Þjóðviljinn - 02.02.1984, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 02.02.1984, Blaðsíða 10
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 2. febrúar 1984 Fasteignaskattar lífeyrisþega: Sjálfkrafa niður fellinghjá þeim tekjulægstu Eins og undanfarin ár mun Framtalsnefnd Reykjavíkurborgar fara yfir skattframtöl allra elii- og örorkulífeyrisþega í horginni og lækka álagða fasteignaskatta og fella þá alveg niður hjá þeim sem engar tekjur hafa utan bóta Trygg- ingarstofnunar. Borgarráð hefur samþykkt eftir- farandi viðmiðunarreglur, sem far- ið verður eftir við lækkunina: 1. Fella skal niður fasteignaskatt hjá þeim elli- og örorkulífeyrisþeg- um sem á árinu 1983 höfðu ekki aðrar tekjur en elli- og örorkulíf- eyri, tekjutryggingu og heimils- uppbót frá Tryggingastofnun, þ.e. 91.020 krónur fyrir einstakling og 133.918 fyrir hjón. 2. 80% lækkun fá þeirsem höfðu á árinu 1983 110 þúsund krónur eða minna hver einstaklingur en 170 þúsund fyrir hjón. 3. 50% lækkun fá þeir einstak- lingar sem höfðu 110-130 þúsund krónur í tekjur 1983 og hjón sem höfðu sameiginlega kr. 170 - 205 þúsund á árinu 1983. Vakin er athygli á því að heimild til lækkunar á fasteignaskatti nær ekki til annarra gjalda á fast- eignagjaldseðlinum en fast- eignaskattsins. Þar sem ákvörðun um niðurfellingu er tekin eftir að skattframtölum hefur verið skilað inn, mega menn ekki búast við til- kynningu um lækkun fasteigna- skatts fyrr en í mars eða apríl. Til að foraðst dráttarvexti verða menn því að greiða a.m.k. fyrstu afborg- un fasteignaskattsins, en þeir fá hana þá eridurgreidda þegar út- reikningi er lokið. Aðalfundur Hjúkrunarfélags íslands: Sjúklingaskatti mótmælt Á aðalfundi Hjúkrunarfélags íslands (Reykjavíkurdeildar) sem haldinn var 26. janúar s.l. voru gerðar tvær samþykktir - í annarri er hugmyndum um sjúklingaskatt eindregið mót- mælt en í hinni er krafa BSRB um 15 þúsund króna lágmarks- laun ítrekuð og kjaraskerðingu ríkisstjórnarinnar mótmælt. Jón Karlsson var kjörinn form- asður en aðrir í stjórn eru: Ragn- heiður Sigurðardóttir, Hrafnhildur Baldursdóttir, Sigurbjörg Ólafs- dóttir, Lilja Steingrímsdóttir. Samþykktir fundarins eru svo- hljóðandi: „Aðalfundur Reykjavíkurdeild- ar Hjúkrunarfélags Islands þann 26. janúar 1984 mótmælir eindreg- ið framkomnum hugmyndum stjórnvalda þess efnis að fólk sem þarf á sjúkrahúsvist að halda verði látið taka á sig að hluta kostnað, sem af þeirri dvöl leiðir. Aðalfundurinn mótmælir harð- lega kjaraskerðingu ríkisstjórnar- innar. Fundurinn lýsir furðu sinni á viðbrögðum ríkisstjórnarinnar við hógværri kröfugerð BSRB í yfir- standandi kjaradeilu. Fundurinn krefst þess að ríkisstjórnin semji nú þegar um fimmtán þúsund króna lágmarkslaun." f STAÐARNEM! Öll hjól eiga að stöðvast algerlega áðuren að stöðvunarlínu V er komið. Framkvæmdastofnun ríkisins Áætlanadeild auglysir: Nýlega kom út ritið: Vinnumarkaðurinn 1982 (mannafli, meðaliaun, atvinnuþátttaka). Jafnframt er enn fáanlegt ritið: íbúðaspá til ársins 1900 Ritin eru tii sölu í afgreiðslu áætlanadeildar og kosta kr. 100 og kr. 50. FRAMKVÆMDASTOFNUN RÍKISINS Áætlanadeild, Rauðarárstíg 25, 105 Reykjavík Vélritun Prentsmiöja Pjóðviljans óskar aö ráöa ábyggilegan starfsmann til vaktavinnu á innskriftarborö. Góö vélritunar- og íslensku- kunnátta nauösynleg. Upplýsingar eru veittar í síma 81333. Atvinnulaust ungt fólk í Kópavogi á námskeiði: Unglingarnir í Kópavogi sem komu saman til að ræða atvinnumál sín og möguleika til starfsmenntunar ásamt umsjónarmanni námskeiðsins Ásdísi Skúladóttur. Ljósm. Sigurjón Jóhannsson. Allir ákveðnir í framhaldsnámi „Ég gafst upp í skóla og hafði þá enga hugmynd um hvað stæði til boða í atvinnu og skóla. Ég var fyrst til sjós en síðan atvinnulaus. Éftir þetta námskeið sé ég að marg- ar leiðir eru til“, sagði Jón Þór Grímsson á fundi í gær. Hann var á námskeiði í Olfusborgum þar sem ungu fólki úr Kópavogi, sem dottið hefur út úr skólakerfinu, var kynntur atvinnumarkaðurinn og menntunarlciðir í skólum landsins, ásamt því sem upplýsingar um fé- lagsleg réttindi voru veittar. Félagsmálastofnun Kópavogs, Skólaskrifstofa Kópavogs og Menningar- og fræðslusamband al- þýðu kóðu að námskeiði þessu. Markmiðið var að uppörva ungt fólk sem dottið hafði út úr skóla- kerfinu og síðan orðið atvinnu- laust. Starfshópur á vegum ofan- Vissu ekki um allar menntunar- leiðir sem bjóðast greindra aðila kannaði fjölda þeirra sem áhuga hafði á þátttöku og reyndist hann mikill. f undirbúningsstarfinu og síðan á námskeiðinu kom skýrt í ljós að margt ungt fólk veit ekki hvert það á að snúa sér varðandi félagsleg réttindi sín, þekkir ekki menntunarleiðir í landinu, þekkir ekki þá aðstoð sem sveitarfélag eða opinberir aðilar geta veitt og ekki hvert skal snúa sér varðandi vinnu og atvinnumál. Námskeiðið var haldið í Ölfus- borgum í síðustu viku. Þangað komu fulltrúar fjölmargra skóla, ásamt því sem Gerður Öskarsdótt- ir námsráðgjafi talaði við hvern og einn þátttakanda um námsleiðir og atvinnumöguleika. Árangur af námskeiðinu var sá að allir hinir 24 þátttakendur eru ákveðnir í að fara eitthvað í nám og sumir eru nú þegar byrjaðir. Það sem kom unga fólkinu mest á óvart var hvað margir skólar eru til á landinu. Svo virðist sem skólanem- ar fái litlar upplýsingar um vinnu- markaðinn meðan á námi þeirra stendur. Einn þátttakandi sagði að á námskeiðinu hefði verið greitt úr stórri flækju og vonleysi í sínu lífi. Annar sagðist nú þegar vera byrj- aður í námi sem hann vissi ekki áður að væri mögulegt og horfði hann bjartari augum til framtíðar- innar. -jp Jóhanna Bogadóttir sýnir á Akureyri Jóhanna Bogadóttir myndlistarmaður opnar á laugardag tveggja daga sýningu á verkum sínum í Iðnskólanum á Akureyri. Sýningin verður aðeins opin á laugardag og sunnudag, kl. 14-22 báða dagana. Á henni eru um 25 myndir, grafík og málverk sem Jóhanna hefur gert á síðustu tveimur árum. Sýningin er sölusýn- ing. Nýr Volvo á markaðinn Volvo-verksmiðjurnar hafa haf- ið framleiðslu á nýrri gerð fjöl- skyldubíla, eins konar millistigi milli hinnar hefðbundnu 240 gerð- ar og 760 gerðar, sem sett var á markað fyrir tveimur árum. Nýi bfllinn heitir Volvo 740 GLE, sparneytinn með fjögurra strokka vél, en rúmgóður og búinn fullkomnustu öryggistækjum. í frétt frá Volvo kemur fram að 10 þúsund bílar af þessari nýju gerð verða framleiddir til vorsins. Mikið er lagt í innréttingu og sæti bifreið- arinnar og má nefna að í bílstjóra- sætinu er sjálfvirkur hitari, sem kviknar á þegar hiti fer niður fyrir 14 gráður og slokknar þegar hitinn er hægt að fá bílinn með Turbo-vél. kemst í 30 gráður. Fjögurra Þá geta menn valið á milli bein- strokka vélin eyðir 7,2 lítrum á skiptraog'sjálfskiptrabílaenbáðar hundraðið á 90 km hraða en einnig gerðir hafa svonefndan yfirgír.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.