Þjóðviljinn - 21.03.1984, Blaðsíða 12
12 SIÐA - ÞJOÐVILJINN Miðvikudagur 21. mars 1984
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið á Egilsstöðum:
Góðir félagar - Hreppsmálaráð
Fundur hjá Hreppsmálaráði Alþýðubandalagsins á Egilsstöðum
verða sem hér segir fram á vor:
Mánudagur 2. apríl. Umræðuefni: Skipulagsmál.
Mánudagur 16. apríl. Umræðuefni: Samstarf hreppa á Héraði og
sameiningarmál.
Fundirnirverða haldnirað Dynskógum 3 (kjallara), og hefjastkl. 20.30
stundvíslega.
Hreppsmálaráð hvetur alla félagsmenn til að mæta og láta Ijós sitt
skína. -Stjórnin.
Alþýðubandalag Selfoss og nágrennis
Almennur félagsfundur
verður haldinn næstkomandi fimmtudag 22. mars kl. 20. 30 að Kirkju-
vegi 7. Á dagskránni er m. a. inntaka nýrra félaga, fréttir af flokksstarfi
og rætt um atvinnumál á Selfossi.
Stjórnin
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Félagsfundur
verður haldinn miðvikudaginn 21. mars kl. 20.30 í
Þinghól. Dagskrá: 1) Félagsmálastofnun Kópa-
vogs- Bragi Guðbrandsson félagsmálastjóri hef-
ur framsögu. 2) Önnur mál.
Bæjarfulltrúar ABK og fulltrúar í félagsmálaráði
mæta. Allir félagar í ABK og aðrir sem áhuga hafa
á eru hvattir til að koma á fundinn. - Stjórn ABK.
Alþýðubandalag Borgarness og nágrennis
Aðalfundur
verður haldinn laugardaginn 24. mars kl. 14.00 aö Brákarbraut 3 I
Borgarnesi. Dagskrá: 1) Venjuleg aöalfundarstörf. 2) Reikningar
Röðuls. 3) Kosning ritstjórnar Röðuls. 4) Kosning hússtjórnar. 5)
Lagabreytingar. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Söfnum fyrir leikföngum
Félagið okkar í Reykjavík er nú komið í nýja og glæsilega aðstöðu að
Hverfisgötu 105. Stórátak meðal félaganna hefur gert drauminn um
gott húsnæði að veruleika og skapað góða aðstöðu til starfs og leikja. '
En ennþá vantar fé. Meðal þess sem foreldr-
ar hafa rekið sig á að sárlega vanhagar umer
leikaöstaða barna. Leikföng eru fá til í
flokksmiðstöðinni enn sem komið er.
Nú er hafin söfnun meðal flokksfólks og vel-
unnara Alþýðubandalagsins til að bæta úr
þessu. Allt verður vel þegið hvort sem það
eru fjárframlög eöa gömul nothæf leikföng.
Ef þið lúrið á einhverju vinsamlegast látið Kristján Valdimarsson vita í
síma 17500 eða Auði Styrkársdóttur í síma 81333 (heimasími 79017).
Framlög verða sótt heim ef óskað er.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Greiðir félags- og flokksgjöld
Alþýðubandalagið í Reykjavík minnir félagsmenn á að greiða 1. hluta
félags- og flokksgjalds fyrir árið 1984. Gíróseðla má greiða í öllum
bönkum og póstútibúum.
Alþýðubandalagið í Reykjavík:
Opinn fundur um
nýtt leiðakerfi SVR
Borgarmálaráð Alþýðubandalagsins í Reykjavík
boðar til fundar um tillögur að nýju leiðakerfi SVR
fimmtudaginn 22. mars kl. 20.30 að Hverfisgötu
105. Framsögu á fundinum hefur Baldvin Bald-
vinsson verkfræðingur hjá Borgarskipulagi
Reykjavíkur. Allir velkomnir. - BMR.
Bakkafjörður
Almennur fundur
Alþingismennimir Hjörleifur Guttormsson og Steingrímur J. Sigfússon
verða á almennum fundi á Bakkafirði föstudaginn 23. mars kl. 15.00.
Allir velkomnir. - Alþýðubandalagið.
Vopnfirðingar
Almennur fundur
Alþingismennirnir Hjörleifur
Guttormsson og Steingrímur J.
Sigfússon verða á almennum
stjórnmálafundi á Vopnafirði
fimmtudaginn 22. mars kl.
20.30.
Fundurinn er öllum opinn. -
Alþýðubandalagið.
Steingrímur. HJörleitur.
- ij
í>.>. ,:i ^ I
Frá v.: Sveinn Valtýsson, sem sér um daglegan rekstur Skíðaskálans og Carl Jónas Johansen, veitingamaður.
I endurnýjun lífdaganna
Rekstur Skíðaskálans í Hvera-
dölum er nú kominn í hendur
veitingamannsins Carls Jónasar
Johansen, sem jafnframt rekur
Veislumiðstöðina. Hófst hann
handa við gagngerar endurbætur á
Skíðaskálanum um síðustu ára-
mót. Við endurbæturnar var þess
vandlega gætt að upprunalegt útlit
þessa nær hálfrar aldar gamla húss
haldi sér og njóta megi áfram
gömlu, góðu Skíðaskálastemmn-
ingarinnar.
Vinnu við veitingasalina er lokið
og hafnar endurbætur á kjallaran-
um þar sem svefnpláss er fyrir 60
manns. Svefnlofti hefur verið
breytt í setustofu með bar.
Skíðaskálinn er í þjóðbraut,
miðja vegu milli Reykjavíkur og
byggðanna austanfjalls. Vill
Skálinn jöfnum höndum þjóna
báðum byggðunum. Hópar geta
fengið Skálann á leigu eða einstaka
sali fyrir fundi, ráðstefnur og sam-
kvæmi. Jafnframt mun Skálinn
hafa opna veitingasölu fyrir þá,
sem koma við í leiðinni framhjá.
Um er að ræða svonefndan „milli-
klassa" þar sem fólk getur notið
góðra veitinga í þægilegu umhverfi
og er þjónað til borðs. Söluskáli
verður opnaður við hlið Skíða-
skálans þar sem seldar verða ódýr-
ari veitingar.
Skíðasvæðið í nágrenni Skálans
hentar jafnt byrjendum og þeim,
sem lengra eru komnir í skíðaí-
þróttinni. Þar er skemmtilegt
gönguskíðasvæði. Toglyfta er frá
Skálanum og upp í brekkurnar og í
ráði er að setja upp barnalyftu.
Skíðakennari verður á staðnum og
rekin verður vélsleðaleiga. Ferðir
verða skipulagðar inn í Hengil
undir leiðsögn fararstjóra. Ætlunin
er að koma upp hestaleigu allt árið.
í sumar er meiningin að setja upp
leiktæki og grænmetismarkaður
opnaður með vorinu. Stefnt er að
því að setja niður heitan pott.
Allt miðar þetta að því að sem
flestir finni eitthvað við sitt hæfi í
þjónustu Skíðaskálans. -mhg
Samvinnubankinn Háaleitisbraut 68
mun frá og með fimmtudeginum 22. mars nk.
auka við þjónustusvið sitt og sjá um sölu
á ferða- og námsmannagjaldeyri.
Þar verður einnig hægt að stofna innlenda
gjaldeyrisreikninga auk þess sem útibúið veitir
alla þjónustu varðandi VISA-greiðslukort.