Þjóðviljinn - 21.03.1984, Page 1
DJÚÐVIUINN
Michel Abs er fulltrúi
neyðarhjálpar kirkjunnar
í Líbanun.
„Sáiræn áhrif styrjaldar-
innar eru verst“, sagði
hann í viðtali við blaða-
mann Þjóðviljans.
mars
miðvikudagur
67. tbl.
49. árg.
Nýtt fiskmatskerfi stórlækkar laun sjómanna:
FLOTINN I LAND
- ef punktakerfi Jónasar verður ekki afnumið, segja sjómenn
• Jónas
Bjarnason
neitar að
^hlýða skipun
sjávar-
útvegsráðherra
ímálinu
Hið nýja punktakerfi við fiskmat, sem Jónas
Bjarnason settur forstöðumaður Framleiðslu-
eftirlits sjávarafurða, hefur látið taka upp, veld-
ur nú ólgu og óánægju meðal sjómanna, þar sem
það lækkar laun þeirra um 40% til 50%. Jónas
Bjarnason lét taka þetta kerfi upp, þvert ofan
skriflegt loforð Halldórs Ásgrímssonar, sjávar-
útvegsráðherra við síðustu fiskverðlagningu. Þá
var lofað að kerfið yrði ekki tekið upp fyrr en
búið væri að gerbreyta allri verðlagningunni,
enda er það forsenda þess að hið nýja kerfi verði
sett af stað. „Ef þessu punktakerfi verður ekki
strax kippt úr sambandi, mun allur flotinn sigla í
land og við skulum leyfa þessum guðföður fram-
leiðslueftirlitsins að leysa það mál“, sagði Óskar
Vigfússon formaður Sjómannasambandsins í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Þegar fiskverð var ákveðið í febrúar sl. var
ákveðið að fresta því að taka þetta nýja punkta-
kerfi við fiskmat upp. Yfirnefnd verðlagsráðs
hafði bréf frá Halldóri Ásgrímssyni uppá það.
Síðan ákvað Jónas Bjarnason uppá eindæmi að
láta nýja kerfið taka gildi.
Þeir Óskar Vigfússon, Kristján Ragnarsson
og Kristján Pálsson, gengu á fund sjávarútvegs-
ráðherra í fyrradag útaf þessu máli og lofaði
ráðherra að kippa því í liðinn. Það hafði hinsveg-
ar ekki gerst í gær og virðist J ónas ætla að keyra á
málinu þvert ofan í vilja og loforð sjávarútvegs-
ráðherra.
Elías Bjarnason formaður sjómannafélagsins
í Vestmannaeyjum sagði bullandi óánægju með
þetta mál þar og gæti allt eins farið að flotinn
sigldi í land vegna þessa máls. Sjá bls 3.
- S.dór- Ig.
Þjóðviljinn fær bréf frá Ingimar Hanssyni:
Rekstrarstofan og
sonur Ragnhildar
Enginn formlegur samningur. Ráðherra forðast umrœður
Þjóðviljinn greindi frá því fyrir
helgina að Rekstrarstofan í Kópa-
vogi sem Ragnhildur Helgadóttir
fékk til að gera úttektina á mennta-
málaráðuneytinu væri m.a. í eign
sonar hennar. Þessi úttekt varð síð-
an tilefni til flokkspólitískrar
breytingar á ráðuneytinu, sem
byggð er á ólögmætri fjölgun skrif-
stofustjóra.
í gær barst Þjóðviljanum bréffrá
Ingimar Hanssyni þar sem hann
leitast við að bera frétt Þjóðviljans
til baka og segir Rekstrarstofuna
vera einkafyrirtæki sitt. í haus
þessa sama bréfs er Rekstrarstofan
hins vegar skilgreind sem „Sam-
starf sjálfstæðra rekstrarráðgjafa á
mismunandi sviðum". Helgi Þórs-
son, sonur menntamálaráðherra er
síðan tilgreindur sérstaklega í bréf-
haus fyrirtækisins sem einn þeirra
ráðgjafa sem mynda fyrirtækið. í
símaskránni er Rekstrarstofan
einnig skráð sem undireining við
nafn Helga Þórssonar.
í viðtali Þjóðviljans við Ingimar
Hansson í gær kom fram að fjármál
allra sem vinna í gegnum fyrirtækið
eru sameiginleg og menntamála-
ráðuneytið gerði engan formlegan
verksamning við fyrirtækið um út-
tektina. Virðist hér því eingöngu
hafa verið um munnlega ráðstöfun
greiðslna að ræða.
Ragnhildur Helgadóttir neitaði
á Alþingi í síðustu viku að ræða
útttektina sem hún fól samstarfs-
fyrirtæki Helga Þórssonar og fleiri
að gera. Einnig neitaði hún að
ræða spurningar frá tveimur fyrr-
verandi menntamálaráðherrum
um að fjölgun skrifstofustjóra væri
brot á lögum um Stjórnarráð fs-
lands. óg/ekh
Sjá nánar bls. 2
Deilur í Sj álfstæðisflokknum:
Hver átti
Það var ekki fyrr en skömmu
áður en útsending sjónvarpsþátt-
arins um fjárlagagat ríkisstjórn-
arinnar hófst í gærkvöldi að Al-
bert Guðmundsson fjármálaráð-
herra dróst á að mæta til um-
ræðnanna.
Páll Magnússon þingfrétta-
maður fór þess á leit við Albert
Guðmundsson fjármálaráðherra
að hann kæmi sem fuiltrúi Sjálf-
að verja
stæðisflokksins í umræðuþáttinn
en hann neitaði. Leitaði Páll þá
til formanns Sjálfstæðisflokksins,
formanns þingflokksins, for-
manns fjárveitingarnefndar, sem
er Lárus Jónsson þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, en allir
neituðu og töldu sér ekki skylt að
svara fyrir Albert. Málið var
tekið fyrir á þingflokksfundi, en
hvorki Albert né þingflokkurinn
breýtti afstöðunni
Það var svo ekki fyrr en í gær-
kvöldi sem ljóst var hver yrði full-
trúi Sjáifstæðisflokksins við um-
ræðurnar. Það mátti heyra á
mönnurn í gærdag að með tregðu
sinni hefði Albert viljað leggja
áherslu á að „fjárlagagatið“ væri
alveg eins mál flokksins í heild
eins og fjármálaráðherrans eins.
- ekh
nuoinHn
— Samstarf sjálfstæöra rekstrarráögjafa
Framkvæmdastjóri
J Ingimar Hansson
Ráógjafar
Bjorn Viggósson
Bolli Magnússon
Gestur Einarsson
Gunnar H. Guómundsson
Helgi Þórsson
k rtctiÁn k
Efsta úrklippan er úr símaskránni en fyrir neðan er hluti af bréfhaus
Rekstrarstofunnar.