Þjóðviljinn - 21.03.1984, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 21. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Togararnir eru 104.
Skipastóll og
fiskveiðar á
Islandsmiðum
Áróðurinn um alltof stóran fisk-
veiðiflota hefur tröllriðið íslensku
þjóðfélagi síðustu árin til mikillar
bölvunar fyrir framþróun okkar
fiskveiða. En vegna þess hve marg-
ir þeirra sem hæst gala á þessu sviði
vita lítið um staðreyndir málsins,
þá mun ég hér á eftir birta tölur um
stærð flotans. Þá eru það fyrst tog-
arar, sem eru afkastamestu afla-
skip flotans og án þeirra verður
ekki haldið uppi samfelldri atvinnu
í frystihúsum landsins.
Togaraflotinn
Skuttogarar 250-499 lestir 84,
samtals 33.913 iestir brúttó.
Skuttogarar 500 Iestir og stærri
17, samtals 14.217 lestir brúttó.
Sambyggðir skuttogarar og
nótaskip 2, samtals 1529 lestir
brúttó.
Síðutogari 1, samtals 348 lestir
brúttó.
Samkvæmt þessu eru hinir eigin-
legu skuttogarar 101 talsins plús 2
nótaskip sem líka geta notað tog-
vörpu og einn gamall síðutogari.
Þetta er allur íslenski togaraflotinn
sem menn býsnast yfir að sé alltof
stór. Nú er það svo, að þessi floti
getur ekki verið allur samtímis að
veiðum og kemur þar til frádráttar
árlegt viðhald skipanna, sem tekur
því lengri tíma sem skipin verða
eldri.
Bátaflotinn
Fiskiskip 300 lestir og stærri 35,
samtals 15,679 lestir. Þetta er aðal-
uppistaðan í nótaveiðiflotanum.
Án þessara skipa gætum við alveg
hætt að hugsa um veiðar á loðnu,
hvað svo sem stórar göngur af þess-
um fiski væru á íslenskum miðum.
Fiskiskip 100-299 lestir 173, stál-
skip plús 12 tréskip, alls 185 skip,
samtals 31.061 lestir brúttó.
Þetta er meginuppistaðan í báta-
flotanum á vetrarvertíð, sem
stundar þorskveiðar. Þá stunda
stærstu skipin einnig loðnuveiðar
og síldveiðar með nót.
Fiskibátar 50-99 lestir úr stáli 24,
úr tré 73, alls 97, samtals 6643 lestir
brúttó. Þetta eru bátar til að veiða á
grunnslóð.
Fiskibátar 12-49 lestir, 26 úr
stáli, 153 úr tré, alls 179, samtals
4573 lestir brúttó. Þetta eru líka
grunnslóðar-bátar.
Fiskibátar undir tólf lestum, úr
stáli 4, úr tré 228, alls 232 bátar,
samtals 1856 lestir brúttó. lnnan
þessa stærðarflokks er allur svo-
kallaður trillubátafloti lands-
manna.
Þá eru ótalin 4 stálskip til hval-
Fiskveiðiflotinn telur 836 skip og báta, mörg gömul og úrelt.
veiða, sem talin eru til fiskveiðiflot-
ans. En samtals telur nú fiskveiði-
flotinn 836 skip og báta.
Mikið af íslenska fiskiskipaflot-
anum er orðinn gamall og úr sér
genginn, svo tölurnar hér að fram-
Johann J. E. Kúld
skrifar um
fiskimál
an geta villt um fyrir mönnum þeg-
ar heildarstærð flotans er skoðuð.
Hjá fiskveiðiþjóð sem vill halda
velli í sjósókn sinni, verður skipa-
flotinn að vera í stöðugri endurnýj-
un. Þar má engin kyrrstaða verða.
Þeir menn sem innan íslenska
þjóðfélagsins hamast gegn of stór-
um fiskveiðiflota og of mikilli sjó-
sókn, þeir gera sér ekki grein fyrir
þeirri staðreynd, að eðlilegri há-
marksveiði verður ekki náð innan
okkar víðáttumiklu fiskveiðilög-
sögu nema með öflugum vélbúnum
fiskveiðiflota. Það hefur oft verið
erfitt að búa við skertan afla sökum
vöntunar á skilyrðum í sjónum. En
hitt verður þungbærara ef afli er
skertur vegna rangrar fiskveiðist-
efnu.
400 þúsund lestir
þorski veiddust
meðan stór erlendur
floti var hér
Þetta eru staðreyndir sem fisk-
veiðisagan greinir frá. Þá stunduðu
veiðar á islenskum miðum auk
okkar eigin veiðiflota að jafnaði
150 breskir togarar, 60-70 þýskir,
auk franskra, spánskra, belgískra,
pólskra og rússneskra togara, sem
voru misjafnlega margir árin fyrir
síðustu útfærslu fiskveiðilandhelg-
innar í 200 mílur. Þá var líka mikill
hluti færeyska flotans að veiðum
allt árið hér, ásamt ekki færri en 30
norskum línuveiðurum, sem tóku
hér fullfermi af saltfiski að vorinu
áður en þeir hófu sumarveiðar við
Grænland.
Fiskveiðisaga 20. aldar hér við
ísland sýnir að það þarf mjög stór-
an fiskveiðiflota til að fullnýta mið-
in á landgrunninu, bæði í góðum
árum og köldum til sjávarins. Hún
segir líka frá því að afli hefur aldrei
verið jafn frá ári til árs á okkar
miðum. Árferði sjávarins hefur
ráðið aflasæld hverju sinni.
En þegar aflaskýrslur síðustu 26
ára sem erlendu fiskiskipin eru á
íslenskum miðum sýna að heildar-
þorskafli fer aðeins í tvö skipti nið-
ur fyrir 350 þúsund tonn, en jafnar
sig upp með 400 þúsund tonna árs-
afla gegnum öll árin, þá hljóta allir
aðsjá, að það ermikið bogið við þá
ákvörðun að heildarþorskaflinn í
ár skuli aðeins vera 220 þúsund
tonn. Það hafa engin rök verið færð
fyrir því, að íslenski þorskstofninn
hafi hrunið svo til grunna að þetta
hafi verið nauðsynlegt. Þegar svo
það er tekið með í reikninginn, að á
árinu 1983 var leyfilegt að veiða
370 þúsund tonn, þó ekki næðist
nema 293.750 tonn af því afla-
magni vegna þess hve sjórinn var
kaldur á mörgum miðum, en auk
þess voru í gildi aflatakmarkanir
sem útilokuðu þetta. Stífar aflatak-
markanir kaldra ára útiloka að
sjálfsögðu að hægt sé að ná þeim
hámarksafla í tregfiski sem áður
náðist með lengri óheftri sókn. Því
fyrr sem sjávarútvegsráðherra átt-
ar sig á því, að hann er að fram-
kvæma ranga sjávarútvegsstefnu
með 220 þúsund tonna hámarkinu
á þorskafla og beygir af þeirri leið,
þeim mun betra fyrir hann og þjóð-
ina. Hámarksþorskaflinn fyrir
þetta ár eru mannleg mistök sem
þarf að leiðrétta.
16. mars 1984
Einingahús frá lönverki á Patreksfirði.
þær um lengri veg en til Patreks-
fjarðar.
Fyrirtækið bindur sig ekki al-
farið við fasta staðla og því geta
húsbyggjendur ráðið nokkru t. d.
um staðsetningu glugga. Hægt er
og að ræða við arkitekt húsanna,
Frey Jóhannsson, um breytingar,
sem menn kynnu að óska eftir.
Unnt er að fá húsin afgreidd á
þremur byggingarstigum. Af-
greiðslufrestur er 3 - 6 mánuðir og
stundum jafnvel styttri. Iðnverk
framleiðir einnig sumarbústaði.
Vonir standa til að byggð verði 10 -
15 hús á ári. Hjá Iðnverki starfa nú
8 menn.
Tónlistar- og sönglíf
á Djúpavogi
Ennþá fjölgar. tónlistarskólum
og sönglíf eflist. í haust var tón-
listarskóli stofnaður á Djúpavogi -
Tónskóli Djúpavogs. Skólastjóri
þessarar nýju menntastofnunar þar
er Eyjólfur Ólafsson. í kjölfar
skólans komu svo kórar en stofn-
aðir hafa verið bæði blandaður kór
og barnakór.
Strax fyrir jól var svo farið að
spila og syngja fyrir aldraða fólkið
á Djúpavogi og grennd og síðan
haldnir tónleikar fyrir almenning.
Má því með sanni segja að þarna sé
vel og myndarlega að verki verið
þegar í upphafi.
Húsbyggingar
í Neskaupstað
Síðastliðin tvö ár hefur mun
minna verið byggt af íbúðum í Nes-
kaupstað en var að meðaltali næstu
10 árin á undan, að frátöldu þó ár-
inu 1976. Er talið að vaxtapólitík
og kjaraskerðing segi þarna til sín.
Um áramótin 1982 -1983 voru 15
hús í byggingu nteð 36 íbúðum. Á
sl. ári var hafin bygging 6 húsa með
8 íbúðum. Þrjú af þeim voru tekin í
notkun á árinu en fimm gerð fok-
held. Nú eru í byggingu 18 hús með
40íbúðum. Inniíþessum tölum eru
íbúðir fyrir aldraða, 12 alls. Af
þeim eru 4 hjónaíbúðir og 8 ein-
staklingsíbúðir.
En svo að vikið sé að öðrum
húsasmíðum þá er verið að byggja
frystigeymslu Síldarvinnslunnar og
einnig iðnaðarhús fyrir byggingafé-
lagið Valma. Unnið var að bygg-
ingu Fjölbrautaskólans. Þá voru og
byggðir 4 bílskúrar og allir teknir í
notkun.
íbúðir fyrir aldraða
í Keflavík
Bygging húsa aldraðra í Keflavík
er nú komin allvel á veg. Er að því
stefnt að smíði hússins verði lokið
ekki seinna en innan árs.
Áætlað er að lánsfjárþörf bygg-
ingarinnar sé um 14 milj. kr. Upp í
það koma trúlega frá Húsnæðis-
málastjórn um 5 milj. Spurningin
er hvernig útvega má afganginn.
Rætt hefur verið um að væntanleg-
ir leigjendur láni fé í formi verð-
tryggðra skuldabréfa. Munu ein-
hverjir þeirra fúsir til þess svo að
unnt verði að taka húsið fyrr í notk-
un. Fleiri leiðir hafa komið til tals
eins og t. d. að selja eitthvað af
íbúðum.
Tekur við rekstri
Félagshúss
Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur og nágrennis átti 51 árs
afmæli þann 28. des. sl. Á afmælis-
daginn tók félagið við rekstri
Félagshúss hf. en það á og rekur
Félagsbíó. Tók þá ný stjórn við
fyrirtækinu: Karl Steinar Guðna-
son, Sigurbjörn Björnsson og Stef-
án Kristinsson. Óli Þór Hjartarson
verður hinsvegar áfram fram-
kvæmdastjóri. Verkalýðs- og sjó-
mannafélagið hefur smátt og smátt
verið að viða að sér þeim hluta-
bréfum, sem föl hafa verið, og á
þau nú orðið að mestu .
Ýmsar breytingar eru nú fyrir-
hugaðar á rekstrinum, sem miðast
eiga að því að auðvelda Félagshúsi
hf. að koma í framkvæmd upphaf-
legum hugmyndum, þeim, að allur
hagnaður af rekstrinum renni til
styrktar öldruðum sjómönnum og
verkamönnum á félagssvæðinu.
-mhg