Þjóðviljinn - 02.02.1984, Side 11
Fimmtudagur 2. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
Ums|°n:
Vidir Sigurðsson
Enska knattspyman:
Tottenham féll í Norwich!
Enn eitt stórliðið féll útúr ensku
bikarkeppninni í knattspyrnu í
gærkvöldi. Tottenham sótti Norw-
ich heim á Carrow Road í Norwich
og tapaði 2-1 en liðin höfðu gert
jafntefli í London á laugardag. Der-
by sigraði Telford 3-2, Hudd-
ersfield tapaði 1-2 fyrir Notts Co-
unty og WBA sigraði Scunthorpe
1-0. Þá vann Sheff.Wed 3-2 sigur á
Coventry í leik á mánudag og því er
Ijóst um öll sæti nema eitt í 5. um-
ferð, Gillingham og Everton mæt-
ast í þriðja sinn í Gillingham á
mánudag.
Oll mörkin í Norwich komu á
nokkura mínútna kafla kringum
leikhlé. Á lokamínútum fyrri hálf-
leiks skoraði Norwich tvívegis,
fyrst Hollendingurinn Dennis Van
Wyk og síðan hinn gamalkunni
Mick Channon, sem þar með hefur
gert 250 mörk á ferli sínum í ensku
knattspyrnunni.
Norwich heimsækir Derby í 5.
umferð en Derby vann utan-
deildaliðið Telford með þrennu frá
Metþátttaka
í Sarajevo
Ljóst er að alger metþátttaka
verður í vetrarólympíuleikunum
1984 sem hefjast í Sarajevo í Júg-
óslavíu í næstu viku. Keppendur
frá 49 þjóðum mæta til leiks, gamla
metið var sett í Lake Placid hvar 37
þjóðfánar voru að húni dregnir.
Bikar yngri
flokkanna
Þegar dregið var í bikarkeppn-
unum í körfuknattleik í fyrrakvöld
var einnig dregið í bikarkeppnum
2. flokks karla og kvenna og 3.
fiokks karla. Niðurstaðan þar varð
þessi
2. flokkur karla:
Haukur-Keflavík
Valur-Njarövik
2. flokkur kvenna:
ÍR-KR
Keflav./Haukar-Skallagrímur
3. flokkur karla:
Haukar-Grindavík
Keflavík/ÍR-Njarðvik
Iþróttir
í kvöld
Körfubolti
Laugdælir og KR mætast í bikar-
keppni karla í körfuknattleik á Sel-
fossi í kvöld og hefst leikurinn kl.
20. Sigurliðið kemst í 8-liða úrslit
og mætir þar Njarðvík. KR fær
heimaleik með sigri, en vinni
Laugdælir verða þeir að fara til
Njarðvíkur, samkvæmt reglum
bikarkeppninnar.
Blak
Fjórir leikir eru á dagskrá í
kvöld, allir í höfuðborginni. Þrír
fara fram í Hagaskóla. Þróttur og
Víkingur mætast í 1. deild kvenna
kl. 18.30, sömu félög í 1. deild
karla kl. 19.30 og kl. 21.10 eigast
við Fram og HK í 1. deild karla. ÍS
og Þróttur frá Neskaupstað mætast
í bikarkeppni karla í íþróttahúsi
Háskólans og hefst leikurinn kl.
20. Það er fyrsti mótsleikur ÍS í tvo
mánuði, kyndug niðurröðun það,
þar sem Þróttur R. og HK hafa t.d.
mæst þrívegis á því tímabili.
Bobby Davison í gærkvöldi. Stað-
an var þó 1-1 í hálfleik, Davison
kom Derby í 3-1 en utandeildaliðið
minnkaði muninn.
WBA marði sigur á næstneðsta
liði 3. deildar, Scunthorpe. Það var
blökkumaðurinn ungi Noel Luke
sem skoraði eina mark leiksins.
WBA fær annað 3. deildarlið,
Plymouth, í heimsókn í 5. umferð.
Bearzot
breytir litlu
ítalir og Mexíkanar, einu þjóð-
irnar sem komast sjálfkrafa í loka-
keppni HM í knattspyrnu árið
1986, leika landsleik á Ítalíu um
helgina. ítalir völdu 18 manna hóp
í vikunni og í honum eru níu af
heimsmeisturunum frá 1982 og að-
eins tveir nýliðar. Enzo Bearzot
landsliðseinvaldur fer því afar hægt
í breytingar þrátt fyrir hörmulegt
gengi ítala frá því heimsmeistara-
titillinn vannst fyrir hálfu öðru ári.
-VS
Notts County vann Huddersfield 2-
1 úti og leikur í Middlesborough.
Watford afgreitt fyrir
hlé á Anfield Road
Liverpool náði fimm stiga for-
ystu í 1. deildinni í gærkvöldi, vann_
þá Watford 3-0 á Anfield Road í
Liverpool. Öll mörkin komu í fyrri
hálfleik, fyrst skoraði Ian Rush sitt
20. mark í deildinni og 30. á keppn-
istímabilinu, síðan Steve Nicol og
Svíi fær
dópbann
Þekktasti skautahlaupari Svía,
Granad að nafni, var nú í vikunni
dæmdur í 15 mánaða leikbann að
sögn breska útvarpsins. Hann not-
aði ólögleg „steroid" lyf, og ástæð-
una sagi hann sjálfur vera þá að
með því móti hefði hann ætlað að
losria við annars óhjákvæmilégan
uppskurð á fæti.
-VS
loks Ronnie Whelan. Liverpool
hefur51 stigenManchesterUnited
46 og leik færra. í 3. deild vann
Lincoln Brentford 2-0. - VS.
Draugaliði
burtvísað!
Kyndugt mál hefur komið upp í
ungversku knattspyrnunni. Þar í
landi gilda þær reglur að félög geta
ekki sent lið í deildakeppni nema
að starfrækja einnig unglingalið.
Knattspyrnusambandið ungverska
fór að gruna ýmislegt þegar ung-
lingaliö Neg lauk heilu keppnis-
tímabili þannig að það tapaði 0-3.
Við rannsókn kom í Ijós að ung-
lingaliöið hafði aðeins verið til á
pappírunum, var búið til svo að
aðallið Neg gæti tekið þátt í deilda-
keppninni. Knattspyrnusamband-
ið meðhöndlaði málið á húmorísk-
an hátt, vísaði „draugaliðinu" úr
keppni á formlegan máta!
- VS.
Fyrirtækjakeppm í badminton
Sólargluggatjöld sf sigruöu í fyrirtækjakeppni
Badmintonsambands sem fram fór í TBR-húsinu
við Gnoðarvog í Reykjavík sl. sunnudag. Vildís K.
Guðmundsdóttir og Sigfús Ægir Árnason kepptu
fyrir fyrirtækið. í úrslitaleik unnu þau Friðleif Stef-
ánsson og Víði Bragason 15:5 og 15:6 en þeir
spiluðu fyrir Friðleif Stefánsson tannlækni.
(„heiðursflokki", en hann skipuöu þau lið sem
töpuðu fyrsta leik sínum, sigraði Hans Petersen
hf. B-lið Aburðarverksmiðjunnar 15:8 og 15:1. Elín
Agnarsdóttur og Ari Edwald kepptu fyrir Hans en
Gunnar Ólafsson og Steinþór Árnason fyrir
Áburðarverksmiðjuna.
Á myndinni að ofan eru frá vinstri Vildís, Sigfús
Ægir, Víðir og Friðleifur, en á þeirri neðri Ari, Elín,
Steinþór og Gunnar.
Gary Gilliespie, einn af fjötmörgum
hjátrúarfullum í ensku knattspyrnunni.
Enskir
molar
Hér kemur framhald á mulunum úr
ensku knattspyrnunni sem áhugamaður
sendi okkur:
Preston-leikmaðurinn Andy McAtc-
er var bókaður á þriðju sekúndu leiks
gegn Fulham í 3. deild. Ástæðan var
fólskulegt brot!
Keppnistímabilið I924-25 var fyrsta
ár Southampton í 2. deild. Liðið varð í
11. sæti af 22, hlaut 42 stig úr 42
leikjum, vann 14 leiki, gerði 14 jafntefli
og tapaði 14 leikjum. skoraði 40 mörk
og fékk á sig 40. Ólíklegt er að þetta
met vcrði slegið.
Þann 26. scptember 1981 gerðist það
í fyrsta og eina skiptið að ahorfenda-
fjöldi var mciri á leik í 4. deild en á leik í
1. deild sama dag. Þá sáu 11.687 leik
Sheff. Utd og Scunthorpe í 4. deild en
aðeins 11.594 leik Wolvcs og Notts Co-
unty í 1. deild.
Denis Smith. lyrrum leikmaður
Stoke og núverandi framkvæmdastjóri
York City, á meiðslametið í ensku
knattspyrnunni. Hann hefur fótbrotn-
að 5 sinnum (þrisvar á hægri fæti og
tvisvar á vinstri), snúið sig illa nokkrum
sinnum á ökkla, tvær tær brotnað,
sömuleiðis annar handleggurinn og nef-
iö þrívegis. Þrátt fyrir allar þær fjarvist-
irsem þetta hefur haft í för með sér, lék
Smith hátt í fimmhundruð leiki með
Stoke á ferli sínum sem er nýlokið.
Hjátrúin á sér engin takmörk og eru
knattspyrnumcnn ekki síður hjátrúa-
fullir en margar aðrar stéttir. Hjá mörg-
um eru síðustu klukkustundirnar fyrir
leik alltaf eins skipulagðar. Gary Gill-
espie hjá Liverpool heldur aldrei á
bolta útá völl til upphitunar. Trevor
Brooking er alltaf síðastur í röð leik-
manna West Ham inná völlinn. Mark
Higgins, Everton, fer alltaf í vinstra fót-
boltaskóinn á undan þeim hægri. Mark
Waltcrs, Aston Villa, leikur ávallt í út-
hvcrfum sokkunum og félagi Itans,
Dcnnis Mortimcr, leikur alltaf með
giftingarhring konu sinnar á fingri.
Sundmót
Ægis
Sundmót Ægis verður haldið í
Sundhöll Reykjavíkur sunnudginn
5. febrúar kl. 15. Þátttökutilkynn-
ingar berist fyrir 4. febrúar til
Kristins Kolbeinssonar, Grana-
skjóli 17 Reykjavík, sími 10963.
Þátttökugjald er kr. 30 fyrir hverja
einstaklingsgrein og kr. 60 fyrir
boðsund.
Keppt verður í eftirtöldum
greinum: 400 m skriðsund karla,
200 m baksund kvenna, 100 m
bringusund karla, 100 m bringu-
sund kvenna, 100 m flugsund
karla, 200 m flugsund kvenna, 100
m skriðsund karla, 200 m fjórsund
kvenna, 4x100 m skriðsund karla
og 4x100 m skriðsund kvenna.