Þjóðviljinn - 16.03.1984, Blaðsíða 5
Föstudagur 16. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Hvað segja starfsmenn um kaup á Landssmiðjunni?
Óljósar hugmyndir ráðherra
„Ég get ekki skilið að almenningur hafi nægilegt fé milli handana til að kaupa
nniljónafyrirtæki eins og launin eru í dag“ sagði Þorsteinn Pálssn járnsmiður.
Okkur ekki boðin formlega hlutdeild
„Ég er nú sjálfur hlyntur því
að fyrirtækið verði áfram ríkis-
rekið en ég mun ekki setja mig á
móti því að starfsfólkið kaupi
það svo framarlega sem um er
að ræða starfsfólk Landssmiðj-
unnar“ sagði Árni Kristbjörns-
son trúnaðarmaður í Lands-
smiðjunni.
Árni sagði ennfremur að lítið
væri vitað um þetta mál -
yfirlýsingar iðnaðarráðherra
varðandi söluna væru óljósar
og ekki ljóst á hvaða kjörum
fyrirtækið yrði selt og hvort um
sömu skilmála væri að ræða og
við sölu Siglósíldar eða ekki.
Starfsfólk Landssmiðjunnar
hélt fund um málið á
fimmtudaginn var og þar var
kosin fimmmanna undirbún-
ingsnefnd til að kanna hugsan-
leg kaup á fyrirtækinu og afla
sér frekari upplýsinar um mál-
ið.
„Þetta er ennþá á undirbún-
ingsstigi, okkur hefur ekki ver-
ið boðin hlutdeild að fyrirtæk-
inu formlega og sjálfur hef ég
alltaf verið hlytnari því að ríki
eða sveitarfélög séu eignaraðil-
ar að svona atvinnurekstri"
sagði Árni Kristbjörnsson að
lokum.
Þjóðviljinn talaði við Hauk
Þorsteinsson járnsmið um
söluáform iðnaðarráðherra og
hafði hann þetta að segja. „Ég
veit ekki hvort ég kaupi hluta-
bréf í fyrirtækinu, ég er frekar á
móti því að það verði selt. Þetta
hefur gengið ágætlega hingað
til og gæti gengið betur. Ég tel
ekki að starfsmenn séu fjár-
hagslega í stakk búnir til að
kaupa hlutabréf í Landssmiðj-
unni“ sagði Haukur að lokum.
Aðrir starfsmenn sem Þjóðvilj-
inn talaði við tóku í sama streng
og voru sammála um að ný-
gerðir kjarasamningar myndu
ekki létta undir með þeim ef útí
kaup á Landssntiðjunni yrði
farið
RÞ
Ríkissjóm íslands hefur lagt mikla áherslu á að selja eignir fólksins og skiptír þá engu
hvort þær skila ágóða eða tapi, eða hvaða hlutverki þau þjóna í þjóðfélaginu. Yfirlýsing-
ar ráðamanna dynja í síbylju á þjóðinni um einstaklinga og félög sem ætli að kaupa þetta
fyrirtæki eða hitt. Þanig hafa komið fram yfirlýsingar frá iðnaðarráðherra um að starfs-
fólkið í Landssmiðjunni ætli að kaupa fyrirtækið. Þjóðviljinn fór á stúfana til að kanna
undirtektir meðal starfsmanna:
Ég er á móti því að Landssmiðjan
vérði seld“ sagði Haukur Þorsteins-
son, járnsmiður.
„Það er kanski réttast að kaupa fyrir-
tækið úr því sem komið er“ sagði
Johann Thorarensen járnsmiður".
„Það er lítið hægt að segja um þetta „Við vitum ekki á hvaða kjörum Landssmiðjan verður seld og hvort starfs-
ennþájOkkur vantar frekari upplýs- menn fyrirtækisins róða við kaupa fyrirtækið" söðgu Árni Kristbjörnsson
ingar“ sagði Ingvar Kristinsen. trúnaðarmaður og Finnbogi Jónsson járnsmiður i gær.
Þingmaður Framsóknarflokks um formann sama flokks:
Steingrímur siglir ei skýin
né heldur siglir hann sjó
„En það hef'ur gerst að menn
hafa ekki virt varnaðarorð og
gjarnan verið kappar miklir.„Eg
sigli ei skýin, ég sigli sjój svaraði
kappinn og hló““, sagði Olafur Þ.
Þórðarson um Steingrím Her-
mannsson formann sinn í umræðu
um kosningalagabreytingu í síð-
ustu viku á alþingi. Talaði Ólafur
um ógæfu formanns Framsóknar-
flokksins og að það hafi ekki verið
nein frægðarsigling heldur hjá
Steingrími að styðja frumvarpið
sem til umræðu var.
Orðrétt kvað Ólafur:
„Það var mikil ógæfa formanps
Framsóknarflokksins að virða ekki
varnaðarorð flokksþings Fams-
óknarmanna þar sem varað var við
því að rjúfa stjórnarskármálið,
taka kosningalögin ekki út úr,
heldur afgreiða stjórnarskrána sem
heild. En það hefur áður gerst að
menn hafa ekki virt varnaðarorð
og það hafa gjarnan verið kappar
miklir sem hafa ekki virt varnaðar-
orð. „Ég sigli ei skýin, ég sigli sjó,
svaraði kappinn og hló.“ - Hver
kannast ekki við þetta? En það var
Kornhlaðan hf., sem er sam-
eignarfyrirtæki Sambandsins og
tveggja annarra fóðurinnflytjenda,
hefur aldrei tekið á móti jafn miklu
engin frægðarsigling yfir Breiðafj-
örðinn í það sinn og það hefði verið
betra að hlusta á þann skipstjóra
sem ráðlagði að hlaða á annan veg
skútuna sem þá lagði á stað úr
Skor. Það var engin frægðarsigling.
af fóðurefnum og tilbúnum fóður-
blöndum og á síðasta ári. Nam það
34.677 tonnum á móti 27.894 tonn-
um 1982, 26% aukning.
Og það er spurning hvort það gæfu-
leysi að kljúfa þetta mál, ganga til
samkomulags eins og hér hefur
verið gert, á ekki eftir að hafa al-
varlegri afleiðingar en menn hafa
til þessa hugsað út í.“ -óg
Þar af flutti Fóðurvörudeild SIS
inn 16.963 tonn, einnig 26%
aukning frá fyrra ári. Heildarhlut-
deild Fóðurvörudeildar í því sem
Ólafur Þ. Þórðarson
Kornhlaðan tók á móti, var um
49%. Sala Fóðurblöndunarstöðvar
SÍS ú síðasta ári var einnig hin
mesta frá upphafi, eða 19.717 tonn
af fóðurblöndum og öðrum fóður-
vörunt. 6% aukning frá fyrra ári.
Samkvæmt upplýsingum Hag-
stofunnar nam innflutningur á
helstu fóðurblöndum og tilbúnum
fóðurefnum 1983 72.723 tonnum,
sem er 7% aukning frá árinu 1982.
Hlutur Fóðurvörudeildar í heildar-
innflutningnum 1983 var um 48 %,
áþekkur og árið áður.
-mhg
Fóðuriimfhitnmgur
sl. ár 72.723 tonn