Þjóðviljinn - 14.02.1984, Page 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrigjudagur 14. febrúar 1984
Könnun á launamálum:
Konur
sitja
eftir
Dagvinnutaxtar
karla 14% hœrri
en kvenna
Róum
Árið 1982 voru verkamenn með
7% hærra meðaltímakaup (að
meðtalinni yfirvinnu, bónus og
öðrum álagsgreiðslum) en konur.
Sé eingöngu miðað við tímakaup í
dagvinnu var munurinn hins vegar
14%. Þar með er kollvarpað þeirri
kenningu að meiri yfirvinna og
hærri álagsgreiðslur valdi þeim
gífurlega launamun sem kynin búa
við.
Þetta er meðal niðurstaðna úr
könnun sem Framkvæmdanefnd
um launamál kvenna hefur látið
vinna á undanförnum vikum.
Könnunina gerðu félagsfræðing-
arnir Esther Guðmundsdóttir og
Guðrún Sigríður Vilhjálmsdóttir
og verða nokkrar niðurstöður
hennar gefnar út í litlum bæklingi
nú í vikunni. Honum verður dreift
á vinnustaði og á fundum sem
nefndin gengst fyrir um land allt
um næstu helgi.
Könnunin er unnin upp úr opin-
berum skýrslum, svo sem frétta-
bréfi Kjararannsóknarnefndar,
töflum frá Þjóðhagsstofnun, o.fl.
Könnuninni er ekki lokið, m.a. á
eftir að „kyngreina" ýmsar upplýs-
ingar sem komu fram í nýafstaðinni
könnun Kjararannsóknarnefndar.
Blaðamönnum voru kynntar
helstu niðurstöður í gær. Þar kom
m.a. fram að atvinnuþátttaka
kvenna hefur meira en tvöfaldast
frá 1960 og konur eru komnar á
vinnumarkaðinn til þess að vera
þar, eins og Jóhann Sigurðardóttir
formaður nefndarinnar sagði.
Ein athyglisverðasta niðurstað-
an er að það er sama hvert litið er í
atvinnulífinu, - konur sitja alls
staðar eftir. Minnstur er munurinn
Aðeins samstaðan getur rétt hlut kvenna á vinnumarkaði sögðu fulltrúar úr framkvæmdanefndinni á
blaðamannafundi í gær. Ljósm.: -eik.
við landbúnað, þar höfðu karlar
„aðeins“ 16% hærri laun en konur,
í fiskiðnaði 27%, í smásöluverslun
48%, í opinberri þjónustu höfðu
karlar 49% hærri laun en konur, í
vefjariðnaði 56%, í peningastofn-
unum 58%, í opinberri stjórnsýslu
72% og í fiskveiðum reyndist mesti
munurinn: þar voru karlar með
101% hærri laun en konur! í öllum
atvinnugreinum höfðu karlarnir
52% hærri laun en konur.
Að mati framkvæmdanefndar-
innar sýnir þetta svo ekki verði um
villst að allar konur í atvinnulífinu
búa við skertan hlut miðað við
kárla. Markmið nefndarinnarerað
afla upplýsinga um stöðu kvenna á
vinnumarkaði og dreifa þeim til
kvenna og þeirra sem ráðin hafa í
þjóðfélaginu. Aðeins með sam-
stöðunni getur árangur náðst,
sögðu þeir fulltrúar nefndarinnar
sem hittu blaðamenn í gær. í stað
þess að konur sitji hver í sínu horni
með sárt ennið, vilja nefndarkonur
þjappa þeim saman og hefur
nefndin m.a. staðið fyrir fundum
með konum úr samninganefndum
hér á höfuðborgarsvæðinu.
Á laugardaginn kemur, 18. fe-
brúar, verða síðan haldnir fundir
um allt land. Á þá mæta tvær konur
úr framkvæmdanefndinni sem
ásamt einni konu af viðkomandi
stað munu hafa framsögu um stöðu
kvenna á vinnumarkaði.
-ÁI.
jafnt
á bæði
borð
Nýtt bókamerki
til fjáröflunar
Framkvæmdanefnd um
launamál kvenna hefur látið
gera bókarmerki sem ^samt
50.000 kr. fjárveitingu frá Al-
þingi og styrkjum frá verka-
lýðsfélögum á að fjármagna
störf nefndarinnar.
Merki þetta er hannað af
Kristni Ragnarssyni og er af
manni og konu sem eru að róa
á bátkænu og segir maður-
inn:„Róum jafntá bæði borð“
og er það einskonar kjörorð
þessarar nefndar.
Stofnun Framkvæmdar-
nefndar um launamál kvenna
má rekja til ráðstefnu sem
Samband Alþýðuflokks-
kvenna efndi til þann 24.sept
1983 um launamál kvenna.
Nefndin er skipuð 19 kon-
um en þær eru fulltrúar allra
flokka og samtaka á Alþingi
svo og fulltrúar frá Verka-
kvennafélaginu Framsókn,
Starfsmannafélaginu Sókn,
Snót Vestmannaeyjum,
Verslunarmannafélagi
Reykjavíkur, Kvennafram-
boði, Jafnréttisráði, Banda-
lagi kvenna í Reykjavík,
Kvenfélagasambandi fslands,
Kvennréttindafélag íslands ,
BHM, BSRB, ASÍ og Ioks
Sambandi íslenskra banka-
manna.
Jafnmargir varamenn eru í
nefndinni.
-I.O.
Enn Ijón á veginum í ISAL-deilunni
Línur að skýrast
Óvíst um ábyrgð starfsmanna á framleiðslutœkjum
- Það er ekki bara launaprósent-
an eftir, mörg stórmál eru enn í
veginum, en samningaviðræðurn-
ar hafa komist á ágætis skrið og það
er farið að hylla undir lokin á þess-
ari lotu, sagði einn samninganefnd-
armanna starfsmanna álversins í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Langir og strangir samninga-
fundir hafa staðið yfir frá því á
föstudag en þá veitti sáttasemjari
samninganefndarmönnum tiltal
vegna þess hve Íítið miðaði. f dag
eru aðeins 10 dagar þar til starfs-
menn geta gengið út úr Álverinu án
þess að bera lengur ábyrgð á fram-
leiðslutækjum. Forráðamenn Ál-
versins eru trúaðir á að endanlegt
Póllinn hf.
fær viður-
kenningu
Rafeinda- og tölvufyrirtækinu
Pólnum hf. á ísafirði voru á dögun-
um veitt 100 þús. kr. verðlaun úr
Verðlaunasjóði iðnaðarins en
þetta er í fjórða sinn sem veitt eru
verðlaun úr sjóðnum.
Póllinn hf. var stofnaður fyrir 17
árum og fyrstu árin var þar unnið
við viðgerðir á rafmagnstækjum og
rekið radíóverkstæði. í lok síðasta
áratugar var byrjað að huga að
tölvuvogum á verkstæðum fyrir-
tækisins og 1979 var gerður samn-
ingur við Hagræðingarfélag frysti-
húsanna við ísafjarðardjúp um
hönnun og smíói tölvuvoga fyrir
frystihúsin á svæðinu. Síðan hafa
tölvuvogirnar verið aðalviðfangs-
efni fyrirtækisins en nú er búið að
koma fyrir rúmlega 500 tölvuvog-
um frá Pólnun í yfir 60 frystihúsum
innanlands. Einnig hafa tölvuvogir
verið seldar erlendis, einkum til
Færeyja.
Forráðamenn Pólsins veita viðtöku
verðlaunum úr Verðlaunasjóði
iðnaðarins. Frá v. Óskar Eggerts-
son, Örn Ingólfssson og Ásgeir Er-
ling Gunnarsson. Það er Karl Frið-
rik Kristjánsson sem afhendir
verðlaunin en faðir hans Kristján í
Ultímu var upphafsmaður verð-
launasjóðsins.
t
Við verðlaunaafhendinguna
kom fram að tækjabúnaðurinn frá
Pólnum hefur getað aukið nýtingu
fiskafla hjá frystihúsum um allt að
1.5% sem hefur geysilega mikla
fjárhagslega þýðingu.
Ör stækkun hefur verið hj á Póln-
um frá því að hönnun og fram-
leiðsla tölvuvoganna auk annarra
tölvutækja til notkunar í frystiiðn-
aði hófst. Upphaflega voru starfs-
menn fyrirtækisins 5, nú eru þeir 51
á ísafirði og á höfuðborgarsvæðinu
þar sem fyrirtækið hefur opnað
sölu- og þjónustudeild. -lg.
samkomulag náist nú á næstunni og
hafa því ákveðið að halda fullum
straum á öllum kerjum.
Um helgina náðist samkomulag í
stórum dráttum um fyrirkomulag
framleiðnibónussins. Erfitt er að
meta hvað bónusinn er stór þáttur í
kaupi á hverjum tíma, það fer eftir
aðstæðum, en ljóst er að með þessu
samkomulagi hafa starfsmenn ÁI-
versins náð fram töluverðum bót-
um frá fyrra bónuskerfi.
Eitt helsta ágreiningsefnið nú
auk launaprósentunnar er krafa
eigenda ÍSAL um að haldið verði
inni í samningum þeirri klásúlu
sem skyldar starfsmenn til að bera
ábyrgð á framleiðslutækjum í einn
mánuð eftir að verkfall skellur á.
Samninganefnd starfsmana hefur
þegar bókað að gangi ÍSAL í VSÍ
falli þessi klásúla um sjálfa sig.
Ekki sé forsvaranlegt að veita
ÍSAL einhvern slíkan rétt sem að-
ila að VSÍ. Er ljóst að ÍSAL-menn
verða að láta klásúluna niður falla
eða falla frá inngöngu í Félag ís-
lenskra iðnrekenda eða VSÍ.
Samningafundir deiluaðila stóðu
frá því snemma í gærmorgun og til
hálf níu í gærkvöldi. Næsti fundur
er boðaður á miðvikudag. -Ig.
Raufarhöfn:
Verkalýðsfélagið gefur
grunnskólanum gjöf
Um síðastliðin mánaðamót
færði Hjálparsjóður Verka-
lýðsfélags Raufarhafnar grunn-
skólanum á Raufarhöfn 26
tommu litasjónvarp og VHS-
myndsegulband, hvorttveggja af
fullkominni og vandaðri gerð.
Þetta var vel þegin gjöf og kær-
komin viðbót við tækjakost
skolans sem annars er fremur
rýr.
Tækin voru strax vígð með því
að sýna níunda bekk íslensku
kvikmyndina Útlagann en nem-
endur hafa tekið Gísla sögu Súrs-
sonar sem hluta námsefnis fyrir
samræmd próf í íslensku. Þá sett-
ust kennarar skólans niður að
horfa á fræðsluefni um byrjenda-
kennslu frá Kennaraháskólanum
í Kristianssand í Noregi. Jón
Magnússon skólastjóri hefur
beðið blaðið að koma á framfæri
þakklæti til Verkalýðsfélags
Raufarhafnar fyrir hönd skóla-
nefndar, nemenda og kennara
fyrir þessa rausnarlegu gjöf.
-ekh