Þjóðviljinn - 07.04.1984, Blaðsíða 26
26 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 7.-8. aprfl 1984
um helgina
Nýja strengjasveitin heldur tónleika á sal Menntaskólans við Hamrahlíö á sunnudag kl. 17. Á efnisskrá eru þrjú
verk: Five variants of „Dives og Lazarus“ eftir Vaughan Williams, Kammersinfónía eftir Shostakovich og
Fantasía consertante (um stef eftir Corelli) eftir M. Tippet.
Hljómsveit og lúörasveit Tónmenntaskóla Reykjavíkur ásamt Skóiakór Garðabæjar halda tónleika í Haskola-
bíói á laugardag kl. 14. Frumflutt verður verkið „Síðasta blómið'1 eftir Þorkel Sigurbjörnsson við Ijóð Thurber í
þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar. Aðgangur er okeypis og öllum heimil.
Skurðlistar-
skóli Hannesar
Flosasonar
Skurðlistarskóli Hannesar
Fiosasonar heldur vinnusýningu í
Ásmundarsal kl. 14-22 í dag,
laugardag, og á morgun. Þar
verða sýnd tréskurðarverk og
hópur tréskera verður við vinnu.
Skurðlistarskólinn er myndað-
ur af óslitinni röð kvöldnám-
skeiða og njóta nemendur ein-
staklingsbundinnar tilsagnar eftir
þörfum. Markmið þessarar starf-
semi er að byggja upp heillandi
frístundastarf fólks á öllum aldri.
Þá er hér einnig um að ræða list-
handverksþjálfun fyrir fólk sem
vill auka við menntun sína í list-
greinum.
Hannes Flosason myndskurð-
armeistari lauk fjögurra ára námi
1954 í myndskurði. Hann tók síð-
an kennarapróf og hefur starfað
sem tónlistarkennari og skóla-
stjóri.
Katrín Sigurðardóttir söngkona.
Katrín syngur
á Akureyri
Þau Katrín Sigurðardóttir
söngkona, Þorsteinn Gauti Sig-
urðsson píanóleikari og Viðar
Eggertsson leikari, sem efndu til
Músíkkvölda með leikrænu ívafi
á Húsavík og í Aðalda! um síð-
ustu helgi hafa ákveðið að endur-
taka dagskrána í Borgarbíói á
Akureyri næstkomandi laugar-
dag kl. 17.00.
Húsfyllir var á tónleikunum á
Húsavík og í Aðaldal, og komust
færri að en vildu. Á tónleikunum
verða flutt innlend og erlend
sönglög og aríur, Þorsteinn Gauti
leikur einleik á píanó, og flutt
verður atriði úr óperunni Miðlin-
um með aðstoð Viðars Eggerts-
sonar leikara.
leiklist
Logaland:
Ungmennafélag Reykdæla sýnir
Saumastofuna eftir Kjartan Ragnars-
son á laugardagskvöld kl. 21. Tekið er
við miðapöntunum í símum 5147 og
5191. Leikstjóri er Oktavía Stefánssdótt-
ír og leikendur eru 9. Næsta sýning á
þriðjudag.
Leikfélag Reykjavíkur
Forsetaheimsóknin, enn ein aukasýn-
ing í Austurbæjarbíói á laugardagskvöld
kl. 23.30.
Gísl eftir Brendan Behan á sunnudags-
kvöld, uppselt.
Guð gaf mér eyra á laugardagskvöld kl.
20.
Þjóðleikhúsið:
Gæjar og Píur á laugardags- og sunnu-
dagskvöld. Uppselt.
Amma þó! verður sýnt á laugardag og
sunnudag kl. 15. Þetta eru 14. oa 15.
sýningar á leikriti Olgu Guðrúnar Arna-
dóttur.
Tómasarkvöld á sunnudagskvöld á litla
sviðinu. Gestir gera fengið létta máltíð
og veitingar meðan dagskráin stendur.
Leikfélag Hafnarfjarðar:
I gærkvöldi frumsýndi félagið i Hafnar-
fjarðarbíói hið þekkta verk Josph Helles
„22. grein" (Catch-22). Leikstjóri og
þýðandi verksins er Karl Ágúst Ulfsson.
Næstu sýningar eru á mánudagskvöld
kl. 20.30 og síðan þann 10,11,12 og 13.
apríl.
Alþýðuleikhúsið:
Vorkonur Alþýðuleikhússins sýna
„Undir teppinu hennar ömrnu" eftir
Nínu Björk Árnadóttur á laugardag og
sunnudag á Hótel Loftleiðum. Uppselt er
á báðar sýningarnar.
Akureyri:
Kardimommubærinn eftir Thorbjörn
Egner verður frumsýnt á sunnudag kl.
15. Leikstjóri er Theodór Júlíusson en
þátttakendur í sýningunni eru 28 talsins.
Önnur sýning á þriðjudag.
myndlist
Kjarvalsstaðir:
Þrjár listsýningar verða opnaðar á Kjar-
valsstöðum á laugardag.
Baltasar sýnir málverk í vestursal.
Ragnhildur Stefánsdottir sýnir skúlp-
túr í vestari forsal.
Borealis, norræn listsýning i eystri álm-
unni. Þrír islenskir myndlistarmenn eiga
verk á Borealis: Ásgerður Búadóttir,
GunnarÖrn og MagnúsTómasson. Sig-
rún Guðjónsdóttir, fulltrúi FlM í stjórn
Sveaborgar flytur ávarp við opnun sýn-
ingarinnar kl. 14.00 og segir frá starf-
semi stofnunarinnar. Sýningin Borealis
hefur verið sýnd í Finnlandi, Danmörku
og Noregi og vakið mikla athygli. 16 lisla-
menn eiga verk á sýningunni.
Gerðuberg:
Andrés Magnússon opnar málverka-
sýningu í Menningarmiðstööinni Gerðu-
bergi á laugardag og stendur sýningin til
15. apríl. Hún er opin kl. 14-18 föstu-
daga, laugardaga og sunnudaga en kl.
16-22 aðra dagavikunnar. Andres sýnir
40 oliumálverk, 8 vatnslitamyndir og 10
akrylmyndir. Myndefnið er sótt til Þing-
valla, Vestmannaeyja, Hvalfjarðar og í
nágrenni Reykjavíkur.
Gallerí Gluggl:
I dag laugardag opnar Ámundi Sig-
urðsson sýningu í Galleri Glugga á
horni Vesturgötu og Garðastrætis. Sýn-
ingin heitir „Þrír stólar" og stendur til 21.
april. Sýningin er opin allan sólarhring-
inn.
Norræna húsið:
Erla B. Axelsdóttir sýnir 80 verk unnin í
olíu og pastel. Þetta er síðasta sýningar-
helgi og er sýningin opin kl. 14-22 um
helgina.
Listasafn ASÍ:
Vilhjálmur G. Vilhjálmsson sýnir
pastel- og vatnslitamyndir i Listasafni
ASl við Grensásveg. Sýningin ber heitið
„Sjónarhorn". Hún er opin kl. 14-22 en
henni lýkur á sunnudag.
Listmunahúsið:
Afmælissýningu Valtýs Péturssonar
lýkur á sunnudag. Á sýningunni í Lækj-
argötu eru 66 myndir unnar á árunum
1951-1957. Sýningin er opin kl. 14-18
um helgina.
Ásmundarsalur:
Hannes Flosason heldur vinnusýningu
í skurðlist í Ásmundarsal kl. 14-22 laug-
ardag og sunnudag. Á sýningunni eru
sýnd tréskurðarverk og hópur tréskera
verður þar við vinnu.
Gallerí Langbrók:
Eva Vilhelmsdóttir sýnir nýjan
skinnfatnað, Kolbrún Björgúlfsdóttir
sýnir skartgripi úr leir og postulíni og
Borghildur Oskarsdóttir sýnir keram-
ik. Sýninginer opin um helgina kl, 14-18
en kl. 12-18 á virkum dögum.
tónlist
Grindavík:
Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari og
Selma Guðmundsdóttir píanóleikari
halda tónleika í Grindavikurkirkju á laug-
ardag, 7. apríl kl. 17. Á efnisskrá eru
fiðlusónötur effir Mozart, Grieg og fjögur
lög op. 17 eftir Josef Suk.
Akureyri:
Hörður Áskelsson orgelleikari heldur
tónleika í Akurevrarkirkju á sunnudags-
kvöld kl. 20.30. Á efnisskrá eru verk eftir
Bach, Bruhns, Rheinberger, Reger, Gui-
lain og Boellmann. Hörður er fæddur á
Akureyri 1953 og nam þar fyrst orgelleik
hjá Gígju Kjartansdóttur og Jakobi
Tryggvasyni.
Islenska óperan:
Rakarinn i Sevilla á laugardagskvöld
kl. 20.
La traviata kl. 20 á sunnudagskvöld,
þriðja síðasta sýning. Auður Bjarnadóttir
dansar sólódansinn og tekur við af Birg-
ittu Heide.
Akranes:
Söngdeild Tónlistarskólans á Akranesi
heldur fjáröflunartónleika í Bíóhöllinni á
laugardag kl. 15. Flutt verða islensk og
erlend einsöngslög. Unnur Jensdóttir,
söngkennari skólans annast allan undir-
leik við söng nemenda. Aðgangseyrirer
kr. 100 og rennur hann í kostnað vegna
uppfærslu söngleiksins í haust.
Þrir kórar Árnesinga:
Samkór Selfoss, Árnesingakórinn í
Reykjavík og Árneskórinn úr uppsveit-
um Árnessýslu halda tónleika í sal
Menntaskólans við Hamrahlíð kl. 15 á
laugardag og í Hlégarði, Mosfellssveit kl.
20.30 sama kvöld. Söngskrá kóranna er
fjölbreytt en stjórnendur eru: Helgi E.
Kristjánsson, Guðmundur Ómar Ósk-
arsson og Loftur S. Loftsson.
Hafnarfjörður:
Símon Ivarsson gatarleikari heldur tón-
leika í Hafnarfjarðarkirkju á laugardag kl.
16. Á efnisskrá eru spænsk klassísk
verk en Simon er eini Islendingurinn
sem leikur flamencotónlist. Hann notar
tvo mismunandi gítara við flutning verk-
anna, klassískan gítar og flamencogítar.
Háteigskirkja:
Tónlistarskólinn í Reykjavik heldur tón-
leika kl. 17 á sunnudag i Háteigskirkju.
Þar syngur kór skólans ásamt kór Dóm-
kirkjunnar í Reykjavík. Stjórnandi er
Marteinn H. Friðriksson.
Lúðrasveit verkalýðsins:
Árlegir tónleikar Lúðrasveitar verkalýðs-
ins verða í Austurbæjarbíói I dag, laugar-
dag kl. 14. Efnisskrá tónleikanna er fjöl-
breytt. Stjórnandi er Ellert Karlsson og
kynnir Jón Múli Árnason.
Kópavogskirkja:
I tilefni af 20 ára afmæli Tónlistarskóla
Kópavogs verða haldnir tónleikar í Kóp-
avogskirkju í dag, laugardag, kl. 14. Flutt
verða m.a. verk eftir Karólínu Eiríksdótt-
ur og Fjölni Stefánsson skólastjóra. Á
tónleikunum munu kennarar og fyrrv. og
núv. nemendur skólans koma fram. Að-
gangur ókeypis.
Djúpið:
Á sunnudagskvöld heldur hljómsveitin
Hrim tónleika í Djúpinu og hefjast þeir kl.
21. Hljómsveitin leikur þjóðlög frá ýms-
um löndum og þar á meðal fjöruga þjóð-
lagatónlist frá Skotlandi og (rlandi. Einn-
ig frumsamin tónlist.
ýmislegt
Iðnskólinn kynntur:
Iðnskóladagurinn er i dag, laugardag 7.
apríl og er skólinn opinn kl. 10-16. Þar
gefst kostur á að fá yfirlit yfir fjölþætt
skólastarf iðnnema og þá mörgu mögu-
leika sem iðnnám skapar. Allar verk-
legar deildir verða til sýnis og verða
nemendur að starfi við fjölþætt verkefni.
( anddyri skólans verða smíðisgripir úr
tré og járni og önnur sýnishorn af vinnu
nemenda.
MIR-salurinn:
Kl. 16 á sunnudag verða sýndar nokkrar
sovéskar frétta- og fræðslumyndir i MÍR-
salnum, Lindargötu 48. Skýringar á ís-
lensku flytur Sergei Halipov dósent í
Leningrad.
Fjölskylduvaka:
Fjölskyldusamvera verður í húsi KFUM
og K, Ámtmannsstíg 2B, sunnudaginn 8.
apríl kl. 15. Leikir fyrir börnin, kaffi-
veitingar.
Hlutavelta og flóamarkaður:
Samtökin Ungt fólk með hlutverk halda
hlutaveltu og flóamarkað í starfsmiðstöð
sinni, Stakkholti 3, Reykjavík, 2. hæð á
laugardag kl. 14. Ágóði rennur til starfs-
miðstöðvar UFMH á Eyjólfsstöðum á
Fljótsdalshéraði. Engin núll eru á hluta-
veltunni og fjöldi góðra hluta á flóamark-
aðnum.
Kennsluefni í mannkynssögu:
Samlök kennara og áhugafólks um
sögukennslu halda almennan félags-
fund í dag, laugardag í Árnagarði, stofu
422. Fundurinn hefst kl. 14 og fúndarefn-
ið er kennsluefni I mannkynssögu í
grunnskólum og framhaldsskólum. Fra-
msögur flytja: Haukur Viggósson, Sig-
urður Hjartarson og : Sæmundur
Rögnvaldsson, kennarar.
Þjóðdansar á Broadway:
Þjóðdansafélagið heldur nemendasýn-
ingu í Broadway á laugardag kl. 14. Fjöl-
breyttir dansar, íslenskir og erlendir, en
stærsti hluti sýningarinnar eru islenskir
dansar og kynning á íslenskum búning-
um í tilefni 40 ára afmælis lýðveldisins.
Ráðstefna um friðarmál:
Félagsmáladeild Samhygðar gengst
fýrir ráðstefnu á Hótel Borg sunnudag-
inn 8. apríl undir heitinu: Friðarmál -
koma þau (slendingum við? Forsvars-
menn ýmissa friðarhreyfinga og
stjórnmálaflokka fjalla um friðarmál.
Barnagæsla á staðnum.