Þjóðviljinn - 21.03.1984, Side 11
Miðvikudagur 21. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
íþróttir Víðir Sigurðsson
Sex stig UMFN á
lokammútuimi!
og góður sigur vannst á Val, 61-59
Sheff.
Wed.
steinlá á
The Dell!
Southampton tryggði sér leik
gegn Everton í undanúrslitum
ensku bikarkeppninnar í knatt-
spyrnu í gærkvöldi með því að bur-
sta 2. deildarlið Sheff. Wed. 5-1 á
The Dell í Southampton. Liðin
höfðu áður gert markalaust jafn-
tefli í Sheffield.
Það voru þó gestirnir sem
skoruðu fyrst, þeir tóku sanngjarnt
forystuna eftir 20 mínútur með
marki Peters Shirtliff. Steve Wil-
liams jafnaði og sjálfsmark Gavins
Olivers kom Southampton yfir
fyrir hlé. í seinni hálfleik opnuðust
allar tlóðgáttir og Mark Wright,
David Armstrong og Steve Moran
færðu Southampton stórsigur með
þremur mörkum í viðbót.
Nokkrir leikir voru háðir í
deildakeppninni. í 1. deild tókst
Watford að sigra Sunderland 2-0
en 1-1 jafntefli gerðu annars vegar
ÍBK-KR
í gærkvöldi var dregið til
undanúrslita í bikarkeppni
karla í körfuknattleik.
Keflvíkingar fá KR-inga í heim-
sókn og bikar- og Islandsmei-
starar Vals mæta Haukum í
Seljaskólanum.
Birmingham og Luton og hins veg-
ar Everton og Leicester. í 2. deild
gerðu Middlesborough og Derby
County markalaust jafntefli og í
neðri deildum var athyglisverðast-
ur 5-1 útisigur hins fornfræga Blac-
kpool í Northampton. Þá tapaði
Celtic mjög óvænt fyrir Dundee í
skosku úrvalsdeildinni, 3-2, í
Dundee.
_____________________-VS
Stuttgart
sigraði
Stuttgart, lið Ásgeir Sigurvins-
sonar lék í gærkveldi gegn Uer-
dingen í v-þýsku deildarkepptninni
og sigraði Stuttgart 4:0. Ásgeir Sig-
urvinsson skoraði eitt af mörkum
Stuttgart, sem virðist nú vera að
rétta við eftir misjafnt gengi und-
anfarið.
Gífurleg barátta Njarðvíkinga
síðustu tíu mínúturnar færði þeim
sætan sigur á Val, 61:59, í fyrri/
fyrsta úrslitaleik liðanna um ís-
landsmeistaratitilinn í körfuknatt-
leik sem fram fór í Njarðvík í gær-
kvöldi. Leikurinn virtist gjörunn-
inn fyrir Valsmenn, þeir höfðu
fimmtán stiga forskot þegar komið
var fram í seinni hálfleik og voru
fjórum stigum yfir mínútu fyrir
leikslok, en á lokamínútunum
gerðu heimamenn sex stig og
tryggðu sigur við tryllingsleg fagn-
aðarlæti áhorfenda.
Valur var yfir allan fyrri hálf-
leikinn, sem einkenndist af tauga-
veiklun leikmanna, og höfðu yfir,
26:34, í hléi. í byrjun seinni hálf-
leiks komust þeir í 27:42 og virtust
á grænni grein, mikil stemmning
ríkti í liði þeirra og flestir afskrif-
uðu Njarðvíkinga. En Valsmenn
töpuðu á að ætla að róa leikinn nið-
ur, heimamenn tvíefldust, löguðu
stöðuna í 47:53 og síðan 55:57. Val-
ur skoraði, 55:59, þegar 57 sek.
voru eftir. en tíu sek. síðar svaraði
Ingimar Jónsson úr vítaskotum,
57:59. Ástþór Ingason komst síðan
inní sendingu og jafnaði 59:59 (32
sek.) Gunnar Þorvarðarson Njarð-
víkingur náði síðan boltanum,
missti hann strax til Jóns
Steingrímssonar, sem aftur missti
hann í uppkast. Úr því fengu
heimamenn boltann, Sturla brun-
aði upp og skoraði með langskoti
þremur sekúndum fyrir leikslok,
61:59.
Baráttugleðin færði UMFN sig-
urinn eins og áður sagði, liðið lék
vel á síðustu tíu mínútunum. Á
þeim kafla var Gunnar óhemju
drjúgur og gerði 10 stig á stuttum
tíma. Sturla sýndi mjög góðan
varnarleik og Ingimar lék vel, nýtti
vítaskotin vel, en það hefur ekki
verið hans sterkasta hlið hingað tl.
Liðsheildin hjá Val var sterk og
alls ráðandi þar til að umræddum
kafla kom. Þá héldu Valsarar ekki
haus og því fór sem fór. Þeir misstu
Kristján Ágústsson útaf fyrir
klaufaskap, létu hann strax inná í
seinni hálfleik þrátt fyrir að hann
hefði fengið 4 villur í þeim fyrri, í
stað þess að hvíla hann þar til á
iokakaflanum. Valur hafði leikinn
í hendi sér, en á nú aðeins mögu-
leika á að jafna metin þegar liðin
mætast öðru sinni í Seljasókn ann-
að kvöld. Nú eru Njarðvíkingar
hins vegar í þeirri ctöðu að geta þar
tryggt sér meistaratitilinn.
Stifl UMFN: Gunnar 21, Sturla 16, Ingimar 8,
•sak Tómasson 7, Ástþór 4, Árni Lárusson 4 og
Hreiðar Hreiðarsson 1.
Stig Vals: Leifur Gústafsson 11, Jón
Steingrimsson 10. Torfi Magnusson 10, Tómas
Holton 8, Kristján 8, Jóhannes Magnsuson 8 og
Einar Ólafsson 4.
Stórsigur
HKáÍR
Gunnar Valgeirsson og Sigurður
Valur dæmdu miðlungi vel, Vals-
menn voru óánægðir, enda meira á
þá dæmt, en dómgæslan var sann-
gjörn engu að síður.
- sv/vs
Staða HK í fallkcppni 2. dcildar
karla í handknattlcik cr mjög góð
eftir 5. Icikumfcrðina af 12 í Selj-
askólanum í gærkvöldi. Þar vann
Kópavogsliðið stórsigur á ÍR, 25-
12, eftir 11-4 í hálfleik. Bergsveinn
Þórarinsson, Kristinn Ólafsson og
Sigurður Sveinsson skoruðu 5
mörk hver fyrir HK og Einar Ólafs-
son 5 fyrir IR.
Á undan vann Fylkir Reyni 22-
16 eftir 10-8 í hálfleik. Gunnar
Baldursson skoraði 8 mörk fyrir
Fylki en Daníel Einarsson var
markahæstur Sandgerðinga með 4
mörk. Þá hefur HK hlotið 17 stig,
ÍR og Fylkir 12 en Reynir 7. Tvö
neðstu falla í 3. deild. í kvöld verð-
ur leikið í Seljaskóla, HK-Reynir
kl. 20 og ÍR-Fylkir kl. 21.15.
-VS
Wark til
Liverpool
Liverpool, ensku meistararnir í
knattspyrnu, keyptu í fyrradag
skoska landsliðsmanninn John
Wark frá Ipswich á 450 þúsund
pund. Áður hafði verið talið Iík-
legast að Wark færi til Manchester
United sem hafði boðið 400 þús-
und í hann.
WBA hefur keypt Tony Greal-
ish, fyrrum fyrirliða Brighton, og
Steve Hunt frá Coventry.
Tap gegn
Englandi
ísland lék sinn fyrsta landsleik í
billiard í Leeds í Englandi um helg-
ina. Mætti liðið þar Englending-
um, sem eru í fremstu röð í heimin-
um, og unnu þeir ensku 39 - 25.
Frammistaða íslensku leikmann-
anna í keppninni þótti lofa góðu.
Fram meistari!984
V/WI u OUIIII
Fram tryggði sér í fyrrakvöld ís-
landsmeistaratiltilinn í handknatt-
leik kvenna með því að sigra KR 24
- 15 í sínum næst síðasta leik. Það
voru þær Guðríður Guðjónsdóttir
og Sigrún Blomsterberg sem voru
atkvæðamestar hjá Fram í
leiknum, skoruðu 6 mörk hvor.
Sigurbjörg Sigþórsdóttir, Karólína
Jónsdóttir og Jóhanna Ásmunds-
dóttir skoruðu 3 mörk hver fyrir
KR.
Valur vann Akranes 14 - 10 og
ÍR sigraði Fylki 32 - 20 en frá síðar-
nefnda leiknum sögðum við í blað-
inu í gær. Það var reyndar eini
leikurinn sem undirritaður vissi um
að ætti að fara fram.
Staðan í 1. deild kvenna:
Fram...........13 12 0 1 28&-202 24
FH.............13 10 1 2 303-219 21
ÍR ............13 9 2 2 294-226 21
Valur..........13 5 1 7 196-235 11
Akranes........13 4 1 8 189-241 9
Víklngur.......13 2 2 9 216-260 6
KR.............12 2 2 8 186-223 6
Fylkir.........12 2 1 9 198-261 5
Víkingur þarf a. m. k. jafntefli
við ÍR til að eiga möguleika á að
halda sér í deildinni. KR og Fylkir
eiga eftir að leika, KR á að auki
eftir leik við Val og Fylkir við
Fram. Verði Víkingur og KR jöfn í
6. - 7. sæti fellur KR á innbyrðis
leikjum liðanna, en verði Fylkir og
Víkingur jöfn í sömu sætum, fellur
Víkingur.
-VS
um dögum í 1. deild karla í blaki í
gærkvöldi. Leikið var í Hagaskóla
og sigraði ÍS 3-2. ÍS vann fyrstu
hrinurnar, 15-3 og 15-10, komst í
11-4 í þriðju hrinu en tapaði henni
11-15. HK vann þá fjórðu einnig,
13-15,og komst í 10-14 í lokahrinu,
sigurinn blasti við, en ÍS jafnaði og
vann að lokum 17-15.
ÍS vann nokkuð öruggan sigur á
Þrótti í 1. deild kvenna, 3-1. Hrin-
urnar enduðu 15-11,12-15,15-7 og
15-8.
-VS
Fimmti sigur Ragnhildar í röð
Gunnar Finnbjörnsson, Ernin-
um, og Ragnhildur Sigurðardóttir,
UMSB, sigruðu í mcistaraflokkum
karla og kvenna á Víkingsmótinu
’84 í borðtennis sem haldið var um
helgina í Fossvogsskóla og Laugar-
dalshöll.
Gunnar sigraði Stefán Konráðs-
son, Víkingi, f hörkuspennandi
úrslitaleik, 21 - 18, 18 - 21 og 21 -
19. Leikur Ragnhildar og Ástu Ur-
bancic í úrslitum meistaraflokks
kvenna var mjög spennandi fram-
an af. Ragnhildur vann fyrst 21 -15
en Ásta síðan 17-21. íoddalotunni
hafði Ragnhildur mikla yfirburði
og vann örugglega, 21 - 12. Hún
hefur nú sigrað á þessu móti fimm
ár í röð.
Kristján Viðar Haraldsson, Vík-
ingi, sigraði í 1. flokki karla, Elín
Eva Grímsdóttir, Erninum, í 1.
flokki kvenna, og Valdimar Hann-
esson, KR í 2. flokki karla.
Landsleikur íslands og Sovétríkjanna í íþróttahöllinni á
Akureyri sl. föstudagskvöld markaði tímamót í söguAk-
ureyrar. Þetta var fyrsti landsleikurinn í handknattleik
sem þar fer f ram og kunnu heimamenn vel að meta slíkt,
fylltu Höllina eins og vel sést á mynd -GSv- hér að ofan.
Innviðir mannvirkisins mikla sem tekið var í notkun sl.
vetur koma vel fram á myndinni, en í aðalhlutverki er
FH-ingurinn Kristján Arason sem lyftir sér yfir vörn
heimsmeistaranna og skorar með einu af sínum lands-
þekktu þrumuskotum.
Is sigraði
öðru sinni