Þjóðviljinn - 27.06.1984, Page 2

Þjóðviljinn - 27.06.1984, Page 2
Ferðamál Vikurit fyrir ferðamenn í þessum mánuði hóf göngu sína vikuritið „What’s on in Reykjavík“. Með útgáfu þess er hafín þjónusta við ferðamenn sem lengi hefur tíðkast og þykir sjálfsögð í erlendum borgum, þ.e. að kynna þeim það helsta sem borgin hefur upp á að bjóða á sviði menningar og lista, skemmtanalífs, verslunar og al- mennrar þjónustu við ferða- menn. Tvö tölublöð eru komin út og meðal efnis þeirra má nefna greinar um veitingahúsin í borg- inni, galleríin, verslanir, Nor- ræna húsið og Hallgrímskirkju. Einnig ritar útlendingur búsettur í Reykjavík grein um það hvernig borgarlífið kemur honum fyrir augu. Að auki eru sagðar fréttir af ýmsu því sem snýr að ferða- mönnum á höfuðborgarsvæðinu. Eins og áður segir kemur ritið út vikulega í sumar og verður upplagið 8 þúsund eintök. Er því dreift ókeypis í allar vélar Arnar- flugs og Flugleiða og til farþega færeysku ferjunnar Norröna, auk þess sem það liggur frammi á ferðaskrifstofum, bílaleigum, Umferðarmiðstöðinni og víðar. Á bak við nafnið leynast m.a. þau Áslaug Jóhannesdóttir, Nanna Mjöll Atladóttir og Örn Pálsson og hvetja þau alla sem vilja koma á framfæri upplýsing- um tii ferðamanna eða fá blaðið til dreifingar að hafa samband við sig, síminn er 18522. Laxveiðar 17 þúsund fyrir stöngina Veiðileyfií betri árnar kosta að meðaltali 10.000kr. dagurinn, en 400 kr. íþærlélegustu á verstatíma. Dýrustu leyfin í Víðidalsá og Fitjá. Dýrustu laxveiðileyfi sem stangveiðimönnum er boðið uppá þetta sumarið eru í Víði- dalsá og Fitjá en þar kosta dýr- ustu dagarnir 17.000 kr. í Laxá á Ásum kostar veiðidagurinn frá 12.000- 16.000 kr. 10.000 kr. í Norðurá 9.900 kr. og í Laxá í Dölum og Vatnsdalsá 9.000 kr. dagurinn. í Elliðaám kostar hálfur dagur hins vegar 1200 kr. og hægt er að fá veiðidaga í minni háttar lax- veiðiám á óálitlegum tíma fyrir aðeins 400 kr. eins og í Soginu og Reykjadalsá. Það er sama verð og dýrustu leyfi í bestu silungs- veiðivötn landsins. -*g- AB-Akureyri Vaxandi starf Þessar upplýsingar koma fram í nýjasta Sportveiðiblaðinu þar sem getið er um verð á veiði- leyfum í helstu laxveiðiám lands- ins. Meðalverðið í betri árnár er um 9.000-10.000 kr. í sumum veiðileyfum er innifalinn fæðis- kostnaður en öðrum ekki. f Laxá í Kjós, Bugðu, kostar veiðidagurinn fyrir hverja stöng frá 6.000 kr. upp í 12.000 kr. á besta veiðitíma. í Þverá eru dýr- ustu leyfin á 11.000 kr., í Mið- fjarðará á 12.100, í Langá á Aðalfundur Alþýðubanda- lagsfélags Akureyrar var haldinn 14. júní sl. Páll Hlöðvers- son fráfarandi formaður rakti störf stjórnar; margir almennir fundir höfðu verið haldnir á starfsárinu, verkalýðsmálaráðið endurreist, stofnuð Æskulýðs- fylking Alþýðubandalagsins og kvennahópur hóf störf. Landkynning Fundurinn fjallaði um útgáf- umál og var ákveðið að gefa út Norðurland mánaðarlega í fram- tíðinni enda þjónaði blaðið afar veigamiklu hlutverki í baráttu flokksins í kjördæminu. Ákveðið var að reyna að samræma rit- stjórn blaðsins og erindrekstur á vegum flokksins eftir því sem hægt væri. Norðurland kemur út í 7 þúsund eintökum og er borið inná hvert heimili í kjördæminu. í stjórn ABA voru kjörin Geir- laug Sigurjónsdóttir formaður, Gísli Ólafsson, Hólmfríður Jóns- dóttir, Kristján Larsen og Ár- mann Magnússon. Til vara Sig- urður Ragnarsson og Lovísa Sig- rún Snorradóttir. -þá Málning Samkomulag fellt úr gildi Um mánaðamótin apríl/maí 1984 var fellt úr gildi samkomu- lag sem allflestar málningarvöru- verslanir á höfuðborgarsvæðinu og stærstu málningarverksmiðj- urnar höfðu gert með sér og fólst í því að hver málningarverksmiðja skyldi gefa út leiðbeinandi smá- söluverð yfir framleiðsiuvörur sínar. Einnig fólst í þessu samkomu- lagi að endurseljendur, málara- meistarar, verktakar og fram- leiðendur úr verksmiðjuvörum skyldu fá þann afslátt frá viðkom- andi verðlista, að verð til þeirra jafngilti verði án söluskatts og heimilaðrar smásöluálagningar. Verðlagsstofnun tók sam- komulag þetta til athugunar og benti síðan aðstandendum þess á að það bryti í bága við lög um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti. Átak erlendis Samkeppnisaðilar á sviði ferðamála taka höndum saman um átak íþví að kynna ísland í Evrópu | slensk fyrirtæki á sviði ferða- mála gerðu í gær með sér sér- stakan samning um sameiginlegt átak í landkynningu í Evrópu. Mun kynningarherferðinni verða hrundið af stað í byrjun júlí og hefur Ómar Benediktsson verið ráðinn framkvæmdastjóri henn- ar. Þeir sem standa að þessu sam- eiginlega átaki ei u Arnarflug, Fé- Guðspekifélag Alþjóðaforseti á íslandi Staddur er hér á landi alþjóða- forseti Guðspekifélagsins, frú Radha Burnier sem um þessar mundir er á fyrirlestraferð um Evrópu. Frú Burnier er annar forseti félagsins sem heimsækir íslands- deild þess. Hún mun halda nokkra fyrirlestra á sumarskóla deildarinnar og sá fyrsti og eini sem haldinn er í Reykjavík verð- ur í húsi félagsins að Ingólfsstræti 22, miðvikudaginn 27. júní kl. 21.00. Fyrirlesturinn verður þýddur jafnóðum. lag íslenskra ferðaskrifstofa, Ferðamáiaráð, Ferðaskrifstofa ríkisins, Flugleiðir og Samband veitinga- og gistihúsa. Stefnt mun að því að skrifstof- ur Arnarflugs og Flugleiða í Evr- ópu verði útnefndar Upplýsinga- skrifstofur Ferðamálaráðs. Mun Ómar Benediktsson hafa aðsetur í Frankfurt. í frétt frá aðilum segir að mikilvægur þáttur hinnar fyrirhuguðu kynningarstarfsemi muni vera að hafa gott samband við fjölmiðla í þeim tilgangi að koma að greinum um ísland. Segja landkynningarfyrirtækin að með sameiginlegu átaki á sviði landkynningar náist meiri og betri árangur fyrir minni fjárm- um. -v. Málmiðnaðarmenn Styðja 35 stunda vinnuviku Norrœnir málmiðnaðarmenn á þingi hérlendis senda vestur-þýskum stéttarbrœðrum baráttukveðjur Norrænir málmiðnaðarmenn þinga hér á landi um þessar mundir og hófst fundur þeirra í Reykjavík í gærmorgun. Þar er um að ræða ársfund Samtaka málmiðnaðarmanna á Norður- löndum, en þetta er í fyrsta skipti sem fundurinn er haldinn hér. Síðari fundardagur verður á Akureyri á föstudag. Guðjón Jónsson formaður Málm- og skipasmiðasambands íslands sagði í gær ýmis mál væru til umræðu á þessum ársfundi og einkum þau sem rædd hafa verið á alþjóðavettvangi að undan- förnu. Atvinnumál málmiðnað- armanna væru stöðugt í brenni- depli og hefði fundurinn sent málmiðnaðarmönnum í V- Þýskalandi sérstakar baráttu- kveðjur og stuðningsyfirlýsingar í þeirri rimmu sem þeir eiga við atvinnurekendur þar fyrir 35 stunda vinnuviku. „Þetta norræna samband málmiðnaðarmanna hefur á liðn- um árum lagt fram talsvert fé í alþjóðlegan samhjálparsjóð sem arlöndunum og stutt við bakið á tískum ofsóknum, t.d. víða í Ársfundinn sitja um 30 fulltrú- hefur beitt sér fýrir stofnun þeim samböndum J>ar sem for- Suður og Mið-Ameríku“, sagði ar. málmiðnaðarsambanda í þróun- ystumenn hafa orðið fyrir póli- Guðjón Jónsson ennfremur. _v- Um30mannssitjaársfundSamtakanorrænnamálmi6naðarmannasemer haldinn hér á landi í fyrsta sinn. Ujósm. eik. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 27. júní 1984

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.