Þjóðviljinn - 28.04.1984, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 28.04.1984, Blaðsíða 18
18 SÍÐA - Þ.IÓÐVIL.1INN Helgin 28. - 29. aprfl 1984 t FANNEY Vióir II GK 275, baturinn sem Eggert Gislason var meö. Hann náði tökum a að kasta notinni með hjalp astektækja þó að síldin væri ekki sjáanleg á yfirborðinu. Það var árið 1954. Ljósm.: Snorri Snorrason. Böðvar AK 33. Haraldur Böðvarsson & Co gerði tilraunir til veiða með kraftblökk a þessum bat árið 1955 en þær baru litinn arangur. Ljosm.: Snorri Snorrason. Guðmundur Porðarson RE 70. Petta var fyrsti baturinn sem tilraunir með kraftblokk slogu i gegn sumarið 1959. Ljosm.: Snorri Snorrason. Fanney RE4, fyrsta sérsmiðaða skipið fyrir kraftblökk. Skipið var keypt til lanösins arið 1945 og það ár gerðar fyrstu tilraunirnar með kraftblökkina. Ljósm.: Einar Jonsson. Kraftblakkarbyltingin Óhætt er aö segja aö fátt hafi valdið jafnmikilli byltingu í síldveiðum íslend- inga og kraftblökkin sem þeim tókst fyrst aö nota meö verulegum árangri fyriraldarfjórðungi. Reyndarvoru gerðar tilraunir meö kraftblökk hér á landi þegar í stríðslok og verður hér rifjuð lítillega upp sú saga. Vorið 1945 var Ingvar E. Einarsson skip- stjóri sendur til Bandaríkjanna á vegum Síldarverksmiðju rikisins og Fiskimálan- efndar. Átti hann að athuga hvort síldveiði- tækni og skip á Kyrrahafsströnd Bandarikj- anna hentuðu hér við land. Ingvar lagði til að keypt yrði skip sem var í smíðum í Tak- oma í Washingtonfylki. Skipið var 136 brúttótonn að stærð með 320 hestafla Atlas-díselvél. Það var keypt og kom hing- að til lands í októberlok 1945. Hlaut það nafnið Fanney. Kostnaðarverð skipsins hingað komið með veiðarfærum var um 930 þús. krónur og áttu Síldarverksmiðjurnar og Fiskimálanefnd skipið að hálfu, hvor að- ili. Fanney fer til veiða Sumarið 1946 hélt skipið til síldveiða fyrir Norðurlandi. Ellefu manna áhöfn var á skipinu og öfluðust 2590 mál og 820 tunnur á vertíðinni. Nótin var úr amerísku efni en sett upp hér heima eftir amerískri teikningu. Sú tækninýjung fylgdi Fanneyju að nótinni var kastað beint af skipinu og lítill prammi með einum manni hafður við þann enda nótarinnar sem byrjað var að kasta. Skipinu var síðan siglt umhverfis sfldartorfuna. Rann þá nótin afturaf palli aftast á dekkinu og snerist hann þegar skipið beygði og lagaði sig þannig að hring- ferli skipsins á meðan kastað var. Herpilína var dregin með vökvaspili og nótin dregin með kraftblökk. Pokinn var í enda nótar- innar í stað þess að vera fyrir miðju eins og venjulegt var. Nótin var 250 faðma löng og 33 faðma djúp. Fanneyjarmenn náðu ekki tökum á kraftblakkartækninni og var blökkin sett í land. Jón B. Einarsson varð svo skipstjóri á rn/s Fanney 13. júlí 1948. Hann reyndi að nota kraftblökkina en án árangurs og var hún lögð til hliðar og nótin snörluð inn. Nótin virtist of garnmikil og gekk þess vegna ekki í gegnum blökkina. íslendingar felldu nætur sínar meira en Ameríkumenn og mun það hafa gert gæfumuninn. Akurnesingar og Landsbankinn Nú leið og beint en seint á árinu 1955 las Sturlaugur Böðvarsson í erlendu tímariti um nýtt hjálpartæki við nótaveiði sem tekið hafði verið í notkun á vesturströnd Banda- ríkjanna. Þetta var kraftblökkin. Hann kynnti þessa nýjung föður sínum og þeir 'ákváðu að gera tilraun en töldu fyrirtækið of áhættusamt til þess að reyna það á eigin spýtur. Þeir leituðu því stuðnings Lands- bankans og fóru á fund Vilhjálms Þór aðal- bankastjóra. Vilhjálmur hafði skilning á málinu og kvaðst mundu leggja til að bank- inn greiddi helming kostnaðar af tilrauninni og fékk hann það samþykkt. Þeir Haraldur og Sturlaugur ákváðu að nota m/b Böðvar, 85 tonna tréskip, við til- raunirnar. Þeir pöntuðu kraftblökk og mjög aflmikið spil, hvort tveggja vökva- drifið. Settar voru járnbómur á möstur bátsins og var önnur þeirra 9 metra löng. Þá var einnig sett 12 tommu síldardæla í bátinn ásamt 64 hestafla mótor sem aflgjafa og var gert ráð fyrir að hægt væri að dæla aflanum yfir í flutningaskip á miðunum. Þá var m/b Böðvar útbúinn þannig að kasta mátti nót- inni frá borði og nótabátur því óþarfur. Einnig var gerð úr svonefndu Hvalfjarðar- neti 250 faðma löng nót, 50 faðma djúp og að auki grunnót úr sama efni. Einnig var pöntuð frá Kanada hin fræga Kyrrahafsnót. Árangurslitlar tilraunir Báturinn var ekki tilbúinn á veiðar fyrr en 28. júní 1956 og var hann sendur á miðin fyrir Norðurlandi ásamt m/b Reyni sem átti að fylgja honum og taka á móti afla á mið- unum. Skipstjóri á Böðvari var Hannes Ól- afsson en Sturlaugur fór með bátnum norður og var um borð á meðan tilraunin stóð yfir. Kyrrahafsnótin var ekki komin til landsins þegar báturinn fór norður og ekki heldur kanadíski skipstjórinn sem ráðinn var til leiðbeiningar. í fyrstu veiðiferð komu í ljós ýmsir gallar sem óhjákvæmilegt var að laga og var farið inn á Siglufjörð þess vegna. Lagfæringin tók hálfan mánuð. Hófst nú veiðin og fengust 3491 mál og tunnur sfldar á þremur vikum þrátt fyrir stirðar gæftir. Kraftblökkin reyndist vel en spilið illa og skilaði ekki því afli sem það var gefið upp fyrir. Mestu af aflanum var dælt yfir í Reyni og kom sfldin lifandi og óskemmd frá dælunni. Dælan afkastaði allt að 400 tunnum á klukkutíma. Viku af ágúst tók fyrir alla veiði út af Norðurlandi og var þá haldið heim. Nú var Kyrrahafsnótin komin og einnig kanadíski skipstjórinn til Ieiðbeiningar. Honum fannst miður að tilraunirnar fóru ekki fram á Fanney sem var sams konar skip og notuð voru til þessara veiða vestanhafs. Þótti hon- um Böðvar lítill og óhentugur til þessara tilrauna og mundi það ráða úrslitum um árangurinn. Frést hafði um sfld úti af ísafjarðardjúpi og var haldið þangað þar sem veður var hagstætt. Varð að ráði að reyna Kyrra- hafsnótina. Var henni kastað tvisvar og fengust í hana 50 tunnur af sfld. Tilraunin gekk vel nema spilið reyndist aflvana. Þeg- ar suður kom var reynt að endurbæta spilið en árangurslaust. Tvær tilraunir voru enn gerðar á Böðvari með kraftblökkina og var Ingvar Pálmason skipstjóri fenginn til þess að stjórna þeirri síðari þar sem kanadíski skipstjórinn var ekki ráðinn lengur. Þetta var um miðjan október og átti bæði að reyna Kyrra- hafsnótina og flottrollið. Árangur var eng- inn og taldi Ingvar tilgangslaust að halda þessum tilraunum áfram þar sem spilið væri alltof kraftlítið. Þar með lauk þessum til- raunum og var tap útgerðarinnar 700 þús- und krónur og tap Landsbankans nokkru meira. Endurbætur á Guðmundi Þórðarsyni Síðan liðu 4 ár þar til næsta tilraun var gerð. Þann 21. júní 1959 hélt Guðmundur Þórðarson RE 70 til sfldveiða við Norður- land með hringnót og búinn kraftblökk. Nótinni var komið fyrir aftast á þilfari skips- ins og henni kastað og hún dregin af skipinu en ekki notaður nótabátur. Lftill vélbátur var hafður meðferðis. Var hann hafður í enda nótarinnar þegar kastað var og síðan til þess að halda nótinni frá skipinu á meðan háfað var. Bóma var höfð tvo metra aftan við bakka og korkaendi nótarinnar bund- inn fremst á hana þegar bundið var á síðu og háfað en brjóstið lá í fellingum eftir henni að síðunni og steinateinninn bundinn aftur eftir skipinu. Nótin var síðan hífð inn með kraftblökk þar til hægt var að háfa. Fyrirkomulagið reyndist ekki vel. Eftir átta köst var gerð breyting. Smíðaður var nótakassi á bátadekki og blökkin færð í fremri davíðuna stjórnborðsmegin. Við þessa endurbót var þrautin leyst og hafa aðrir byggt á reynslu þeirri er þarna fékkst. Stærð nótarinnar var 230 faðmar að lengd og 53 faðmar í dýpt. í vertíðarlok var Guðmundur Þórðarson þriðja aflahæsta skipið á sumarsfldveiðun- um. Skipstjóri var Haraldur Ágústsson, stýrimaður Björn Þorfinnsson en útgerðar- maður Baldur Guðmundsson. (Einar Vilhjálmsson tók saman. Helstu heimild- ir: Ársskýrsla SR 1946, í fararbroddi, æviminn- ingar Haralds Böðvarssonar, skráðar af Guð- mundi Hagalín og Mennirnir í brúnni eftir Guð- mund Jakobsson).

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.