Þjóðviljinn - 16.03.1984, Síða 15
Föstudagur 16. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 23
RUV 1
Föstudagur
16. mars
7.00 Veðuriregnir. Frétt. bæn. Á virkum
degi. 7.25 Leikfimi. Daglegt mál. Endurt.
þáttur Sigurðar Jónssonar frá kvöldinu
áður.
8.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Blindi
maðurinn“ eftir Jennu og Hreiðar Stef-
ánsson Pórunn Hjartardóttir les.
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleik-
ar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.j.
10.45 „Það er svo margt að minnast á“
Torfi Jónsson ser um þáttinn.
11.15 Dægradvöl Þáttur um frístundir og
tómstundastörf i umsjá Anders Hansen.
11.45Tónleikar
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðuriregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
14.00 „Klettarnir hjá Brighton" eftir Gra-
ham Greene Haukur Sigurðsson lýkur
lestri þýðingar sinnar (23). Tónleikar
14.30 Miðdegistónleikar Fílharmóniu-
sveitin í New York leikur Sinfóníu nr. 1 í
D-dúr „Klassísku sinfóm'una" eftir Sergej
Prokofjeff; Leonard Bernstein stj.
14.45 Nýtt undir nálinni Hildur Eiriksdóttir
kynnir nýútkomnar hljómplötur.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðuriregnir.
16.20 Síðdegistónleikar Sinfóníutónleikar
Sinfóníuhljómsveil Lundúna leikur
Hljómsveitarkonsert nr. 3 í D-dúr eftir
Georg Friedrich Hándel; Charles Mack-
erras stj. / David Oistrakh, Mstislav
Rostropovitsj og Svjatoslav Rikhter leika
með fílharmóniusveit Berlinar Konsert i
C-dúr op. 56 fyrir fiðlu, selló, pinaó og
hljómsveit eftir Ludwig van Beethoven;
Herbert von Karajan stj.
17.10 Síðdegisvakan.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn. Stjórnandi: Heiðdís
Norðfjörð (RÚVAK).
20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thor-
oddsen kynnir.
20.40 Kvöldvaka a. Gömfu góðu dagarnir
Ragnheiður Gyða Jónsdóttir les frásögn
eftir Ingu Láru Lárusdóttur b. Kórsöng-
ur: Selkórinn syngur Stjórnandi: Ragn-
heiður Guðmundsdóttir. c. Gudda gamla
úr Hrunamannahreppi Sigurlína Dav-
íösdóttir les þátt eftir Guðrúnu Aðal-
steinsdóttur frá Vaöbrekku. Umsjón:
Helga Ágústsdóttir.
21.10 Kór Menntaskólans við Hamrahlíð
syngur fslensk kórlög Stjórnandi: Þor-
gerður Ingólfsdóttir. Rannveig Friða
Bragadóttir syngur einsöng með kórnum
og nokkrir kórfélagar leika með á
strengjahljóðfæri.
21.40 Fósturlandsins Freyja - 8. og síð-
asti þáttur. Umsjón: Höskuldur
Skagfjörð. Lesari með honum: Helga
Ágústsdóttir.
22.15 Veðuriregnir. Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Lestur Passiusálma (23).
22.40 Djassþáttur Umsjónarmaður: Gerard
Chinotti. Kynnir: Jórunn Tómasdóttir.
23.20 Kvöldgestir - Þáttur Jónasar Jón-
assonar
00.55 Fréttir. Dagskrárlok. Næturútvarp frá
RÁS 2 hefst með veðurfregnum kl. 01.00
og lýkur kl. 03.00.
RUV 2
10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórnendur: Páll
Þorsteinsson, Ásgeir Tómasson og Jón Ól-
afsson.
14.00-16.00 Pósthólfið Stjórnendur: Valdís
Gunnarsdóttlr og Hróbjartur Jónatansson.
16.00-18.00 Helgin framundan Stjórnandi:
Jóhanna Harðardóttir.
23.15-03.00 Næturvakt á RÁS 2 Stjórnandi:
Ólafur Þórðarson. Rásir 1 og 2 samtengdar
með veðuriregnum kl. 01.00 og heyrist þá í
Rás 2 um allt land.
RUV
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Á döfinni. Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson. Kynnir Birna Hrólfsdóttir.
20.55 Eitthvað handa öllum. Bresk nátt-
úrulifsmynd frá Afriku um skaria og
fiskimenn við Malawivatn sem eru keppi-
nautar um veiðina í vatninu. Þýðandi og
þulur Óskar Ingimarsson.
21.30 Kastljós Þáttur um innlend og erlend
málefni. Umsjónarmenn: Einar Sigurðs-
son og Hermann Sveinbjörnsson.
22.20 Eins dauði... (Den enes död...)
Saensk bíómynd frá 1980. Leikstjóri Stell-
an Olsson. Aðalhlutverk: Jan Waldecr-
anz, Agneta Ekmanner, Christer Boust-
edf og Gunnar Öhlund. Ungur maður
sem setið hefur í fangelsi fyrir bankarán
snýr aftur til heimabæjar síns. Kemur
hann til að vitja ránsfengsins eða til að
hefna sín á þeim sem brugðust honum?
Sumir óttast það og enginn fagnar komu
unga mannsins utan ein stúlka. Þýðandi
Þorsteinn Helgason.
00.00 Fréttir f dagskrártok.
frá
ndum
Við erum orðin æði mörg, sem
þolum ekki lengur það neyðará-
stand er ríkir í umferð okkar
ágætu borgar. Við höfurn fylgst
með þessu ástandi árum saman
og haft af því vaxandi áhyggjur
nteð hverju ári. Við höfum í
lengstu lög viljað trúa því, að
eitthvað yrði gert, sem gagn væri
að, en orðið fyrir vonbrigðum.
Hér erum við fyrst og fremst að
ræða um réttleysi gangandi fölks
yfir götu. Gangbrautalýsing er
aðeins á fáum stöðum. Merki
gangbrauta óljós, sumsstaðar
næstum afmáð vegna vanhirðu,
sér í lagi á vetrum.
Það þyrfti í sjálfu sér ekki
mikið hugmyndafíug til þess að
viðhalda skárri merkingu gang-
brauta, því virðist það ekki vera
til staðar heldur.
Það vantar ekki að talað sé um
þessi mál út og suður en síðan
ekki söguna meir, engar aðgerðir
til gagns. Allt eitt kák. Það ætti
ekki að vera nein ofraun borgar-
og lögregluyfirvöldum að bæta ur
þessu.
I þáttum um umferðarmál hef-
ur oftsinnis verið leikin dægur-
tónlist, og vægast sagt miSTnun-
Umferðarmál í borginni
andi smekkleg. Sér í lagi á þeim
stundum þegar alvarleg slys ber
að höndum, en lítið aðhafst ann-
að.
Ég hef t.d. séð um 28 barns-
morð og um 120 slys á reiðhjóla-
og skellinöðrufólki. Ekki veit ég
með vissu hve margir af hjól-
reiðamönnunum hafa látist. En
hitt veit ég með vissu að stór hluti
þeirra slasaðist verulega og
nokkrir dóu þegar í stað. Þessi
ósköp hafa gerst á 42 ára aksturs-
ferli mínum. Það er æði átakan-
legt og sorglegt í senn hvernig
þetta hefur gengið til í áratugi.
Það er alið á því að menn aki
með ljósum en alltof margir gera
það ekki nema endrum og eins.
Oftlega talað um að menn spenni
beltin en því ekki fylgt eftir. Á
stórhátíðum gerir lögreglan sér
þó dagamun og telur þá, sem eru
með spennt belti - síðan ekki sög-
uha meir. Og þegar stórhátíðum
lýkur dettur nær allur beltaáhugi
niður. Sem sagt, all myndarlega
að verki verið.
Þessum ökuníðingum og óláns-
mönnum, sem valda morðum og
limlestingum á fólki, oftsinnis
nteð óleyfilegum ökuhraða, þarf
að gera ljóst í eitt skipti fyrir öll,
að þetta eru glæpsamlegar aðfar-
ir, sem varða við lög. Einnig
varðar vanræksla í störfum við
lög - og það er ekkert álitamál.
Nú eru sem sagt allir mælar
fullir og þolinmæði fólks á þrot-
um. Verði ekki ráðin bót á þessu
innan tíðar, verða borgarbúar að
taka til sinna ráða í sjálfboða-
vinnu.
Benda má á nokkur atriði, sem
yllu algerum straumhvörfum í
umferð:
1. Gangbrautarréttur alger.
2. Benda fólki yfir gangbraut
með því að banda hendi til hægri
og vinstri, en gæta þess vandlega
að líta í spegil um leið og í tíma.
3. Sjá til þess að allar gang-
brautir séu rnjög skýrt auðkenn-
dar árið um kring.
4. Að hækka upp gangbrautir
sem víðast.
5. Setja upp sjálflýsandi
spjöld með rauðri peru, sem
blikkar í nálægð ökutækis.
Ef þessu yrði ekki sinnt af öku-
mönnum þá að sekta þá nógu
hressilega. Það virðist vera það
eina sem ökuníðingar skilja þeg-
ar peninapungur er tæmdur. Það
væri ekki fjarri lagi að hugsa sér:
fyrsta brot 2000 kr., annað brot
5000 kr., þriðja brot 10.000 kr.
Og miklum mun hærri refsingu ef
um alvarleg slys yrði að ræða.
Annars ætti hreinlega að taka
ökuníðinga úr umferð fyrir fullt
ogfast. - Vonum hiðbesta. Verið
þið sæl að sinni.
Gísli Guðinundsson
frá Steinholti,
(Óðinsgötu 17).
Hrogn-
kelsi
Hrognkelsaveiði hefur töluvert
verið stunduð hér en að ég held á
þann sóðalegasta hátt sem ég hefi
heyrt um getið. Þetta gæti orðið
töluverður stuðningur væri
skynsamlega að verið. Þetta er
ágætis fiskur og mér finnst ekki
ólíklegt að hægt væri að gera
hann að prýðis vöru.
Að henda svona mat tel ég líkj-
ast guðlasti. Eftir að ég hafði
minnst á þetta í blaði skrifaði
bóndi vestan af landi um ágæti
þessa fisks sem fóðurs, fuilyrti að
hann gæfi síst eftir útlendu
kjarnfóðri.
Sjálfur þekki ég ekki inn á
þetta. Ég var kunnugur í Borgar-
firði eystra. Þar döguðu
hrognkelsin uppi í pollum og
einnig stóðu menn úti á klettum
Svo allt sé í stíl...
Þessi limra var ort í heita pottinum í Vesturbæjar-
lauginni á dögunum og hún þarfnast ekki nánari
skýringa:
Þér finnst kannski óþarft að flíka
fréttum af Steingrími ríka,
svo allt sé í stíl
fékk sér öryrkjabíl,
því heimskan er handikapp líka.
með stöng og kræktu upp. Grá-
sleppan var gefin kúm en þær
voru ekki rnargar, en rnikil var
gleðin þegar grásleppan kom því
þá fór mjólkin að flæða úr kún-
um. Konan mín er úr Borgarfirði
eystra, hún þekkti þetta.
Ég sagði hér á undan að grá-
sleppan hefði aldrei verið borð-
uð. Þetta er ekki alveg rétt. Að
sögn Svövu konu minnar fann
móðir hennar upp aðferð til þess
að matreiða hana. Fyrst var
hveljan flegin af og fiskurinn síð-
an skorinn í lengjur, sem pössuðu
á steikarpönnuna. Pannan síðan
hituð með fiskinum á. Þetta var
gert við lágan hita og hreint
stykki sett yfir pönnuna eins og
þegar steiktur var venjulegur
fiskur. Okkur þótti þetta bara
góður matur, segir Svava, - enda
ekki vön kræsingum. Ég hef ekki
heyrt urn svonalagað áður og því
set ég þetta hér.
Halldór Pjetursson,
Kópavogi.
spaugið
Ég ætlaði bara að gá hvað
klukkan er!
Hafið þið heyrt um bakarann
sem bakaði síielld vandræði?
Eða skraddarann sem gafst upp
á kúabúskapnum af því að
kýrnar átu allt fóðrið?
bridge
Spil no 7 í 2. setu aðaltvímenn-
ings Bridgefélags Reykjavíkur, er
með þeim fallegri, sem undirritaður
hefur komið i „höfn". Dæmið sjálf:
765
G103
765
ÁD53
DG1098
ÁK42
ÁK3
4
Eftir pass frá makker og hægri
handar andstæðing, var vakið á
sterku laufi í Suðri. Pass frá Austri
(áttum breytt), 1 tigull frá Norðri (0-7
hp.), 1 spaði, pass, 2 lauf, pass, 2
hjörtu, pass og 4 spaöar.
Útspil Vesturs var smár tígull,
lítið, drottning og drepið á ás. Spað-
agosi, lítið, lítið og drepið á kóng.
Meiri tígull frá Austri, drepið á kóng,
spaðdrottning, Vestur henti tígli og
Austurdrap á ás. Spilaöi hjarta til
baka. Hvað nú?
Nú, sagnhafi ákvað að spila
Vestur uppá þau háspil sem eftir
voru, drap því á ás, tók spaðann
tvisvar, Vestur henti fjórða tíglinum
og einu laufi. Nú kom laufafjarkinn,
lítið og drottingu svínað. Hún hélt,
tékið á laufaás, allir með og hjarta
hent að heiman, meira lauf og
trompað heim á síðasta trompiö og
tíglinum hent út. Vestur átti þann
slag, en varð að spila út í tveggja
spila endastöðu frá hjartadrottn-
ingu. Slétt staðið. Spilið gaf mjög
góða skor, þrátt fyrir að vörnin spi-
list hárrétt. Ef Austur inni á spaða-
kóng spilar ekki meiri tígli er spilið
alltaf auðvelt vil vinnings, einsog
sjá má.
Tikkanen
Khdmcini þorir greinilega
ekki til himna nema að taka all-
an her sinn með sér.
Gœtum
tungunnar
Sagt var: Tvö lög voru afgreidd
frá alþingi.
Rétt væri: Tvenn lög voru af-
greidd...
(Það voru ekki sönglög).