Þjóðviljinn - 27.06.1984, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 27.06.1984, Blaðsíða 13
U-SÍÐAN KÆRLEIKSHEIMILIÐ Verölaunahafarnir úr myndlistarkeppninni ásamt dómnefnd, skólastjóra Barnaskólans og útibússtjóra Iðnaft- arbankans á Selfossi. Ungir myndlistarmenn á Selfossi Barnaskólinn á Selfossi átti nýlega fimmtíu ára afmæli og í tilefni þess gekkst Iðnaðar- bankinn á Selfossi fyrir mynd- listarsamkeppni meðal nem- endaskólans. Myndefnivar Selfoss og nágrenni, skólinn og atvinnulíf á Selfossi. Hinn 15. maí voru verðlaun síðan afhent hinu unga myndlist- arfólki og hlaut Guðfinna Tryggvadóttir fyrstu verðlaun, sem voru 4 þúsund krónur. Önnur verðlaun hlaut Ólöf Þóra Ólafsdóttir, kr. þrjú þúsund, og þriðju verðlaun hlaut María Hallgrímsdóttir, tvö þúsund krónur. Sjö aukaverðlaun voru veitt að auki og hlutú þau: Ásdís Erla Guðjónsdóttir, Asdís Kol- brún, Guðmundur Sigurðsson, Hafdís Grétarsdóttir, Hreinn Óskarsson, Smári Pálsson og Svava Steingrímsdóttir. Auk þess keypti bankinn myndir af Sess- elju Österby, Sigurði Fannari Guðmundssyni og Ingibjörgu Erlendsdóttur. Við afhendingu verðlaunanna sagði Bragi Hannesson, banka- stjóri, að Árnessýsla hefði lagt mikið af mörkum til íslenskrar myndlistar. Þaðan hefðu komið Einar Jónsson, myndhöggvari, Ásgrímur Jónsson, listmálari, og auk þess tveir af ötulustu stuðn- ingsmönnum íslenskra mynd- listarmanna, þeir Markús fvars- son og Ragnar í Smára. Ef til vill ætti eitthvert þeirra barna, er Iðnaðarbankinn veitti nú viður- kenningu, eftir að halda eigin sýningar og verða þekkt nafn í anda brautryðjendanna úr Árn- essýslu. Þrjár efstu hljómsveitirnar í hverri keppni hafa svo fengið 20 stúdíótíma í verðlaun. Það hefur allt miðast við að gefa fólki tæki- færi og vekja það upp fyrir lifandi tónlist. Þær hljómsveitir sem vinna þurfa ekkert að nota stúdí- ótíma sína til að taka upp lag á safnplötu SATT, þær geta notað þá að eigin vild. Þessar hljómsveita-keppnir hafa verið skipulagðar þannig að við fáum alltaf eina þekkta hljómsveit til að koma fram. Sú hljómsveit fær sendibílakostnað greiddan, svo og hlutfall af miða- verði, þ.e. samkvæmt töxtum FÍH. Þessar hæfileikakeppnir hafa verið geysilega vel sóttar og ég get nefnt sem dæmi að á loka- kvöld keppninnar 1982 voru um 500 manns í húsinu. Keppnin sjálf tekur allt að tíu kvöldum. Nú, í sambandi við plötuútgáf- una, þá hefur alltaf verið erfið- leikum háð fyrir unglingahljóm- sveitir að fá lög sín útgefin á plötu. Útgefendur eru hræddir við að taka þá áhættu að gefa út óþekktar íslenskar hljómsveitir. SATTplöturnar voru hugsaðar þannig að við vildum skapa tæki- færi með því að safna saman efni héðan og þaðan. í stúdíótímum sem Band nútímans fékk, tókum við upp þrjú eða fjögur lög, en aðeins eitt þeirra verður á plöt- unni. Hin eiga þeir sjálfir. Ég vil benda á að hæfileika- keppnin er forsenda þess að ung- lingahljómsveitir fái tækifæri til að sýna hvað í þeim býr. f öðru lagi verður SATT til þess að efnið er gefið út og þar með er verið að skapa hljómsveitunum tækifæri til að fá lög sín útgefin. Sumt af þeim lögum sem koma á plötunni hafa verið tekin upp fyrir nokkru, annað er glænýtt. í þriðja lagi vil ég benda á að plöturnar eru seldar á mjög vægu verði til að auðvelda fólki að kaupa þær. Þetta verða núna þjár plötur saman á verði einnar. Jafnframt eru fyrirhugaðir hljómleikar með öllum þeim sem eiga lög á plötunni. Þangað verð- ur öllum útgefendum boðið auk þess verður í hverju plötuumslagi atkvæðaseðill vegna þeirra hljómleika. Þar verða síðan kosnar þrjár bestu hljómsveitirn- ar og þeim veitt viðurkenning. Þetta er því enn frekara tækifæri fyrir þá sem eru með á plötunni. Nú, menn fá höfundarlaun greidd fyrir sín lög á plötunum og upptakan er þeirra eign, ekki okkar. í því sambandi má benda á að SATT átti stóran þátt í því að bæta stöðuna í höfundarréttar- málunum. FTT (félag tónskálda og textahöfunda) sem er sprottið út frá SATT er núna að vinna að leiðréttingu á rétti höfunda. Ef einhver ágóði verður af plötunni þá kemur hann til SATT, þ.e. til félagsmanna sjálfra. Við erum að byggja upp félag og við megum ekki gleyma því að SATT er félagarnir. Ef þeir eru ekki virkir þá er félagið ekki til. Markmiðið hjá SATT er að þessi hljómsveitabransi geti þrifist. Auk þess erum við að reyna að byggja upp félagslega aðstöðu, okkar eigið hús. Það er því alltaf leiðinlegt þegar menn spyrja einatt hvað SATT geti gert fyrir þá, aldrei hvað þeir geti gert fyrir félagið sitt. ss Á U-síðunni í síðustu viku kom fram óánægja hjá Hljómsveitinni Band nútím- ansvegnahljómsveita- samkeppni hjá SATT. Þeir félagar höfðu unnið 2. verðlaun í einni slíkri kepp- ni og fengið í verðlaun 20 stúdíótíma sem voru not- aðirtil að taka upp lag sem verður á næstu safnplötu SATT. Við snerum okkurtil Jóhanns G. Jóhannssonar sem er einn af forsvars- mönnum SATT og spurð- um hann um þetta mál. Upphaflega voru þessar mús- iktilraunir hugsaðar til þess að reyna að ná upp áhuga fyrir lif- andi tónlist. Olafur Jónsson hjá Tónabæ kom að máli við okkur til að reyna að finna leiðir til að gera starfsemi Tónabæjar fjöl- breyttari og skemmtilegri fyrir krakkana. Þeir krakkar sem sækja Tónabæ eru á þeim aldri sem er alinn upp við diskómúsik og virtust lítinn áhuga hafa á lif- andi músik. Á fyrstu tónleikun- um vorum við með Mezzoforte og Jóhann Helgason. En krakk- arnir sýndu þessu lítinn áhuga. Þau þekktu ekki lögin. Við vissum að til var fullt af unglingahljómsveitum sem höfðu hvergi tækifæri til að koma sér á framfæri og hvergi mögu- leika á að koma fram, svo við Jóhann G. Jóhannsson. ákváðum að efna til hljóm- sveitakeppni. Með því vildum við gefa krökkunum kost á að vera þátttakendur og velja þær hljóm- sveitir sem þau vildu heyra, auk þess að gera þeim grein fyrir mis- muninum á lifandi tónlist og diskótónlist. Miðast allt að því að gefa ifæri Miðvikudagur 27. júní 1984 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.