Þjóðviljinn - 28.03.1984, Page 3

Þjóðviljinn - 28.03.1984, Page 3
Miðvíkudagur 28. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Besta hljómsveitin í London, - sú besta í Englandi og jafnvel sú besta í heimi! Þannig hljóða dómar um Fílharmóníuhljómsveit Lundúna, sem heimsækir okkur á Listahátíö 1.-17. júní. Listahátíð hefst 1. júní: Fílharmónían meS 100 manns frá London Ashkenazy-feðgar leika einleik á píanó „Það er tvímælalaust mesti feng- urinn að fá hingað Fílharmóníu- hljómsveit Lundúna og þá feðga Vladimir og Stefan Ashkenazy, en þeir munu báðir leika einleik á pí- anó með hljómsveitinni, sem Vla- dimir stjórnar“, sagði Guðbrandur Gíslason, blaðafulltrúi Listahátíð- ar, í gær. Listahátíð verður haldin í 8. sinn 1.-17. júní nk. og er dag- skráin að taka á sig endanlega mynd. Enn hefur þó ekki verið tryggður poppari eða poppgrúppa, eins og venja stendur til, en nafn gömlu kempunnar Bobs Dylans hefur heyrst í því sambandi. Það þarf ekki að kynna píanóleik Vladimirs Ashkenazys fyrir hljóm- listarunnendum hér á landi, en það eru ánægjuleg tíðindi að sonur hans Stefan, sem alinn er upp hér á landi, ætlar að feta í fótspor föðu- rins og þykir nú með efnilegri ein- leikurum. Fílharmóníuhljóm- sveitin er 100 manna hljómsveit og sagði Guðbrandur tónleika hennar hér vera langdýrasta atriðið sem Listahátíð býður uppá og jafnvel það dýrasta sem hingað hefur kom- ið á vegum hátíðarinnar. Þeir feð- gar leika hins vegar ókeypis á hát- íðinni auk þess sem Valdimir As- hkenazy stjórnar hljómsveitinni. Af öðrum stórum „númerum" má nefna tónleika Christu Ludwig og Erichs Werba, sýningu á verk- um Copraistans Karels Appels, yfirlitssýningu á verkum „Utlend- ingahersveitarinnar“ sem í eru kunnir íslenskir listamenn búsettir erlendis og gestaleik frá Borgar- leikhúsi Stokkhólms. Listahátíð mun í þetta sinn eink- um fást við áratugina frá 1964-1984 og kynna sérstaklega það sem gerst hefur á því tímabili í íslenskri list- sköpun. Flestir salir í bænum verða undirlagðir auk þess sem farið verður út á götur með ýmis atriði, og meðal nýjunga má nefna kynn- ingu á íslenskri Ijóðlist frá 1964, sem Borgarbókasafnið stendur fyrir. Að kvöldi 17. júní rennur Lista- hátíð síðan saman við 40 ára afmæli íslenska lýðveldisins og þjóðhátíð með allsherjar lokaballi í Laugar- dalshöll. Og það sem nefnt hefur verið hér að ofan er aðeins brota- brot af því sem uppá verður boðið! -ÁI. Guðlaug Pétursdóttir samningamaður Sóknar: Fólk er reitt ,JÉg tel það vera einsdæmi að Það hefur fjöldi fólks talað við formaður Sóknar ráðist á samn- mig í dag og margir hafa hringt og inganefnd síns eigins félags og sagtaðviðnjótumfullstraustsog berjist gegn samninganefndinni samstöðu þeirra. Fólk hefur sýnt þegar hún er að reyna að ná fram samstöðu með okkur“ sagði kjarabótum fyrir sína félaga“ Guðlaug Pétursdóttir. sagði Guðlaug Pétursdóttir Sem á Aðspurð um framhaldið sagði sæti í samninganefnd Sóknar í hún að fólk sem hefði einungis samtali við Þjóðviljann í gær. dagvinnulaun gæti ekki beðið „Ég man ekki betur en að Að- lengur, það þyrfti að leiðrétta alheiður Bjarnfreðsdóttir hafi kjörþesssemallrafyrstogtilþess stungið uppá okkur sjálf og ég að svo gæti orðið yrðu nú allir að hlýt að túlka það þannig að hún standa saman. hafi þá borið fullt traust til okkar. - Raþ. Nefndm var r kosin að tillögu Aðalheiðar „Nýja samninganefndin var kosin að tillögu Aðalheiðar. Bjarnfreðsdóttur eftir að samningar ASÍ og VSÍ voru felldir og í nefndinni eru þeir sem Aðalheiður sjálf stakk upp á“, sagði Óttarr Magni Jóhannsson á félagsfundi Sóknar sl. mánudagskvöld en þar urðu líflegar umræður um nýju samninganefndina. Skoruðu nokkrar konur á nefndina að segja af sér og veita Aðalheiði samning- aumboð í þeim samningavið- ræðum sem nú standa yflr. Samninganefndin og stjórn Sóknar boðaði til fundarins til að kynna drög að kröfugerð fyrir samningaviðræðurnar sem fra- mundan eru. Kom það fram á fundinum að ekki voru allir sáttir við að samningar ASÍ og .VSÍ voru felldir hjá Sókn og kenndi Aðalheiður þeim um sem felldu samningana að nú hafi Sóknar- fólk tapað 1699 krónum vegna þess að samningamir voru felldir. Harpa Sigfúsdóttir sem á sæti í samnínganefndinni svarði því til að slíkt kæmi ekki að sök enda væri gert ráð fyrir því að samning- ar yrðu afturvirkir eins og hjá öðrum verkalýðsfélögum. Vegna áskorana um að samninganefn- din segði af sér sagði Óttarr Magni að þær væru ekki svara- verðar og bætti við að „samning- anefndin hafi verið þeirrar skoð- unar að Aðalheiður ætti fullt er- indi í samninganefnd Sóknar enda formaður félagsins“. Það vakti athygli að Aðalheið- ur Bjarnfreðsdóttir vildi ekki taka sæti í samninganefndinni en hún sagði á fundinum að það væru erfiðar samningaviðræður framundan. Hún óskaði sámn- inganefndinni gæfu og góðs gengis en vildi ekki taka sæti í nefndinni að svo stöddu. í lok fundarins var gengið frá kröfugerð samninganefndarinn- ar og fjölgað í baknefnd. Samn- inganefndin verður óbjreytt og hefur hún áfram samningsumboð fyrir sitt félag. RAÞ. Þorsteinn ræðst á VR Formaður Sjálfstæðisflokksins telur að stefna VR leiði til sömu sósialiseringar og í Rússlandi“ í umræðum um skattamál fyrirtækja á Alþingi í fyrra- kvöld lýsti Þorsteinn Pálson for- maður Sjálfstæðisflokksins alg- erri andstöðu við þá stefnu Verslunarmannafélags Reykja- víkur að verkalýðsfélögin eignuðust hlut í þeim fyrir- tækjum sem félagsmenn störf- uðu hjá. Sagði formaður Sjálf- stæðisflokksins að slík skipan myndi leiða til sams konar sósi- aliseringar og í Rússlandi. „Eg tel það ekki vera hlutverk verkalýðsfélaga, hvorki með frjálsum hætti né lögþvingaðri kerfísbreytingu, að kaupa hlutabréf í atvinnufyrirtækjum og það á auðvitað við um Versl- unarmannafélag Reykjavíkur eins og önnur verkalýðsfélög“, sagði Þorsteinn Pálsson. í umræðunum vakti Ólafur Ragnar Grímsson athygli á því að þessi árás Þorsteins Pálssonar á VR sýndi þá harðlínu hægristefnu og ofstæki sem nú réði ríkjum í Sjálfstæðisflokknum. Sú stefna sem Þorsteinn líkti nú við ástandið í Rússlandi væri aðalstolt Guð- mundar H. Garðarssonar, Björns Þórhallssonar og Magnúsar L. Sveinssonar í stjórnartíð þeirra í VR. Þessir forystumenn Sjálfstæðisflokksins yrðu sjálfsagt forundrandi á þessari fordæmingu formannsins. Þorsteinn kom þá aftur í ræðustól og endurtók and- stöðu sína. Stefna VR þjónaði ein- göngu því að greiða götu breyting- um sem leiddu á endanum til svip- aðrar niðurstöðu og í Sovétríkjun- um. óg. „Ekkert hræddur“ ,JVJín grundvallarskoðun er sú að mönnum eigi að vera frjálst með hverjum hætti þeir geta tekið þátt í atvinnufyrir- tækjum. Ég hef mína skoðun á þessu máli en það er greinilegt að Þorsteinn Pálsson er á ann- arri skoðun“, sagði Guð- mundur H. Garðarsson þegar Þjóðviljinn hafði samband við hann í gær út af ummælum for- manns Sjálfstæðisflokksins á þingi í fyrrakvöld um hlutdeild verkalýðsfélaga í fyrirtækjum. Guðmundur sagðist ekki hafa verið á þingi í fyrrakvöld vegna aðalfundar VR þar sem hann lagði fram reikninga Líf- eyrissjóðs verslunarmanna, og vissi hann ekki um þessar um- ræður þegar við töluðum við hann. „Ég er þeirrar skoðunar að íslendingar eigi að hafa sömu eða svipaða möguleika til þátt- töku í uppbyggingu atvinnulífs- ins sérstaklega á sviði stórfram- kvæmda með svipuðum hætti og á sér stað í Vestur- Þýskalandi. Ég fer ekki dult með það að ég hef mínar fyrir- myndir þaðan en ekki frá Sví- þjóð. Ég er ekkert hræddur um að þetta fyrirkomulag leiði til sósialiseringar eins og í Rúss- landi“. -jp. Er á annarri skoðun en Þorsteinn Pálsson, segir Guðmundur H. Garðarsson Bæjarstjórinn í Angmagsalik Góður gestur frá Grænlandi Ole Mathiessen bæjarstjóri í i Angmagssalik er staddur á Islandi um þessar mundir. Ole Mathiessen mun leita sam- ráðs við íslendinga um ýmis verk- efni sem snerta samskipti þjóð- anna. Á döfinni er að knattspyrn- ufélag frá Grænlandi sæki Island í heim og er áhugi á slíkum sam- j skiptum í ríkari mæli en hingað til. Þá mun bæjarstjórinn kanna möguleika á menntunartækifærum og atvinnutækifærum Grænlend- inga hér á landi t.d. á sviði fisk- iðnaðar. Þá mun Ole einnig kanna hvort áhugi sé fyrir austur- grænlenskum heimilisiðnaði hér á landi og ýmislegt fleira.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.