Þjóðviljinn - 02.02.1984, Side 3
Fimmtudagur 2. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Áhrif kvótakerfisins koma víða fram
Laumað framhjá vigt!
Flutningur á ferskfiski framhjá vigt
við löndun hefur verið stundaður að
undanförnu í allnokkrum mæli víða í
verstöðvum á iandinu, einkum á
Suðurnesjum samkvæmt upplýsingum
sem Þjóðviljinn telur mjög áreiðan-
legar.
Einn heimildarmanna blaðsins sagði að
fyrst hefði farið að bera alvarlega á þessum
„fiskstuld" á síðustu síldarvertíð og hefði
kvótafyrirkomulag við veiðarnar haft þar
mest um að segja. Allt aðrar tölur voru
gefnar upp á löndunarskýrslum en raun-
verulegt magn við löndun.
Nokkuð hefði borið á þessu á rækjuver-
tíðinni og nú væri farið að stunda slíkar
framhjávigtanir í stórum mæli við þorsk-
landanir. Væri Ijóst að ef aflakvóti yrði sett-
ur á hvern togara og bát á komandi vertíð
yrði lítið að marka þær tölur sem gefnar
væru upp á löndunarskýrslum.
„Fiskstuldurin,n“ fer þannig fram að við
löndun á bátafiski er farið með bílfarma
framhjá vigtum og við togaralöndun er gef-
in upp lægri kassatala en í raun er, þegar
reiknað er út aflamagn, og rangt upp gefið
um þorskmagn í heildarafla. Einnig hefur
verið nefnt að umtalsverðu magni af fersk-
fiski sé smyglað framhjá vigtum og skýrsl-
um og flutt til útlanda í gámum með flugi.
Þessi mál bar m.a. á góma á fundi Hall-
dórs Ásgrímssonar sjávarútvegsráðherra
með útvegsmönnum á Suðurnesjum á dög-
unum. Var þeirri fyrirspurn beint til ráð-
herra hvort kvótakerfið myndi ekki skapa
hættu á slíku misferli með afla, sem hér
hefur verið lýst, og að þriðj a flokks fisk yrði
ekki komið með að landi.
Svaraði ráðherra því til að rnenn yrðu að
vera ábyrgir gerða sinna en fékk það svar til
baka að menn gætu ekki verið ábyrgir fyrir
því sem þeir fengju ekki að ráða sjálfir.
- <g-
Halldór
Ásgrímsson
sjávarútvegs-
ráðherra
Hættan
aukist
- Hættan hefur aukist á slíku
misferli, sagði Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráðherra aðspurður
um hættu á því að ekki yrðu gefnar
upp réttar aflatölur við löndun eftir
að kvótakerfi væri komið á, eins og
surnir útvegsmenn hafa óbeint gefið
í skyn.
Halldór sagði að menn hefðu
nefnt að óvíst væri hvort skemmd-
ur og gallaður fiskur kæmi að landi.
Það væru viðurlög við því að brjóta
reglur og hert viðurlög hefðu sýnt
að verulega drægi úr misferli sam-
anber landhelgisbrot sem voru tíð
hér fyrrum.
- Hættan er ávallt fyrir hendi en
það verður haft eftirlit með þessum
málum sem áður og að sjálfsögðu
beitt meira aðhaldi og fylgst betur
með vegna þeirra aðstæðna sem
við búum við.
Sjávarútvegsráðherra sagði að
yrðu menn uppvísir að misferli við
löndun gæti það þýtt missi veiði-
leyfa og slíkt mál snerti ekki ein-
ungis útgerð viðkomandi heldur
alla þá sem hefðu atvinnu af verk-
un og vinnslu aflans. Menn yrðu
því að átta sig á hver ábyrgð þeirra
væri í þessum efnum.
-Ig-
Bílainnflutningur
Dróst
saman
Innflutningur bifreiða dróst
gífurlega saman á síðasta ári miðað
við árið á undan og voru fluttir inn
4.620 færri bílar á árinu 1983 en á
árinu 1982.
Söluhæsta bifreiðin á síðasta ári
var Subaru og seldust 283 bifreið-
ar. í 2. sæti kom Daihatsu Char-
ade, 249 bílar, og í 3. sæti kom enn
ein japönsk bifreið, Mazda 626,
222 bílar.
Samtals voru fluttar inn 10.480
bílar árið 1982 en á síðasta ári nam
innflutningurinn aðeins 5.860 bíl-
um.
- v.
Hin tvítuga Pia Cramling frá Svíþjóðleiðirennmótið. Ljósm.:-eik.
Pia er enn í efsta sæti
Fimmta umferð Búnaðarbank-
amótsins var tefld í gær og lauk
flestum skákanna með jafntefli. Pia
Cramling, sænska skákstjarnan, er
enn ein í efsta sæti og hefur nú 3'/2
vinning en fimm karlmenn fylgja
fast í kjölfar hennar.
Úrslit einstakra skáka í gær voru
þau að de Firmian vann Jón Krist-
insson, Helgi Olafsson gerði jafn-
tefli við Margeir Pétursson og
sömuleiðis Pia og Sævar Bjarna-
son, og Jón Hjartarson og Knese-
viv. Alburt og Guðmundur Sigur-
jónsson eiga jafnteflislega biðskák
en Jón L. Árnason og Shamkovich
eiga tvísýna biðskák. Jón hefur
skiptamun yfir en Shamkovich á
góð færi.
Eins og áður sagði er Pia Cram-
ling efst með 3‘/2 vinning en næstir
henni koma þeir Knesevic, Helgi,
de Firmian og Jóhann Hjartarson
með 3 vinninga. De Firmian á auk
þess eina biðskák við Margeir Pét-
ursson en hún er svo gott sem
töpuð og ef svo fer kemst Margeir
upp í þennan flokk.
Staðan að öðru leyti í mótinu er
sú að í 6.-8. sæti eru Margeir,
Shamkovich og Guðmundur með 2
vinninga og eina biðskák hver. í 9.
sæti er Sævar með IV2 vinning og
biðskák, í 10. sæti Alburt með 1
vinning og tvær biðskákir, í 11.
sæti. Jón L. Árnason með V2 vinn-
ing og tvær biðskákir og lestina
rekur Jón Kristinsson með '/?> vinn
•ngog biðskák. - GFr.
Birtir - nýtt blað á markaðnum
vinstrisinna
Æskulýðsfylking Alþýðu-
bandalagsins hefur gefið út glæsi-
legt blað sem hefur hlotið nafnið
Birtir og er ætlað að vcra almennt
tíðindablað ungra vinstrisinna,
eins og scgir í haus þess. Að sögn
Ólafs Ólafssonar, eins af for-
svarsmönnum blaðsins, stefnir
útgáfuhópurinn að því að blaðið
komi út 4-5 sinnunt á ári og er
næsta blað fyrirhugað í mars.
Birtir er prentaður í 5000 cin-
tökum og dreift í framhaldsskóla.
„Viðtökurnar við þessu fyrsta
tölubiaði Birtis lofa góðu þvt
ásóknin íframhaldsskólunum hér
í Reykjavík var siík að við sjáum
okkur því miður ekki fært að
senda blaðið til ungs fólks út á
landi en með næsta blaði verður
gerð bragarbót og þaö prentað í
stærra upplagi“, sagði Ólafur í
samtali við Þjóðviljann.
Þessi fyrsti Birtir er 16 síður að
stærð í dagblaðsbroti. Efni þess
er fjölþætt og má nefna greinar
■öÁÍfTD)ú]Tu;jfT5)
um hungur í heiminum, hvað
leynist í heiðinni, New York,
punkta úr sögu íslensks terror-
isma, heimsmynd Ronalds Reag-
ans, Che Guevara, atómstríð,
klám og margt fleira.
í ieiðara Birtis scgir rn.a. þetta:
„Stjórnin er að leggja í rúst það
velferðarþjóðfélag sem hefur
verið byggt upp á fslandi á síð-
ustu áratugum. En hvað skal
gera? Albert getur farið til
Frakklands með hundinn sinn,
hann hefur aldrei neitað því að
eiga þar peninga á leynilegum
bankareikningum, þótt tslensk
lög banni slíkt. En hvert eiga aðr-
ir að flýja, við sem ekki eigum
dollara í Sviss eða Frakklandi?
Hvert á atvinnuleysinginn að
flýja? Auðvitað á ekki að flýja
neitt. Við skulum sjá til þess að
Albert og hans líkar flýi sjálfir
með skottið á milli fótanna. Við
segjum: þaðerekkisamahvernig
ríkisstjórn er í landinu og það á
að berjast gegn siæmum stjórn-
unt. Burt með stjórnina".
- v.