Þjóðviljinn - 10.05.1984, Page 10
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 10. maí 1984
, ,Lögbrot verði að lögum gert“
Flestum er enn í fersku minni sú
umræða sem átti sér stað í fjölmiðl-
um fyrir nokkrum vikum síðan um
undanþágur til skipsstjórnar á ís-
lenskum skipum. Ohætt er að full-
yrða að mönnum kom á óvart hve
auðvelt var og er að afla sér slíkrar
undanþágu og undrun þótti hvað
margar slíkar undanþágur höfðu
verið veittar. En þá höfðu á einu
ári verið veittar sexhundruð
undanþágur til skipstjórnar og auk
þess nær 1000 samskonar til vélst-
jórnar. Eða alls 1600 undanþágur
til yfirmannsstarfa á íslenskum
skipum á aðeins einu ári.
Mönnum ætti einnig að vera í
fersku minni þau óhugnanlegu
stórslys sem átt hafa sér stað á hafi
úti á undanförnum mánuðum og
árum og er víst að óhug sló að
mörgum er opinbert var að 15-20
manns færust í sjóslysum á ári
hverju og að á hverjum degi ætti
sér að stað meðaltali eitt bótaskylt
slys um borð í íslensku skipi.
Það er því ekki fráleitt að ætla að
stjórnvöld sæju þessa bresti í
réttinda- og öryggismálum ís-
lenskra sjómanna og reyndu að
bæta þar úr. Og víst hefur verið
hafist handa.
Jafnhliða því sem samgöngu-
ráðuneytið hóf að gefa út haffærn-
isskírteini á óskoðuð skip í gegnum
síma, (en sá búnaður virðist nú
vera eitt aðalstjórntæki ráðuneytis-
ins saman ber undanþáguveitingar
eftir sömu leiðum) var á vegum Al-
þingis skipuð nefnd sem fjalla á um
hvernig koma mætti í veg fyrir slys
á sjó og er það af hinu góða.
Dregið úr kröfum
Og nú liggur fyrir Alþingi frum-
varp til laga um atvinnuréttindi
skipstjórnarmanna á íslenskum
skipum. Frumvarp sem ætla mætti
að lagt hafi verið fram til að stuðla
að auknu öryggi sjómanna á hafi
úti. En því er nú ekki fyrir að fara.
Frumvarp þetta gengur allt í þá
átt að draga úr kröfum til skip-
stjórnarmanna, fækka yllr-
mönnum á íslenskum skipum og
lögfesta undanþágur til slíkra
starfa. Allt þetta stuðlar að auknu
óöryggi sjómanna á hafi úti, sem
ekki er á bætandi.
Sem dæmi um þær ráðstafanir
sem höfundar þessa frumvarps
telja rétt að grípa til er að fækkað
verði yfirmönnum á nær öllum
skipum. Þannig t.d. að þar sem í
dag eru tveir stýrimenn verði einn,
þar sem nú eru þrír verði tveir
o.s.frv.
Astæðan fyrir því að menn segja
svona lagað hlýtur að vera sú að
þeir telji of marga siglingafróða
menn vera um borð í skipunum! En
er eitthvað sem gefur tilefni til að
ætla að svo sé? Eg er nú hræddur
um ekki!
í skýrslu sjóslysanefndar fyrir
árið 1982 er sérstakur kafli sem ber
yfirskriftina „Strönd eru enn of
tíð“. Þar er sagt frá því að um þriðj-
ungur þeirra slysa sem fjallað er
um í skýrslunni sé vegna þess að
skip hafi strandað eða tekið niðri.
Jafnframt segir í þessum kafla
sjóslysaskýrslunnar: „í öllum þess-
um tilvikum verður að rekja
óhöppin til óaðgæslu við siglingu.
Astæða er til að leggja áherslu á, að
þessi mál verði tekin sérstaklega
fyrir í sjómannaskólunum, svo og
hjá samtökum sjómanna, bæði yf-
irmanna og undirmanna.“
Þeir frumvarpsmenn virðast
ekki hafa miklar áhyggjur af þess-
arri hlið málsins sem og ótal öðrum
sem mér gefst því miður ekki tími
til að drepa á hér. Þetta virðist allt
vera svo augljóst ef menn aðeins
hugsa pínulítið. T.d. eru íslensk fi-
skimið talin vera á einu erfiðasta og
jafnframt hættulegasta hafsvæði í
heimi. Gefur það tilefni til þess að
óhætt sé að krefjast minni starfs-
reynslu og menntunar af þeim sem
taka eiga að sér skipsstjórnarstörf,
heldur en gert er í dag og fækka
jafnframt siglingarfróðum mönn-
um um borð í skipunum? Flutn-
ingsmenn umrædds frumvarps
hljóta að telja að svo sé.
Björn V.
Gíslason
skrifar
2 undanþágurá
hverri klukkustund
Eitt er það þó í þessu frumvarpi
sem sker sig úr, þótt ótrúlegt sé. En
það eru ákvæði varðandi undan-
þágur til skipstjórnar og um svok-
allaða „undanþágunefnd“ sem í
frumvarpinu fær heitið „mönnu-
narnefnd“.
Eins og margsinnis hefur komið
fram að undanförnu, hefur sam-
gönguráðuneytið verið óspart á að
veita undanþágur til skipstjórnar,
þó svo að slíkt sé með öllu óheimilt
og er í rauninni ekkert annað en
lögbrot. Það á víst að heita svo að
þessi fræga „undanþágunefnd"
fjalli vel og ýtarlega um hverja
beiðni um undanþágu og haft er
fyrir satt að auðveldara sé að fram-
fleyta sér á kauptryggingunni einni
saman heldur en að sleppa í gegn-
um nálarauga nefndarinnar!
En raunin er auðvitað allt önnur,
eins og allir sjá ef nefndin er sögð
afgreiða 1600 undanþágur á einu
ári. Það þýðir m.ö.o. að ef nefnd-
armenn hafi ekkert annað gert en
að veita undanþágur í 365 daga, 8
tíma á dag og án þess að fara í mat
eða kaffi, þá hafa þeir veitt að jafn-
aði 2 undanþágur á klukkustund.
Það sjá því allir að starf þessarar
nefndar hlýtur að vera bæði ofurm-
annlegt og miskunnarlaust, því auk
þess að afgreiða allar þessar unda-
nþágur, þá unnu nefndarmenn full-
um fetum að þessu nýja og magn-
aða lagafrumvarpi.
í margnefndu frumvarpi er gert
ráð fyrir því að samgönguráðherra
fái heimild til að veita undanþágur,
heimild sem eins og áður sagði er
ekki fyrir hendi í dag. Eða með
öðrum orðum: Lögbrot samgöng-
uráðuneytisins verði að lögum
gerð!
Gefinn ,,skítur“
í sjómenn
í frumvarpinu er gert ráð fyrir
því að ráðherra skipi nefnd sem
fjalla eigi um undanþágubeiðnir
(við vitum nú þegar um nokkra
röska menn með mikla reynslu í
slíkum störfum!) og ef svo ólíklega
mundi vilja til að nefndin svnjaði
slíkri beiðni, „þá getur umsækjandi
borið ákvörðun nefndarinnar
undir samgönguráðherra, sem
leggur endanlegan úrskurð á mál-
ið,“ eins og segir í frumvarpinu.
Með þessu er hreinlega verið að
gefa skít í það sem sjómenn, skip-
stjórnarmenn sem vélstjórar, sjó-
mannafélög, kennarar og nemend-
ur vélskólans og stýrimanna-
skólans, ásamt mörgum fleiri hafa
verið að halda fram varðandi
undanþágumálið að undanförnu.
Þ.e.a.s. að stefnt verði að því að
koma þessum undanþágum út úr
hciminum sem fyrst!
Og svo til að kóróna allt, þá er
gert ráð fyrir því að tekið verði
gjald af undanþáguhafa! Þetta er
kannski ein leiðin til að fylla upp í
„gatið“ góða? Mér þætti gaman að
vita hverjum datt í hug að gera
mætti undanþágur til vél- og skip-
stjórnar að tekjulind fyrir ríkis-
sjóð. Sá maður hlýtur að hljóta út-
nefningu til hugmyndaverðlauna
ársins í ár! Ég mæli með honum!
Nei, það sem samgönguráðherra
er að gera með þessu frumvarpi, er
í rauninni ekkert annað en að
lækka „standardinn“ hjá íslenskum
sjómönnum. Því ef þetta frum-
varp, einsog það er í dag, fer í gegn-
um þingið, þá munum við skjótast
mörg ár aftur fyrir aðrar siglinga-
þjóðir, hvað varðar menntun yfir-
manna og öryggi siglinga. Flöfum
við efni á því?
Teflt á
tœpasta vað
Það veit hver sá sem vita vill, að í
dag er þegar teflt á tæpasta vað
með öryggi íslenskra skipa og sjó-
manna, eins og svo greinilega hefur
komið í ljós að undanförnu. Því
hljótum við að vona að afgreiðslu á
frumvarpi til laga um atvinnurétt-
indi skipstjórnarmanna á íslensk-
um skipum sem nú liggur fyrir Al-
þingi verði annaðhvort slegið á
frest á meðan að menn átti sig á
ýmsum staðreyndum, eða þá að því
verði hreinlega vísað frá fyrir fullt
og allt.
Björn Valur Gíslason er formaður
Nemendafélags Stýrimannaskól-
ans.
„Efþetta frumvarp eins og það er í dagfer ígegnum
þingiðþá munum viÖ skjótast mörg ár afturfyrir aÖrar
siglingaþjóÖir, hvaÖ varöar menntunyfirmanna og ör-
yggi siglinga. Höfum viÖ efni á því?“
HUGVÍSINDAHÚS
HÁSKÓLA ÍSLANDS
INNRÉTTINGASMÍÐI.
Tilboð óskast í smíði og uppsetningu
innréttinga við Sturlugötu. Hér er um að
ræða eldhúsinnréttingar í 3 fundarstofur og 1
kaffieldhús, auk innréttinga í afgreiðslu og
fatahengi, skermvegg og fleira. Verkinu skal
að fullu lokið 1. ágúst 1984.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri
gegn 1500 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað föstudaginn
18. maí 1984 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
f ÚTBOÐ
Tilboð óskast í loftræstikerfi, blásaraklefa og fleira í
B-álmu Borgarspítalans. Útboðsgögn eru afhent á
skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn 1500.-
kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 29.
maí n.k. kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800 {,
kl. 20.30.
VINNINGAR:
Utanlandsferð í leiguflugi með Samvinnu-
ferðum sumarið 1984.
Verð kr. 15000.-
Helgarferð með
Arnarflugi til Amsterdam.
Flugfar fyrir tvo til Akureyrar með Flug-
leiðum.
Hljómtæki frá Japis.
Heimilistæki frá B. V. Hólagarði.
Reiðhjól frá Fálkanum.
Vöruúttektir hjá Herraríki.
Húsið opnað kl. 19.30.
Foreldrafélag barna með sérþarfir.