Þjóðviljinn - 21.03.1984, Page 3
Míðvikudagiir 21, mars 1984 ÞJÓÐVrLJINN — SÍÐA 3
Nýja punktakerfið í fiskmatinu:
Sættum okkur ekki við þetta
segir Elías Björnsson formaður sjómannafélagsins í Vestmannaeyjum. Aðeins 44%
afla togarans Gullvers fór í 1. fl. eftir 8 daga veiðiferð
„Það sem hér skiptir máli er að
þetta er brot á verðlagsreglunum
en Jónas Bjarnason tekur sér það
bessaleyfi að taka upp punktakerf-
ið við fiskmatið, þvert ofan í skrif-
legt loforð sjávarútvegsráðherra
við síðustu fiskverðsákvörðun um
að punktakerfið yrði ekki tekið
upp við þessa verðákvörðun. Enda
verður að stokka alla verðlagningu
upp ef taka á punktakerfið upp. Eg
þori að fullyrða að ef þessu verður
ekki breytt nú þegar munu sjómenn
og útgerðarmenn taka upp harðar
aðgerðir. Það kæmi mér ekki á
óvart þótt flotanum yrði siglt í
land“, sagði Elías Björnsson for-
maður sjómannafélagsins í
Vestmannaeyjum, en þar eins og
víðast um iandið er allt á suðupotti
vegna nýs punktakerfis sem Jónas
Bjarnason forstöðumaður Fram-
leiðslueftirlits sjávarafurða hefur
tekið upp.
Þetta nýja matskerfi án upp-
stokkunar á verðlagningu fisks
lækkar tekjur sjómanna um 40 til
50%. Sem dæmi um hvernig þetta
kemur út má nefna, að togarinn
Gullver frá Seyðisfirði landaði eftir
8 daga veiðiferð á Seyðisfirði í
fvrradag og fór aðeins 44% af afl-
anum í l.fl. Togarinn Ljósafell frá
Fáskrúðsfirði landaði sama dag,
eftir jafn langa veiðiferð á sömu
slóðum og var metið hjá honum
eftir gamla kerfinu og fór 95% í 1.
flokk.
Eins og fyrr segir er logandi óá-
nægja hjá sjómönnum og útgerðar-
mönnum urn allt land útaf þessu
máli, sem gæti dregið alvarlegan
dilk á eftir sér. - S.dór
Ráðherra segist ekki bera ábyrgð á framkvæmd punktakerfisins
F r amkvæmt í heimildarley si
segir Óskar Vigfússon formaður Sjómannasambandsins
- Ef að þessu verður ekki kippt í
liðinn eins og skot, þá á þessi ágæti
guðfaðir framleiðslueftirlitsins í
dag hættu á því að allur flotinn sigli
í iand og við skulum leyfa honum
að leysa það, sagði Óskar Vigfús-
son formaður Sjómannasambands-
ins í samtali við Þjóðviljann í gær
um hinar nýju matsaðferðir fram-
leiðslueftirlitsins.
- Við töldum okkur hafa bréf-
legt loforð sjávarútvegsráðherra
um.að það yrði ekki farið út í þetta
kerfi fyrr en séð væri hvað það
gerði fyrir sjómenn. Þessi ákvörð-
un var tekin við fiskverðsákvörðun
1. febrúar sl. og við höfum staðið í
þeirri meiningu að ekki yrði hreyft
við hinu nýja kerfi nema þá sam-
hliða nýrri fiskverðsákvörðun þar
sem fiskverðið yrði allt stokkað
upp. Síðan er það einhver sem tel-
ur sig hafa leyfi til að ráðskast með
þessa hluti tekið þá ákvörðun að
láta framkvæma þetta mat, algjör-
lega í heimildarleysi.
Ég fór ásamt formanni LÍÚ og
farmanna- og fiskimannasam-
bandsins á fund sjávarútvegsráð-
herra vegna þessa og hann lofaði
því að fara í þetta mál strax. Við
telj um okkur hafa hans fyrra loforð
endurtekið með þessu viðtali í gær.
Hann taldi sig vera alveg sára-
saklausan af þessari framkvæmd og
vísaði til síns bréfs frá 1. febrúar",
sagði Óskar Vigfússon. - ig.
4. deildar liðið Árvakur leggur land undir fót
Tekur þátt í stórmóti
í Bandaríkjunum
Knattspyrnuliðið Árvakur, sem
hóf sinn feril sem liðshcild fyrir ári
síðan hyggur nú á landvinninga á
íþróttasviðinu. Mun liðið halda
utan til Bandaríkjanna um páskana
og taka þar þátt í aiþjóðlegu knatt-
spyrnumóti í Lake Placid í New
York fylki. Á þessu móti, sem nú er
efnt til öðru sinni munu keppa fjöl-
mörg lið frá sterkustu knattspy rnu-
þjóðum veraldar.
Hópurinn sem heldur utan telur
um 15 vaska íþróttamenn og mun
verða keppt á ólympíuleikvangin-
um í Lake Placid en þar hefur verið
unnið að lagningu fullkomins
gervigrasvallar vegna mótsins.
Ætlunin er að veita sérstök verð-
laun fyrir fegursta mark leikjanna
og æfa þeir Árvakursmenn nú af
kappi til að hreppa það hnoss.
Telja þeir sig eiga allgóða mögu-
leika.
Eftir að mótinu á ólympíuleik-
vanginum lýkur mun Árvakur
leika nokkra vináttuleiki, einkum í
New York og nágrenni.
Til að fjármagna þetta ævintýri
sitt mun verða gefið út veglegt
auglýsingablað sem líta mun dags-
ins ljós um næstu mánaðamót.
Á myndinni hér til hliðar sést lið-
ið sem ætlar sér að bera hróður
íslands um heiminn með góðum ár-
angri í Lake Placid. - v.
Ingólfur Steinar Kristinsson
verður jarðsettur á laugardag
Þau mistök urðu í Þjóðviljanum í útförin fer fram n.k. laugardag, 24.
gær, þriðjudag, að sagt var að út- mars frá Staðarhólskirkju í
för Ingólfs Steinars Kristinssonar, Saurbæ. Eru aðstandendur og
sem fórst 31. október í sjóslysinu á greinarhöfundar beðnir afsökunar
Breiðafirði, hefði farið fram s.l. á þessum mistökum blaðsins.
laugardag og birtar voru um hann - Ritstj.
minningargreinar. Hið rétta er að
VERD FRÁ 410.000 KRÓNUM, MED RYDVÖRN
Reynsluaksturiboði
/ SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 35200