Þjóðviljinn - 10.05.1984, Blaðsíða 6
6 SÍÐA'— ÞJOÐVÍLJINN Fimmtudagur 10. maí 1984
Landviimmgadraumur
sem varð að martröð
1 URKitT í 1,2 miijoner fat pc»
fl ,
uumí/y / teur
töfxkiihaýiöi i J* J
í
\ OACPAD* \
7*£TX fRAK ^
1 .y ■
[Í,U miíjrmer ÍMper dag|
junuti*
SAUDI ARABiEM
JfMfN'y/ 5V0Jf.ME«l
Kort þetta sýnir daglegan olíuútf lutning ríkjanna við Persaflóann. Um þessar
mundir fara 15% af olíuneyslu heimsins um Hormuzsundið, sem íranir hafa
hótað að loka, verði olíuhöfn þeirra á Kharg-eyju eyðilögð af írökum. Á
síðustu mánuðum hafa bæði Saudi-Arabía og íran komið fyrir olíubirgðum
sem svara tll tveggja vikna framleiðslu á risaolíuskipum. Þegar olíukreppan
skall á kom að minnsta kosti helmingur olíuneyslunnar í heiminum frá
Persaflóa. Bandaríkin hafa sagt að þau muni tryggja flutninga um Hormuz-
sund, en hvort sem það tekst eða ekki þá hefur Persaflóinn ekki jafnmikla
þýðingu nú og þegar oltukreppan skall á.
Á þeim tæpu 4 árum sem lið-
in eru frá því að írak hóf styrjöld-
ina við íran hafa málin snúist
þannig að írakar eru reiðubúnir
að semja um frið á fyrri skilmál-
um en Kohmeini-stjórnin í íran
stefnir að því að steypa Sadd-
am Hussein forseta íraks og
koma á klerkaveldi í landinu.
Enginn sér fyrir endann á
þessu stríði, sem kostað hefur
tugi eða hundruð þúsunda
mannslífa og er á góðri leið
með að eyðileggja efnahags-
lega þróunarmöguleika þess-
ara olíuauðugu ríkja. írökum
tókst að hrinda síðustu árás
írana í febrúar, en íranir sækja
fram í krafti stærðar sinnar (45
miljónir íbúa) á meðan írakar
verjast í krafti skipulagningar
og fullkomnari hernaðartækni.
írakar, sem telja 14 miljónir,
reiða sig á stuðning Jórdana,
Saudi-Arabíu, Kúwaít, og
flestra ríkja á Vesturlöndum og
eiga einnig góð samskipti við
Sovétríkin, á meðan íranir hafa
notið stuðnings Sýrlendinga og
trúlega einnig fsraela sem elda
fornan fjandskap við frak.
)yArabískur
sósíalismi“
írak er hin foma Mesópótamía,
sem liggur á milli fljótanna Efrat og
Tígris. Landið hlaut sjálfstæði 1932
og hefur verið stjórnað af Baath-
flokknum frá 1958 í anda „arabísks
sósíalisma“. Saddam Hussein kom
til valda 1979 og sagði íran stríð á
hendur árið eftir.
írakar hafa byggt efnahagslega
afkomu sína á olíuvinnslunni og
vom þeir næststærsta olíuútflutn-
ingsríkið á eftir Saudi-Arabíu þeg-
ar stríðið braust út og fluttu út um 3
miljónir olíutunna eða 500 þús.
tonn á dag. Þessi mikli útflutningur
gaf um 25 miljarða dollara í út-
flutningstekjur á ári, sem Baath-
flokkurinn hafði notað til efna-
hagslegrar uppbyggingar í landinu
með allgóðum árangri. íbúar
landsins, sem eru um 14 miljónir,
hafa búið við fulla atvinnu, ókeypis
skólagöngu og heilsugæslu og nið-
urgreiddar nauðsynjavörur þannig
að fólk þyrfti ekki að líða skort.
Þessari tiltölulega tryggu afkomu
fylgdi jafnframt óvægin valdstjórn
þar sem öll gagnrýni á valdhafana
er umsvifalaust kæfð og ströng rit-
skoðun er viðhöfð. Jafnframt hefur
Baath-flokkurinn barið baráttu
Kúrda fyrir sjálfstæði niður af
mikilli hörku.
Olíuútflutningur
minnkar um 3/4
Saddam Hussein reiknaði með
því þegar hann hóf stríðið við íran
að það yrði honum auðveldur
leikur að ná umdeildum land-
skikum frá Kohmeini vegna þeirrar
ringulreiðar sem þá ríkti í íran
vegna trúarbyltingarinnar sem þar
átti sér stað. Reynslan reyndist
dýrkeyptari: Stríðið hefur nú stað-
ið í tæp 4 ár og fyrir utan glötuð
mannslíf hefur olíuútflutningurinn
dregist saman þannig að hann er
aðeins fjórðungur af því sem var.
Þeir 25 miljarðar doliara sem
streymdu inn í landið árlega fyrir
stríð eru nú á bilinu 6 - 7 og fara
mestallir í hergögn og stríðsút-
gjöld. Efnahagsuppbyggingin hef-
ur stöðvast og á fáum árum hefur
írökum tekist að verða eitt af
skuldugustu rfkjum veraldar með
100 miljarða dollara erlendar
skuldir. Sýrlendingar hafa lokað
fyrir olíuleiðsluna sem flutti írak-
ska olíu til Miðjarðarhafshafna, og
olíuhafnirnar við Persaflóann hafa
lokast vegna stríðsins, þannig að
eina virka olíuleiðslan er sú sem
liggur í gegnum Tyrkland og flytur
nú um 1.2 miljónir olíutunna á dag
til hafnarborgarinnar Dortyol.
Stuðningslönd
íraka
Það eru lönd eins og England,
Vestur-Þýskaland, Frakkland og
Japan sem veitt hafa írökum lán
eða greiðslufrest á hergögnum sem
þeir selja. Þá hafa Saudi-Arabía og
Kúwaít lagt fram sinn skerf til
hernaðarreksturs íraka í formi olí-
ugjafa: 3000 - 4000 tunnur af dag-
legum olíuútflutningi þessa landa
er seldur sem íröksk olía. Þá selja
írakar einnig nokkuð af olíu sem
flutt er landleiðina með flutninga-
bflum til Jórdaníu og Kúwaít. Von
íraka um bætt efnahagsástand er
nú bundin við fyrirhugaða bygg-
ingu olíuleiðslu um Jórdaníu til
Akabaflóa, sem fyrirhugað er að
reisa í samvinnu við bandarískt fyr-
irtæki. Þá hafa einnig verið ræddir
möguleikar á olíuleiðslu yfir Saudi-
Arabíu til Rauða-hafsins.
Persónudýrkun
í Irak
írakar tilheyra tveimur greinum
múslim-trúar. Eru tveir þriðju
hlutar íbúanna Shiitar, en það er
sami trúflokur og ríkir í prestaveldi
Kohmeinis í íran. Súnní-múslimar
eru aðeins þriðjungur íbúanna, en
af þessum trúflokki er meðal ann-
ars Saddam Hussein og flestir leið-
togar landsins. Það hefur því verið
von Kohmeinis að trúbræður hans í
írak myndu gera uppreisn gegn
Hussein og styðja innrásina. Sú
hefur hins vegar ekki orðin raunin,
og segja fréttaskýrendur að shiit-
arnir taki ekki minni þátt í vörnum
landsins en súnnítarnir. Hins vegar
byggir Saddam Hussein vald sitt á
mikilli harðstjórn, þar sem öll and-
staða er miskunnarlaust brotin á
bak aftur. Jafnframt hefur forset-
inn reynt að skapa dýrkun í kring-
um eigin persónu, og segja frétta-
menn í Bagdad að mynd forsetans
prýði forsíður allra blaða sem gefin
séu út í landinu og að þar séu ekki
fáanleg erlend fréttablöð eða tíma-
rit. Er ritskoðunin að þessu leyti
harðari í írak en í Sýrlandi.
Eiturhernaður
Á síðustu mánuðum hafa komið
fram sannanir um að írakar hafa
beitt eiturgasi í stríðinu við íraka.
Hafa bæði sænskir og austurrískir
læknar staðfest að sár íranskra her-
manna stafi af sinnepsgasi. írakar
hafa þannig brotið alþjóðasáttmál-
ann frá 1925 um bann við notkun
eiturgass í hernaði, sem bæði írak-
ar og íranir undirrituðu á sínum
tíma. Þessi eiturefnahernaður ír-
aka hefur valdið miklum áhyggjum
þeirra sem nú vinna að því að út-
víkka samninginn frá 1925, þannig
að hann nái einnig til banns við
framleiðslu og geymslu á efna-
Saddam Hussein - ríki hans er sam-
bland lögregluríkis og velferöar þar
sem ritskoöun er algjör og myndir af
forsetanum prýða forsíöur alira
blaöa í landinu. Meö harðstjóm og
blíöuhótum hefur honum tekist að
sameina þjóöina í vörn gegn síðustu
árásum írana. Myndin sýnir þá
ímynd sem forsetinn hefur látiö gera
sér í augum fólksins.
vopnum. Unnið hefur verið að
undirbúningi þessa máls í Genf
undanfarið, en brot íraka nú hefur
aukið svo mjög á kröfur aðila um
eftirlit með banninu, að erfitt getur
orðið að ná samkomulagi. Þannig
hefur Persaflóastríðið opnað Pand-
óruskrín sem leitt getur til frekari
vandkvæða með vígbúnaðareftir-
liti í framtíðinni. Því framleiðsla
efnavopna er tæknilega einföld og
ódýr og á færi flestra þróunarríkja.
Þannig hafa hernaðarsérfræðingar
kallað eiturgasið atómbombu fá-
tæku þjóðanna.
Vopnasala og
valdabarátta
Þrátt fyrir eiturefnahernað íraka
og mannréttindabrot og þrátt fyrir
að Saddam Hussein neftii banda-
risku heimsvaldastefnu og ísrael-
skan zíonisma í sömu andrá og
. hann talar um útþenslustefnu Ko-
hmeinis, og þrátt fyrir að Hussein
eigi dágott samstarf við Sovétríkin
virðist augljóst að Bandaríkin
standa að minnsta kosti í hjarta
sínu með honum í baráttunni gegn
Kohmeini. Bandaríkin selja Ir-
ökum einnig umframframleiðslu á
komvöru fyrir afsláttarverð. Fyrir
önnur V-Evrópuríki eins og Frakk-
land, England og V-Þýskaland hef-
ur stríðið við Persaflóa orðið lyfti-
stöng vopnaiðnaðar og útflutnings
til íraks. En styrjöldin sjálf, með
þá yfirskrift „heilags stríðs“ sem
múslimum er svo töm, virðist bera
með sér mögulegt banamein
beggja aðila sem vopnasalarnir
nærast á eins og sýklar á sjúkum
líkama.
ólg./DN, Inf.
Marcos er valtur í sessi:
Byltingarher er í
sókn á Filippseyjum
Filippseyjar hafa að undan-
förnu einkum komist í fréttir í
framhaldi af því, að pólitískur
keppinauturMarcos, hins ein-
ráðaforseta, Benigno Aquino,
var myrtur um leið og hann kom
úr útlegð og efast fáir um að
menn nákomnirforseta hafi
verið þar að verki. En þetta pól-
itíska morð hefur meðal annars
eflt NPA, Nýja alþýðuherinn,
skæruhersem lýturstjórn
kommúnista, og hefur í vaxandi
mæli látið að sér kveða víða á
Filippseyjum. Allvíða er skæru-
herinn svo öflugur að hann
skiptir landi meðal fátækra
bænda og leggur sína skatta á
fyrirtæki.
Rauðir skæruherir hafa áður
barist á Filippseyjum en verið
barðir niður. NPA á rætur að rekja
til um 60 manna hóps óþreyjufullra
og byltingarsinnaðra stúdenta frá
því um 1960, sem fannst að komm-
únistaflokkur landsins væri alltof
friðsamur. Þessi hreyfing hefur
ekki notið stuðnings hvorki frá So-
vétríkjunum né heldur Kína: vopn
hennar eru að mestu komin frá her
Marcosar, sumum hefur verið stol-
ið en sum keypt. Stjórnvöld reyna
að gera sem minnst úr Nýja alþýðu-
hernum, en Newsweek hefur það
nýlega eftir erlendum sendi-
mönnum í Manilla, að hann hafi nú
um 7000-11000 manns undir vopn-
um auk þúsunda annarra sem
koma til hjálpar öðru hverju.
Harðstjórn Marcosar hefur
tryggt NPA liðsauka. Marcos kom
á herlögum 1972 og hefur síðan þá
tólffaldað útgjöld til hernaðar og
fjölgað um helming í hernum - í
honum eru nú um 146 þúsundir
manna. Þessu aukna hervaldi hefur
fylgt aukin harka í garð þeirra sem
mótspyrnu veita - handtökum,
pyntingum og hópaftökum hefur
fjölgað.
Á Mindanao
Skæruherinn hefur ekki afl til að
leggja til reglulegra bardaga við
her Marcosar, en hann lætur
eitthvað að sér kveða samt í tveim
af hverjum þrem héruðum lands-
ins. Einna mest eru umsvif hans á
eynni Mindanao. Þar hafa fátækir
bændur unnið fyrir þrælalaunum á
banana- og ananasekrum og ýmsar
smáþjóðir hafa átt mjög í vök að
verjast fyrir ágangi skógarhöggs-
fyrirtækja, námarekenda - ef
stjórnvöld hafa ekki beinlínis ætlað
að sökkva landi þeirra vegna virkj-
anaframkvæmda. Á Mindanao
hefur og barist lengi annar skæru-
her, Bangsa Moro, skæruher mú-
hameðskra aðskilnaðarsinna, sem
hefur gert her Marcosar marga
skráveifu.
Það er ekki síst á Mindanao að
Nýi alþýðuherinn hefur fengið á sig
orðstír Hróa hattar: hann rænir þá
ríku og gefur hinum fátæku. NPA
hefur til dæmis stutt við bakið á
bændum sem hafa gripið til þess
ráðs að brenna uppskeru á plant-
ekrum, eigendurnir hafa ekki vilj-
að hækka smánarlaun þau sem þeir
hafa búið við. Nýi alþýðuherinn
hefur, sem fyrr segir, stolið vopn-
um sínum frá stjórnarhernum eða
keypt þau - og peninga fær hann
meðal annars með skattheimtu af
þeim fyrirtækjum sem rekin eru á
svæðum þar sem skæruherinn á
stuðning vísan. NPA hefur einnig
aflað sér stuðnings sveitaalþýðu
með því að leiðbeina bændum um
búskap, kenna þeim að lesa og
senda þeim „berfætta lækna“ sem
reynast mjög þarfir í landi sem býr
við næsta bágborið heilbrigði-
skerfi.
Harkan vex
Skæruherinn sendir stundum
„spörfugla“ til að taka af lífi óvin-
sæla embættismenn og
liðsforingja. Og eins og jafnan í
skæruhernaði, svarar stjórnarher-
inn með fjöldarefsingum, sem og
aftökum sem reynast oftar en ekki
handahófskenndar - sú framganga
verður svo til að auka samúðina
með byltingaröflunum.
Mannréttindasamtök telja að á
seinni helmingi sl. árs hafi um 150
manns verið líflátnir á Filipps-
eyjum, grunaðir um aðild að Nýja
alþýðuhernum eða aðstoð við
hann. Auk þess reynir stjórnarher-
inn aðferð sem Bandaríkjamenn
reyndu í Vietnamstríðinu og gaf
þeim litla frægð: að koma á fót
víggirtum þorpum. Þangað er
reynt að reka í stórum stíl íbúana á
Mindanao í þeim yfirlýsta tilgangi
að einangra almenning frá skærul-
iðum.
Samantekt í Newsweek, sem er
aðalheimild þessarar greinar,
bendir til þess, að Bandaríkjamenn
séu mjög farnir að óttast pólitíska
þróun á Filippseyjum, en þar hafa
þeir mjög mikilvægar herstöðvar.
áb.