Þjóðviljinn - 27.06.1984, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 27.06.1984, Blaðsíða 10
Aðalfundur verður hjá prjónastofunni Kötlu h/f þriðjudag- inn 3. júlí 1984 í Bridebúð, Víkurbraut 26, Vík í Mýrdal, kl. 20.30. Stjórnin. FAGVERK S/F Verktakafyrirtæki Sími 26098 1. Sprunguviðgerðir með bestu fáanlegum efnum. Efni þessi standasl vel alkalísýrur og seltu, hefur mikla teygju og góða viðloðun. 2. Gerum við steyptar þakrennur og berum í þær þéttiefni. 3. Þök: Tökum að okkur allar viðgerðir og breytingar á þökum, þéttum bárujárn, skiptum um járn o.fl. (erum með mjög gott þéttiefni á slétt þök). 4. GÍuggar: Sjáum um allar viðgerðir og breytingar á gluggum. Kíttum upp glugga, setjum opnanleg fög, gler- ísetningar o.m. fleira. 5. Málning: Önnumst alla málningarvinnu utan húss sem innan. Áhersla lögð á vönduð vinnubrögð og viðurkennd efni, viðráðanleg kjör og góða þjónustu. Komum á staðinn, mælum út verkið, sýnum prufur og send- um skriflegt tilboð. Vinsamlegast pantið tímanlega í síma 26098. - Geymið auglýsinguna - Fóstra óskast að leikskólanum Lönguhólum, Höfn, Hornafirði frá 20. ágúst 1984. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 97- 8315. A Frá Grunnskóla Kópavogs íþróttakennari óskast til starfa fyrir 7. - 9. bekk skólaárið 1984-85. Sérkennari óskast til starfa skólaárið 1984- 85. Nánari upplýsingar á skólaskrifstofu Kópavogs, sími 41863. Skólafulltrúi. Ástkær eiginmaður minn, Árni Jóhannsson vélstjóri, Faxatúni 3, Garðabæ faðir, tengdafaðir, og afi, verður jarðsunginn frá Garöakirkju fimmtudaginn 28. júní ki. 13.30. Þeim sem vilja minnast hans, er vinsamlega bent á Krabb- ameinsfélag íslands. Björg Helgadóttir, Oddný Ágústsdóttir Margrét B. Árnadóttir, Jón G. Gíslason Markús M. Árnason, Karen Haraldsdóttir Hafsteinn V. Árnason, Guðmunda Valdimarsdóttir Auður Árnadóttir, Haraldur Árnason Helgi Sigurgeirsson, og barnabörn. Sæbjörg Einarsdóttir Eiginmaður minn, tengdafaðir og afi Lúðvík Ágúst Nordgulen fyrrverandi símaverkstjóri, Brávallagötu 8 lést 25. júní. * Jarðarförin auglýst síðar. Þórunn R. Nordgulen Lúðvík Sigurður Nordgulen Sigríður Einarsdóttir Ásta Lúðvíksdóttir Nordgulen Ásgeir Karlsson og barnabörn. ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið Norðurlandi eystra Sumarhátíð Sumarhátíð verður haldin 6. - 8. júlí á bökkum Smjörhólsár í Öxarfirði, N-Þingeyjarsýslu. Þeir sem hyggja á þátttöku, láti skrá sig sem fyrst hjá: Guðbjörgu Vignisdóttur, Kópaskeri s. 52128, Örlygi H. Jónssyni, Húsavík s. 41305 og 41803 eða Heimi Ingimarssyni, Akureyri s. 24886 eða 26621. Nánari upplýsingar um mótsstað og tilhögunar hátíðarinnar verða birtar síðar. - Stjórn Kjördæmisráðs. Vinningsnúmer í Vorhappdrætti ABR Vinningar nr. 1-3 sem voru ferðavinningar í leiguflugi með Samvinnuferð- um/Landsýn að verðmæti kr. 20 þús. hver, komu á miða nr. 64, 2610 og 5090. Vinningar nr. 4-6 sem eru ferðavinningar í leiguflugi með Samvinnuferðum/Landsýn að verðmæti kr. 15 þús. hver, komu á miða nr. 33, 163 og 3436. Vinninga skal vitja á skrifstofu Alþýðubandalagsins að Hverfisgötu 105. Margrét Kvennafylkingin Fundur Sigurbjörg Þórunn að Hverfisgötu 105 fimmtudaginn 28. júní kl. 20.00: Launamál kvenna. Margrét Óskarsdóttir Samtökum kvenna á vinnumarkaðn- um, Sigurbjörg Sveinsdóttir Landssambandi iðnverkafólks og Þórunn Theódórsdóttir BSRB opna umræðuna. Miðstöð í DAG Bakkafjörður-Vopnafjörður Almennir fundir Helgi. Hjörleifur. Alþingismennirnir Helgi Seljan og Hjörleifur Guttormsson verða á al- mennum fundum: Á Bakkafirði miðvikudaginn 27. júní kl. 20.30. Á Vopnafirði fimmtudaginn 28. júní kl. 20.30. Fundirnir eru öllum opnir. Alþýðubandalagið, Vestfjörðum Sumarferð Sumarferðin verður 30. júní og 1. júlí. Farið verður í Inn-Djúpið og gist við Dalbæ á Snæfjallaströnd. Kvöldvökustjóri verður Finnbogi Hermannsson. Verð kr. 900 fyrir fullorðna, hálft gjald fyrir yngri en 12 ára og frítt fyrir yngri en 5 ára. Gist verður í tjöldum. Nauðsynlegt er að allir hafi með sér nesti. Fararstjórar eru Kjartan Ölafsson og Ástþór Ágústsson. Þátttaka tilkynnist til umboðsmanna sem veita nánari upplýsingar: Hólmavík: Rut Bjarnadóttir sími 3123, Bæjarhreppur: Björgvin Skúlason Ljótunnarstööum, A-Barð: Gísella Halldórsdóttir, Hr.^nóli, sími 4745, Barðaströnd: Einar Pálsson, Laugarholti, sími 2027, Patreksfjörður: Gróa Bjarnadóttir, sími 1484, Tálknafjörður: Steindór Halldórsson, sími 2586, Bíldudalur: Halldór Jónsson, sími 2212, Þingeyri: Davíð Kristjánsson, sími 8117, Flateyrí: Jón Guðjónsson, sími 7764, Súgandafjörður: Þóra Þórðardóttir, sími 6167, ísafjörður: Elín Magnfreðsdóttir sími 3938, Hallgrímur Axelsson, sími 3816 og Þuríður Pétursdóttir sími 4082, Bolungarvík: Gunnar Sigurðsson, sími 7389, Súðavík: Ingibjörg Björnsdóttir, sími 6957, Djúp: Ástþór Ágústsson, Múla, Reykjavík: Guðrún Guðvarðardóttir, sími 81333. Kjördæmisráð. 2. skógarferðin í Heiðmörk Mæting við bæinn Elliðavatn eða við skógarreitinn, sunnudaginn 24. júní kl. 13.30. Alþýðubandalagsfólk og aðrir félagar! Þetta er 2. skógarferðin í Heiðmörk í sumar. Slepþið löngum og leiðinlegum sunnudagsbíltúr og komið með fjölskyldunni í skógarfjörið. Takið með kaffi og meðlæti. Uppl. á skrifstofu ABR, s. 17500,og hjá Frey, s. 77825. Tilkynning til skattgreiðenda Dráttarvextir vegna vangreiddra þinggjalda veröa reiknaöir aö kvöldi miðvikudagsins 4. júlí n.k. Vinsamlegast gerið skil fyrir þann tíma. Fjármálaráðuneytið. SKÁK Þessi fræga staöa kom upp í skák milli Adams, sem var meö hvítt, og Torre í New Or- leans árið 1920. Viö fyrstu sýn virðist svarta staðan nokkuð traust, 18. Dg4!l upphafið á einni glæsilegustu fléttu sem sögur fara af. 18.-Db5 19. Dc4! Dd7 20. Dc7! Db5 til þess að geta svarað 21. Dxb7 með 21.- Dxe2 21. a4! Dxa4 22. He4! mikilvægur millileikur 22.- Db5 23. Dxb7!! og svartur gafst upp. Lærið af gömlu meisturunum! BRIDGE Þú situr með: SK5 H 853 T A743 LA1065 og andstæðingur á vinstri hönd opnar á 4 laufum, á hættunni, sem félagi hans út- skýrir að' sýni sterka hönd með hjartalit (SA Texas). Hann segir síðan fjögur hjörtu, lítil spil og lokasögn. Og nú er komið að þínum þætti. Er eitthvert útspil öðru álitlegra? (það sakar ekki að geta þess að þú ert að spila við menn sem taka sjálfa sig og aðra alvarlega við græna borðið). Jæja, kannski berðu þig að eins og undirritaður sem valdi einfaldlega „Ugla sat á kvisti..." milli ásanna og „Þú“ benti síðan á tígul ás. Nú þá er það glásin hjá opnaranum: SGx H KDGIOxxx T xx LKD Varla þarf að taka fram að tígul ás var nær eina spilið sem gaf samninginn, því fé- lagi átti BÆÐI tromp ás og spaða drottningu. Ég skipti vitanlega í spaða kóng, en það var of seint. Sagnhafi átti góðan tígul og niður fór spaðinn í blindum. Lauf ás og síðan spaði hnekk- ir einnig spilinu. Eins og þú sérð rétt mer opnunarhöndin að vera fjög- urra hjarta virði sem opnun. Það hefði verið sanngjarnt að félagi hans hefði átt í viðbót við spaða ás og tígul kóng t.d. tromp ás félaga og spaða drottningu. Ég hefði einnig fúslega séð af spaða kóng til hans. Þá hefði ég átt út í 6 hjört- um. OG brandarinn að lokum. Opnara fannst VIRKILEGA spil sín vera fjögurra laufa virði. Á hinu borðinu var vakið á fjórum hjörtum, eðlilega. Út kom lauf og... meira lauf! Unn- ið spil. Jahérna. Og_ leikurinn? Bikarviður- eign Úrvals og Ólafs Lár. sem Úrval vann. 10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 27. júní 1984

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.