Þjóðviljinn - 05.07.1984, Blaðsíða 21

Þjóðviljinn - 05.07.1984, Blaðsíða 21
U-SIÐAN Þórarar úr Eyjum (hvítar buxur) sigra Víkinga úr Reykjavík 2-1. B-lið Þórs Ve. og Vals eigast við. Eínbeitnin skín úr hverju andliti. Lárus Jakobsson úr Tý stjórnaði mótinu af snilld og fékk verð- skuldað lof fyrir. Líf og f jör á 6. flokks-móti í Eyjum Á sunnudaginn lauk í Vestmannaeyjum miklu knattspyrnu- móti sem Týr og Tommahamborgarar stóðu fyrir. Það var fyrir 6. aldursflokk, krakka 10 ára og yngri, og hófst á fimmtudaginn var. Þátttakan var mjög góð, fór reyndar fram úr björtustu vonum því á fimmta hundrað keppendur mættu til leiks, víðs vegar að af landinu. Þórarar úr Vestmannaeyjum stóðu uppi sem sigurvegarar í 6. flokki A. FH úr Hafnarfirði hafnaði í öðru sæti og KA frá Akureyri í þriðja sæti. í keppni B-liða sigruðu Akurnesingar, Þórarar höfnu- ðu í öðru sæti og KA í þriðja sæti. ívar Bjarklind úr KA var kjörinn besti leikmaður mótsins, Þorvaldur Ásgeirsson, Fram, skoraði flest mörkin, og Jón Indriðason, KR, var kjörinn besti markvörð- urinn. Mikið fjör og leikgleði einkenndi mótið, enda hér á ferðinni sá aldursflokkur sem gefur sig meira í leikinn af lífi og sál en aðrir. Mættu leikmenn eldri flokka taka sér þá yngstu til fyrirmyndar- ekki er að efa að þá yrðu leikir þeirra skemmtilegri. Myndimar hér á síðunni tók Guðmundur Sigfússon meðan mótið stóð yfir og í mótslok og segja þær meira en mörg orð. Þrjú efstu liðin í 6. flokki A. Þórarar úr Eyjum, sigurvegararnir, efstir, FH (númer tvö) í mlðið, og KA (númer þrjú) fremstir. Efstu liðin í 6. flokki B. Sigurvegaiarnir, Akurnesingar, efstir, Þorarar úr Eyjum í miðið og KA-drengirnir fremstir en þeir urðu í þriðja sæti. Jón Indriðason, KR, var valinn besti markmaður mótsins. Þorvaldur Ásgeirsson (Elíassonar þjálfara Þróttar) úr Fram var mesti markaskorari mótsins - gerði 12 mörk. Slgurllð Þórs Ve. í 6. flokki A ásamt þjálfurum sínum. Nokkrir krakkar úr Víði, Garði, en þau fengu sérstaka viðurkenningu fyrir bestu umgengni. Víðlr og Reynir Sandgerði voru kjörin prúðustu liðin. Flmmtudagur 5. júlí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.