Þjóðviljinn - 10.05.1984, Blaðsíða 16
UÚBVIUINN
Fimmtudagur 10. maí 1984
Helgar-
skákmót
á Seyðisfirði ,
Tímaritið SKÁK stendur
fyrir helgarskákmóti á Seyðis-
firði um næstu helgi. Mótið
hefst síðdegis á föstudag og því
lýkur á sunnudag 13. maí.
Helgarmótið á Seyðisfirði er
hið 23. í röð slíkra móta sem
tímaritið SKÁK og Skáksam-
band íslands efna til. Á þessum
mótum hafa teflt ýmsir fremstu
skákmeistarar íslendinga og
hafa heimamenn fengið tæki-
færi til að etja kappi við þá og
fylgjast með þeim að tafli. Hafa
þessi helgarmót SKÁKAR not-
ið sívaxandi vinsæida og þótt
gott framlag til menningar- og
félagslífs í dreifbýlinu.
Búist er við mikilli þátttöku á
23. helgarmótinu á Seyðisfirði
um næstu helgi og eru horfur á
að meðal keppenda verði Guð-
mundur Sigurjónsson stór-
meistari, alþjóðameistararnir
Helgi Ólafsson, Jón L. Árna-
son og Jóhann Hjartarson og
meðal keppenda verður einnig
íslenska skákdrottningin Guð-
laug Porsteinsdóttir.
Flugleiðir
Banna
reykingar
Flugleiðir hf. hafa ákveðið að
banna algjörlega reykingar í
innanlandsflugi félagsins frá og
með 20. maí n.k.. Er þcssi
ákvörðun tekin eftir skoðana-
könnun sem efnt var til og í Ijós
kom að 74.9% farþega voru á
móti reykingum en aðeins
25.1% meðmæltir.
Fyrirspurnir
til iðnaðar-
ráðherra:
Skipa-
smíðar
og varmadælur
Þingmennirnir Hjörleifur
Guttormsson og Steingrím-
ur J. Sigfússon hafa lagt
fram á þingi fyrirspurnir til
iðnaðarráðherra um stöðu
skipasmíðaiðnaðarins.
Spurt er hver verkefnastaða
einstakra skipasmíðastöðva sé
út þetta árið í nýsmfði og við
viðhald og viðgerðir.
Hver staðan sé í samningum
Slippstöðvarinnar á Akureyri
varði smíði á togara fyrir ÚA og
hvaða fjármagn sé tiltækt fyrir
skipasmíðaiðnaðinn það sem
eftir er ársins og hvað liggi fyrir
um skiptingu þess.
Óskað er skriflegs svars.
Pá spyr Níels Á. Lund iðnað-
arráðherra hvort farið hafi fram
á vegum ráðuneytisins athugun
á notkun varmadælna til húshit-
unar og ef svo sé hver niður-
staðan hafi verið. Einnig hvert
raforkuverð til varmadælna sé
samanborið við verð á raforku
til húshitunar eftir öðrum
leiðum.
-Ig.
Aðalsími Þjó&viljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til töstudags. Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra startsmenn blaösins í þessum símum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná i afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiöjan Prent hefur síma 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími 81663
„Þetta er verkleg panna og ter vel í hendl“, sagftl A&albjörn Gröndal kokkur, þegar hann spældl egg á pönnunnl sem nýtt Iðnfyrlrtækl á Eyrarbakka,
Alpan hf., er um það bil að hefja framlelðslu á. Stjórnarmenn Alpan hf. fylgjast spenntir með spælingunni. Þeir eru f.v.: Haraldur Haraldsson
varaformaður og framkvæmdastjóri Andra hf., Jón Búi Guðlaugsson verkfræðingur í Reykjavík, Önundur Ásgeirsson stjórnarformaður og fyrrver-
andi fram kvæmdastjóri Olís, Þorsteinn S. Asmundsson framkvæmdastjóri Suðurgass hf. Selfossi, Þór Hagalín fyrrverandi sveitarstjóri á Eyrarbakka og
Þórður H. Hilmarsson i Hafskip. Ennfremur eru í stjórnlnni Jón Bjarni Stefánsson fiskverkandi á Eyrarbakka og Peter Schaarup frá Arhus.
íslenskir aðilar kaupa erlent iðnfyrirtæki
Álpönnur á Eyrarbakka
Framleiðsla á pönnum úr áli
verður hafin á Eyrarbakka um
næstu áramót. íslenskir aðilar
hafa keypt meirihluta í dönsku
iðnfyrirtæki, Pandefabrikken
LOOK A/S, og
fiskverkunarfyrirtækið Einars-
höfn hf. á Eyrarbakka mun
leggja niður núverandi starf-
semi sína og nýta húsnæðið
sem verksmiðjuhús fyrir hina
nýju pönnuverksmiðju.
Einarshöfn hf. er stærsti hluthaf-
inn í hinu nýja iðnfyrirtæki Alpan
hf., á um 20% hlutafjárins, 10%
eru í eigu danskra hluthafa en því
fé hefur verið varið til stofnunar
LOOK International A/S í Lystrup
sem nú þegar er í fullum gangi.
Aðrir hluthafar eiga frá 1 upp í
10% í fyrirtækinu. Sigurður R.
Þórðarson, annar eiganda Einars-
hafnar hf. á Eyrarbakka, hefur
þegar tekið við starfi sem verk-
smiðjustjóri í Lystrup.
Ráðgert er að framleiða um
180:000 pönnur á ári, aðallega til
útflutnings en einkum er Banda-
ríkjamarkaður hafður í huga.
Pönnumar verða sennilega unnar
úr áli frá Isal. Allar framleiðslu-
vömr Alpan hf., bæði frá verk-
smiðjunni í Lystrup og frá Eyrar-
bakka, munu seldar undir vöm-
heitinu LOOK, sem þegar hefur
áunnið sér gott orð erlendis. Fyrir
þremur ámm voru í Danmörku
framleiddar 15.000 pönnur en nú
er það magn framleitt á mánuði.
Pönnurnar eru úr áli með þykk-
um köntum og botni. í hann er
steypt netmynstur sem sparar feiti
við steikingu. Hitaleiðni er upp í
kantana þannig að mikið magn er
hægt að steikja í einu.
Áætlanir gera ráð fyrir minni
rekstarkostnaði hérlendis en er-
Iendis m.a. vegna þess að lægri
laun em hér en í Danmörku. „Við
munum greiða laun samkvæmt um-
sömdum taxta hér en einnig bónus
eins og gert er úti en það hefur
hleypt laununum vemlega upp“,
sögðu forsvarsmenn Alpan hf. í
Skógrækt á
Suðurnesjum
„Alþingi ályktar að fela Skóg-
rækt ríkisins í samráði við
sveitarfélög og félagasamtök á
Suðurnesjum að kanna hvaða
landssvæði í eigu þessara aðila eru
hæf til ræktunar trjágróðurs",
segir í ályktun sem Geir Gunnars-
son, Salome Þorkelsdóttir, Karl
Steinar Guðnason, Guðmundur
Einarsson og Kristín Halldórsdótt-
ir hafa lagt fram á alþingi. „Ef slík
segir Ragnar
Aðalsteinsson
hœstaréttar-
lögmaður
Ragnar Aðalsteinsson hæstarétt-
arlögmaður telur að Húsnæðis-
samvinnufélagið Búseti cigi tví-
mælalaust rétt til lána úr Bygginga-
sjóði verkamanna ef og þegar
svæði reynast hæf til skóg- og trjá-
ræktar leiti Skógrækt eftir samn-
ingum við sveitarfélög og félaga-
samtök á þessum slóðum um sér-
stakt átak til slíkrar ræktunar þar-
sem aðstæður eru bestar“, segir
ennfremur í ályktuninni.
í greinargerð með þingsályktun-
artillögunni segja flutningsmenn á
Suðurnesjum búa um 14 þúsund
manns í sjö sveitarfélögum. Þar sé
frumvarp ríkisstjórnarinnar um
Húsnæðisstofnun ríkisins verður
að lögum. Hins vegar verði Búseti
og önnur félög með svipuðu sniði
að fara eftir þeim lánaskilmálum
sem eru í lögunum um meðferð þess
húsnæðis sem nýtur lána úr sjóðn-
um.
Við umræður á alþingi um frum-
varpið lýsti Alexander Stefánsson
félagsmálaráðherra þeirri skoðun
sinni að húsnæðissamvinnufélögin
féllu undir ákvæði væntanlegra
Þingsályktunar-
tillaga um átak
í skógrœktinni
lítil ræktun í þéttbýli sem einungis
er við sjávarsíðuna. Landsvæði er
víða berangurslegt og nakið. Þó
hefur tekist vel að koma upp gróðri
í þéttbýlinu og ýmsar ráðstafanir
verið gerðar til verndar gróðrinum.
Þá er m.a. bent á að um 35 þús-
und hektara svæði hafi verið girt
sunnan Voga á Vatnsleysuströnd
og vestan Grindavíkur og það
friðað fyrir ágangi sauðfjár. Vetur-
inn 1971-1972 voru í þessum sjö
sveitarfélögum ríflega 3600 fjár.
-óg.
laga og ættu því að njóta lána úr
Byggingasjóði verkamanna. Ýmsir
stjórnarþingmenn voru hins vegar
annarrar skoðunar. Því óskaði
Búseti eftir því að Ragnar Aðal-
steinsson hæstaréttarlögmaður
kvæði upp úrskurð sinn um þetta
deilumál. Segir Ragnar í áliti sínu
að venjulega meti dómstólar meira
greinargerðir með lagafrumvörp-
um og framsöguræður ráðherra en
yfirlýsingar einstakra þingmanna.
- v.
Stjórnarliðar
deila enn um
húsnæðislögin
Atkvæða-
greiðslu
frestað
Enn ríkir ósamlyndi með stjórn-
arflokkunum um afgreiðslu hús-
næðislaga hvað varðar rétt Búseta
og varatkvæðagreiðslu um málið
sem var á dagskrá fundar neðri
deildar í gær frestað.
Stjórnarþingmenn sögðu í sam-
tali í gær að vonlaust væri að ætla að
afgreiða málið meðan stjórnin næði
ekki saman í málinu. Reynt var að
leita sameiginlegrar niðurstöðu og
gera menn sér vonir um að hægt
verði að afgreiða frumvarpið á
föstudag til efri deildar.
Félagsmálaráðherra hefur ekki
viljað taka af skarið og tryggja rétt
Búseta á skýrari hátt í iögunum svo
öll tvímæli séu tekin af, en sjálf-
stæðismenn vilja ekki afgreiða
frumvarpið nema ráðherra kyngi
þeirra túlkun á réttleysi Búseta.
Á Búseti að fá lán úr Byggingasjóði verkamanna?
Xvímaelalaust