Þjóðviljinn - 16.03.1984, Side 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 16. mars 1984
Ullarvörur
til Sovét
Fyrir skömmu var undirritaður
samningur milli Iðnaðardeildar
SIS og Sovétríkjanna um sölu á
ullarfatnaði. Að sögn Hjartar
Eiríkssonar framkvæmdastjóra er
samningsupphæðin um 90 miljónir
kr.
Þarna er um að ræða peysur, sem
afgreiddar verða á þessu ári og er
.kaupandinn Sovéska samvinnu-
sambandið. í farvatninu er viðbót-
arsamningur við Sovéska sam-
vinnusambandið um frekari kaup á
ullarvörum og að auki 10 þús.
mokkakápur. - mhg.
Ný rannsókn á
alkalískemmdum:
Hús byggð
eftir 1979
hafa sloppið
Komið hefur í Ijós að alkalí-
skemmdir í steinsteypu finnast ekki
í húsum sem byggð eru eftir 1979 og
er talið fullvíst að með sérstökum
aðferðum hafi tekist að koma í veg
fyrir frekari skemmdir í framtíð-
inni. Þetta kemur fram í athugun
sem Rannsóknarstofnun bygging-
ariðnaðarins hefur framkvæmt.
í skýrslu um þessa rannsókn er
dregin sú ályktun að með því að
blanda kísilryki í sement og þvo
steypuefni sem tekin eru úr sjó,
megi koma í veg fyrir skemmdir.
Þá segir að steinsteypan hafi batn-
að verulega hvað varðar loftblendi
og saltinnihald eftir 1979.
I athuguninni kom fram að
aukning hafi orðið á skemmdum í
elstu húsunum en í húsum sem
byggð voru eftir 1968 hafi skemmd-
ir verið álíka eða minni frá því sem
þær voru í síðustu athugun. Þá
segir að án viðgerða aukist alkalí-
skemmdirnar ört með tímanum.
- v.
Gjaldeyris-
staða bank-
anna verri
Gjaldeyrisstaða bankanna
versnaði um 500 milljónir í janú-
armánuði og 756 milljónir í febrú-
armánuði samkvæmt bráðabirgða-
tölum Seðlabankans. I desembcr sl.
var nettó gjaldeyrisstaða bankanna
2.458 milljónir króna en var komin
ofan í 1202 milljónir króna miðað
við 14. febrúar.
Til samanburðar má nefna að í
janúar í fyrra versnaði gjaldeyris-
staðan um 243 milljónir, en batn-
aði um 15 milljónir í febrúr. Hér er
því um verulegt útstreymi úr
bönkunum að ræða. -ekh.
Athugasemd
í tilefni fréttar í Þjóðviijanum
13. mars sl. um að samstarfsnefnd
um málefni unglinga hafi harka-
lega fordæmt unglingataxta ASÍ-
VSÍ samninganna er rétt að taka
fram að einstaklingarnir í sam-
starfsnefndinni taka þá afstöðu í
eigin nafni en ekki nafni þeirra
samtaka sem að nefndinni standa.
Kristinn Einarsson, Ólafur Ástgeirsson, Runólfur Ágústsson, Ólafur Ólafsson, Sigurður Böðvarsson og Pálmar Halldorsson kynna undir-
skriftasöfnunina í gær. (Mynd: atli).
Undirskriftasöfnun hefst í dag
Gegn unglingataxtanum
„Þetta verða engin þögul
mótmæli“, sagði Ólafur Olafs-
son á blaðamannafundi í gær,
sem fjögur landssamtök ungs
fólks boðuðu til í tilefni af und-
irskriftasöfnun sem þau standa
fyrir til að mótmæla þeim
ákvæðum sérstaklega í nýgerð-
um samningi ASI-VSI sem
snerta ungt fólk. Samtökin eru
Bandalag íslenskra sérskóla-
nema, Iðnnemasamband Is-
lands, Landssamband mennta-
og fjölbrautaskólanema og
Æskulýðsfylking Alþýðu-
bandalagsins.
Undirskriftirnar beinast gegn
ákvæðum ASÍ-VSÍ samningsins
sem snerta unga fólkið svo sem:
• Lágmarkstekjur fyrir fulla dag-
vinnu eru lægri fyrir starfsmenn
16 og 17 ára en fyrir 18 ára og
eldri (kr. 11.509 á móti kr.
12.660). Hér er um að ræða hinn
svonefnda unglingataxta, sem
sætt hefur mikilli gagnrýni síðan
samningur ASÍ/VSÍ var undirrit-
aður, enda má með fullum rétti
segja að þessi aldurshópur sé nú í
fyrsta sinn í yfir 40 ár ekki viður-
kenndur sem fullgilt vinnuafl.
Þeirri niðurlægingu mótmælum
við harðlega.
• Launþegi, 18 ára og eldri, þarf
nú að hafa starfað 6 mánuði í
sömu starfsgrein til að komast á
full lágmarkslaun. Annars gildir
unglingataxtinn. Þetta ákvæði
kemur m.a. mjög illa við náms-
fólk, sem stundar mismunandi
störf í sumar- og jólaleyfum, og
við fólk sem kemur í fyrsta sinn
út á vinnumarkaðinn.
í texta undirskriftaskj alsins er
skorað á atvinnurekendur að
greiða fullvinnandi fólki sömu laun
fyrir sömu vinnu og/eða á Alþingi
að tryggja slíkt með lögurn. í sam-
ræmi við þetta verða undirskrift-
irnar afhentar á útifundi við Al-
þingishúsið þegar söfnuninni lýk-
ur, sem er áætlað að verði 4.-5.
apríl.
Samtökin fjögur, sem að þessari
mótmælaaðgerð standa, munu
leita eftir samstarfi um hana við
önnur iandssamtök ungs fólks og
einnig við verkalýðsfélög til að
gera hana sem öflugasta.
Þessi fjögur samtök hafa laus-
lega rætt um framhald samstarfs sín
á milli um málefni ungs fólks á
vinnumarkaði, en ljóst er að án
baráttu þess sjálfs fyrir
hagsmunamálum sínum verða þau
fyrir borð borin. Það sanna nýgerð-
ir kjarasamningar.
Stuðningur við
hárgreiðslunema
Stuðningsályktunum og yfirlýsingum rignir yfir hárgrciðsluncma,
um leið og meistarar í iðninni eru fordæmdir. Þannig hljóðar eftirfar-
andi fréttatilkynningu frá Félagi nema í byggingariðn:
Félag nema í byggingariðn lýsir yfir fullum stuðningi við málstað
hárgreiðslu- og hárskeranema, þar sem þeir eru eini launþegahópur-
inn sem nýtur ekki umsaminna lágmarkslauna. Ennfremur fordæmir
félagið aðferðir hárgreiðslu- og hárskerameistara í þeim málefnum er
þeir beita nemana“. - óg.
Unnin á hlut-
drægan hátt
Skýrslan
um
Lánasjóð
námsmanna:
Stúdcntaráð Háskóla íslands tel-
ur í hæsta máta óeðlilegt að við
vinnslu skýrslunnar um Lánasjóð
íslcnskra námsmanna skuli ekki
hafa verið haft samband við aðila á
borð við stjórn lánasjóðsins, Stúd-
entaráð, SÍNE og Bandalag ís-
lenskra sérskólancma. Segir í á-
lyktun fundar SHI að vonandi sé að
vænta vandaðri vinnubragða af
hálfu menntamálaráðuneytisins í
framtíðinni.
Stúdentar vilja
vandaðri vinnu-
brögð ráðherra
í ályktuninni er það harmað að
skýrslan skuli vera unnin á jafn
hlutdrægan hátt og raun bef vitni.
Megnið af innihaldi skýrslunnar sé
sett fram á neikvæðan hátt í garð
námsmanna. Þá mótmælir fundur
Stúdentaráðs sérstaklega hug-
myndum um að námslán verði á
sömu kjörum og fjárfestingarlán,
að 1. árs nemendur fái ekki lán fyrr
en þeir hafi fyrst sýnt námsárang-
ur, að félagsleg aðstoð sé skert, að
gerðar séu auknar kröfur um náms-
afköst og að eftirspurn eftir lánum
eigi að byggjast á því hvort það
borgi sig að taka lánið.
- v.
Gömlu húsin
endurbætt
Stjórn Sjálfstœðisflokksins
Samdráttur í orkuframkvæmdum
í svari iðnaðarráðuneytisins við
fyrirspurn frá Ólafi Ragnari
Grímssyni í fjárhags- og viðskipta-
nefnd neðri deildar Alþingis kemur
fram samanburður virkjunarfram-
kvæmda sl. 5 ár og áform um virkj-
anir næstu 4 ár. Sjálfstæðisflokk-
urinn gagnrýndi mjög seinagang í
orkuframkvæmdum í tíð Hjörleifs
Guttormssonar iðnaðarráðherra.
Af áætlun næstu fjögurra ára verð-
ur ekki ráðið að núverandi iðnað-
arráðherra ætli að fara sér hraðar
nema síður sé.
1. Samanburður virkjanafram-
kvæmda sl. 5 ár á sambærilegu
verðlagi (byggingarvísitala 166
(uppl. frá Landsvirkjun)):
1979 ............... 816.140 þús. kr.
1980 ..............1.421.258 þús. kr.
1981 ..............1.561.300 þús. kr.
1982 ..............1.340.582 þús. kr.
1983 ..............1.286.020 þús. kr.
1984 ...... 900.000 þús. kr. (áætl.)
2. Áform um virkjanir næstu 4
ár: Helstu framkvæmdir verða við
Kvíslaveitur, Blönduvirkjun,
stækkun Þórisvatnsmiðlunar og
undirbúning nýrra virkjana, en
næst í röð virkjana er Fljótsdals-
virkjun, skv. ályktun Alþingis.
Fjárfestingar án vaxta í þessa liði
eru áætlaðar:
1985 .....................1.000 m. kr.
1986 .....................1.100 m. kr.
1987 .....................1.100 m. kr.
1988 ............ 600 til 1.100 m. kr.
(háð byrjun á næstu virkjun).
Út er komið nýtt hefti af Hús og
híbýli og er þetta fyrsta tölubiaðið á
þessu ári.
Á 12 síðum er að finna mynd-
skreyttar greinar um eldri hús í
Reykjavík, sem gerðar hafa verið
verulegar endurbætur á. Af öðru
efni má nefna: klæðningar á loft og
veggi, eldhúsinnréttingar, ferða-
lög, húsgögn, blóm, bækur og
heimiliskettir. Þá er og í blaðinu að
finna mataruppskriftir, kynningu á
Húseigendafélagi Reykjavíkur,
fréttir af nýjum teppategundum,
einingahúsum og fleiru. Utgefandi
er SAM-útgáfan og ritstjóri er Þór-
arinn Jón Magnússon.