Þjóðviljinn - 02.02.1984, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 02.02.1984, Qupperneq 16
DJOÐVIUINN Fimmtudagur 2. febrúar 1984 A&alsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt aö ná í blaðamenn og aöra starfsmenn blaösins í þessum símum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt aö ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími Kvöldsími Helgarsími 81333 81348 81663 Ríkisstjórnin óskar eftir heimild til að selja Siglósíld Kaupendur hafa ráðið kaupverðinu sjálfir Ragnar Arnalds og Hannes Baldvinsson mótmœla fáránlegum söluáformum Ragnar Arnalds alþingismaður og Hann- es Baldvinsson stjórnarformaður Siglósíld- ar hafa í bréfí til iðnaðarráðherra mótmælt sölu fyrirtækisins til einkaaðila, og nefna til Qórar ástæður sem hvcr um sig sé næg rök- semd til þess að hafna frumvarpi um sölu Siglósíldar. Meðal annars telja þeir að kaupendur hafi fengið að ráða kaupverðinu sjálfir. í gær var lagt fram á Alþingi fyrsta frum- varpið um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að selja ríkisfyrirtæki. Það er lagmetis- iðjan Siglósíld, sem á að selja til hlutafé- lagsins Sigló, sem er í eigu einstaklinga á Siglufirði, ísafirði og Kópavogi. Ragnar Arnalds sagði í samtali í gær að ástæðurnar sem þeir Hannes teldu mæla gegn sölunni væru þær að ekkert ræki á eftir því að Siglósíld væri rifin út úr samrekstri við Þormóð ramma, engin skuldbinding tii áframhaldandi reksturs í bænum fælist í kaupsamningi við hina nýju aðila, kaupverð fyrirtækisins væri í engu samræmi við verðmæti eignanna og vinnubrögð við undirbúning sölunnar hefðu verið fyrir neð- an allar hellur. „Ég vísa til bréfsins um frekari efnisat- riði, en svo eitt atriði sé tekið út úr þá er ljóst, að kaupverð fyrirtækisins er í engu samræmi við verðmæti eignanna. Menn, sem fjölluðu um verðmæti eigna fyrirtækis- ins nú í haust, töldu að lágmarksverð þeirra væri 24 milljónir króna en umsamið verð er 18 milljónir króna. Útborgun er engin, þótt núverandi fjármálaráðherra hafi í haust sett það skilyrði, að amk. fimmti hluti kaupverðs yrði almennt greiddur út við sölu ríkisfyrirtækja. Kaupendur setja aðeins 25% tryggingu fyrir greiðslu en að öðru leyti er veð tekið í því sem þeir kaupa. Ljóst er því að kaupendur hætta litlu öðru en hlutafé. Hitt er vitað, eftir reynsluna frá í sumar, þegar rækjuvinnslan stóð sem hæst og fyrir- tækið velti um 10 millj. króna á hverjum mánuði, að Siglósíld getur skilað miklum hagnaði á skömmum tíma, ef vel gengur. Fáum er þetta betur ljóst en einmitt fram- kvæmdastjóra Þormóðs ramma, Sæmundi Árelíussyni eða vélstjóra Siglósíldar, Guðmundi Skarphéðinssyni, svo og spari- sjóðsstjóranum Birni Jónassyni, sem gjör- þekkir fjármál Siglósíldar, en þessir þrír menn hafa lagt fram 40% hlutafjár. Okkur Hannesi, sem höfum átt náið samstarf til' styrktar og stuðnings þessum mikilvæga at- vinnurekstri í bænum allt frá upphafi, þykir það einkennileg meðferð á sameiginlegum fjármunum landsmanna að selja fyrirtæki, sem búið er að endurskipuleggja og gengur ágætlega, til manna sem ekki greiða raun- virði fyrir það sem þeir eignast og hvorki greiða hæfilega útborgun né veita venju- lega tryggingu fyrir greiðslu kaupverðsins." Bréf þeirra Ragnars og Hannesar verður birt í blaðinu á morgun. - ekh. „Launafólk hefur sýnt ótrúlega biðlund“ segir Magnús E. Sigurðsson einn fulltrúa launafólks í kjarabaráttu „Hvað varðar þau mál sem við leggj- um áherslu á við þessar samning- aumleitanir hefur hvorki gengið né rekið. Við erum búin að sitja þrjá iúndi hjá ríkissáttasemjara með prentsmiðjueigcndum og einungis fengið að heyra gömlu plötuna um að svigrúmið til kauphækkana sé lítið sem ekkert“, sagði Magnús E. Sig- urðsson formaður Félags bókagerðar- manna er Þjóðviljinn innti hann frétta af gangi viðræðna um kaup og kjör. „Launafólk hefur sýnt ótrúlega bið- lund þennan kjaraskerðingartíma sem ríkisstjóm atvinnurekendavaldsins hefur setið að völdum. Það er stöðugt klifað á því að þjóðarbúið þoli ekki nema um 4% kauphækkun en fólk gerir sér auðvitað ljóst að þar em á ferðinni hreinar blekkingar því við vit- um, að afkoma flestra fyrirtækja er mjög góð og hefur ekki verið betri um langt skeið. Það er því sorglegt til þess að vita að nokkrir forystumenn verka- fólks skuli ganga á undan og gera uni það tillögur að atvinnurekendur verði firrtir þeirri ábyrgð og þeim skyldum að greiða láglaunafólkinu mannsæmandi laun. Það er verið að biðja um að hið opinbera trygginga- kerfi axli byrðar í þeirra stað og að stór hluti launamanna verði gerður að ölmsusumönnum", sagði Magnús ennfremur. „Þessi viðbrögð stjómvalda og atvinnurekendaklíkunnar við óskum launafólks um að fá til baka það sem af því hefur verið stolið, sýnir vel mat þeirra á verkalýsðhreyfingunni í heild. Hún hefur um margra ára skeið ítrek- að látið undan þrýstingi stjómmála- manna og sætt sig við hverja kjara. skerðingu á fætur annarri sem hefur verið boðuð af ríkisvaldinu. Þama verður að snúa við blaðinu og hefja pólitíska og faglega baráttu innan hreyfingarinnar til vegs og virðingar á ný. Ef það tekst ekki munum við tapa í því stríði sem blásið hefur verið tíl. Á þeim vinnustaðafundum sem ég hef farið á undanfamar vikur hefur vel komið í ljós að verkafólk hefur ekki efni á því lengur að sitja hjá og gera ekki neitt. Kröfur okkar bókagerðar- manna og kröfur starfsmanna Álvers- ins í Straumsvík sýna að glæðumar em þó ekki alveg kulnaðar og þær hafa líka sýnt öðmm launamönnum fram á að ríkisstjóm sem er í eðli sínu fjand- samleg hagsmunum hinna vinnandi getur reynst skammlíf í valdastólum sínum“, sagði Magnús E. Sigurðsson að síðustu. - v. Magnús E. Sigurðsson formaður Félags bókagerðarmanna: það er sorg- legt til þess að vita að forystumenn launafólks skuli hafa komið fram með hugmyndir um ölmusu til handa umbjóðendum sínum. Ljósm.: Atli. fetaa bókagerðar- manna Ekkert bólar á nýja físk- verðinu Ekkert bólar á nýja fiskverðinu, sem átti að liggja fyrir í gær, en sem kunnugt er bannaði ríkisstjórnin með bráðabirgðalögum hækkun fiskverðs þar til 1. febrúar, en þá átti það að liggja fyrir. Stutt er síð- an yfirnefnd Verðlagsráðs fékk málið til meðferðar og aðeins þrír fundir verið haldnir hjá nefndinni um málið og sá fjórði er boðaður í dag. Nefnd sú, sem gengur undir nafninu „Kvótanefndin“ og skilað hefur tillögum um það mál, fæst nú við að finna rekstrargrundvöll fyrir fiskiskipaflotann og á að skila til- lögum þar um til sjávarútvegs- ráðsherra. Síðan hefur ráðherra sagt að kvótakerfið eigi að vera til- búið 20. febrúar n.k.. Margir sem Þjóðviljinn hefur rætt við um þetta mál segj a að þetta þrennt muni allt sett fram í einu. Þar með muni umræðan um fisk- verðið sem að sögn verður á bilinu 4-6% drepast á dreif vegna þeirra deilna sem upp munu rísa þegar kvótakerfið kernur. Þá er því einn- ig haldið fram, að „pennastrikið“ hans Alberts verði notað til að bjarga þeim útgerðarmönnum sem mest skulda og því verði sjómenn skildir einir eftir með fyrrnefnda fiskverðshækkun. - S.dór. Tilboð frá ÍSAL Samningaumleitanir starfs- manna í álverinu og viðsemjenda þeirra héldu áfram í gærkvöldi eftir að tilboð hafði borist frá ÍSAL varðandi bónusgreiðslur til starfs- manna. 10 manna samninganefnd BSRB fékk skrifleg svör frá fulltrúum fjármálaráðuneytis og hefur 60 manna samninganefnd bandalags- ins verið boðuð til fundar á morg- un. Næsti fundur deiluaðila verður trúlega ekki fyrr en eftir helgi.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.