Þjóðviljinn - 27.01.1984, Qupperneq 11
Fðstudagur 27. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Þessir
leika:
Markverðir:
Einar Þorvarðarson, Val
Jens Einarsson, KR
Aðrir leikmenn:
Atli Hilmarsson, FH
Guðmundur Guðmundss, Vík.
Jakob Sigurðsson, Val
Kristján Arason, FH, fyrirl.
Páll Olafsson, Þrótti
Sigurður Gunnarsson, Víkingi
Sigurður Sveinsson, Lemgo
Steinar Birgisson, Víkingi
Þorbjörn Jensson, Val
Þorgils Óttar Mathiesen, FH
Páll Ólafsson var veikur í gær-
kvöldi og verði hann ekki búinn
að ná sér, tekur Þorbergur Aðal-
steinsson, Þór Ve, stöðu hans.
Helgar-
sportið
Handbolti
Landsleikirnir þrír við Norð-
menn eru að sjálfsögðu athygl-
isverðustu viðburðirnir. Einn
leikur verður í 2. deild karla í
kvöld. Fylkir og Reynir mætast
kl. 20. Þá verður „turnering" í
3., 4. og 5. flokki karla og 2. og
3. flokki kvenna, og leikið víða,
í Reykjavík, Mosfellssveit, Sel-
tjarnarnesi, Vestmannaeyjum,
Borgarnesi, Keflavík, Garða-
bæ, Kópavogi, Akranesi og
Sandgerði.
Körfubolti
Njarðvík og ÍR mætast í úr-
valsdeildinni í Njarðvík kl. 20 í
kvöld. Haukar leika við KR í
Hafnarfirði kl. 14 á morgun og
Valur mætir Keflavík í Selja-
skóla kl. 20 á sunnudagskvöld-
ið. ÍR og ÍS, efstu lið 1. deildar
kvenna, mætast í Seljaskóla kl.
21.30 á sunnudagskvöld, og á
sama tíma leika KR og Haukar í
Hagaskóla. „Turneringar" fara
fram á Akureyri, í Sandgerði,
Njarðvík, Seljaskóla og Borg-
arnesi. Snæfell og Fram mætast
í bikarkeppninni í Borgarnesi í
kvöld kl. 20.
Blak
Breiðablik leikur við Þrótt í
1. deild kvenna í Digranesi í
Kópavogi í kvöld kl. 20. Á
morgun fara svo þrír leikir fram
í Hagaskóla, Fram-Þróttur í 1.
deild karla kl. 14, Víkingur-HK
í 1. deild karla kl. 15.20 og ÍS-
Víkingur í 1. deild kvenna kl.
16.40. Samhygð og HK-2 leika í
2. deild karla á Selfossi í kvöld
kl. 19.50.
Skíði
Bikarkeppni SKÍ 1984 í alpa-
greinum hefst með bikarmóti í
Bláfjöllum við Reykjavík kl. 11
í fyrramálið og verður þá keppt
í stórsvigi, en keppni í svigi
hefst kl. 11 á sunnu-
dagsmorguninn.
Hlaup
Stjörnuhlaup FH hefst kl. 14
á morgun við Lækjarskóla í
Hafnarfirði. Karlar hlaupa 5
km, konur 3 km, drengir 3 km,
piltar 1,5 km og telpur 1,5 km.
Badminton
Unglingalandsliðið er statt í
Sviss, en hér heima fer fyrir-
tækjakeppni BSÍ fram í TBR-
húsinu í Reykjavík á sunnudag-
inn.
Júdó
Fyrri hluti afmælismóts JSÍ
fer frant í íþróttahúsi Kennar-
aháskólans á morgun og hefst
kl. 15.
Umsjón:
■ ^ ^ ■ ■ Víðir Sigurðsson
„Ætlum okkur sig-
ur í öllum þremur“
„Við eigum að sigra þetta norska
lið hér heima og erum staðráðnir í
að leggja það að velli í öllum þrem-
ur leikjunum", sagði Kristján Ara-
son, fyrirliði íslenska karlalands-
liðsins í handknattleik í samtali við
Þjóðviljann í gærkvöldi. ísland
mætir Noregi í þremur lands-
leikjum nú um helgina, í Laugar-
dalshöllinni kl. 20.30 í kvöld, á Ak-
ureyri kl. 14 á morgun (í Hafnar-
firði kl. 16 ef ekki verður fært
norður) og í Laugardalshöllinni kl.
20 á sunnudagskvöldið.
„Það hefur verið æft stíft að und-
anförnu og margt komið fram. Nú
fyrst erum við t.d. að byrja að kom-
ast inn í kerfin hjá Bogdan þannig
að allt er á réttri leið,“ sagði Krist-
ján.
Kristján er fyrirliði landsliðsins
en þeirri stöðu gegnir hann ekki
hjá sínu félagsliði, FH. Skyldi ekki
reynast erfitt að ganga inní svo
Kristján Arason: „Erum að komast
inní kerfin hjá Bogdan“.
ábyrgðarmikla stöðu hjá landsliði
óundirbúinn?
„Það er nú ekki komin mikil
reynsla á þetta hjá mér ennþá",
sagði Kristján. „Ég hef ekki verið
fyrirliði nema í fjórum lands-
leikjum til þessa, fyrstu tveir voru
erfiðir og ég var slakur en ég tel mig
vera kominn yfir þá byrjunarörð-
ugleika. Maður verður að fara í
leikina með sama hugarfari og aðr-
ir leikmenn, það er síðan fyrst og
fremst í vörninni sem reynir á fyrir-
liðastöðuna. Fyrirliðar eru mis-
munandi, ég leitast við að leika
minn handbolta fyrst og fremst
eftir sem áður“.
Kristján kvaðst einnig vonast
eftir góðum stuðningi áhorfenda,
þeir væru geysilega mikils virði í
leikjum sem þessum. Það er hár-
rétt, Norðmenn standa okkur lítið
sem ekkert að baki og það má lítið
útaf bregða til að illa fari. Þessir
þrír leikir gegn þeim eru mikilvægir
fyrir íslenskan handknattleik, með
góðum árangri getur landsliðið lagt
sitt af mörkum til að lyfta andliti
frónska handboltans sem óneitan-
lega hefur verið í dulítilli lægð það
sem af er vetri. Fjölmenni áhorf-
enda, hvort sem leikið er í Laugar-
dalshöll, Akureyri eða Hafnar-
firði, er þungt á vogarskálunum,
því fleiri sem mæta og taka radd-
böndin með sér, þeim mun meiri
möguleiki er á þreföldum íslensk-
um sigri dagana 27.-29. janúar
ÍS skellti
Frömurum!
ÍS hleypti mikilli spennu í 1. deild
karla í körfuknattleik í gærkvöldi
með því að sigra Fram 73:59 í
íþróttahúsi Kennaraháskólans.
Leikurinn var jafn lengi vel, IS
leiddi þó með 8 stigum í hálfleik, en
Framarar gerðu þann mun að engu
fljótlega cftir hlé. Síðari hluta
síðari hálfleiks tóku svo Stúdentar
völdin og tryggðu sér sætan sigur.
Þeir hafa nú fjörurra stiga forskot í
1. deildinni, 20 stig gegn 16 hjá
Fram, en Framarar hafa leikið
þremur leikjum færra og hafa því
aðeins tapað 3 leikjum en ÍS fjór-
um.
- VS
Meistaramót innanhúss
Meistaramót fslands í Irjálsum íþróttum innanhúss fcr fram í Laugardals-
höll og Baldurshaga dagana 4. og 5. febrúar. Keppt verður í eftirtöldum
greinum:
Fyrri dagur: Karlar - 50 m hlaup, langstökk, hástökk og kúluvarp. Konur
- 50 m hlaup og 800 m hlaup.
Seinni dagur: Karlar - 50 m grindahlaup, 1500 m hiaup, stangarstökk,
þrístökk og 4x3 hringja hoðhlaup. Konur - 50 m grindahlaup, hástökk,
kúluvarp, langstökk og 4x3 hringja boðhlaup.
Þátttökutilkynningar ásamt skráningargjöldum, 50 kr. á grein og 120 kr.
fyrir hverja boðhlaupssveit, skulu berast stjórn FRÍ í síðasta lagi mánudag-
inn 30. janúar i pósthólf 1099 eða skrifstofu FRÍ, íþróttamiðstöðinni í
Laugardal.
Danskur kennari hjá KÞÍ
Danski knattspyrnukennarinn Karsten Jörgensen verður aðalkcnnari á
knattspyrnunámskeiði sem knattspyrnuþjálfarafélag íslands og KSÍ gang-
ast fyrir i Reykjavík dagana 3.-5. fehrúar. Jörgensen er mjög vel menntaður
og virtur leiðbeinandi og yfirskrift námskeiðsins er „sóknarknattspyrna".
Fjallað verður um unglingaþjálfun og meistaraflokksþjálfun sitt í hvoru lagi
og síðan um markvörðinn og úthaldsþjálfun. Hægt er að sækja cina ciningu,
tvær, eða allar. Þátttökutilkynningar þurfa að hafa borist fyrir mánudaginn
30. janúar til skrifstofu KSÍ síma 84444, Eggerts Jóhannessonar (40016) eða
Aðalsteins Örnólfssonar (82421).
Dregið í happdrœtti HSÍ
Eftirtalin númer hlutu vinning t
happdrætti Handknattleikssambands
fslands:
1. Mazda 626 Hatchback ’84 37808
2. Sharp videótæki.........27081
3. Sharp videótæki......... 3400
4. Ferð til New York....... 8809
5. Sólarlandafcrð .........11544
6. Sólarlandafcrð..........11679
7. Ferð til Amsterdam........... 791
8. Sólarferð................. 2216
9. Sólarferð.................38495
10. Sólarferð.................29137
11. Sólarferð.................26549
12. Færeyjaferð með Norröna 19343
Vinninga má vitja á skrifstofu HSÍ,
íþróttamiðstöðinni i Laugardal, kl.
14 - 18 virka daga.
Leika í hnésíðum stuttbuxum og með blúndur!
Hildibrandar í 4. deildina
Knattspyrnufélagið Hildibrand-
ar heitir nýtt félag sem stofnað hef-
ur verið í Vestmannaeyjum. Það
sendir lið í 4. deildina í knattspyrnu
í sumar og heyrst hefur að brand-
arnir ætli að mæta til leiks í hnésíð-
um stuttbuxum og skreyttir með
blúndum!
Sex önnur félög sent ekki léku
með á íslandsmótinu í fyrra hafa
tilkynnt lið í 4. deildarkeppnina í
sumar. Neisti frá Djúpavogi, UMF
Tjörness, Æskan frá Svalbarðss-
trönd og Drengur úr Kjós hafa
aldrei áður verið með, Geisli frá
Hólmavík ekki heldur, en kemur í
stað HSS, og þá hefur meistara-
flokkur Leiknis úr Reykjavík verið
endurvakinn.
Vitað er um tvö félög frá því í
rra sem ekki verða með í sumar,
ðinn úr Reykjavík og Glóðafeyk-
ir úr Skagafirði. Vitað er um þátt-
tökutilkynningar nokkurra félaga á
leiðinni en ekkert hafði í gær heyrst
frá Hrafna-Flóka á Patreksfirði,
Hvergerðinga né Árvakurs í
Reykjavík sem öll voru með sl.
sumar. Liðum verður raðað niður í
riðla jafnskjótt og allar tilkynning-
ar hafa borist, eða mjög fljótlega. í
fyrra léku 37 lið í 4. deild en í ár
verða þau líkast til á bilinu 38-41.
Þátttakan í deildakeppninni eykst
því enn frá ári til árs, samkvæmt
þessu leika 74-77 lið í henni næsta
sumar.
-VS
Rush stefnir á gullskóinn
Ian Rush, markaverksmiðja Liverpool í ensku
knattspyrnunni, hefur náð þriggja marka forskoti í
keppninni um gullskó Adidas, eða markakóngstitil
Evrópu. Hann hefur nú gert 19 rnörk í 1. deild en
Tibor Nyilasi frá Ungverjalandi, sem leikur með
Austria Wien í Austurríki, kentur næstur með 16. Þá
eru undanskildir Norðurlandabúarnir sem hafa lokið
sínum keppnistímabilum, en Lipponen hjá TPS í
Finnlandi er opinberlega efstur með 22 mörk. Liver-
pool er komið á toppinn í stigakeppni félaga, hefur 11
stig en Stuttgart, lið Ásgeir Sigurvinssonar í Vestur-
Þýskalandi, og Skotarnir í Aberdeen koma næst með
9 stig.
- VS
Örn Valdimarsson
Örn til
Framara
Örn Valdimarsson, unglinga-
landsliðsmaðurinn efnilegi úr Fylki
gekk í gær til liðs við 1. deildarlið
Fram í knattspyrnu. Örn var einn
burðarása Fylkismanna si. sumar
og ætti að eiga ágæta framamögu-
leika í hinu unga liði Framara.
- VS
s
„Ohressir
með seina-
ganginn “
„Við erum að sjálfsögðu mjög
óhressir með þennan seinagang í
Pétursmálinu, það þarf að fást
endanleg niðurstaða í því sem allra
fyrst. Pétur heldur að sjálfsögðu
áfram að leika með okkur og verð-
ur með ÍR í Njarðvík annað kvöld
(í kvöld),“ sagði Kristinn Jörunds-
son hjá körfuknattleiksdeild ÍR í
samtali við Þjóðviljann í gær. Þá
hafði ekkert nýtt gerst í kærumál-
inu á hendur Pétri Guðmundssyni.
- VS
s
IS vann
Njarðvík
ÍS sigraði Njarðvík 36:32 í 1.
deild kvenna í körfuknattleik fyrr í
þessari viku. Leikið var í íþrótta-
húsi Kennaraháskólans. ÍS hefur
því 18 stig gegn 20 hjá ÍR þegar
bæði lið hafa lokið 12 leikjunt af 20
en þau mætast í Seljaskóla á sunnu-
dagskvöldið.
Rósa ráðin
til ÍBÍ
Rósa Valdimarsdóttir, landsliðs-
kona í knattspyrnu úr Breiðabliki
hefur verið ráðin þjálfari hjá ísfirð-
ingum sem leika í fyrsta skipti í 1.
deild kvenna næsta sumar. Hún
mun einnig leika með liðinu.
Ian Rush - næsti handhafi gull-
skósins?