Þjóðviljinn - 16.03.1984, Síða 7
Föstudagur 16. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
lea s"™ " Ólíkar greinar
sýningu á 0
Sað™ls á meiði nýlistar
Á laugardag opna 4 ungir
myndlistarmenn sýningu á
myndverkum sínum í báð-
um sölum Kjarvalsstaða.
Það eru þau ívar Val-
garðsson, Pór Vigfússon,
Guðrún Þorkelsdóttir
(Rúna) og Rúrí, sem sýna
hver með sínum hætti nýja
strauma í myndlistinni.
ívar Valgarðsson sýnir
skúlptúra úr steinsteypu,
Rúna sýnir fínlegar
þrykkimyndir sem hafa
laufblöð og rissblöð að
yrkisefni, Rúrísýnir
ógnvekjandi umhverfis-
verk úr gleri og blikki og
Þór Vigfússon sýnir dýra-
myndir af öllum stærðum
og gerðum. Öll eru þau
fjórmenningarnir af sama
árganginum í Myndlista-
og handíðaskólanum, og
Þór, Rúna, Rúrí og ivar við uppsetningu sýningarinnar að Kjarvalsstöðum í
vikunni. Ijósm. Atli.
Þór Vigfússon í dýragarðinum. Dýramyndir hans eru ýmist mótaðar í gifs,
skornar í tré eða málaðar á dúk, pappír eða postulín. Ijósm. ólg.
Rúrí með glerflísarnar sem hún ætl-
ar að nota í umhverfisverk sitt að
Kjarvalsstöðum.
Ijósm. Atli.
þau stunduðu öll fram-
haldsnám í Hollandi, þar
sem Rúna er reyndar bú-
sett um þessar mundir.
Myndir þeirra og aðferöir við
myndsköpun eru ólíkar við
fyrstu sýn, en verk þeirra eru þó
engu að síður greinar af þeim
meiði nýlistar sem hér hefur
verið að vaxa á síðustu árum. Á
meðan myndir Rúnu hafa
ljóðrænt yfirbragð, þá eru
myndir Þórs fullar af gáska og
lífsfjöri. Hjá Rúrí mætum við
lífsháskanum í ótal glerflísum
og skuggalegu blikkverki, en
steypuskúlptúrar ívars koma
okkur í áþreifanleg tengsl við
náttúruform og fasta jörð. Sýn-
ing þeirra fjórmenninganna
verður opnuð klukkan 2 á laug-
ardag og er opin í 2 vikur.
ólg.
Sæmundur Valdimarsson styður sig hér við Óþekktu alþýðukonuna.
Ljósm. Atli.
Sæmundur
Valdímarsson á
Kjarvalsstöðum
Attu við
stríða?
Engin
samskeyti
4T4
Betokem SUM gólfílögn
Betokem gólílögnin harðnar svo fljótt að þú getur gengið
eða lagt teppið á gólfið eftir 24 tima. SUM gólfílögn hefur
verið í þróun i Þyskalandi, Sviþjóð og Noregi sl. 15 ár og
hefur sýnt að hún stenst fyllilega allar þær gæða-, þol- og
styrkleikakröfur, sem settar voru í upphafi og síðar hafa
komið fram.
Það hefur enda sýnt sig á söluþrouninni sl. 7 ár að þarna er á
ferðinni algjör bylting í gólfílögn, salan hefur nánast þotið
upp og ekki hefur verið hægt að anna eftirspurn fyrr en nú.
FILLCOAT
gúmmíteygjanleg samfelld húð fyrir málm-
þök.
Er vatnshelld.
Inniheldur cinkromat og hindrar ryðmyndun.
Ódýr lausn fyrir vandamálaþök.
Ábyrgð - greiðslukjör.
Um helgina opnar Sæmundur
Valdimarsson sýningu á högg-
myndum skornum í tré að Kjar-
valsstöðum. Eru myndir þessar
unnar í rekavið á síðustu 10 árum,
en Sæmundur hefur stundað út-
skurðinn samhliða vaktavinnu í
Áburðarverksmiðju ríkisins í Guf-
unesi. Sæmundur sýndi verk sín í
fyrsta skipti 1974, þegar hann tók
þátt í sýningu á íslenskri alþýðulist í
Gallerí SUM. Sæmundur hefur
einnig sýnt verk sín í matsal Áburð-
arverksmiðjunnar.
Myndir Sæmundar sýna verur úr
heimi goðsögunnar og þjóðsög-
unnar. I sumum myndanna notar
hann þang, mararhálm, liti og
jafnvel fiskroð til að skreyta mynd-
irnar með. Á myndinni sjáum við
hvar Sæmundur stendur við styttu
sem hann kallar Óþekkta alþýðu-
konan. Konan er þrekmikil og
þunguð, eins og sjá má, og sagðist
Sæmundur hafa haft ömmur sínar í
huga er hann gerði þessa mynd, en
þær áttu 13 og 17 börn.
Sýning Sæmundar er á ganginum
á Kjarvalsstöðum, og verður hún
opnuð á laugardag kl. 2. Sæmund-
ur sagði að myndirnar væru til sölu,
en hins vegar vissi hann ekki ná-
kvæmlega hvað þær ættu að kosta.
Mér er ekkert um að selja þær,
sagði hann, en það er víst ekki um
annað að ræða, annars hleðst þetta
bara upp hjá manni.
(
N,-
LAUSN ER ENDIST ÓTRÚLEGA VEL:
EPOXY - GÓLF
Við erum með f jölmargar gerðir af gólf-
ílagningarefnum sem þola ótrúlegt
álag. Það er sama hvort um er að ræða
gólfið í sturtuklefanum, matsalnum
eða á bílaverkstæðinu. Vandamálið
leysum við á fljótan og öruggan hátt.
HAFNARFIRBI SÍMI 50538
ólg.