Þjóðviljinn - 05.07.1984, Side 11
______________MANNLIF
Félag áhugaljósmyndara
Starfað í yfir 30 ár
„Félag áhugaljósmyndara var
stofnaö 1953 og voru stofnendur
36 aö tölu. Fyrsti formaðurinn var
Haraldur Teitsson. Á fyrstu fund-
unum voru sýndar kvikmyndir,
auk þess sem menn fjölluðu um
Ijósmyndun. Það hafa alltaf verið
talsverð samskipti við útlönd hjá
okkur, t.d. var fyrstu árin skipst á
Ijósmyndamöppum við félög í
öðrum löndum. Að öðrum ólöst-
uðum, mun Hjálmar S. Bárðar-
son hafa verið aðalhvatamaður-
inn að þeim samskiptum. Einnig
hefur félagið tekið þátt í sýning-
um erlendis. Strax fyrstu árin
voru sendar út myndir á sýningu,
en þær voru fyrst sýndar í
gluggum verslunar Hans Peter-
sens,“ sagði Guðmundur Lofts-
son formaður Félags áhugaljós-
myndara.
Hann fræðir okkur nánar um
félagið.
„Fyrsta sýning félagsins hér á
landi var haldin haustið 1954 í
húsakynnum Þjóðminjasafnsins.
Félagið hafði fyrstu árin hús-
næði á leigu sem útbúið var sem
myrkrastofa, einnig sinnti félagið
útvegun á Ijósmyndapappír á
þeim tíma sem erfitt var að fá
leyfi fyrir innflutningi á slíkum
vörum. 1966 var stofnað pöntun-
arfélag á vegum félagsins og það
rekið í nokkur ár.
Nú er ekki lengur þörf á slíkri
Hvað kostar að
taka myndir?
Fuji
36 mynda 35 mm litfilma frá
Fuji kostar kr. 187.-(nýjasta
verð, til enn úti um allt land á
gömlu verði 167 kr.-) og fram-
köllun á filmu kostar kr. 45.-
og síðan kr. 10.- á hverja
mynd sem heppnast. Hver
mynd kostar því að meðaltali
um 16 kr.- ef allar myndirnar
koma vel út. T alið er að um 22
myndir að meðaltali heppnist
af 36 mynda filmu.
þjónustu og starfsemin hefur tals-
vert breyst. Menn nenna ekki
lengur að koma á fundi.
Því höfum við tekið það ráð að
gefa út fréttabréf til þess að ná til
félagsmanna.
Reyndar gaf félagið út fyrsta
ljósmyndablaðið hér á landi árið
1972. Því miður kom það aðeins
út einu sinni, enda allt unnið í
sjálfboðavinnu við erfiðar að-
stæður."
- Hafíð þið haldið námskeið
fyrir áhugafólk?
„Við höfum oft haldið nám-
skeið. T.d. var námskeið vetur-
inn 81-82, þar komu 10 til 20
manns á öllum aldri.“
„Félagið hefur allt frá 1957 ver-
ið í samstarfi við Æskulýðsráð
Reykjavíkur. Unglingastarfið
var fyrst á Lindargötunni, en með
aðstöðunni að Fríkirkjuvegi 11
kom fjörkippur í starfið. Við veit-
um unglingum úr grunnskólum
Reykjavíkur verðlaun á vorin
fyrir góðar ljósmyndir. Árið 1968
var stofnuð unglingadeild innan
félagsins, en hún hefur ekki verið
virk sem skyldi."
- Eru félagar eingöngu úr
Reykjavík?
„Já, nær eingöngu. Við höfum
þó haft samband við ljósmyndara
á ísafirði."
- Þið hafíð haldið fleiri sýning-
ar?
„Við héldum afmælissýningu á
25 ára afmælinu, og 30 ára afmæ-
linu á síðasta ári. Sú sýning var í
Norræna húsinu og þar sýndu
með okkur félagar frá tæplega 10
öðrum löndum, þar á meðal Jap-
an.“
- Fjölgar í félaginu?
„Félögum hefur ekki fjölgað
undanfarin ár. Við sem sitjum í
stjórninni erum kannski orðnir
Hvönn. Ljósm. Guðmundur Loftsson.
svolítið þreyttir og oft finnst okk-
ur lítil viðbrögð fást frá öðrum
félögum," sagði Guðmundur að
lokum. GGÓ
Gísli Gestsson framkvæmda-
stjóri hjá Ljósmyndavörum sagði
að þeir legðu höfuðáherslu á að
halda filmuverðinu niðri og frá
því að Fuji kom hér á markaðinn
fyrir réttum 10 árum hefði filmu-
verð lækkað mikið að tiltölu.
Hann sagði að nú væri önnur hver
filma í heiminum frá Fuji, þar
munaði ekki síst um Asíumark-
aðinn. Hinn mildi og breiði tón-
skali Fuji byggðist á myndrænni
hefð Japana og skæri sig þannig
frá sterkum og skærum litum
Bandaríkjamanna.
Með haustinu kemur ný 1600
ASA filma frá Fuji. „Þá verður
nánast hægt að taka mynd við
kertaljós án þess að nota flass“
sagði Gísli.
$
gæði og þjónusta
í fyrírrúmi
Framköiium aiiar gerðir iitfiima samdægurs
Kodak
36 mynda litfilma 35 mm frá
Kodak kostar kr. 245.- og
framköllun kr. 405.- Hver
mynd kostar því rétt um 18.-
kr. ef allar heppnast.
Hildur Petersen framkvæmda-
stjóri hjá Hans Petersen hf. sagði
okkur að mikill fjörkippur hefði
komið í myndatöicur þegar insta-
matic vélarnar frá Kodak komu á
markaðinn upp úr 1960.
Hún sagði að sjálfsögðu að Ko-
dak filmurnar væru að flestra áliti
bestu filmurnar. Þetta væri ga-
malt fyrirtæki, 102 ára, og byggi
yfir allri þeirri þekkingu sem
hugsast gæti á þessu sviði. Kodak
filmur væri hægt að fá alls staðar í
heiminum og þær væru framkall-
aðar alls staðar.
Afi Hildar byrjaði að flytja Ko-
dak filmur til landsins 1907.
ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 11
NY
ÞJÓNUSTA
MEIRA
FYRIR
PENINGANA
KOMDU MEÐ FILMUNA OG ÞÚ
FÆRÐ MYNDIRNAR SAMDÆGURS í FALLEGU
ALBÚMI ÁN AUKAGJALDS