Þjóðviljinn - 01.05.1984, Qupperneq 23

Þjóðviljinn - 01.05.1984, Qupperneq 23
Þriðjudagur 1. mai 1984 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 23 1. maí 1. maí ávarp Samtaka kvenna á vinnumarkaði mikið mæltu samningunum. Má þar nefna Sókn, Snót í Vestmannaeyjum, kennara og fóstrur, aö Dags- brún ógleymdri. Nú erum við konur búnar að fá nóg. Við munum sýna þessum herrum að við sættum okkur ekki lengur við annan launaflokk fyrir fyrsta flokks vinnu. Launaliðir samninganna eru lausir 1. september. Við látum ekki segja okkur enn á ný að það sé eingöngu hlutverk okkar að bjarga þjóðarskútunni og stoppa í fjárlagagöt ríkisstjórnarinnar. Við skulum heldur nýta þann kraft sem í okkur býr og berjast ótrauðar áfram fyrir rétti okkar. Reynt er að telja okkur trú um að konur, sem eru í vinnu utan heimilis, eigi ekkert sameiginlegt. Tölurnar sem nefndar voru hér að framan tala sínu máli um það að alls staðar í öllum félögum er konum og kvenn- astörfum raðað neðst. Það eru konur sem bera ábyrgð á umönnun barna og heimila og búa þannig við tvöfalt vinnuálag. Svokölluðum kvennamálum er líka oftast haldið utan við verkalýðsbaráttuna og konur hafa almennt átt erfitt uppdráttar í verkalýðs- félögunum. Félagsform þeirra er ekki árennilegt fyrir konur og því auðgert að draga úr trú þeirra á getu sína á þessum vettvangi. En við erum margar og saman getum við stutt hver aðra og sýnt hvað í okkur býr. Við byrjum á því strax í dag með því að taka virkan þátt í störfum verkalýðshreyfingarinnar, halda fram okkar málum þar og styðja við bakið á þeim sem tala þarokkar máli. Við munum keppaað því að launaliðum samninganna verði sagt upp 1. september og kröfugerð undirbúin. Við munum búa okkur undir að fylgja kröfum okkar eftir með aðgerðum. Við höfum ótal vopn; við eigum bara eftir að ákveða hvernig við notum þau. Hvað myndi t.d. gerast ef konur í bönkum minnkuðu vinnuhraða sinn um helming í nokkra daga, ef skæð flensa færi að herja á fóstrur og ræstingakonur á sjúkrahúsum sinntu aðeins þeim hluta starfs síns sem þær höfðu áður en núverandi uppsagnir og „hagræðingarfyr- irkomulag“ var tekið upp? í kvennaverkfallinu árið 1975 lamaðist allt at- vinnulíf þegar við lögðum niðurvinnu. - Afl okkar er mikið þegar við stöndum saman og beitum samtakamætti okkar. Nú er mælirinn fullur, þolin- mæði okkar er á þrotum. Við látum ekki lengur fögur fyrirheit eða fagurgala forystumannanna villa okkur sýn. Konur og karlar, sameinumst í baráttu fyrir réttlátum kröfum kvenna um að afnema launa- misrétti kynjanna. Því fleiri, þeim mun sterkari, og þeim mun meiri árangur. er Afl okkar Hver er staða kvenna á vinnumarkaðinum og í launamálum nú á dögum? Á síðastliðnu ári hafa augu fólks og athygli beinst talsvert að þessum þáttum. Ráðstefnur hafa verið haldnar og kannanir gerðar til þess að fá það fram, svart á hvítu, hvernig staðan er. Útkoman hefur fæstum komið á óvart, og nú þegar eitt ár er eftir af kvennaáratugnum, leynist engum að staða kvenna á vinnumarkaðin- um er síst betri en í uþþhafi hans. Ástandið er í stuttu máli þannig: Yfir80% kvenna í landinu vinna utan heimilis. Meðallaun karla eru 52% hærri en meðallaun kvenna. Algengustu störf kvenna eru við fiskvinnslu, veitingastörf, þvotta- störf og ræstingu.afgreiðslu og skrifstofustörf og umönnunar og uppeldisstörf. Þetta eru hin dæmi- gerðu kvennastörf og launin fyrir þau eru á bilinu 12-15.000 krónur á mánuði. Þetta sýnir mat ráða- manna á störfum okkar kvenna. Ef nánar er litið á þessar tölur kemur í Ijós að í Oþinberri þjónustu eru meðallaun karla 49% hærri en laun kvenna. Meðal bankamanna er mismunurinn 57% körlunum í vil og í fiskvinnslu bera þeir 27% meira úr býtum en konur. í vetur hafa konur enn á ný bundist samtökum til þess að berjast fyrir afnámi þessa ranglætis. Nú eru kjarasamningar nýlega afstaðnir. Þeir voru gerðir í kjölfar 42% launaskerðingar ríkis- valdsins. Eftir allt talið og tölurnar um stöðu kvenna og annarra láglaunahópa trúðu ýmsir því að reynt yrði að bæta eitthvað fyrir kaupránið. En hvað gerðist? Atvinnurekendur og verkalýðsforystan breiddu úr sér á sjónvarpsskerminum, í útvarpi og blöðum og lýstu því yfir að vegna slæmrar stöðu þjóðarbúsins þyrfti að spara og við skyldum bara vera glöð og ánægð með 5% launahækkun (og von um einhver fá prósent viðbót á næstu mánuð- um). I þessum samningum voru kröfur kvenna um kjarabætur hundsaðar og gengið enn frekar á hlut þeirra. Þannig skiluðu samningarnir konu með 13.000 króna mánaðarlaun um 650 króna launa- hækkun en þeir betur settu með 40.000 króna mánaðarlaun fengu allt að 2.000 króna launa- hækkun. Vinnuálag kvenna í ákvæðisvinnu er stór- aukið, vilji þær reyna að haida sambærilegum launum og þær höfðu fyrir samningana. Verkalýð- sforystan skrifaði sigurreif undir samninga sem skertu laun ungs fólks og þeirra sem komu nýir út á vinnumarkaðinn. Þegar innihald þessara samninga varð kunnugt kom í Ijós að ekki var allt launafólk stungið því svefnþorni sem forystan hafði treyst á. Stórir hóþar kvenna og kvennastétta létu í sér heyra og mót- Bandalag starfsmanna ríkis og bæja sendir félagsmönnum sínum og íslenskri alþýðu baráttukveðjur á hátíðisdegi launafólks

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.