Þjóðviljinn - 27.06.1984, Side 1

Þjóðviljinn - 27.06.1984, Side 1
MENNING FURÐUR Lœkningamáttur Bláa lónsins Sjúklingar áhugalausir Aðstoðarlandlœknir segir að embœttið fái hvorki fjármagn né sjúklinga til að framkvæma rannsóknir Þetta þýska par naut blíöunnar í Lystigarðinum á Akureyri. Sjá bls. 11. (Mynd Guðm. Svanss.) Ekkert hefur enn orðið af fyrir- hugaðri rannsókn á lækninga- mátti Bláa lónsins í Svartsengi sem landiæknisembættið ætlaði að standa fyrir í vor og sumar í samráði við samtök soriasissjúkl- inga. Áhugaleysi sjúklinga að taka þátt í rannsókninni og fjár- skortur hefur staðið í vegi fyrir framgangi málsins að sögn Guð- jóns Magnússonaraðstoðarland- læknis. „Þaö hefur engin fjárveiting fengist í þetta og það fást engir til að taka þátt í rannsókninni svo það verður ekki gerð nein rann- sókn held ég á lækningamætti Bláa lónsins að sinni“, sagði Guðjón í samtali við Þjóðviljann í gær I fyrrahaust var að ósk samtaka psoriasissjúklinga undirbúin rannsókn á lækningamætti lóns- ins. Var auglýst eftir sjúklingum sem vildu taka þátt í tilrauninni með því að stunda reglulega böð í Bláa lóninu í ákveðinn tíma á sama tíma og annar hópur sjúkl- inga færi á sundstaði jafnoft. Taldi landlæknisembættið lág- mark að 40 manns tækju þátt í þessari samanburðartilraun en aðeins 18 aðilar gáfu sig fram. Var því hætt við að sinni og ákveðið að reyna aftur nú í vor þegar tíðarfar væri betra. Heilbrigðisráðuneytið hafði veitt fjárupphæð til rannsóknarinnar með aukafjárveitingu uppá tæp- lega 50 þúsund krónur. Þessi fjárhæð brann upp um síðustu áramót og þrátt fyrir ítr- ekaðar tilraunir landlæknisemb- ættisins að fá fjárhæðina yfir- færða yfir á þetta ár vegna fyrir- hugaðrar rannsóknar nú í vor, hafa engin svör borist frá ráðu- neyti né hagsýslustofnun að sögn Guðjóns Magnússonar. Þar til viðbótar hefur illa gengið að fá sjálfboðaliða í rannsóknina. -fg- Sjá bls. 3 Nýjung Hængunum útrýmt! í nýjum blaðhluta Þjóðviljans, Furðum, erídag greintfrá nýjum aðferðum sem erlendis hafa stóraukið arðsemi affiskeldi. Nýjar breskar aðferðir gera nú fiskeidisbændum kleift að koma í veg fyrir ótímabæran kyn- þroska í sláturfiski, en hann hefur oftlega valdið búsifjum í eldi lax og regnbogasilungs. Einkum hafa hængarnir verið grátt leiknir af honum. Hinar nýju aðferðir byggjast á því að búa til hreina hrygnustofna þar sem enginn hængur fyrir- finnst. En hrygnurnar kynþrosk- ast síðar en hængarnir og hafa því yfirleitt náð söluhæfri stærð áður en kynþroskinn gengur í garð. Jafnframt eru til aðferðir sem gera mögulegt að framleiða geld- fisk, sem kynþroskast aldrei, en vex samfellt þangað til honum er slátrað. Með því móti er mun auðveldara og fljótlegra að búa til stórfisk, en markaðurinn fyrir stóran fisk er sá markaðsgeiri sem örast vex um þessar mundir. Sjá bls. 7-9. FURÐUR Útrýmum hængunum og stóraukum arðsemi Garðabœr Lóðaúthlutanir eftirgeðþótta Mikil gremja í bœnum með vinnubrögð íhaldsins við úthlutun lóða til ungra bœjarbúa. Grundarfjörður Sömdu við sjálfa sig Þeir gerðu leigusamning við sjálfa sig um eignir annarra fyrir ekki neitt. Lárus Guð- mundsson Grundarfirði segir frá Látravík h.f. Sjá bls. 11. Sjálfstæðismeirihlutinn í Garðabæ hefur lagt fram lista í bæjarstjórn með nöfnum þeirra 59 ungu bæjarbúa sem þeir vilja úthluta lóðum undir einbýlis-, par- og raðhús í Búðahverfi. Nær 140 sóttu um þessar lóðir en Sjálf- stæðismcnn hafa valið úr hópn- um án þess að farið væri eftir neinum reglum þar af lútandi. Af- greiðsla óskalista íhaldsins í bæj- arstjórn er síðan formsatriði. Mikillar gremju gætir meðal ungra Garðbæinga vegna þeirrar aðferðar sem Sjálfstæðismenn beittu við lóðaúthlutunina. Þar hafi greinilega oft á tíðum annað ráðið meiru en búseta og atvinna umsækjenda í bæjarlandinu. Meirihluti bæjarstjórnar í Garðabæ ákvað fyrr á árinu að úthluta svæði í Búðahverfi í svo- kölluðum „gryfjum" eingöngu til Garðbæinga undir 30 ára aldri. Samkvæmt skipulagi eru þar til ráðstöfunar 36 einbýlishúsalóðir, 15 raðhúsalóðir og 8 parhúsalóð- ir. í þessu fyrirhugaða hverfi „unga fólksins“ gerir sjálfstæð- ismeirihlutinn hins vegar hvergi ráð fyrir þeirri þjónustu sem brýnust er fyrir ungt fólk með smábörn. Ekkert dagheimili er fyrirhugað í hverfinu, enginn leikvöllur og engin strætisvagna- þjónusta. -4g.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.