinn. Magnús sagði að þeir ætluðu sér að vera með alhliða þjónustu á kynningarsviði. „Við verðum með fréttaþjónustu fyrir þá aðila sem við vinnum fyrir, en verðum ekki blaðafulltrúar þeirra. Við munum m.a. semja fréttatilkynningar og annast blaðamannafundi án þess að fara inn á svið auglýsingastof- anna. Við gælum síðan við þá hug- mynd að geta miðlað fréttum út úr landinu og ef til vill síðar meir inn í það. Menn leggja mikla áherslu á kynningu þegar þrengir að í Tobacco Road sýnt í Eyjafirði Leikfélag Öngulstaðahrepps og Ungmennafélagið Arroðinn frum- sýna í kvöld Tobacco Road eftir hinni frægu skáldsögu Erskine Caldwell í Freyvangi. Sýningin hefst kl. 20.30 og er tekið við mið- apöntunum í síma 24936. Leikstjóri er Hjalti Rögnvalds- son og aðstoðarleikstjóri Agústína Haraldsdóttir. Með helstu hlut- verk fara Jónsteinn Aðalsteinsson, Emilía Baldursdóttir, Stefán Gunnlaugsson, Ingólfur Jóhanns- son og Jóhanna • Valgeirsdóttir. Ljósamenn eru Halldór Sigurgeirs- son og Pétur Haraldsson og bún- inga gerðu María Haraldsdóttir og Hjördís Pálmadóttir. Tobacco Road var sýnt í Iðnó fyrir nokkrum árum en Jökull Jak- obsson þýddi leikritið sem er eftir Jack Kirkland. Önnur sýning verð- ur á sunnudag á sama tíma. Þórsarinn fremst- ur í KA-mótinu! KA sigraði í öllum yngri flokkum KA-mótið í stórsvigi var haldið í Hlíðarfjalli við Akureyri sl. laugar- dag og var keppt í fimm flokkum en keppni í kvennaflokki var frestað. Björn Víkingsson, Þór, sigraði í karlaflokki, Guðrún H. Kristjáns- dóttir, KA, í flokki stúlkna 15-16 ára, Björn B. Gíslason, KA, í flokki drengja 15-16 ára, Hulda Svan- bergsdóttir, KA, í flokki stúlkna 13-14 ára og Valdemar Valdemars- son, KA, í flokki drengja 13-14 ára. Um svipað leyti fór fram hið ár- lega Kjarnagöngumót, sem er skíðagöngumót á vegum Skóg- ræktarfélags Akureyrar. Mótið fór fram á upplýstri braut í Kjarna- skógi. Einar Ingvason frá ísafirði sigraði í flokki 17-34 ára, Sigurður Aðalsteinsson, Akureyri, í flokki Gegn framvísun þessa miða færð þú 12 % kynningar- afslátt á plötum í nýrri og endurreistri STUS-búð. Laugavegi20 Sími27670 34 ára og eldri, Ingvi Oskarsson, Ólafsfirði, í flokki 13-16 ára og Baldvin Þ. Ellertsson, Akureyri, í flokki 12 ára og yngri. Ármenningar sigursælir á drengjamótinu Um síðustu helgi var haldið drengjamót Júdósambands íslands og voru keppendur 57 frá Ár- manni, Júdófélagi Reykjavikur, Akureyri, Gerplu, Grindavík og UMFK. Haukur Garðarsson, Ármanni, sigraði í flokki 10 ára og yngri undir 35 kg og Jón A. Jónsson í sama aldursflokki, yfir 35 kg. Jón Kr. Þórsson, Gerplu, sigraði í flokki 11-12 ára, undir 38 kg, Júl- íus Sigurðsson, Grindavík, 38-45 kg, og Grétar Þ. Grétarsson, Ár- manni, hjá þeim sem voru yfir 45 kgf I flokki 13-14 ára sigraði Magnús Kristinsson í keppni þeirra sem voru undir 47 kg, Magnús Magnús- son, Ármanni, í keppni 47-57 kg, og Ástvaldur Leo Sigurbergsson, Armanni, í keppni þeirra sem voru yfir 57 kg að þyngd. Auglýsið í Þjóðviljanum P y . t* ' r ; 1 Helgi H. Jónsson og Magnús Bjarnfreðsson hjá Kynningarþjónustunni sf. Þjóðviljamynd-eik. þjóðfélaginu. Við finnum vilja hjá þjónustu og höfum nú þegar tals- mönnum til að hagnýta sér þessa vert af verkefnum." -jp Lada-LUX verður sýnd um helgina að Suðurlandsbraut 14. Ljósm. -eik. Sparneytnari Lada Nú um helgina kynna Bifreiðar og Landbúnaðarvélar nýja Lödu, Lada LUX, sem er glæsilegri og sparneytnari en aðrar Lödur. Bflasýningin verður opin laugar- dag og sunnudag kl. 1-5 að Suður- landsbraut 14, baklóð, og verður boðið upp á kaffi og glaðning fyrir börnin. Ladan hefur verið flutt til íslands í 10 ár og notið mikilla vinsælda en fyrirtækinu tókst að fá fyrstu bílana af Lödu LUX á sérstöku kynning- arverði. Við hönnun hennar hefur verið kappkostað að halda styrk- leika og aksturseiginleikum fyrri Lödu-bíla, en aukin áhersla er lögð á gott rými fyrir farþega, samfara öryggi, og eru framsæti þægilegri. Öryggisbelti eru einnig í aftursæt- um. -ÁI Eindrcginn stuóningur S r.j'iji ijí ll'll vcrkalýdshrcyfingarinnar rT.'.TTTT,;'.^ zJtlz "It MMbS É_«l - iililf. Búsetinn kominn út Búsctinn, málgagn húsnæðis- samvinnufélaga er kominn út og hefur verið sendur ölium félags- mönnum. Samhliða Búsetanum hefur verið sent úr spurningaeyðu- blað til félagsmanna um húsnæðis- þörf þeirra, en könnuninni er ætlað að verða ráðgefandi um alla stefnu félagsins í fjármálum og bygging- armálum. Forsíðu Búsetans prýðir viðtal við félagsmálaráðherra, Alexand- er Stefánsson, þar sem hann segir m.a.: „Ég vil á engan hátt draga úr mikilvægi verkamannabústaða, en ég lít ekki á búseturéttaríbúðir sem ógnun við það kerfi. Það fyrir- komulag er alveg nýtt og þarfnast sérstakrar löggjafar til viðbótar því að það sé tekið inn í húsnæðislög- gjöfina". Af öðru efni blaðsins má nefna, að skýrt er frá fundi, sem stjórn húsnæðissamvinnufélagsins Bú- seta átti með ýmsum forystu- mönnum verkalýðsfélaga. Að sögn blaðsins ríkti einhugur á fundinum um það að Búseti ætti að vera með í húsnæðislöggjöfinni og að tryggt yrði fjármagn til félagsins, sem fengi lán úr Byggingarsjóði verka- manna. Fundarmenn lögðu áherslu á að lánahlutfall hjá Bygg- ingarsjóði verkamanna yrði óskert og sjóðurinn fengi í það minnsta þriðjung lánsfjár til nýbygginga í landinu og að lögbinda þurfi vaxta- hlutfall af húsnæðislánum. Húsnæðissamvinnufélagið Bús- eti hefur nýverið gefið út upplýs- ingabækling um félagið þar sem til- drög að stofnun þess eru skýrð, og ýmislegt annað, sem upplýsir um tilgang og markmið félagsins. Skrifstofa Búseta er að Hávalla- götu 24 í Reykjavík og síminn er: 91-25262. Að lokum skulu félagar minntir á að greiða félagsgjald sitt eigi síðar en 1. febrúar n.k. ••••••%£ GLÆSILEGT URVAL HÚSGAGNA \ TVEIMUR HÆÐUM RAFTÆKI - RAFLJOS k og rafbúnaður. Raftækjadeild ||. hæð ð á markaðsverði. OPIÐ í KVÖLD TILKL. 8 FLATEY, II. HÆÐ, bækur, búsóhöld, gjafavörur JL-PORTIÐ Hárgreiðslustofa Gunnþórunnar Jónsdóttur sími 22500 aluIgarni Sólbaðstofa Siggu og Maddviar, simi 22500 Munið okkar hagstæðu greiðsluskilmála JL-GRILLIÐ Grillréttir allan daginn EUBOCABD Jón Loftsson hf. ________________ Hringbraut 121 Simi 10600

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.