Þjóðviljinn - 21.03.1984, Qupperneq 16
Skákmótið í
Neskaupstað
Mann-
fórnir
í maka-
lausri skák
Þeir Helgi Olaf'sson og Guð-
mundur Sigurjónsson tefldu hreint
makalausa skák á skákmótinu í
Neskaupstað í gærkveldi. Þeir sem
á horfðu töldu sig vart hafa orðið
vitni að öðru eins. Skákinni lauk
með jafntefli, en í 9. leik fórnaði
Guðmundur manni. Helgi gaf hann
aftur og í 13. leik fórnaði Guð-
mundur aftur. Helgi kórónaði svo
allt með því að fórna drottningu
sinni í 19. leik. Guðmundur þrá-
skákaði svo og lauk skákinni með
jafntefli sem fyrr segir eftir 27 leiki.
Voru menn enn seint í gærkveldi að
velta því fyrir sér hvaða mögu-
leikar byggju í lokastöðunni.
Annars var mikið um jafntefli í
2. umferðinni í gær, aðeins séra
Lombardy vann sína skák gegn
Dan Hanssyni. McCambridge og
Jóhann Hjartarson, Schiissler og
Margeir, Róbert og Knesevic og
Guðmundur og Helgi gerðu allir
jafntefli. Wedberg á liprari stöðu í
biðskák gegn Benóný. í dag kl. 17
hefst 3. umferð.
-S.dór
Starfsmannafélag
Reykj avíkurborgar
719 já
462 nei
Aðalkjarasamningur Starfs-
mannafélags Reykjavíkurborgar
og borgarinnar var samþykktur í
skriflegri atkvæðagreiðslu sem
fram fór í gær og fyrradag. Á kjör-
skrá voru 2.588 manns en atkvæð-
isréttarins neyttu 1.210 eða 47%
félagsmanna. Já sögðu 719 eða
59.5% en nei sögðu 462 eða
38.5%. Auðir og ógildir seðlar
voru 29 talsins.
Okkur vantar garðyrkjumann
en að öðru leyti getum við bjargað okkur sjálfar,
sögðu Karmelsystur við Þjóðviljann í gœr.
Pólsku nunnurnar sem komu til
landsins í fyrrinótt voru léttar í
bragði þegar Þjóðviljamenn hittu
þær um kvöldmatarleytið í gær.
Þær höfðu þá upplifað fyrsta dag-
inn sinn á Islandi og sögðu hann
engum öðrum degi líkan.
Við hittum nunnurnar í matsal
Karmelklaustursins í Hafnarfirði.
Þær höfðu nýlokið við að snæða
kvöldverð sinn og buðu okkur upp
á te og kökur. Sungu þær fyrir okk-
ur og léku undir á gítar.
Karmelsysturnar komu flestar
frá Elblag,sem er skammt frá Var-
sjá, en tvær þeirra koma annars
staðar að frá Póllandi. Alls komu
16 systur hingað og pólskur prest-
ur, sem þær kalla Tadzio, en hann
mun dveljast hjá þeim fyrstu vik-
urnar. Hann talar ensku og það
gera reyndar einnig tvær systur sem
við ræddum við, þær Anna Wolska
og Maria Teresa Margorota. Anna
talaði einnig örlítið við okkur á ís-
lensku, las m.a. fyrir okkur úr bók-
inni Daglegar bænir fyrir ung börn.
Anna og María sögðu okkur að á
venjulegum degi líða 8 tímar í bæn-
ahald, latneskar bænir taka 2 tíma
á dag og andlegar hugleiðingar 6
tíma. Til þess að ná öllu því sem
þær þurfa að gera fara þær á fætur
kl. 5.30. í dag sváfu þær aftur á
móti til kl.10 en það halda þær að
komi ekki fyrir oftar. Oftar ætla
þær ekki að flytja og hyggjast búa í
Hafnarfirðinum til æviloka.
I gær var gestum heimilt að hitta
systurnar hvar sem var inni í
klaustrinu en í dag og aðra daga
þessarar viku munu þær taka á
móti gestum í sérstöku herbergi.
Síðan ætla þær að loka sig alveg frá
umheiminum og stunda bænir sínar
og vinnu sem m.a. felst í ýmsurn
heimilisiðnaöi til að afla lífsviður-
væris.
Systurnai báðu Þjóðviljann um
að koma því á framfæri að þær
vantar garðyrkjumann til að að-
stoða þær við að setja niður kart-
öflur í vor. Leggja þær mikla
áherslu á að geta ræktað sem mest
af grænmeti sjálfar.
Við segjum nánar frá heimsókn
okkar til systranna á næstunni.
- jp/Atli.
DMÐVIUINII
Miðvikudagur 21. mars 1984
Aðalsími Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt aö ná i blaöamenn og aðra starfsmenn blaösins í þessum símum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími 81663
I gærffengu blaoamaður og Ijósmyndari Þjóðvilj-
ans höfðinglegar möttökur hjá nunnunum í Karm-
elklaustri í Hafnarfirði. Þau voru drifin í hópinn og
mynduð bak og fyrir. Bangsann „Lolek“ ætlar
Anna Wolska að gefa páfanum þegar hann kemur
til íslands. Mynd - Tadzio.
Hamarshúsinu breytt í íbúðarhús:
Ekki forsvaranlegt
segir Sigurður Harðarson, fulltrúi í skipulagsnefnd
Aðeins 20 skip
búin með gamla
loðnukvótann
Flotinn
missir af
100 þús.
lestum
520 þúsund lestir af loðnu voru
komnar á land í gær frá því að
loðnuvertíðin hófst sl. haust, en alls
er heimilt að veiða 640 þús. lestir.
Sæmileg loðnuveiði var um síð-
ustu helgi út af Snæfellsnesi þegar
flotinn fann nýjar göngur sem
komu að vestan inn í Flóann. Síðan
hefur verið bræla á miðunum og
ekkert skip tilkynnt veiði. Fjöldi
skipa var á miðunum í gær og áttu
menn von á að lóðaði á loðnu í nótt
sem leið.
Af þeim 52 skipum sem stundað
,hafa loðnuveiðar í vetur hafa að-
eins 20 fyllt upp í áður markaðan
vóta s>nn en ljóst er að um 100
K im af leyfðum afla tekst
á land á þessari vertíð.
-lg-
„Það er ekki eitt heldur allt sem
mælir gegn því að breyta þessu
húsnæði í íbúðarhús“, sagði Sig-
urður Harðarson, fulltrúi AB í
skipulagsnefnd þegar hann var
spurður um andstöðu sína við fyr-
irhugaðar breytingum á Hamars-
húsinu við Tryggvagötu. Borgar -
ráð samþykkti breytinguna í gær
gegn atkvæðum minnihlutans og
hið sama var uppi á teningnum í
skipuiagsnefnd. Hafnarstjórn hef-
ur hins vegar einróma lagst gcgn
fyrirhuguðum breytingum.
„Húsið stendur við eina mestu
umferðargötuna í borginni", sagði
Sigurður Harðarson, „og vegna
umferðarhávaðans eins er þetta
ekki forsvaranleg staðsetning fyrir
íbúðir. Það verður ekki hægt að
opna glugga þarna og tala saman,
hvað þá meir.“
Þá benti Sigurður á að ekki væri
gert ráð fyrir neinum bílastæðum
við húsið og reiknað væri með allt
of mörgum íbúðum eða 40 talsins.
„íbúðirnar sjálfur voru líka gjör-
samlega óviðunandi á þeirri
teikningu sem skipulagsnefnd sá“,
sagði hann, „en bygginganefnd
mun að sjálfsögðu líta á þær 'sér-
staklega.“ Hvað aðstöðu til útivist-
ar varðar sagði Sigurður að skipu-
lagsnefnd hefði sett það skilyrði að
bakbyggingin yrði rifin til þeirra
þarfa.
í hafnarstjórn lögðust allir ein-
dregið gegn þessari ráðstöfun á
húsinu með þeim rökum að svæðið
væri hafnarsvæði og hentaði illa til
íbúðarbygðar. Auk þess væri eðli-
legt að í húsinu væri áfram starf-
semi sem tengdist höfninni.
Borgarráð tók upp í sína bókun
ábendingar hafnarstjórnar urn að
ekki yrði tekið neitt tillit til íbúða
þarna við uppbyggingu hafnarinn-
ar og jafnframt bent á að búast
mætti við miklu ónæði vegna hafn-
arstarfseminnar.
Það er byggingafélagið Ós sem
hefur fest kaup á Hamarshúsinu
eftir að Hamar hf flutti starfsemi
sína í Borgartún.
-ÁI