Þjóðviljinn - 27.01.1984, Síða 12
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 27. janúar 1984
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið
í Reykjavík
15 miðar eftir
á Þorrablótið
Vegna forfalla eru 15 miðar til á Þorrablótið annað kvöld.
Látið ekki happ úr hendi sleppa, - tryggið ykkur síðustu miðana
sem verða seldir að Hverfisgötu 105 í dag, föstudag. Síminn er
17500.
Hátíðin hefst að Hverfisgötu 105 með borðhaldi ki. 20 en
húsið verður opnað kl. 19.30. Veislustjóri er Sigurjón Péturs-
son.
Meðal þeirra sem koma fram og flytja skemmtan eru: Árni
Bergmann, Árni Björnsson, Kristín A. Ólafsdóttir, Valgeir Skag-
fjörð, Margrét Pála Ólafsdóttir, Sveinn Kristinsson og Þráinn
Bertelsson sem ávarpar gesti.
Sigurður Rúnar Jónsson leikur undir fjöldasöng og diskó-
tekið Devo leikur tónlist við allra hæfi í austursal.
Að loknu borðhaldi (kl. 23) verða seldir nokkrir miðar á
dansleikinn. Forsala á þeim miðum er á skrifstofu ABR kl. 9-17 í
dag föstudag, en annars verða þeir seldir við innganginn.
Skemmtinefnd ABR
Alþýðubandalagið Akranesi
Fundur um
sjávarútvegsmál
Almennur fundur um sjávar-
útvegsmál með Skúla Alexand-
erssyni og Garðari Sigurðssyni
verður haldinn mánudaginn 30.
janúar. Fundurinn verður í Rein
og hefst kl. 20.30.
Fjölmennum! Stjórnin Garðar. Skúll.
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Bæjarmálaráð
Fundur í vinnuhópi um félags- og heilbrigðismál verður haldinn í
Skálanum (Strandgötu 41) fimmtudaginn 2. febrúar kl. 20.30.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórn Bæjarmálaráðs.
Alþýðubandalagið Hafnafirði
Bæjarmálaráð
Fundur í vinnuhópi um húsnæðis- og skipulagsmál verður í Skálanum
(Strandgötu 41) mánudaginn 30. janúar kl. 20.30.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórn Bæjarmálaráðs.
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Árshátíð
ABK heldur árshátíð sína í Þinghóli laugardaginn 4. febrúar nk.
Skemmtiatriði og hressandi veitingar. Miðaverð aðeins 200 krónur.
Allt stuðningsfólk velkomið. Nánar auglýst síðar. - Stjórn ABK.
Alþýðubandalagið Neskaupstað
Hið árlega þorrablót Alþýðubandalagsins á Neskaupstað verður
haldið í Egilsbúð laugardaginn 28. janúar kl. 20.00.
Heiðursgestir: Gunnar Guttormsson og Sigrún Jóhannesdóttir.
Blótstjóri verður Stefán Þorleifsson. Að loknu borðhaldi leikur hljóm-
sveitin Bumburnar fyrir dansi.
Miðasala fimmtudaginn 26. janúar kl. 18-21 að Egilsbraut 11.
Stjórnin.
Alþýðubandalagið
í Vestmannaeyjum
Vestmannaeyingar
Garðar Sigurðsson alþingismaður verður fram-
vegis með fasta viðtalstíma að Bárustíg 9 (Kreml).
Fyrsti viðtalstíminn verður laugardaginn 28. janú-
ar n.k. kl. 16-19.
Kaffi á könnunni. Garðar.
Alþýðubandalagið í Keflavík
heldur opinn fund um kjaramál þann 28. janúar 1984, kl. 13.30 í húsi
verslunarmannafélagsins.
Frummælendur verða Þröstur Ólafsson, framkvæmdastjóri Dags-
brúnar, Karl Steinar Guðnason varaformaður Verkalýðssambandsins
og Árni Sverrisson verkamaður.
Stjórnin.
Æskulýðsfylking Alþyðubandalagsins
Æskulýðsfylking Húsavík!
Stofnfundur Æskulýðsfylkingar AB á Húsavík verður í litla sal Félags-
heimilisins, sunnudaginn 29. janúar kl. 14.00. Ungir vinstri menn á
Húsavík og nágrenni eru hvattir til að fjölmenna og góðmenna. -
Undirbúningsnefndin.
Réttur Búseta tíl lána
- samkvæmt frumvarpi
Athugasemd vegna leiðara Þjóðviljans
I leiðara Þjóðviljans þann 17.
janúar sl. er félagsmálaráðherra
ásakaður fyrir Ijótan leik sem
hann hafi leikið að undanförnu
með fögrum loforðum varðandi
húsnæðismál en engum efndum.
Ekki eru slíkar athafnir með
öllu óþekktar hjá ráðherrum og
virðist þar hver læra af öðrum.
Það hvílir ekki þungt á mér að
bera í bætifláka fyrir ráðherra, en
ekki get ég látið hjá líða að
leiðrétta alvarlegan misskilning
sem leiðarahöfundur Þjóðviljans
leggur útfrá varðandi húsnæðis-
samvinnufélög og mögulegar lán-
veitingar til þeirra.
Orðrétt segir í leiðaranum:
„Þá hefur ráðherrann lofað
áhugafólki um húsnæðissam--
vinnufélög stórfelldum lána-
hækkunum frá því sem verið hef-
ur. Ráðherrann lofaði þessu fólki
lögum fyrir áramót. Hann lagði
að vísu fram frumvarp fyrir ára-
mót. í því er hinsvegar ekki gert
ráð fyrir fjármagni til húsnæðis-
samvinnufélaganna á þessu ný-
byrjaða ári. Þúsundir manna hafa
gengið í húsnæðissamvinnufélög-
in og það ekki síst vegna loforða
ráðherranna. Þetta fólk hefur
verið svikið."
Fyrst smáleiðrétting á orða-
fari; „áhugafólk um húsnæðis-
samvinnufélög“, ætti réttilega að
nefnast: Húsnæðissamvinnufé-
lagið Búseti. Þannig er félagið
formlega skráð og í þessu félagi
er nú hátt á þriðja þúsund manns.
Rétt er því að ræða um Búseta, en
ekki eitthvert óskilgreint „áhuga-
fólk“. Fleiri eru húsnæðissam-
vinnufélögin ekki ennþá.
Hvað segir
frumvarpið?
Skömmu fyrir jól lagði félags-
málaráðherra fram frumvarp til
laga um Húsnæðisstofnun ríkis-
ins. Þar er gert ráð fyrir lán-
veitingum til húsnæðissamvinnu-
félaga leigjenda, á sama hátt og
gert var ráð fyrir í frumvarpi sem
fyrrum félagsmálaráðherra,
Svavar Gestsson, lét undirbúa á
árinu 1982.
í 33. grein frumvarpsins, c) lið,
er gert ráð fyrir lánveitingum úr
Byggingarsjóði verkamanna til
leiguíbúða, „sem byggðar eru
eða keyptar af sveitarfélögum,
stofnunum á þeirra vegum og/eða
ríkisins eða af félagssam-
tökum...“
í athugasemdum með frum-
varpinu segir um þessa grein:
„Þegar rætt er um félags-
samtök og stofnanir sem fram-
kvæmdaaðila við byggingu leiguí-
búða eru hafðar í huga sjálfseign-
arstofnanir svo sem Félagsstofn-
un stúdenta og aðrar sambæri-
legar stofnanir, samtök
leigjenda, verkalýðsfélög og
fleiri hagsmunaaðilar sem mynd-
að gætu samtök til þess að byggja
leiguíbúðir til afnota fyrir félags-
menn eða til leigu á almennum
markaði".
Mistúlkunin
Ekki fer á milli mála að hús-
næðissamvinnufélagið Búseti er
fullgildur framkvæmdgaðili skv.
því sem að ofan greinir. Enda
hefur sá skilningur ætíð ríkt hjá
félagsmálaráðherra í viðræðum
sem fulltrúar Búseta hafa átt við
hann.
Mistúlkunin sem Þjóðviljinn
byggir á er hinsvegar tilkomin
vegna orða ráðherrans, sem féllu
á fundi SUF um húsnæðismál
þann 13. janúar sl. Þar voru orð
ráðherra túlkuð á þann veg, að
Búseti væri utan kerfis félagslegra
íbúða. .
Þeirri mistúlkun var slegið upp
í fréttatíma útvarps að kvöldi
sama dags og hefur reynst erfitt
að kveða drauginn niður, einsog
leiðari Þjóðviljans ber með sér.
Annmarkar
frumvarpsins
Hitt er annað mál, að í títt
nefnt frumvarp vantar ákvæði
sem skapa búseturéttarfyrir-
komulaginu ákveðinn sess innan
húsnæðiskerfisins, bæði til þess að
ákvarða réttarstöðu þess og eins
til að hindra hugsanlega misnotk-
un. Slíkum kafla verður að sjálf-
sögðu að bæta inní frumvarpið.
Birna Þórðardóttir: Málið snýst
um að tryggja búseturéttarfyr-
irkomulaginu ákveðinn sess, og
stórauka fjármagn til félagslegra
íbúðabygginga.
Eins er fráleitt að frumvarpið
skuli gera ráð fyrir niðurskurði
fjármagns til félagslegra íbúða-
bygginga, þegar fyrirsjáanleg er
mikil aukning á framkvæmdaað-
ilum í þeim hópi og því þörf fyrir
stóraukið fjármagn frá því sem
verið hefur. Þar verður að knýja
fram breytingu og raunar víðar.
Sérstaklega ber að nefna láns-
hlutfall til verkamannabústaða
(og leiguíbúða) sem ætlunin er að
lækka; vaxtakjör sem ríkisstjórn
er ætlað að ákveða hverju sinni;
lánstíma sem miða ætti við fyrn-
ingartíma íbúða - að ógleymdum
þurfalingsstimplinum sem sífellt
er reynt að klína á allt húsnæði
sem íbúar hafa ekki fógetastimpl-
að afsal upp á.
Málið snýst um að fylkja liði til
að fá þessum atriðum breytt í
fyrirliggjandi frumvarpi.
23. janúar 1984
Birna Þórðardóttir
Birna Þórðardóttir er í stjórn
Húsnæðissamvinnufélagsins Bú-
seta.
Brosum
að basli
borgarbúa
- sagði Vigfús Þ. Guð-
mundsson Víkurbúi
„Brosum stundum þegar við
heyrum borgarbúa kvarta undan
snjóþyngslum. Við sjáum sjón-
varpsmyndir af öllum þessum snjó
og finnst ekki mikið til koma, en við
skiljum vel að ekki þarf nema einn
bíl sem festir sig til að umferð
stöðvist.
Hér hefur ekki verið ófærð en
leiðindaveður og leiðindafærð. Við
látum okkur ekki bregða við einn
og einn snjóskafl og allir eiga keðj-
ur“, sagði Vigfús Þ. Guðmundsson
Vík í Mýrdal við Þjóðviljann í gær.
Vigfús sagði að gamalt hótel væri
á staðnum og þar gistir einn og einn
ferðalangur yfir vetrartímann. Þeir
sem verða veðurtepptir í Vík geta
fengið sér mat í Víkurskálanum og
gistingu á hótelinu.
Vigfús sagði að fólk á staðnum atvinnuleysi væri á staðnum þrátt
kvartaði undan peningaleysi og fyrir nægilega vinnu á yfirborðinu.
dýrtíð og hann taldi að dulbúið -jp.