Þjóðviljinn - 10.05.1984, Side 2
Fjalakötturinn:
Anrr"
óvissu
,JÉg veit ekkert hvaS verður gert í
málum Fjalakattarins. Enginn veit
hvað og hvenser Þorkeii gerir
eitthvað",' sagði Haukur Haraids-
son stjómarmaður samtakanna Níu
Uf, sem stofnuð vora til verndar
Fjalykettinum.
„Við erum heilmikið að funda og 1
þinga um mál Fjalakattaríns en ég
get ekkert cagt um hvað verður
gert. Ætli fjölmiðlar verði ekki bara
látnir vita þegar þar að kemur“,
sagði Haukur við Þjóðviljann í gær.
-ÍP
Verslunarráðið
um efnahags-
ráðstafanir
ríkisstjórn-
arinnar:
Engin
lausn
Stjóra Verslunarráðs íslands
varar við aíleiðingum þess að taka
stórfelld erlend lán til að rétta af
fyrírsjáanlegan halla á ríkissjóði.
Verslunarráðið ályktar enn fremur
að slík lántaka sé engin lausn á fjár-
hagsvanda ríkissjóðs. „Vandanum
er aðeins slegið á frest og framvindu
efnahagsmála teflt f tvísýnu".
í ályktuninni frá stjórn Verslun-
arráðs íslands segir að söfnun
eyðsluskuida ýti undir þensiu í efna-
hagslffinu. „Slíkt atferli er ckki síst
alvarlegt í ijósi þess, að fólk og fyr-
irtæki hafa iagað útgjöld sin að sam-
drætti í efnahagslífinu“. -óg
Vinnumiðlun
námsmanna
Tekin til
starfa
Atvinnumiðlun námsmanna hef-
ur tekið til starfa. Munu tveir starfs-
menn vinna við miðlunina í sumar
sem er til húsa í Félagsstofnun stúd-
enta við Hríngbraut.
Atvinnumiðlun fyrir námsmenn
hefur verið starfandi undanfarin ár
og í fyrra skráðu sig þar um 600
námsmenn og fengu flestir úrlausn
sinna mála. Að atvinnumiðlun
námsmanna standa Stúdentaráð
HÍ, SÍNE, Landssamb^nd mennta-
og fjöibrautaskóla og Bandalag ís-
lenskra sérskólanema en innan
þessara samtaka munu vera flestir
þeir nemendur sem lokið hafa
grunnskóla.
Sími atvinnumiðlunar náms-
manna er 15959 og 27860. Er skrif-
stofan opin alla virka daga til kl. 17
á daginn. -v.
Samtök hestamanna og bænda í stórræðum
Vilja byggja 2500
fermetra reiðhöll
Áœtlaður kostnaður um 20 miljónir króna
Fjölmargir áhugamenn um
hesta og hestamennsku hafa í
bígerð að byggja mikla reiðhöll í
Víðidal í Reykjavík og hefur ver-
ið ákveðið að halda stofnfund
Undirbúningsfélags að bygg-
ingunni í Fáksheimilinu 20. maí
kl. 14. Aðframkvæmdinni
standa samtök bænda og
hestamanna og má nefna
menn frá Búnaðarfélginu,
Hagsmunafélagi hrossa-
bænda, Landssambandi
hestamannafélaga og fleiri
samtökum.
Sérstök undirbúningsnefnd
vegna hússins var stofnuð í lok jan-
úar og varð hún sammála um að
reisa Reiðhöllina í Víðidal við hlið-
ina á aðalathafnasvæði hesta-
manna í Reykjavík. Búið er að
gera frumdrög að byggingunni sem
á að vera um 2500 fermetrar að
grunnfleti þar sem verður um 1200
fermetra yfirbyggður völlur. Þá
verði áhorfendasvæði fyrir 8-900
manns, funda- og kennsluaðstaða í
kaffiteríu og fyrir utan húsið munu
verða um 500 bílastæði.
Forráðamenn hinnar væntan-
legu Reiðhallar telja ýmsa fjöl-
þætta möguleika verða fyrir starf-
semi í höllinni. Reiðskóli íslands
yrði stofnaður og fengi hann aðset-
ur þar, þjálfunarmiðstöð gæti kom-
ist þar á fót, þarna yrðu tækifæri til
sýninga og keppni á hestum, sýn-
ingar á ýmiss konar vörum og þjón-
ustu fyrir hestamenn og síðast en
ekki síst væri hægt að Ieigja húsið
fyrir samkomur af margs konar
tagi.
Áætlað er að Reiðhöll hesta-
manna í Víðidal muni kosta um 20
miljónir króna en hugmyndir eru
um að skipta framkvæmdinni í
áfanga og gera menn sér vonir um
að hægt verði að steypa húsið upp
og loka því fyrir nóvemberlok í
haust. Ætlunin er að stofna
hlutafélag um bygginguna er leggi
fram 25% áætlaðs kostnaðar, 25%
komi úr Kjarnfóðursjóði og 50%
verði lánsfé.
- v.
m *
w *
A rátatefnu Stjómunarfélgs íslands kom í gær fram a& umsvlf hlns oplnbera í rekstrl eru mun mlnnl hér á landl
•n í négrannalöndunum. Ljósm.: Atli.
„fjárlagagat“ vitnaði Ingi til talna
um rekstrarútgjöld hins opinbera.
Þau námu á íslandi árið 1981 29%
af vergri þjóðarframleiðslu. Ann-
arsstaðar á Norðurlöndum námu
ríkisútgjöldin að meðaltali á sama
ári 49%. Við erum í rekstarút-
gjöldum hins opinbera langt fyrir
neðan Bandarfkin, Bretland,
Frakkland, Þýskaland og Ítalíu
samkvæmt sömu viðmiðun. Með-
altal EBE ríkjanna var 46% af
vergri þjóðarframleiðslu meðan
okkar hlutfallstala var 29%.
Heildarútgjöld þriðjungi
minni en hjá EBE
Þegar borin eru saman heildar-
útgjöld ríkis og sveitarfélaga, það
er að segja rekstrarútgjöld í
þrengri merkingu, fjárfesting öll og
allar fjármagnstilfærslur úr opin-
bera geiranum til einstaklinga,
Opinber umsvif eru víðast
miklu meiri en á Islandi
Það vill gleymast œrið
oft hér, sagði Ingi R.
Helgason á ráðstefnu
um opinberan rekstur
og einkarekstur
í hópi Norðurlanda er Island
með lægsta samneyslu. í rekstrar-
útgjöldum hins opinbera er Island
langt fyrir neðan Bandaríkin,
Þýskaland, Frakkiand, Bretland og
Ítalíu. Heildarútgjöld opinbera
geirans eru í ríkjum Efnahags-
bandalagsins um 50% af þjóðar-
framleiðslu en eru á íslandi 36.6%.
Þessar upplýsingar komu m.a.
fram í ræðu er Ingi R. Helgason
forstjóri Brunabótafélagsins flutti
á ráðstefnu Stjórnunarfélagsins um
einkarekstur og opinberan rekstur
í gær. „Hér tala menn um það sem
lausnarorð í íslenskum þjóðarbú-
skap að skera niður opinbera þjón-
ustu og eftirláta hana einkarekstr-
inum og hinum frjáls markaði.
Ekkert er fjær lagi, ef menn vilja
halda uppi því velmegunarstigi,
sem við höfum náð“, sagði Ingi.
Höngum íEvrópumeðaltali
Hann vitnaði í tölur úr hag-
skýrslum OECD og þar kemur
fram að þegar samneyslutölur
þjóða í helstu iðnríkjum heims eru
bornar saman er samneyslan mest í
Svíþjóð, 20%, og minnst í Japan,
10%, hvort tveggja miðað við
verga þjóðarframleiðslu 1981. f
ríkjum Efnahagsbandalagsins og
OECD ríkjum Evrópu er meðal-
talssamneyslan 18-20% af vergri
þjóðarframleiðslu. Sem hópur eru
Norðurlöndin efst með meðaltals-
samneyslu um 23 og ísland þeirra
neðst með tæp 19% og liggur því í
meðaltali Evrópuríkjanna.
Langt fyrir neðan
Bandaríkin
f tengslum við margumrætt
kemur í ljós að árið 1981 námu þau
36.6% af vergri þjóðarframleiðslu
á íslandi, en annarsstaðar á Norð-
urlöndum var meðaltalshlutfallið
53%. Sambærilegt hlutfall Efna-
hagsbandalagsríkjanna var 50%
eða rúmlega þriðjungi meiri en
hér.
„Ég er ekki að rekja þessar tölur
af þeirri ástæðu einni, að þessar
samanburðarstaðreyndir vilja
gleymast í umræðunni, þar sem því
er mjög einhliða haldið að fólki, að
j samneyslu og umsvifum hins op-
inbera séum við íslendingar komn-
ir út yfir öll skynsamleg mörk“,
sagði Ingi R. Helgason í ræðu
sinni.
- ekh.