Þjóðviljinn - 16.03.1984, Side 7

Þjóðviljinn - 16.03.1984, Side 7
Föstudagur 16. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7 lea s"™ " Ólíkar greinar sýningu á 0 Sað™ls á meiði nýlistar Á laugardag opna 4 ungir myndlistarmenn sýningu á myndverkum sínum í báð- um sölum Kjarvalsstaða. Það eru þau ívar Val- garðsson, Pór Vigfússon, Guðrún Þorkelsdóttir (Rúna) og Rúrí, sem sýna hver með sínum hætti nýja strauma í myndlistinni. ívar Valgarðsson sýnir skúlptúra úr steinsteypu, Rúna sýnir fínlegar þrykkimyndir sem hafa laufblöð og rissblöð að yrkisefni, Rúrísýnir ógnvekjandi umhverfis- verk úr gleri og blikki og Þór Vigfússon sýnir dýra- myndir af öllum stærðum og gerðum. Öll eru þau fjórmenningarnir af sama árganginum í Myndlista- og handíðaskólanum, og Þór, Rúna, Rúrí og ivar við uppsetningu sýningarinnar að Kjarvalsstöðum í vikunni. Ijósm. Atli. Þór Vigfússon í dýragarðinum. Dýramyndir hans eru ýmist mótaðar í gifs, skornar í tré eða málaðar á dúk, pappír eða postulín. Ijósm. ólg. Rúrí með glerflísarnar sem hún ætl- ar að nota í umhverfisverk sitt að Kjarvalsstöðum. Ijósm. Atli. þau stunduðu öll fram- haldsnám í Hollandi, þar sem Rúna er reyndar bú- sett um þessar mundir. Myndir þeirra og aðferöir við myndsköpun eru ólíkar við fyrstu sýn, en verk þeirra eru þó engu að síður greinar af þeim meiði nýlistar sem hér hefur verið að vaxa á síðustu árum. Á meðan myndir Rúnu hafa ljóðrænt yfirbragð, þá eru myndir Þórs fullar af gáska og lífsfjöri. Hjá Rúrí mætum við lífsháskanum í ótal glerflísum og skuggalegu blikkverki, en steypuskúlptúrar ívars koma okkur í áþreifanleg tengsl við náttúruform og fasta jörð. Sýn- ing þeirra fjórmenninganna verður opnuð klukkan 2 á laug- ardag og er opin í 2 vikur. ólg. Sæmundur Valdimarsson styður sig hér við Óþekktu alþýðukonuna. Ljósm. Atli. Sæmundur Valdímarsson á Kjarvalsstöðum Attu við stríða? Engin samskeyti 4T4 Betokem SUM gólfílögn Betokem gólílögnin harðnar svo fljótt að þú getur gengið eða lagt teppið á gólfið eftir 24 tima. SUM gólfílögn hefur verið í þróun i Þyskalandi, Sviþjóð og Noregi sl. 15 ár og hefur sýnt að hún stenst fyllilega allar þær gæða-, þol- og styrkleikakröfur, sem settar voru í upphafi og síðar hafa komið fram. Það hefur enda sýnt sig á söluþrouninni sl. 7 ár að þarna er á ferðinni algjör bylting í gólfílögn, salan hefur nánast þotið upp og ekki hefur verið hægt að anna eftirspurn fyrr en nú. FILLCOAT gúmmíteygjanleg samfelld húð fyrir málm- þök. Er vatnshelld. Inniheldur cinkromat og hindrar ryðmyndun. Ódýr lausn fyrir vandamálaþök. Ábyrgð - greiðslukjör. Um helgina opnar Sæmundur Valdimarsson sýningu á högg- myndum skornum í tré að Kjar- valsstöðum. Eru myndir þessar unnar í rekavið á síðustu 10 árum, en Sæmundur hefur stundað út- skurðinn samhliða vaktavinnu í Áburðarverksmiðju ríkisins í Guf- unesi. Sæmundur sýndi verk sín í fyrsta skipti 1974, þegar hann tók þátt í sýningu á íslenskri alþýðulist í Gallerí SUM. Sæmundur hefur einnig sýnt verk sín í matsal Áburð- arverksmiðjunnar. Myndir Sæmundar sýna verur úr heimi goðsögunnar og þjóðsög- unnar. I sumum myndanna notar hann þang, mararhálm, liti og jafnvel fiskroð til að skreyta mynd- irnar með. Á myndinni sjáum við hvar Sæmundur stendur við styttu sem hann kallar Óþekkta alþýðu- konan. Konan er þrekmikil og þunguð, eins og sjá má, og sagðist Sæmundur hafa haft ömmur sínar í huga er hann gerði þessa mynd, en þær áttu 13 og 17 börn. Sýning Sæmundar er á ganginum á Kjarvalsstöðum, og verður hún opnuð á laugardag kl. 2. Sæmund- ur sagði að myndirnar væru til sölu, en hins vegar vissi hann ekki ná- kvæmlega hvað þær ættu að kosta. Mér er ekkert um að selja þær, sagði hann, en það er víst ekki um annað að ræða, annars hleðst þetta bara upp hjá manni. ( N,- LAUSN ER ENDIST ÓTRÚLEGA VEL: EPOXY - GÓLF Við erum með f jölmargar gerðir af gólf- ílagningarefnum sem þola ótrúlegt álag. Það er sama hvort um er að ræða gólfið í sturtuklefanum, matsalnum eða á bílaverkstæðinu. Vandamálið leysum við á fljótan og öruggan hátt. HAFNARFIRBI SÍMI 50538 ólg.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.