Þjóðviljinn - 30.05.1984, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 30.05.1984, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 30. maí 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Hamarshúsið - Vilhjálmur borgarfulltrúi fór með rangt mál Tengsl milli Óss hf og Hamarshúss Fj ölsky 1 d u h agsniunir ótvírætt staðfestir Eftirgrennslan Þjóðviljans hefur nú leitt í Ijós að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgar- fuiltrúi Sjálfstæðisflokksins fór með rangt mál þegar hann staðhæfði við blaðið í síð- ustu viku að fyrirtækið Ós h/f, sem bróðir hans veitir forstöðu, hafi ekki tekið þátt i breytingunum á Hamarshúsinu. Þarmeð er ómerk sú staðhæfing borgarfulltrúans að fjölskylduhagsmunir gætu ekki hafa litað stuðnings hans í borgarstjórn við hinar um- deildu breytingar, þar eð fyrirtæki Einars bróður kæmi þar hvergi nærri. Þjóðviljinn hefur ennfremur komist yfir skýrslu sem unnin var á vegum Borgar- skipulags í desember síðastlíðnum og þar er strax vakin athygli á því að breytingamar eru í blóra við bæði staðfest aðalskipulag og byggingareglugerð. Könnun Þjóðviljans á Hamarshúsmálinu hefur leitt í ljós að fyrirtæki á höfuðborgar- svæðinu sem verslar með byggingarvörur hefur selt Byggingarfélaginu Osi h/f talsvert Imagn af byggingarefni sem notað var í IHamarshúsinu. Blaðamanni voru sýndar tvær nótur þar sem tilgreint er hvaða byg- gingarefni var keypt og það fært til reiknings hjá „Ós h/f vegna Hamarshúss“. Undir nótuna hefur svo Ólafur S. Björns- son einn af eigendum Óss h/f ritað nafn sitt til staðfestingar. Jafnframt staðfesti bifreiðarstjóri sem ók efninu, að hann hefði ekið því niður að Hamarshúsinu við Tryggvagötu. Af skilj- anlegum ástæðum getur Þjóðviljinn hvorki gefið upp nafn fyrirtækis né heimildar- manna. Þetta vottar ótvíræð tengsl á milli óss h/f sem Einar bróðir Vilhjálms borgarfulltrúa veitir forstöðu, og Hamarshússins. Þar með er rennt stoðum undir fyrir fullyrðingar Þjóðviljans um að fjölskylduhagsmunir Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar kunni að hafa mótað harðan stuðning hans við breyting- arnar, sem Davíð Oddsson borgarstjóri hefur sagt að „orki tvímælis“. -ÖS Þögn Morgunblaðsins - sjd Klippt og skorið bls. 4. Ritstjórar allra | dagblaða skora á Tsjernenko Sakharov- hjónin | fái farar- j leyfi Ritstjórar á öllum íslensku dagblöðunum hafa sent | áskorun til Chernenko forseta forsætisnefndar Æðsta ráðs So- vétríkjanna um að Sakharov- þjónin fái að fara úr landi. Ask- orunina undirrituðu Þórarinn Þórarinsson NT, Matthías Jo- hannessen Morgunblaðinu, Árni Bergmann Þjóðviljanum, Ellert B. Schram DV og Árni Gunnarsson f.h. Alþýðublaðs- ins. Áskorunin sem send hefur verið með skeyti til Moskvu hljóðar svo í íslenskri þýðingu: j „Til forseta Forsætisnefndar Æðsta ráðs Sovétríkjanna Kon- stantíns Cherneko. Við undirritaðir ritstjórar allra dagblaða á íslandi förum þess á leit við yður, hr. forseti, að Élena Bonner fái að leita sér lækninga erlendis. Einnig að maður hennar, hinn heim- skunni og virti vísindamaður A. Sakharov, fái að fara frjáls fer- ða sinna, fái að snúa aftur til Moskvu eða fara úr landi ef það er ósk hans.“ - ekh. Stuðningur við Bjarnfríði Fundur sem haldinn var í miðstjórn Alþýðubandalagsins um helgina „harmar að hin ötu- la baráttukona Bjarnfríður Le- | ósdóttir hefur séð sig tilneydda til að segja sig úr miðstjórn ASI af þeim ástæðum sem hún til- greinir f viðtali við Þjóðvi|jann 22. maí“. Miðstjórnin beinir þvf tU allra flokksmanna að þeir láti það hvergi viðgangast þar sem þeir sitja fundi, að veist sé að fólki með ósæmUegu orðbragði úr ræðustól. Samtök kvenna á vinnumark- aðnum hafa lýst yfir fullum stuðningi við aðgerðir Bjam- fríðar. Samtökin fordæma þau vinnubrögð sem höfð voru í frammi á stjómarfundi hjá ASÍ þar sem einn fundarmanna fékk átölulaust að koma með per- sónulegar svívirðingar á hana. Telja þau að meðferðin á Bjamfríði hvetji konur ekki til stjórnarstarfa og benda á að konur innan hreyfingarinnar hafi oft kvartað undan kvenfyr- irlitningu karlanna í ASÍ. - jp. Slgrfður Gestsdóttlr forstððukona Efrl-Hlfftar sýnlr blaftamannl Þjóftvlljans ofan í holrœslft. Skömmu óftur en myndln var tekln gægðlst rotta út um klóakrörlð sem hér sést. Ljósm. Loftur. Opið holræsi í Miljónahverfi borgarstjórans Rottur við dagheimili Börn sofandi í vögnum sínum og að leik við hlið holrœsisins „Holræsið er búið að vera opið síðan á laugardag. Við höfum séð stærðar rottur á hlaupum hér við dagheimilið. Tvær þeirra einum of gæfar, og tókum við myndir af þeim. Við erum í vandræðum með svefnstað fyrir minnstu börnin sem sofa úti í vögnum sínum. Einnig höfum við áhyggjur af að láta börn- in leika sér úti“, sagði Sigríður Gestsdóttir forstöðukona dag- heimilisins Efri-Hlíð við Stigahlíð við Þjóðviijann í gær. Foreldri eins barnanna á Efri- Hlíð skýrði blaðinu frá því ófremd- arástandi sem er við barnaheimil- ið. Þar hefur verið opið holræsi síð- an á laugardag vegna uppgraftar og undirbúnings fyrir byggingafram- kvæmdir á „Miljónalóðunum“, sem eru á uppboði borgarstjórans. Skolpið úr barnaheimilinu rennur ofan í opinn skurð og opið er inn í holræsið. Þar gægðist rotta út þeg- ar Þjóðviljinn var á ferðinni í gær en henni var ekkert um myndavél- ina gefið og skaust á brott í snar- heitum. „Við skiljum ekkert í hvers vegna holræsið þarf að vera opið dögum saman“, sögðu fóstrurnar á barnaheimilinu. Sigríður forstöðu- kona sagðist hafa áhyggjur af þess- um framkvæmdum einkum því að hún hefur heyrt að grafa eigi í sund- ur garð leikskólans og hafa skolp- lögnina undir sandkassanum. „Eg skil ekki að það þurfi að grafa allan garðinn í sundur, þetta var ekki í upphaflegri áætlun að því er mér er sagt.“ Á Efri-Hlíð eru 22 böm á aldrin- um 1-4 ára. -jP Gjaidþrot blasir við mörgum fyrirtækjum vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar, segir SH fiskvinnslufyrirtækja mun verða gjald- þrota, eins og segir í ályktun aðalfundar Þetta er dómur aðalfundar Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna um eitt aðal atriðið í stefnuskrá núverandi ríkis- stjórnar, að lækka endurkaup afurða- lána. Ríkisstjóm hefur skipað Seðla- bankanum að lækka endurkaupahlut- fallið um 5%, sem þýðir í raun lækkun uppá 7-8%, þar sem að lán í viðskipta- bönkunum lækka vegna þessa. f ályktun aðalfundar SH segir einnig að þessi fyrirætlan Seðlabankans og ríkisstjórnarinnar sé atlaga ekki bara að fyrirtækjum í sjávarútvegi, heldur einn- ig að Útvegs- og Landsbankanum, sem em helstu viðskiptabankar sjávarút- vegsins. Nú verður það hlutverk þess- ara viðskiptabanka að fjármagna rekst- ur fyrirtækja í sjávarútvegi á sama tíma „Lækkun endurkaupa (Seðlabank- ans; innsk. Þjv.) kemur þvf til viðbótar við þann vanda sem fyrir er í sjávarút- vegi vegna margra ára tapreksturs. Það er augfjóst að fyrirtæki í sjávarútvegi geta ekki lagt út það tjármagn, sem hér um ræðir. Það er því vísvitandi stefnt að truflun á framleiðslu sjávarafurða og greiðsluþroti margra fyrirtækja.“ og bindiskylda þeirra hjá Seðlabanka er aukin. Þetta mál er að verða eitt mesta hit- amálið í landinu, vegna þess að fjöldi SH. - S.dór. Útför dr. Ólafs Jóhann- essonar gerð í gær í gær var útför dr. Ólafs Jóhann- essonar fyrrum forsætisráðherra gerð frá Dómkirkjunni I Reykja- vík. Séra Þórir Stephensen jarð- söng og organisti var Marteinn H. Friðriksson. Myndin er tekin þegar kistan var borin úr krrkju og fara fremstir f hópi likmanna þeir Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og Albert Guð- mundsson fjármálaráðherra. Ljósm.: Loftur.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.