Þjóðviljinn - 28.03.1984, Blaðsíða 1
UOWIUINN
Drekasæði
kommúnismans
eða ræktun frið-
arvilja
Opna
mars
miðvikudagur
74. tbl.
49. árgangur
Albert Guðmundsson um ráðstafanir vegna fjárlagagatsins:
GET EKKERT SÝNT
• Formaður fjárveitinganefndar hefur enga vitneskju um aðgerðirnar • Veit ekki hvenœr
von er á tillögum frá Albert • Þingflokkur Sjálfstœðisflokksins bíður
„Ég þarf fyrst að vinna
þetta sjálfur áður en ég get
sýnt nokkuð“, sagði AI-
bert Guðmundsson fjár-
málaráðherra í gær, að-
spurður um tillögur hans
um hvernig fylla á upp í
stóra fjárlagagatið. Lárus
Jónsson formaður fjár-
veitinganefndar sagði að
þingflokkur sjálfstæðis-
manna hefði enn engar til-
lögur fengið á sitt borð og
hann vissi ekki hvenær
von væriáþeim.
Þingflokkur Framsóknar-
flokks hefur síðustu daga
haft til umfjöllunar tillög-
ur frá ríkisstjórninni um
hugsanlegan niðurskurð á
vegaáætlun og heilbrigðis-
kerfinu til að mæta stóra
gatinu. Þingflokkur sjálf-
stæðismanna hefur hins
vegar ekki enn fengið að
sjá framan í neinar til-
lögur.
Lárus Jónsson formaður
fjárveitinganefndar sagði í
samtali í gær að engar til-
lögur hefðu enn verið
sýndar í þingflokknum og
menn hefðu komið sér
saman um að það þjónaði
ekki tilgangi að ræða þessi
mál þar fyrr en einhverj ar
mótaðar tillögur frá ríkis-
stjórninni lægju fyrir.
„Eg veit ekki hvenær von
er á slíkum tillögum en ég
vona að það verði ekki
seinna en um miðja næstu
viku“, sagði formaður
fjárveitinganefndar. - lg* |
Chicago-lending
I Skaftahlíðinni
Einbeitingin skín úr hverju andliti, enda er vandasamt að lenda flugvél svo
vel fari. Kristján Einarsson, Ijósmyndari Morgunblaðsins, situr hér við
stjórnvölinn á IBM PC tölvunni, og reynir að lenda Cessna-flugvél á
flugvellinum í Chicago. Forrit þetta er á meðal fjölbreyttra sýningaratriða á
sýningu IBM að Skaftahlíð 24, sem kynnt var blaðamönnum í gær. Ljosm.:
-eik.
Kröfur Sóknar komnar fram
Jákvæð viðbrögo
- Við erum aðeins að fara
f ram á lágmarks réttlæti og
samræmingu á kjörum okkar
og annarra láglaunahópa í
þjóðfélaginu, sagði Óttarr
Magni Jóhannsson úr samn-
inganef nd Sóknar í viðtali við
Þjóðviljann í gær. - Kröf u-
gerð Sóknar var kynnt
viðsemjendum í gærmorgun
og sagði Óttarr vonast ti I að
ríkisvaldið hefði skilning á
svoauðsæju réttlætismáli
og hér væri um að ræða. Full-
trúar ríkisvaldsins á f undin-
um í gærmorgun hefðu sýnt
samningsvilja en efnislega
vildi hann ekki tjá sig um við-
ræðurnar.
Þaö kom fram á félagsfundi
Sóknar að helstu kröfur saminga-
nefndarinnar eru tilfærslur í launa-
flokkum þannig að hver félags-
maður Sóknar hækki um einn
launaflokk, eftir 15 ára starfsaldur
hækki starfsfólk um tvo launa-
flokka, óháð því hvort það hefur
unnið hjá sama atvinnurekanda
allan tímann og yfirvinna verði
greidd sem 1% af mánaðarlaunum
eins og hjá BSRB. Ein af höfuð-
kröfum Sóknar er að börn félags-
manna þeirra fái aðgang að barna-
heimilum sem rekin eru af spítul-
um en sú krafa er gömul og hefur
oft verið ýtt til hliðar að sögn samn-
ingamanna.
I samtali við Þjóðviljann sagði
Óttarr Magni að könnun kjara-
rannsóknarnefndar sýndi það ótví-
rætt að Sóknarfólk væri meðal
þeirra lægst launuðu í landinu, og
það þyrfti að leiðrétta sem fyrst.
Raþ.
Sjá bls. 3
Breytingar á fiskiskipum án leyfis
Allir skipstjórar
krafðir um svör
Hvað myndu menn segja ef við stoppuðum flotann?
spyr siglingamálastjóri í viðtali við Þjóðviljann
Siglingamáiastofnunin hefur í
samvinnu við Farmanna- og físki-
mannasamband íslands sent
spurningalista tii allra skipstjóra
fískiskipa, þar sem spurst er fyrir
um allar þaer breytingar sem
gerðar hafa verið á skipunum.
Síðan er ætiunin að bera svörin
saman við þær skýrslur sem Sigl-
ingamálastofnunin hefur um
breytingar á skipunum. Þetta
kemur fram í viðtali sem Þjóðviy-
inn birtir í dag við Hjálmar R.
Bárðarson siglingamálastjóra um
öryggismál fískiskipa.
Eins og fram kom í frétt Þjóð-
viljans í síðustu viku eru þess fjöl-
mörg dæmi að breytingar séu
gerðar á skipum ón þess að Sigl-
ingamálastofnunin sé látin vita af
þeim. Slíkt er ólöglegt, því að út-
gerðarmönnum, skipstjórum og
slippstöðvum er skylt að láta vita
af öllum breytingum og raunar
þarf fyrirfram að sækja um leyfi
til breytinga á skipunum.
t viðtalinu er einnig rætt um
sjálfvirkan sleppibúnað björgun-
arbáta, brot á iögum um hleðslu
fiskiskipa og siglingamálastjóri
spyr hvað gerast myndi ef Sigl-
ingamálastofnun myndi stöðva
hluta fiskiskipaflotans vegna
brota á öryggisreglum og örygg-
isbúnaði. - S.dór.
Sjá bls. 5