Þjóðviljinn - 30.03.1984, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓBVILJINN Föstudagur 30. mars 1984
Samningarnir við Alusuisse:
Meiri þungaiðnaður
en ég átti von á
segir iðnaðarráðherra Sverrir Hermannsson
Sverrir Hermannsson iðnaðar-
ráðherra var spurður hvers vegna
þetta misræmi væri i frásögnum
hans, ekki síst þeim er hann við-
hafði við Tímann og á fundi iðnrek-
enda.
„Jú, það er rétt að menn voru í
haust að tala um 1. aprfl, en samn-
ingarnir núna dragast á langinn
vegna mikilla veikinda mannsins
sem tók forystu í þessum málum
fyrir Alusuisse 1. janúar sl. En
endanlegt samkomulag um alla
þætti málsins er ég ekki bjartsýnn á
að fáist fyrr en í haust. Þátturinn
um orkuverið er hugsanlegt að
leysa, en ég vil að allir þættir, fram-
tíð skattamála, allt, verði á hreinu,
þannig að ekki verði um nein eftir-
köst að ræða.“
I tíð fyrrverandi ríkisstjórnar
lagðir þú til ásamt öðrum þing-
mönnum Sjálfstæðisflokksins að
samningamálin við Alusuisse yrðu
tekin úr höndum Hjörleifs Gutt-
ormssonar þáverandi iðnaðarráð-
herra, þar sem honum tækist ekki
að semja við Alusuisse. Nú hefur þú
verið iðnaðarráðherra í 10 mánuði
og ekkert mjakast nema bráða-
birgðasamkomulagið, sem þú
raunar sagðir að væri ekki nógu
gott.
Sverrir
í október
„Aðilar munu leitast við að
ná endanlegu samkomulagi
ekki síðar en hinn 1. apríl
1984.“
i skýrslu til Alþlngis sl. október.
„Bráðabirgðasamkomulagið var
í áttina. Við erum auðvitað búnir
að halda marga fundi og þetta þok-
ast...“
Hjörleifur hélt líka fundi.
„Já, rétt er það en hann var bú-
inn að vera ráðherra í 5 ár.“
En samningaumleitanir gátu
ekki hafíst fyrr en 1980 og þið héld-
uð því fram að það væri auðvelt að
ná samkomulagi ef Hjörleifur viki.
„Spurningin er sú, undir hvað
Hjörleifur var tilbúinn að skrifa,
annars vil ég ekkert vera að rifja
upp mál Hjörleifs að honum fjar-
Sverrir
í mars
Samningar um framtíð fyrir-
tækisins standa yfir, þar sem
stækkun þess og orkuverð eru
aðalþættir. Ég geri ráð fyrir að
samningar muni fljótlega tak-
ast um 50% stækkun fyrirtæk-
isins, sem tæki til starfa 1988.
Þetta segi ég vitaskuld með
fyrirvara um orkuverð, en
menn eru teknlr að tæpa á
þelm tölum sem stefna á álit-
lega niðurstöðu.
Á ársfundl iðnrekenda 20. mars.
stöddum, við höfum svo oft rætt
þessi mál á opinberum vettvangi.
Menn voru gagnrýnir á gang mál-
anna, en eins og ég segi þetta kost-
ar mikinn tíma, en éger bjartsýnn á
að við náum viðunandi niðurstöðu
en það kostar tíma.“
Finnst þér ef til vill Sverrir eftir
Sverrir
í útvarpi
„Ég er ekki bjartsýnn á að
endanlegir samningar við Alú-
sviss, um hækkun raforku-
verðs, stækkun álversins og
fleira, náist fyrr en niðurstaða
úr gömlu deilumálunum milli
ríkisins og fyrirtækisins liggur
fyrir.“
í viðtall vlð ríklsútvarpið 25. mars.
að vera búinn að vera iðnaðarráð-
herra í 10 mánuði að málið sé
flóknara og erfiðara viðfangs en þú
áttir von á áður en þú varðst ráð-
herra?
„Já, ég er nú helst á því að maður
hafi ekki gert sér grein fyrir því
hvað þetta er feiknalega þungt í
vöfum. Já, ég get alveg sagt það
Sverrir
í Tímanum
„Ég tel ekki að endanlegt
samkomulag náist við Aiusu-
isse fyrr en sér f ramúr því hvað
kemur útúr þessum gerðar-
dómsúrskurðum, sem unnið er
að nú af fullum krafti, en ég
vonast til þess að það geti orð-
ið með haustinu, og þá ætti
ekki að taka svo langan tíma
að ganga frá endaniegu
samkomulagi milli íslendinga
og Alusuisse".
f viðtali við Tímann 28. mars.
hreinskilnislega að þetta er meiri
þungaiðnaður en ég átti von á.“
- S.dór.
Lœknafélag Reykjavíkur og Lœknafélag íslands um
nýja sjúklingaskattinn
Greiðslur sjúklinga til
sérfræðinga hækka ekki
Læknaféiag Reykjavíkur og Læknafélag íslands hafa óskað eftir því að Páll Pórðarson-
Þjóðviljinn birti eftirfarandi athugasemd vegna fréttar blaðsins um samn- framkvœmdastjóri.
ingamál lækna og hinn nýja sjúklingaskatt stjórnvalda:
Sýningargestir vlrða fyrlr sér námsgögn hand fötluðum börnum.
Við getum öll lært
Sýning hjá Námsgagnastofnun
Að undanförnu hafa staðið yfir
samningaviðræður milli Lækna-
félags Reykjavíkur og Tryggingar-
stofnunar ríkisins um kjarasamn-
ing sérfræðinga á eigin stofum og
milli Læknafélags íslands og
Læknafélags Reykjavíkur annars
vegar og Tryggingastofnunar ríkis-
ins hins vegar um kjarasamning
heimilislækna.
Samningaviðræðum sérfræð-
inga er lokið með undirskrift samn-
inganefndar lækna með fyrirvara
um samþykki sérfræðinga. Var
samningurinn kynntur á félags-
fundi 27. þ.m. og verður til endan-
legrar afgreiðslu á fundi í dag 29.
mars.
í frétt Þjóðviljans í dag er fullyrt,
að í samningnum sé samið um stór-
hækkanir á greiðslum sjúklinga til
sérfræðinga. Þetta er alrangt, því
að gjöld þau, sem sjúklingar greiða
á stofum lækna, eru ekki samnings-
atriði, heldur fara þau skv. reglu-
gerð, sem ráðherra setur. í samn-
ingi sérfræðinga er hins vegar sam-
ið um, hvaða greiðslu lækni ber
fyrir hvert einstakt viðtal eða verk.
Reglugerðin segir síðan til um, hve
stóran hlut af því gjaldi sjúklingi
ber að greiða. Hækkun á greiðslu
sjúklings hefur því alls ekki í för
með sér tekjuauka til læknis, sem
Iðnaðarráðuneytið og Félags-
málaráðuneytið hafa kynnt sér-
stakt orkusparnaðarátak sem felst í
því að húseigendum verða veitt lán
til endurbóta á húsnæði með það
fær eins og áður segir samanlagt frá
sjúklingi og tryggingum umsamið
gjald fyrir hvert viðtal eða verk.
í umsömdum samningi er ein-
ungis gert ráð fyrir launahækkun til
lækna, sem nemur 4.5% eins og
B.H.M. samdi um nýverið.
Samningaviðræðum heimilis-
lækna er ekki lokið. Þar hefur
einnig verið gengið út frá því, að
launahækkun yrði 4.5%. Vegna
fyrirhugaðrar niðurfellingar núm-
eragjalda verður hins vegar um til-
færslur á tekjum að ræða milli
lækna, þannig að sumir kunna að
lækka eitthvað, en aðrir hækka, þó
þannig að samanlagt verði um
4.5% launahækkun að ræða. Upp-
kast að samningnum hefur verið
kynnt heimilislæknum. Undirtekt-
ir voru hins vegar þannig, að alls
óvíst er, hvort samningurinn verð-
ur samþykktur eða haldið áfram
með númeralæknakerfið.
Læknafélag íslands og Læknafé-
lag Reykjavíkur lýsa undrun sinni á
fréttaflutningi eins og hann birtist í
framangreindri forsíðufrétt Þjóð-
viljans og vænta þess, að í framtíð-
inni verði Ieitað traustari heimilda
en gert var í þetta sinn.
Reykjavík, 29. mars 1984.
F.h. Læknafélags Reykjavíkur og
Læknafélags íslands
tyrir augum að draga úr orkunotk-
un við hitunarkostnað. Gert er ráð
fýrir því að lán nemi allt að 80%
kostnaðar við slíkar endurbætur og
lánstími verði 16 ára og afborgun-
Athugasemd
blaöamanns:
Misskilningur
læknafélaganna
Athugasemd læknafélaganna er
byggð á misskilningi. í frétt Þjóð-
viljans í gær er alls ekki fullyrt „að í
samningnum sé samið um stór-
hækkanir á greiðslum sjúklinga til
sérfræðinga". Hitt er fullyrt að
hlutur sjúklinga í kostnaði við sér-
fræðingsþjónustuna stórhækkar af
þeirri einföldu ástæðu að uppi eru
hugmyndir um að lækka verulega
hlutfall Tryggingastofnunar í
greiðslum. Þar er á ferðinni hug-
mynd ráðherra í ríkisstjórninni til
að „spara“ í útgjöldum Trygginga-
stofnunar til að hafa eitthvað upp í
fjárlagagatið margumrædda.
Blaðamanni er fullkunnugt um þá
reglugerð sem framkvæmdastjóri
læknanna talar um í sinni athuga-
semd og veit gjörla að hækkanir á
greiðslum sjúklinga fara ekki til
lækna heldur í ríkissjóð eins og
áður var minnst á.
Athugasemd læknafélaganna
staðfestir að öðru leyti frétt Þjóð-
viljans í meginatriðum.
arlaus fyrir 2 árm.
Ráðgert er að lána 30 millj. kr.
til orkusparandi aðgerða á þessu
ári. Áformað er að veita fé til
endurbóta á a.m.k. 250 húsum á
þessu ári eða allt að 38 millj. kr. I
fyrsta áfanga verður lögð áhersla á
að ná til þeirra húsa, er liggja á
svæðum þar sem orkuverð er hátt,
og hafa óeðlilega mikla orkunotk-
un, segir í fréttatilkynningu frá iðn-
aðarráðuneytinu.
Nú stendur yfir sýning á kennslu-
gögnum handa fötluðum börnum í
kennslumiðstöðinni hjá Náms-
gagnastofnun undir kjörorðinu:
Við getum öll lært.
Sýningin er ætluð sérkennurum,
öllum kennurum er annast hjálpar-
og stuðningskennslu af einhverju
tagi og öllum þeim kennurum og
kennaranemum og öðrum skóla-
mönnum sem Iáta sig varða kennslu
sem tekur mið af þörfum hvers
nemanda.
Meðan á sýningunni stendur
verða flutt ýmis erindi er tengjast
sérkennslu og sýndar verða kynn-
ingarmyndir í tengslum við sýning-
una. Á sýningunni er m.a. að finna
bækur á léttu iesmáii fyrir nemend-
ur með lestrarörðugleika, hljóð-
bækur, námsgögn fyrir heyrnleys-
ingjakennslu og hjálpargögn fyrir
hreyfihamlaða og margt fleira.
Að sögn Ingvars Sigurgeirssonar
starfsmanns kennslumiðstöðvar-
innar er tilefni sýningarinnar það
að Námsgagnastofnun ráðgerir að
hefja útgáfu á námsefni hand fötl-
uðum börnum hér á landi. Ingvar
sagði ennfremur að ýmis erlend
fyrirtæki hafi sent sýnishorn af
sinni framleiðslu á þessu svæði til
sýningarinnar að kostnaðarlausu.
Sýningin stendur yfir frá 26. mars
til 13. apríl í kennslumiðstöðinni á
Laugavegi 166. Raþ.
Átak í orkusparn-
aði við húshitun