Þjóðviljinn - 07.04.1984, Blaðsíða 22
22 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 7.-8. aprfl 1984
FULLTRUASTARF
Ein af deildum Sambandsins óskar eftir að
ráða starfsmann í fulltrúastöðu.
Starfssvið hans er umsjón með fjármálum og
bókhaldi deildarinnar.
Leitað er að manni með góða þekkingu og
reynslu á þessu sviði.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá starfs-
mannastjóra er veitir nánari upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til 15. þessa mánaðar.
SAMBAND ÍSL. SAM VINNUFÉIAGA
STARFSMANNAHALD
ORKUBÚ vestfjarða
Utboð
Orkubú Vestfjaröa óskar eftir tilboöum í strengingu
leiðara fyrir 66 kv háspennulínu frá Mjólkárvirkjun til
Tálknafjarðar.
Útboðsgögn: Strenging.
Orkubúið leggur til efni frá birgðastöðvum á ísafirði og
Bíldudal. í verkinu felst auk strengingar leiðara upp-
setning einangrara, jarðbindingar o.fl. Verkið skal
hefjast 16. júlí 1984 og Ijúka 8.10.1984. Lengd línunn-
ar er 45 km og fjöldi mastra 503.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Orkubúsins á ísa-
firði frá og með 12.4. 1984 og kosta kr. 400. Tilboð
verða opnuð fimmtudaginn 3.5.1984 kl. 11.00 á skrif-
stofu Orkubúsins á ísafirði að viðstöddum þeim bjóð-
endum er þess óska og skulu þau hafa borist tækni-
deild Orkubúsins fyrir þann tíma.
Útboð
Orkubú Vestfjarða óskar eftir tilboðum í byggingu 19
kv háspennulínu frá Hrútatungu til Borðeyrar.
Útboðsgögn 19 kv háspennulína, Hrútatunga-
Borðeyri.
Orkubú Vestfjarða leggur til efni frá birgðastöðvum á
Borðeyri og í Hrútatungu.
Verkið skal hefjst 1.10. 1984 og Ijúka 1.12. 1984.
Lengd línunnar er um 9,5 km og fjöldi mastra 110.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Orkubúsins á ísafirði,
fimmtudaginn 3.5. 1984 að viðstöddum þeim bjóð-
endum er þess óska, og skulu þau hafa borist tækni-
deild Orkubúsins fyrir þann tíma.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Orkubúsins á ísa-
firði frá og með fimmtudeginum 12.4. 1984 og kosta
kr. 400.
Orkbú Vestfjarða
Stakkanesi1
400 ísafjörður
SUMARDVALARHEIMILI.
Þeir aðilar sem ætla að starfrækja sumardvalarheimili
fyrir börn sumarið 1984, þurfa að sækja um rekstrar-
leyfi fyrir 31. maí nk.
Þar til gerð eyðublöð liggjaframmi í menntamálaráðu-
neytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík.
Menntamálaráðuneytið,
4. apríl 1984.
Útboð-húsaviðgerðir
Óskað er eftir tilboðum í að fjarlægja máln-
ingu af steyptum útveggjum þriggja fjölbýlis-
húsa í Reykjavík. Tilboðin verða opðnuð
þriðjudaginn 17. apríl 1984 hjá Verkfræði-
stofunni Línuhönnun, Ármúla 11. Reykjavík.
sem veitir upplýsingar um verkið.
bridge
íslandsmótið:
Hverjir
komast
í úrslit?
Riðlakeppnin á íslandsmótinu í
sveitakeppni hófst á Loftleiðum í
gærkvöldi. 24 sveitir taka þátt í'
undanrásum, að undangengnum
úrtökumótum um land allt. Þess-
um 24 sveitum er skipt í 4 riðla og
komast 2 efstu úr hverjum riðli í
úrslit, sem verða spiluð um pá-
skana. ^
Áður hefur skipan sveita birst í
þættinum, utan þess að 2 vara-
sveitir koma inn. Það eru sveitir
Sigmundar Stefánssonar og Heimis
Tryggvasonar, báðar úr Reykja-
vík. Þær koma í stað sveita frá
Vestfjörðum og Vesturlandi.
(Bæði þessi svæði héldu ekki
svæðamót, þannig að eitthvað virð-
ist málum þar blandið.).
Nú, um möguleika einstakra
sveita til áframhaldandr keppni er
það að segja, að hart verður barist í
öllum riðlum og öll úrslit ekki fyrir-
fram gefin. í A-riðli koma fjórar
sveitir til með að berjast um sætin
tvö, sveitir Runólfs, Ágústs, Sig-
urðar og Samvinnuferða. Spá þátt-
arins er að Samvinnuferðir og Sig-
urðar hafi það, naumt þó.
í B-riðli virðist sveit Þórarins
nokkuð örugg og baráttan komi til
með að standa á milli Ármanns og
Eiríks um 2. sætið. Að líkindum
verða vinir mínir af Skaganum erf-
iðir, en það eru einnig frændur og
vandamenn í sveit Ármanns, þann-
ig að þar hallast ekkert á.
í C-riðli eru nokkrar blikur á'
lofti. Nokkuð jafn riðill, þó sveitir
Ólafs og Gests eigi nú samkvæmt
„bókinni" að tryggja sér þátttöku-
rétt í úrslitum. Þær hafa báðar sýnt
ágætis árangur í vetur, enda skip-
aðar nokkuð jöfnum spilurum. Þó
er ekki hægt að afskrifa sveitir eins-
og Ásgrím og bræður frá Siglufirði,
eða Selfyssingana eða Stefán Pálss.
Semsagt, opinn riðill að mestu.
í D-riðli eru tvö „tröll“. Sveitir
Úrvals og Jóns Hj. Þær „ættu“ að
vera nokkuð öruggar, en sveitir
Guðbrands og Þorfinns eru hættu-
legar. Ef einhvers staðar verða
óvænt úrslit verður það í þessum
riðli.
Semsagt, að mati þáttarins spila
þessar sveitir til úrsiita á íslands-
mótinu 1984: Samvinnuferðir-
Landsýn, Sigurður Vilhjálmsson,
Ólafur Lárusson, Gestur Jónsson,
Þórarinn Sigþórsson, Eiríkur Jóns-
son. Úrval og Guðbrandur Sigur-
bergsson.
Til vara í hverjum riðli: Ásgrím-
ur Sigurbjörsson, Runólfur Páls-
son, Ármann J. Lárusson og Jón
Hjaltason.
Einsog fyrr sagði, hófst mótið í
gærkvöldi. Tvær umferðir verða
spilaðar í dag og hefst sú fyrri kl. 13
og sú síðari kl. 20. Og á morgun
verða svo tvær síðustu umferðirnar
og hefjast þær á sama tíma.
Stórmeistarar
heiðraðir
í gærkvöldi voru heiðraðir þeir
spilarar sem náð hafa stórmeistar-
aáfanga hér á landi. Áður hafði
Þórarinn Sigþórsson hlotið þann
heiðurstitil og hafa eftirtaldir spil-
ararnú bæstíþann hóp: Ásmundur
Pálsson, Karl Sigurhjartarson, Örn
Arnþórsson, Guðlaugur R. Jó-
hannsson, Jón Baldursson og Sæ-
var Þorbjörnsson og Valur Sig-
urðsson.
Alls hafa því 8 íslenskir spilarar
hlotið nafnbótina „stórmeistarar" í
bridge.
Björn Theódórsson, forseti
Bridgesambands íslands, afhenti
viðurkenninguna og mun sú regla
héreftir viðhöfð við sama tækifæri,
er fleiri spilarar bætast í „heiðurs-
launahópinn“.
Aðal-
fundur
Aðalfundur Alþýðubankans hf. árið
1984 verður haldinn í Súlnasal Hótel
Sögu, Reykjavík, laugardaginn 14.
apríl 1984 og hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
a) Venjuleg aðalfundarstörf í sam-
ræmi við ákvæði 18. gr. sam-
þykkta bankans.
b) Tillaga um heimild til bankaráðs
um útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
Aðgöngumiðar að fundinum og
atkvæðaseðlar verða afhentir í
aðalbankanum, Laugavegi 31,
dagana 11., 12. og 13. apríl nk.
Benedikt Davíðsson, form.
Þórunn Valdimarsdóttlr, ritari.
UTBOÐ
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í 2. áfanga
ARNARNESVEGAR.
Helstu magntölur eru:
Lengd
Fylling og burðarlag
1.4km
24.000 m3
Verkinu skal lokið 31. ágúst 1984.
Útboðsgögn verða afhent hjá aðalgjaldkera Vega-
gerðar ríkisins, Borgartúni 5,105 Reykjvík, frá og með
10. apríl 1984 og kosta kr. 1.000. Skila skal tilboði í
lokuðu umslagi merktu nafni útboðs til Vegagerðar
ríkisins, Borgartúni 7,105 Reykjavík fyrir kl. 14:00 hinn
30. apríl 1984.
Reykjavík í apríl 1984.
Vegamálastjóri.
Arlegir
vortónleikar
Lúðrasveitar Verkalýðsins verða í Austur-
bæjarbíói í dag laugardaginn 7. apríl, og hefj-
ast kl. 14. Efnisskráin er að vanda fjölbreytt,
bæði innlend og erlend lög.
Stjornandi: Ellert Karlsson.
Kynnir: Jón Múli Árnason.
Aðgangur ókeypis.
Lúðrasveit Verkalýðsins.
BOKAVÖRÐUR
Reykjavíkurborg óskar eftir að ráða bóka-
vörð hjá skólasafnamiðstöð fræðsluskrifstof-
unnar Fríkirkjuvegi 1.
Upplýsingar veitir skólasafnafulltrúi í síma
28544.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð
á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar
fást fyrir kl. 16.00 mánudaginn 16. apríl 1984.