Þjóðviljinn - 07.04.1984, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 07.04.1984, Blaðsíða 12
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINNJHelgin 7.-8. apríl 1984 Iff ÚTBOÐ Tilboð óskast í stofnlögn hitaveitu að íbúða- hverfi norðan Grafarvogs, II áfanga fyrir hita- veitu Reykjavíkur. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn 1500 kr. skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 12. apríl nk. kl. 15 e. hád. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800 / Stór - Hlutavelta verður haldin í félagsheimili Ármanns v/ Sigtún, sunnudaginn 8. apríl 1984. Margir góðir vinningar eins og, málverk, öku- kennsla og eplakassi, sykur, hveiti og fl. Komið og freistið gæfunnar. Enginn núll. Frjálsíþróttadeild Ármanns Csá Styrkir til háskólanáms /1 eða rannsóknarstarfa á Ítalíu ítölsk stjórnvöld bjóða tram í löndum sem aðiid eiga að Evrópu- ráðinu nokkra styrki til háskólanáms á Ítalíu háskólaárið 1984-85. Styrkirnir eru ætlaðir til framhaldsnáms eða rannsóknastarfa að loknu háskólaprófi. Umsóknum skal skila til menntamálaráðuneyt- isins, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 25. apríl n.k., á sérstökum umsóknareyðublöðum, sem þar fást. Menntamálaráðuneytið, 5. apríl 1984. JÁRNIÐNAÐARMENN Óskum eftir að ráða plötusmiði og rafsuðu- menn. Upplýsingar gefur yfirverkstjóri í síma 20680. Flugmálastjórn óskar eftir tilboðum í lengingu flugbrautar á Siglufjarðarflugvelli. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum vor- um2. hæð Flugturninum Reykjavíkurflugvelli frá þriðjudeginum 10. apríl nk. gegn 2000 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 26. apríl n.k. kl. 14.00. Áskilið er að taka hvaða tilboði sem berst eða hafna öllum. Flugmálstjórn Flugmálastjórn óskar eftir tilboðum í lengingu flugbrautar á Ólafsfjarðarflugvelli. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum vor- um 2. hæð Flugturninum Reykjavíkurflugvelli frá þriðjudeginum 10. apríl n.k. gegn 2000 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 26. apríl nk. kl. 15.00. Áskilið er að taka hvaða tilboði sem berst eða hafna öllum. Flugmálastjórn Alþjóðaheilbrigðisdagurinn 7. apríl: Heilbrigt bam - auður framtíðar Formlegur stofndagur Alþjóða- heilbrigðisstofnunarinnar (WHO) er 7. apríl 1946 og er dagsins minnst árlega með því að beina athygli að einhverjum þaetti á sviði heilbrigð- ismála almennt eða í starfsemi stofnunarinnar. Þannig var mál- efnum aldraðra sérstakur gaumur gefinn árið 1982 og í fyrra var fjall- að um stefnumörkum WHO um „Heilbrigði allra árið 2000“. Stofn- unin hefur ákveðið að helga Al- þjóðaheilbrigðisdaginn 1984 heilbrigði barna undir kjörorðinu „Heilbrigt barn - Auður framtíð- arinnar.“ Heilsuvernd og góð heilbrigðis- þjónusta er forsenda félagslegrar þróunar og bættra lífsgæða, segir m.a. í tilkynningu heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins um Alþjóðaheilbrigðisdaginn. Það er grundvallaratriði, að mæður og börn fái notið þess sérstaklega. Umhyggja fyrir heilbrigði barna hetst þegar á tósturskeiöi meö barnavernd og eftirliti meðan á þungun stendur. Hér á landi hefur gífurlegur árangur náðst í heilsu- vernd mæðra og barna. Dauði af barnsförum er nánast úr sögunni á íslandi og ungbarnadauði með því lægsta sem þekkist í heiminum. Smitsjúkdómar eru sérstakt vandamál í barnæsku, en hægt er að ná miklum árangri í baráttunni við þá með bólusetningu. Al- mennar bólusetningar og ónæmis- aðgerðir eru nú sjálfsagður hlutur - meðal efnaðri þjóða heims, en jafnvel þótt slíkar aðgerðir séu til- tölulega auðveldar í framkvæmd og ódýrar, vantar mjög á að markvissri bólusetningu gegn al- gengum sjúkdómum sé við komið í þróunarlöndum. Ástæður þess eru meðal annars að flest bóluefni eru viðkvæm í flutningi og geymslu og koma því oft að engum notum vegna slæmrar meðferðar á hinum ýmsu stigum flutnings. Má þar helst nefna skort á kæliaðstöðu. Menntun, heilbrigði og góð fé- lagsleg aðstaða fjölskyldna og þjóðfélagheildar er grundvöllur þroska barna, segir ennfremur í til- kvnningunni. íslendingar hafa brugðist mjög vel við hjálparbeiðnum frá jrróun- arlöndum, og má þar minnast mikilla framlaga einstaklinga og fé- laga til safnana Rauða kross ís- lands í Hjálparsjóð sinn og Hjálp- arstofnun kirkjunnar - Brauð handa hungruðum heimi. Þá ber að geta við þetta tækifæri aðstoðar ís- lands við Grænhöfðaeyjar á sviði fiskveiða og heilsugæslu. En betur má ef duga skal. ^3 Svavar Vllborg Sveinn Margrét WK. f U Helgi Hjörlelfur Lára Jóna Öttar Magni Alþýðubandalagiö Forystumenn ferðast um Austurland Dagana 4.-8. apríl munu Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins, Vil- borg Harðardóttir varaformaður og Margrét Frímannsdóttir gjaldkeri flokksins svo og alþingismennirnir Helgi Seljan og Hjörleifur Guttormsson og Sveinn Jóns- son varaþingmaður ferðast til átta byggðarlaga á Austurlandi, halda þar almenna og opna fundi og hitta fólk, m.a. á vinnustöðum. tunmg verða með t terðinm tulltruar ur stjorn Æskulýðsfylkingar Alþýðubanda- lagsins, þau Lára Jóna Þorsteinsdóttir og Óttar Magni Jóhannsson og ræða þau við ungt fólk á stöðunum. Opnir fundir verða sem hér segir: If Egilsstaðir: miðvikudag4. aprfl kl. 21 (Hús Slysavarnarfélagsins) Helgi, Vilborg og Sveinn verða á fundinum. SeyðisQörður: fimmtudag 5. aprfl kl. 20.30 (Herðubreið) Helgi, Vilborg og Sweinn. |r Neskaupstaður: fimmtudag 5. apríl kl. 20.30 (Egilsbúð) Svavar, Margrét, Hjör- ^leifur. W Fáskrúðsfjörður: föstudag 6. apríl kl. 20.30 (Grunnskólinn), Svavar, Margrét, Hjörleifur. Stöðvarfjörður: föstudag 6. apríl kl. 20.30 (Samkomuhúsið) Helgi, Vilborg, Sveinn. Breiðdalur: laugardag 7. apríl kl. 14.00 (Staðarborg) Helgi, Vilborg, Sveinn. Eskifjörður: iaugardag7. apríl kl. 14.00 (Valhöll) Svavar, Margrét, Hjörleifur. Borgarfjörður eystri: sunnudag 8. apríl kl. 14 (Fjarðarborg) Helgi, Vilborg, Sveinn. Reyðarfjörður: sunnudag 8. apríl kl. 16.00 (Hús verkalýðsfélagsins) Svavar Margrét, Hjörleifur. Ein framsöguræða verður á hverjum fundi. Almennar umræður. Fundarboðendur sitja fyrir svörum. Fundirnir eru öllum opnir. Alþýðubandalagið

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.