Þjóðviljinn - 02.02.1984, Qupperneq 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINNFimmtudagur 2. febrúar 1984
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandaiagið Hafnarfirði
Bæjarmalarað
Fundur í vinnuhópi um félags- og heilbrigöismál veröur haldinn í
Skálanum (Strandgötu 41) fimmtudaginn 2. febrúar kl. 20.30.
Mætiö vel og stundvíslega.
Stjórn Bæjarmálaráðs.
Alþýðubandalag Selfoss og nágrennis
Næstkomandi laugardag 4. febrúar kl. 15.00 mun Garðar Sigurðsson
hafa framsögu um stjórnmálaviöhorf líðandi stundar aö Kirkjuvegi 7,
Selfossi.
Viötalstími þingmannsins hefst aö veitingum innbyrtum.
Stjórnin
Svavar
Guðmundur
Haraldur
Verkalýðsmálaráð Alþýðubandalagsins
Aðalfundur
4. febrúar
Aðalfundur Verkalýðsmálaráðs Alþýðubandalagsins
verður haldinn um næstu helgi, laugardaginn 4. febrúar, í
flokksmiðstöðinni að Hverfisgötu 105. Hefst fundurinn kl.
13.30.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa munu þeir Guðmund-
ur J. Guðmundsson formaður Verkamannasambandsins
og Haraldur Steinþórsson varaformaður BSRB hafa fram-
sögu um stöðuna í kjaramálunum og formaður flokksins,
Svavar Gestsson, mun hafa framsöguerindi um efnið:
Verkalýðshreyfingin, fagleg og pólitísk.
Félagar í Verkalýðsmálaráði Alþýðubandalagsins og all-
ir stuðningsmenn flokksins eru hvattir til að fjölmenna.
Verkalýðsmálaráð
Minning
Anna Loftsdóttir
F. 21. júlí 1911 - D. 14. janúar 1984
Anna Jórunn Loftsdóttir hjúkr-
unarkona var kvödd hinstu kveðju
fyrra fimmtudag í Fossvogskirkju.
Athöfnin var látlaus en innileg og
að athöfn lokinni var kistan borin
út af systkinum hinnar látnu.
Systkinakærleikurinn og sam-
heldni þessa fólks leyndi sér ekki.
Anna var fædd á Bakka í Austur-
Landeyjum í Rangárvallasýslu 21.
júlí 1911 og var dóttir hjónanna
Lofts Þórðarsonar bónda og Krist-
ínar Sigurðardóttur Ijósmóður.
Hún ólst upp í föðurhúsum og voru
þau systkinin átta. Ekki var Anna
langskólagengin, frekar en margar
kynsystur hennar frá þeirri tíð, en
frá traustu og merku æskuheimili
fékk hún veganesti sem reyndist
henni drjúgt.
Anna hóf hjúkrunarnám 1934 en
veiktist á námstímanum og lauk því
ekki námi fyrr en 1939. Þá heldur
hún þegar í stað utan til frekara
náms. Nemur geðhjúkrun í Dan-
mörku og röntgenfræði í Svíþjóð
og vinnur erlendis öll stríðsárin.
Heim til íslands kemur hún aftur
að stríðinu loknu 1945 og vinnur
lengst af á röntgendeild Landspít-
alans, utan ársins 1948-1949, en þá
dvelst hún í Árósum og tekur fyrir
nám í kennsluhjúkrun og spítala-
stjórn. Yfirhjúkrunarkona Hvíta-
bandsins er hún frá 1955-1957.
Hún vinnur aftur á Landspítalan-
um eftir að hún fer frá Hvítaband-
inu og á árunum 1961-1964 er hún á
skurðstofu Landspítalans og bætir
við sig skurðstofunámi. En 1964
söðlar hún alveg um og fer til vinnu
á Vífilsstaðaspítala og er deildar-
stjóri þar til 1978 að hún lætur af
störfum.
Það er á engan hallað þó að því
sé haldið fram að fáir í íslenskri
hjúkrunarstétt hafi lagt á sig eins
mikið til að öðlast jafn víðtæka
starfsreynslu og hjúkrunar-
menntun og Anna, hún var hjúkr-
unarkona af lífi og sál, gaf sig alla í
starfið, sparaði ekki kraftana.
Mér er kunnugt um að þeir voru
margir, sem hún hafði stutt í erfiðu
veikindastríði, hjúkrað og styrkt
með ráðum og dáð, bæði hér heima
Bragi Þór
Gíslason
listmálari
F. 20. apríl 1944
D. 22.jan. 1984
Myndharpan er brostin.
Myndskáldið hefur kvatt.
Málverkin verða ei fleiri.
Lokið er einsemd þeirri
sem listgyðjan oftsinnis býr
leitandi hjarta skáldsins.
Því listin var líf hans og draumur
ljós hans og myrkur
á langvegum ljúfsárra daga.
L
Þar gat hann seitt fram
geislandi fegurð
í glitrandi litum.
En þreytt var höndin
og þrekið brátt smátt
við þrautir og heilsuleysi.
Þá átti hann bakhjarl
sem aldrei brást
ástríkt foreldrahús.
Karlmennið kvartar ekki
kveðst á við sjálfan dauðann
brotnar en bognar aldrei.
Leiðir nú langþráðan bróður
ljúf og fagnandi systir
um Ijósveg þeirra liðnu.
Ingólfur Jónsson
frá Prestbakka.
og einnig er hún var á hinum ýmsu
sjúkrahúsum í Danmörku og Sví-
þjóð. Þeir eru margir, sem vilja
þakka henni. Vil ég leyfa mér að
nefna slíkt tilfelli. Það var um þetta
leyti árs 1956, fyrir 28 árum, er
Anna var yfirhjúkrunarkona á
Hvítabandinu að hún bað mig að
koma til starfa þar. Á sjúkrahúsi
Hvítabandsins var einvalalið
hjúkrunarkvenna og .lækna og
Anna í forsæti. Það var í senn lær-
dómsríkt og ógleymanlegt að vinna
með þessu fólki og læra af því.
Anna var vakin og sofin yfir velferð
sjúklinga og starfsfólks. Hún bjó í
húsinu og það var ómetanlegt að
geta leitað til hennar og fá aðstoð
og ráð, en það taldi hún sjálfsagt
hvort heldur var að degi eða nóttu.
Þessi vetur var viðburðaríkur og
einmitt þá kom hún nafna hennar
litla Anna Guðmundsdóttir inn til
okkar illa haldin eftir bruna. Ég
vakti yfir litlu Önnu ásamt Önnu
og varð vitni að svo frábæru hjúkr-
unarstarfi og hæfileikum Önnu
Loftsdóttur aö ekki líður mér úr
minni. Þá gleymist mér heldur ekki
gleði Önnu Loftsdóttur né stolt,
þegar hlutirnir fóru að snúast á
betri veginn og sú stutta að taka við
sér. Anna Loftsdóttir var án nokk-
urs efa bjargvættur litlu stúlkunn-
ar, enda tengdust þær órofa bönd-
um.
Anna vann mikið að félagsmál-
um stéttarinnar og það var einnig
lærdómsríkt að starfa með henni á
því sviði og fyrir það vil ég þakka
henni. Við vorum að vísu ekki
alltaf sammála, en hún var svo
heilsteypt og hreinskilin að ég hef
fáa hennar líka fyrirhitt. Anna var í
stjórnH.F.Í. 1950-1954 ogformað-
ur 1961-1965 en þá reis hæst þáttur
hennar í félagsmálum. Það er
krefjandi starf að vera formaður í
stéttarfélagi og það var ekki síst á
þeim árum, þegar aðstaðan var
engin og þú sinntir fullu starfi sam-
tímis. Það þýddi einfaldlega það,
að þú vannst allt í sjálfboðaliðs-
vinnu, kauplaust og stundum
fékkstu ekkert nema vanþakklæti.
Það var oft erfitt eða jafnvel
ómögulegt að fá skipt á vöktum til
að mæta á þýðingarmiklum fund-
um, enda aðrir tímar en nú. Þá var
áreiðanlega efst á blaði: Þú ert til
fyrir félagið en ekki félagið fyrir
þig. í stjórnartíð Önnu keypti
Hjúkrunarfélag íslands efstu hæð-
ina í Þingholtsstræti 30 og fluttist
þangað. Eg leyfi mér að halda því
fram að daginn sem við gengum frá
kaupunum, frú Sigríður Eiríks-
dóttir, Anna Loftsdóttir og undir-
rituð, hafi verið stigið eitthvert
merkasta sporið í sögu Hjúkrun-
arfélags íslands. Fyrsti stjórnar-
fundurinn í eigin húsnæði var ó-
gleymanlegur og að vera komin
með eigið símanúmer var merkur
áfangi.
Anna var umdeildur formaður
og það vissi hún vel. Hún tók á-
kvarðanir samkvæmt viti og sam-
visku og stóð og féll með þeim.
Árum saman var hún fulltrúi í
S.S.N. (Samvinnu hjúkrunarfræð-
inga á Norðurlöndum). Þá var hún
fulltrúi félagsins í B.S.R.B. og
vann þar sem annars staðar ötul-
lega fyrir stéttina að framgangi
hinna ýmsu mála. Anna vakti alls
staðar athygli, ekki síst er við sótt-
um fundi og mót stéttarfélaga okk-
ar á Norðurlöndum.
Og nú er ævisól hennar hnigin til
viðar. Veikindum sínum tók hún
með æðruleysi og stillingu. Enginn
má sköpum renna. Við, sem unn-
um með henni og nutum samfylgd-
ar hennar, þökkum henni sam-
starfið og þaö sem hún var íslenskri
hjúkrunarstétt.
Sé ég veg og vörður
vísa upp í móti.
Styrk þarf til að standa
stikla á eggjagrjóti.
Uppi ú blúu bergi
blikar óskalindin.
Blessun bíður þeirra
sem brjótast upp ú tindinn.
(D.S.)
Hvíl í friði.
Ingibjörg Ólafsdóttir.
Minning
Halldór S. Backman
F. 30.1.1922 - D. 20.1.1984.
Nú barst þeim í heimkynnum
friðarins góður liðsauki. Halldór
Backman kominn í þeirra hóp, um
leið og stórt skarð er hoggið í flokk
okkar sem eftir erum. En það góða
er, að mér og fleirunt tókst að læra
heilmikið á meðan hann staldraði
við. Ekki bara þær mörgu snjöllu
úrlausnir, sem ómetanlegt er að
kunna við handverk, heldur svo ó-
talmargt sem kemur manni til góða
í lífinu almennt. Bjartsýni, hjálp-
semi, þrautseigja og lífsgleði eru
lyndiseinkunnir sem Halli var
gæddur í ríkum mæli, þannig að
engar áhyggjur þurfti að hafa, ef
hann var í kallfæri.
Aldrei á mínum fjölbreytta
starfsferli hef ég hlakkað meira til
kaffi- og matartíma en á meðan ég
vann með Halla. Eitthvert undra-
vert lag sem hann hafði til að skapa
fjörugar samræður, þannig að
menn vissu aldrei hvað þeir höfðu
sett margar skeiðar í bollann, og
tóku ekki eftir neinu, þótt þeir
drykkju hann til botns hálfan af
sykri. Klukkutíminn leið í einum
munnbita og vandamál lands-
manna voru svo til Ievst.
Upphaflega ætlaði ég í hálfs árs
byggingavinnu, sem urðu á endan-
um að sex árum, og skrifa ég þau
alfarið á reikning Halla.
Lærlingur.
Blaðberar
óskast strax
Stórholt - Skipholt
Skerjafjöröur
DWÐMHNN