Þjóðviljinn - 02.02.1984, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 02.02.1984, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINNFimmtudagur 2. febrúar 1984 ALÞYÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandaiagið Hafnarfirði Bæjarmalarað Fundur í vinnuhópi um félags- og heilbrigöismál veröur haldinn í Skálanum (Strandgötu 41) fimmtudaginn 2. febrúar kl. 20.30. Mætiö vel og stundvíslega. Stjórn Bæjarmálaráðs. Alþýðubandalag Selfoss og nágrennis Næstkomandi laugardag 4. febrúar kl. 15.00 mun Garðar Sigurðsson hafa framsögu um stjórnmálaviöhorf líðandi stundar aö Kirkjuvegi 7, Selfossi. Viötalstími þingmannsins hefst aö veitingum innbyrtum. Stjórnin Svavar Guðmundur Haraldur Verkalýðsmálaráð Alþýðubandalagsins Aðalfundur 4. febrúar Aðalfundur Verkalýðsmálaráðs Alþýðubandalagsins verður haldinn um næstu helgi, laugardaginn 4. febrúar, í flokksmiðstöðinni að Hverfisgötu 105. Hefst fundurinn kl. 13.30. Auk venjulegra aðalfundarstarfa munu þeir Guðmund- ur J. Guðmundsson formaður Verkamannasambandsins og Haraldur Steinþórsson varaformaður BSRB hafa fram- sögu um stöðuna í kjaramálunum og formaður flokksins, Svavar Gestsson, mun hafa framsöguerindi um efnið: Verkalýðshreyfingin, fagleg og pólitísk. Félagar í Verkalýðsmálaráði Alþýðubandalagsins og all- ir stuðningsmenn flokksins eru hvattir til að fjölmenna. Verkalýðsmálaráð Minning Anna Loftsdóttir F. 21. júlí 1911 - D. 14. janúar 1984 Anna Jórunn Loftsdóttir hjúkr- unarkona var kvödd hinstu kveðju fyrra fimmtudag í Fossvogskirkju. Athöfnin var látlaus en innileg og að athöfn lokinni var kistan borin út af systkinum hinnar látnu. Systkinakærleikurinn og sam- heldni þessa fólks leyndi sér ekki. Anna var fædd á Bakka í Austur- Landeyjum í Rangárvallasýslu 21. júlí 1911 og var dóttir hjónanna Lofts Þórðarsonar bónda og Krist- ínar Sigurðardóttur Ijósmóður. Hún ólst upp í föðurhúsum og voru þau systkinin átta. Ekki var Anna langskólagengin, frekar en margar kynsystur hennar frá þeirri tíð, en frá traustu og merku æskuheimili fékk hún veganesti sem reyndist henni drjúgt. Anna hóf hjúkrunarnám 1934 en veiktist á námstímanum og lauk því ekki námi fyrr en 1939. Þá heldur hún þegar í stað utan til frekara náms. Nemur geðhjúkrun í Dan- mörku og röntgenfræði í Svíþjóð og vinnur erlendis öll stríðsárin. Heim til íslands kemur hún aftur að stríðinu loknu 1945 og vinnur lengst af á röntgendeild Landspít- alans, utan ársins 1948-1949, en þá dvelst hún í Árósum og tekur fyrir nám í kennsluhjúkrun og spítala- stjórn. Yfirhjúkrunarkona Hvíta- bandsins er hún frá 1955-1957. Hún vinnur aftur á Landspítalan- um eftir að hún fer frá Hvítaband- inu og á árunum 1961-1964 er hún á skurðstofu Landspítalans og bætir við sig skurðstofunámi. En 1964 söðlar hún alveg um og fer til vinnu á Vífilsstaðaspítala og er deildar- stjóri þar til 1978 að hún lætur af störfum. Það er á engan hallað þó að því sé haldið fram að fáir í íslenskri hjúkrunarstétt hafi lagt á sig eins mikið til að öðlast jafn víðtæka starfsreynslu og hjúkrunar- menntun og Anna, hún var hjúkr- unarkona af lífi og sál, gaf sig alla í starfið, sparaði ekki kraftana. Mér er kunnugt um að þeir voru margir, sem hún hafði stutt í erfiðu veikindastríði, hjúkrað og styrkt með ráðum og dáð, bæði hér heima Bragi Þór Gíslason listmálari F. 20. apríl 1944 D. 22.jan. 1984 Myndharpan er brostin. Myndskáldið hefur kvatt. Málverkin verða ei fleiri. Lokið er einsemd þeirri sem listgyðjan oftsinnis býr leitandi hjarta skáldsins. Því listin var líf hans og draumur ljós hans og myrkur á langvegum ljúfsárra daga. L Þar gat hann seitt fram geislandi fegurð í glitrandi litum. En þreytt var höndin og þrekið brátt smátt við þrautir og heilsuleysi. Þá átti hann bakhjarl sem aldrei brást ástríkt foreldrahús. Karlmennið kvartar ekki kveðst á við sjálfan dauðann brotnar en bognar aldrei. Leiðir nú langþráðan bróður ljúf og fagnandi systir um Ijósveg þeirra liðnu. Ingólfur Jónsson frá Prestbakka. og einnig er hún var á hinum ýmsu sjúkrahúsum í Danmörku og Sví- þjóð. Þeir eru margir, sem vilja þakka henni. Vil ég leyfa mér að nefna slíkt tilfelli. Það var um þetta leyti árs 1956, fyrir 28 árum, er Anna var yfirhjúkrunarkona á Hvítabandinu að hún bað mig að koma til starfa þar. Á sjúkrahúsi Hvítabandsins var einvalalið hjúkrunarkvenna og .lækna og Anna í forsæti. Það var í senn lær- dómsríkt og ógleymanlegt að vinna með þessu fólki og læra af því. Anna var vakin og sofin yfir velferð sjúklinga og starfsfólks. Hún bjó í húsinu og það var ómetanlegt að geta leitað til hennar og fá aðstoð og ráð, en það taldi hún sjálfsagt hvort heldur var að degi eða nóttu. Þessi vetur var viðburðaríkur og einmitt þá kom hún nafna hennar litla Anna Guðmundsdóttir inn til okkar illa haldin eftir bruna. Ég vakti yfir litlu Önnu ásamt Önnu og varð vitni að svo frábæru hjúkr- unarstarfi og hæfileikum Önnu Loftsdóttur aö ekki líður mér úr minni. Þá gleymist mér heldur ekki gleði Önnu Loftsdóttur né stolt, þegar hlutirnir fóru að snúast á betri veginn og sú stutta að taka við sér. Anna Loftsdóttir var án nokk- urs efa bjargvættur litlu stúlkunn- ar, enda tengdust þær órofa bönd- um. Anna vann mikið að félagsmál- um stéttarinnar og það var einnig lærdómsríkt að starfa með henni á því sviði og fyrir það vil ég þakka henni. Við vorum að vísu ekki alltaf sammála, en hún var svo heilsteypt og hreinskilin að ég hef fáa hennar líka fyrirhitt. Anna var í stjórnH.F.Í. 1950-1954 ogformað- ur 1961-1965 en þá reis hæst þáttur hennar í félagsmálum. Það er krefjandi starf að vera formaður í stéttarfélagi og það var ekki síst á þeim árum, þegar aðstaðan var engin og þú sinntir fullu starfi sam- tímis. Það þýddi einfaldlega það, að þú vannst allt í sjálfboðaliðs- vinnu, kauplaust og stundum fékkstu ekkert nema vanþakklæti. Það var oft erfitt eða jafnvel ómögulegt að fá skipt á vöktum til að mæta á þýðingarmiklum fund- um, enda aðrir tímar en nú. Þá var áreiðanlega efst á blaði: Þú ert til fyrir félagið en ekki félagið fyrir þig. í stjórnartíð Önnu keypti Hjúkrunarfélag íslands efstu hæð- ina í Þingholtsstræti 30 og fluttist þangað. Eg leyfi mér að halda því fram að daginn sem við gengum frá kaupunum, frú Sigríður Eiríks- dóttir, Anna Loftsdóttir og undir- rituð, hafi verið stigið eitthvert merkasta sporið í sögu Hjúkrun- arfélags íslands. Fyrsti stjórnar- fundurinn í eigin húsnæði var ó- gleymanlegur og að vera komin með eigið símanúmer var merkur áfangi. Anna var umdeildur formaður og það vissi hún vel. Hún tók á- kvarðanir samkvæmt viti og sam- visku og stóð og féll með þeim. Árum saman var hún fulltrúi í S.S.N. (Samvinnu hjúkrunarfræð- inga á Norðurlöndum). Þá var hún fulltrúi félagsins í B.S.R.B. og vann þar sem annars staðar ötul- lega fyrir stéttina að framgangi hinna ýmsu mála. Anna vakti alls staðar athygli, ekki síst er við sótt- um fundi og mót stéttarfélaga okk- ar á Norðurlöndum. Og nú er ævisól hennar hnigin til viðar. Veikindum sínum tók hún með æðruleysi og stillingu. Enginn má sköpum renna. Við, sem unn- um með henni og nutum samfylgd- ar hennar, þökkum henni sam- starfið og þaö sem hún var íslenskri hjúkrunarstétt. Sé ég veg og vörður vísa upp í móti. Styrk þarf til að standa stikla á eggjagrjóti. Uppi ú blúu bergi blikar óskalindin. Blessun bíður þeirra sem brjótast upp ú tindinn. (D.S.) Hvíl í friði. Ingibjörg Ólafsdóttir. Minning Halldór S. Backman F. 30.1.1922 - D. 20.1.1984. Nú barst þeim í heimkynnum friðarins góður liðsauki. Halldór Backman kominn í þeirra hóp, um leið og stórt skarð er hoggið í flokk okkar sem eftir erum. En það góða er, að mér og fleirunt tókst að læra heilmikið á meðan hann staldraði við. Ekki bara þær mörgu snjöllu úrlausnir, sem ómetanlegt er að kunna við handverk, heldur svo ó- talmargt sem kemur manni til góða í lífinu almennt. Bjartsýni, hjálp- semi, þrautseigja og lífsgleði eru lyndiseinkunnir sem Halli var gæddur í ríkum mæli, þannig að engar áhyggjur þurfti að hafa, ef hann var í kallfæri. Aldrei á mínum fjölbreytta starfsferli hef ég hlakkað meira til kaffi- og matartíma en á meðan ég vann með Halla. Eitthvert undra- vert lag sem hann hafði til að skapa fjörugar samræður, þannig að menn vissu aldrei hvað þeir höfðu sett margar skeiðar í bollann, og tóku ekki eftir neinu, þótt þeir drykkju hann til botns hálfan af sykri. Klukkutíminn leið í einum munnbita og vandamál lands- manna voru svo til Ievst. Upphaflega ætlaði ég í hálfs árs byggingavinnu, sem urðu á endan- um að sex árum, og skrifa ég þau alfarið á reikning Halla. Lærlingur. Blaðberar óskast strax Stórholt - Skipholt Skerjafjöröur DWÐMHNN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.