Þjóðviljinn - 28.04.1984, Qupperneq 4
í mHíí — WíUIVflóW-t&tí fnqr. - .<?i' rúAf t'i
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINNHelgin 28. - 29. aprfl 1984
Hjartað skilur betur heldur en
skynsemin.
Locordaire
Nýstárleg framleiðsla á Borgarfirði eystra
Danska herskipið Is-
lands Falk var við
strandgæsiu við ís-
land á fyrri hluta
þessarar aldar, allt
fram til ársins 1930.
Myndin er tekin á ytri
höfninni í Reykjavík
26. september 1913,
og er skipið fánum
skrýtt í tilefni af af-
mælisdegi Kristjáns
X.
Jón Helgason
„Gegnum
haustsins
húmið
þétta“
Gegnum kvæði
Þegar Jón Helgason prófessor í
Kaupmannahöfn gaf út ljóðabók sína
Úr landsuðri árið 1939 var hann þegar
talinn í hóp höfuðskálda þjóðarinnar.
Eitt af þekktari kvæðum hans er Lestin
brunar:
Lestin brunar, hraðar, hraðar,
húmið Ijósrák sker,
bráðum ert þú einhvers staðar
óralangt frá mér.
Út í heim þú ferð að finna
frama nýjan þar,
ég hverf inn til anna minna,
allt er líkt og var.
Pú átt blóðsins heita hraða,
hugarleiftur kvik;
auðlegð mín er útskersblaða
aldagamalt ryk.
Einhvers skírra, einhvers blárra
œskti hugur minn,
og þú dreifðir daga grárra
deyfð og þunga um sinn.
En nú liggja leiðir sundur,
Ijósin blika köld,
aldrei verður okkar fundur
eftir þetta kvöld.
Gegnum haustsins húmið þétta
hug minn víða ber,
aldrei muntu af því frétta
að hann fylgir þér.
Aldrei spyrðu alla daga
að í kvöld ég hef
ort á tungu ystu skaga
einstök fábreytt stef.
Pegar brátt þín mynd og minning
máist föl og hljóð,
er til marks um okkar kynning
aðeins þetta Ijóð.
Allar raddir óma glaðar,
einn ég raula mér;
lestin brunar, hraðar, hraðar,
húmið Ijósrák sker.
Fjörugrjóti breytt
í skrautlega skildi
Af hagleiksmönnum í Álfasteini
Sæbörðu grjóti úrfjöru og
skrautsteinum úr fjöllum og skriðum er
áBorgarfirði eystra breytt í snotra vegg-
skildi, standskildi og jafnvel leg-
steinaplötur af hagleiksmönnum í Álfa-
steini, sem er nýlegt hlutafélag í eigu
um 80 einstaklinga í byggðarlaginu.
Fyrirtækið er enn að hasla sér völl, en
að sögn Helga Arngrímssonar hefur
gengið vel að selja framleiðsluna til
þessa.
„Við notum mest lúða hnullunga úr bas-
alti sem við tínum nú bara hérna í fjörunni"
sagði Helgi. „Valið þarf heldur að vanda,
því oft geta leynst sprungur í grjótinu sem
getur eyðilagt vinnsluna. Svo höfum við
líka gabbró sem er fengið frá Hornafirði, en
það er ekki eins mikið notað og basaltið, því
munstrið sem við fellum á steininn kemur
miklu ver út í gabbróinu. Hins vegar er
gabbróið miklu litfegurri steinn og því
skemmtilegri til vinnslu."
Álfasteinn var stofnaður að framkvæði
heimamanna til að auka fjölbreytni í
atvinnulífi heimamanna, sem hefur oft ver-
ið laklegt þar sem ill hafnarskilyrði gera
fiskvinnslu og útgerð erfitt um vik. Að sögn
Helga vinna ekki nema tveir menn í Álfa-
steini enn sem komið er, en hins vegar er
auðvelt að bæta við fólki ef þörf krefur.
„Okkur stendur líklega helst fyrir þrifum
fjárskortur, því satt að segja höfum við ekki
fjármagn til að gera veglegan auglýsinga-
bækling um framleiðslu Alfasteins, sem
væri þó mikil nauðsyn. Hins vegar höfum
við góða umboðsmenn víða, en gætum þó
bætt við okkur fleirum“.
Skrautsteinar . öllum regnbogans litum
vekja athygli okkar og Helgi fræðir okkur á
því að þetta sé jaspis, sem hann tíni kring-
um byggðina áBorgarfirði eystra. Þeir eru
skornir í sneiðar, slípaðir og notaðir í
standsteina, eða pennastatíf og eru gífur-
lega fallegir.
„Framleiðslan er smám saman að komast
á traustari grunn. Fólk heyrir af þessu og
þetta eru oft mjög sérstakir gripir og alls
ekki dýrir, svo það færist heldur í aukana að
menn panti hjá okkur gripi til að gefa á
stórafmælum vina og kunningja, nú eða til
að nota sem viðurkenningu á íþrótta-
mótum. Handknattleikssamband íslands er
til dæmis komið með fastan samning við
okkur, gefur erlendum liðum og dómurum
gripi frá okkur. Þetta er alveg tilvalið fyrir
slík tækifæri og vonandi að fólk notfæri sér
þetta í framtíðinni.“
Álfasteinsmenn taka myndir af öllum skjöldum
sem þeir láta frá sér fara. Viö rákumst á þessa
af skildi sem Jónasi Árnasyni rithöfundi var
færður á sextugsafmælinu.
Helgl Amgrímsson hjá Álfasteini kvað skildina
frá Alfasteini tilvalda til gjafa á stórafmælum
eða við aðra merkisatburði sem minnst væri á
einhvern hátt. Ljósm. Jón Ingi.
Dyrfjöll komin á sneið úr lúðum basalthnullungi.