Þjóðviljinn - 27.06.1984, Side 9
FURÐUR
hængarnir. Nú er hins vegar sá
háttur hafður á að aðferðin er
sameinuð þeirri sem notuð er til
að búa til hænglausa hrygnu-
stofna. Með því er búinn til þrí-
litna hrygnustofn, og enginn fisk-
ur í honum kynþroskast nokkurn
tímann.
Með þessu er í rauninni búið að
smíða draumastofn allra fiski-
bænda, sem helst vilja engan kyn-
þroska í sláturfiski og vilja jafn-
framt geta alið hann í tiltölulega
mikla stærð.
Stóraukinn
hagnaður
Þó aðferðin sé svo nýkomin úr
burðarliðnum að fullar niður-
stöður undirbúningsrannsókna
eru rétt nýbirtar, þá hefur hún
eigi að síður verið tekin upp á
nokkrum búum sem rækta regn-
bogasilung í Englandi. Á þessum
búum hefur hagnaður stóraukist,
og svo fast er sóst eftir eggjum frá
þeim að þau anna vart eftirspurn.
Með aðferðinni er líka loks unnt
að rækta stóran regnbogasilung
og fullnægja þannig ákveðinni
markaðsþörf, en ræktun á slíkum
fiski hefur fram til þess ekki verið
mjög arðbær sökum vandans sem
stafar af kynþroskanum.
Hagnaður af framleiðslu þrí-
litna kvenstofna ætti þó að verða
mörgum sinnum meiri í laxeldi en
við ræktun regnbogasilungs. Slík-
ir geldstofnar myndu endanlega
slá brandi fyrir öll þau vandamál
sem hljótast af bráðgerum kyn-
Dreifrækt
þroska í laxaseiðum og ötima-
bærum kynþroska fullorðins fisks
í tankeldi eða sjóbúrum. Þetta er
einkum brýnt á íslandi þar sem
laxastofnar virðast kynþroskast
mun fyrr en víða erlendis.
Að lokum skal lögð áhersla á
það, að framleiðsla þrílitna
hrygnustofna hefur enn ekki ver-
ið könnuð til hlítar fyrir
Atlantshafslaxinn, þó niðurstöð-
ur tilrauna með regnbogasilung
liggi fyrir. Hins vegar er ljóst að
slíkir geldstofnar gætu sóraukið
hagnað af laxeldi Islendinga og
með því að bregðast skjótt við
gætum við án nokkurs vafa skotið
keppninautum okkar ref fyrir
rass í útflutningi á þrílitna kvens-
eiðum og -hrognum.
/ dreifrœkt er ungfiski sleppt ísmátjarnir og síki og
látinn ganga sjálfala ísláturstœrð. Þetta er elsta og
útbreiddastaformfiskeldis.
Fiski beitt á engin
Úrgangur nýttur
Dreifræktin er líka stunduð
mjög víða í smáum tilbúnum
tjörnum í ýmsum ríkjum Asíu og
Áfríku, og hjálparstofnanir Sam-
einuðu þjóðanna hafa unnið
geysimikilvægt starf við að út-
breiða slíkar tjarnir í löndum þar
sem skortur er á fæðu. í smáum
þorpum er fólki þá kennt að gera
tjarnirnar, og síðan er stofnuð
miðstöð í hverju héraði sem
framleiðir ungfiskinn, sem fólkið
kaupir svo vægu verði. Þorpsbúar
láta fiskinn í smátjarnir og í þær
er síðan borin einhvers konar
áburður til að örva framleiðslu á
jurtasvifi sem fiskarnir nærast á.
í mörgum tilvikum er fiskurinn
líka alinn að einhverju leyti. Mat-
arúrgang og öðru sem til fellur er
kastað í tjörnina og breytt í dýr-
mæt prótein. Gjarnan er ræktun
á öðrum húsdýrum höfð með-
fram eldinu, svosem svínum, og
úrgangurinn frá þeim borinn í
tjarnirnar. Oft eru líka ræktaðar
endur á tjörnunum, og fiskurinn
étur þá dritið úr þeim og verður
gott af.
Milljón ton
Það er til marks um mikilvægi
dreifræktarinnar í sumum lönd-
um að árið 1982 voru með þeim
hætti framleidd meir en miljón
tonn af fiski í Kína, og í Húnan
fylki einu höfðu nær 500 þúsund
manns atvinnu af fiskeldi.
í Evrópu hafa farið fram ár-
angursríkar tilraunir með dreifi-
rækt á lax- og sjóbirtingsseiðum:
þeim er sleppt í lítil vötn, látin
ganga sjálfala upp í göngustærð,
þvínæst veidd og sleppt í ár til
göngu til hafs. _ÖS
Elsta afbrigði fiskeldis, sem
raunarerennídag út-
breiddasta eldisaðferð ver-
aldar, byggistaðverulegu
leyti á náttúrulegri framleiðni.
Ungfiski er sleppt í tjarnir, síki
eða smávötn og látinn ganga
að miklu eða öllu leyti sjálfala.
Við slíkar aðstæður er ekki
hægt að ala fiskinn mjög þétt
Gott dæmi um dreifirækt er
fiskeldið sem víða er stundað
samhliða hrísgrjónarækt, en hrís-
grjónaplöntur þurfa að standa
undir vatni alllangan tíma. Þegar
vatninu hefur verið veitt á ekr-
urnar er ungfiski sleppt og beitt á
ætisrík engin. Þegar vatninu er
svo veitt af þeim aftur, þá er fisk-
urinn bókstaflega tíndur upp með
höndunum.
Vatnakarfar í ísrael. ísraelar veita ýmsum þjóðum þróunaraðstoð í formi
fiskeldískennslu og hér á myndinni eru nemendur frá Burma upp að mitti
í ísraelskri eldistjörn ásamt kennurum.
og afurðirnar eru því ekki
mjög miklar.
Þetta form fiskeldis sem kalla
má dreifrækt (extensive farming)
er upprunnið í Kína en þarlendir
hafa frá því ævasnemma verið
drjúgir á sviði fiskeldis. Þar eru til,
dæmis skrifaðar heimildir um
fiskeldi frá því löngu fyrir Krist
og leifar fornra eldistjarna sjást
þar líka.
I Asíu er þetta útbreidd aðferð
í fiskeldi, og er allmikilvæg upp-
spretta nauðsynlegra fæðuefna í
þeim hluta heimsins. Þar er eink-
um ýmsum tegundum vatnakarfa
beitt á ekrurnar. í suðurríkjum
Bandaríkjanna hefur svipað eldi
á kattfiski rutt sér til rúms og er
nú á minna en tveimur áratugum
orðið að stóriðnaði. Samanlagt
munu þannig um 35 tegundir
fiska ræktaðar samhliða hrísgr-
jónunum.
Skortir vatn eoa hita?
Endurnýting vatns eða sjávar er hagkvœm sparnaðar-
aðferð ífiskeldi, þarsem hún minnkar orkutap.
I eldi lax og regnbogasilungs
erfiskurinn hafðurmjög þétt,
oft eru upp í 100 kíló á hvern
rúmmetra. Gnægð góðs
vatns er því nauðsynlegt til að
bera súrefni til fiskanna og
úrgangsefni frá þeim. Ofter
ekki kleift að fá nægilega
mikið vatn og sums staðar
stendur vatnsskortur fiskeldi
fyrir þrifum. Með einfaldri loft-
un á vatninu má þó minnka
vatnsþörfina mikið og séu
svonefndarlíffræðilegarsíur
notaðar má jafnvel endurnýta
vatnið að miklum hluta, stund-
um allt að 80 prósentum, eftir
þéttileika fiska í eldinu.
Sparar orku
Endurnýting er að líkindum
ekki nauðsynleg til að spara vatn
hér á íslandi, þar sem vatn er alla
jafna í nægilegu mæli. Hins vegar
hefur endurnýting á vatninu ann-
an kost í för með sér: hún
minnkar orkutap í formi glataðs
hita. Þar sem nauðsynlegt er að
hita vatnið upp er þetta mjög þörf
sparnaðaraðf erð.
Til að hraða vexti laxaseiða
uppí göngustærð þarf að hafa
vatnið við ákveðið kjörhitastig og
með því að nota lokað kerfi
(endurnýta vatn að hluta) mætti
halda vatninu við rétt hitastig á
tiltölulega ódýran máta. Þetta
kann að skipta máli þar sem jarð-
hiti er ekki fyrir hendi.
Krabbadýr-
flatfiskur
Jafnframt er ekki efamál að
fyrr en síðar munu íslendingar
hefja ræktun á krabbadýrum og
flatfiski sem þurfa sjávar við.
Dýrar tegundir einsog flatfi-
skurinn sandhverfa sem og rækja
og humar þurfa tiltölulega heits
sjávar við til að vaxa nægilega
hratt til að eldi þessara tegunda
verði arðbært. Með því að endur-
nýta sjó ætti hins vegar ekki að
vera mjög dýrt að halda eldi-
ssjónum nægilega heitum til að
tryggja hraðan vöxt þeirra. _qS
^SÖLUBOÐ
iP Borðsalt 750 gr.
& [ Qulrætur og baunir |] V2 dós
[•T* rvr. l Qrænar baunir iJ Vi dós
& r Blandað grænmeti J Vi dós
Bourbonkex
'c cLnirnr
...vöruverð í lágmarki
FRÁ CLOSE YOULE
IALLAR HEYVINNU-
VÉLAR FRÁ OKKUR
MJOG HAGSTÆTT VERÐ
Algengasti KUHN tindurinn á kr. 79,00 með söluskatti.
VÉIADEILD SAMBANDSINS
BUVÉLAR Ármúla 3 Reykjavík S. 38 900
VARAHLUTAVERSLUN SÍMI 39811
ÓDÝRARL „
barnaföt
bleyjur
leikföng
«sú&'ty
Dúlla
Snorrabraut
Miövikudagur 27. júní 1984 ÞJÖÐVILJINN - SIÐA 9