Þjóðviljinn - 05.07.1984, Page 13
MANNLIF
MANNLIF
Ljósmyndastofa
Barna-
Fjölskyldu-
Brúðhjóna-
myndatökur
Endurnýjar
gamlar myndir
Pássamyndir í lift
TUbónar strax!
Stúdáó Guðmondar
S 20900 EINHOLTI2 Fyrir ofan Hlemm
SUÐURLANDSBRAUT 2 S. 82219;
Í HÚSI
HÖTEL ESJU
Þú fylgist með litmyndum þlnum
framkallast og kóplerast á 60
mínútum. Framköllun sem ger-
ist vart betri.
Á eftir getur þú ráðfært þig við
okkur um útkomuna og hvernig
þú getur tekið betri myndir.
Opið frá k1. 8 — 18.
Passamyndir
Litmyndir og
svart-hvítar
Athugið:
Svart-hvítar myndir eru ódýrar en góðar.
Gilda í öll skírteini.
Ljósmyndastofan Amatör
Laugavegi55
S: 22718
NÝ ÞJÓNUSTA
MEIRA FYRIR
PENlNGANA
KOMDU MEÐ FILMUNA OG ÞÚ
FÆRO MYNDIRNAR SAMDÆGURS Í FALLEGU
ALBÚMI ÁN AUKAGJALDS.
LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN hf
LAUGAVEGI 178
OG NÝJA HÚSINU LÆKJARTORGI.
Austfirðir
Fyrsti íslenski
kvenljósmyndarinn
Inga Lára Baldvinsdóttir: Helmingur frumherjanna í
Ijósmyndun voru Austfirðingar
KODAK
UMBOÐIÐ
Hansína Björnsdóttir. Ljósmyndari:
Nicoline Weywadt.
starfandi á Austurlandi, en Nico-
line getur hafa kynnst erlendum
ljósmyndurum á heimili sínu.
Hún fór aftur utan 1888 til að
kynna sér nýjungar í iðninni.
Starfsferill Nicoline var langur,
eða 30 ár. Hún tók bæði manna-
myndir og útimyndir. Myndir
hennar þykja bera vott um verk-
lagni og smekkvísi og næmt auga
hennar fyrir myndefninu gefa
henni sérstöðu meðal íslenskra
ljósmyndara. Hún var frumherji
við myndatöku á merkilegu tíma-
skeiði í byggðasögu Austurlands
og eftir hana liggja fleiri útimynd-
ir en flesta aðra ljósmyndara fyrir
aldamót. Nicoline sinnti einnig
veðurathugunum á Teigarhorni
um áratuga skeið og seldi einnig
skrautsteina til útlanda.
Inga Lára Baldvinsdóttir: Af austfirskum Ijósmyndurum ber nafn Nicoline Weywadt óneitanlega hæst.
plötur á efra borði kassans (sjá
meðfylgjandi mynd). En það er
ótrúlegt að þetta tæki hafi verið
til á íslandi.“
í ritgerð Ingu Láru er eftirfar-
andi tilvitnun í þessa lýsingu:
„Tól þetta hefir einkum fengið
mikla þýðingu á seinni tímum,
eptir að Frakklendingurinn Dag-
uerre uppgötvaði þá hina und-
runarverðu list, að geta tekið
með því glöggar og varanlegar
ljósmyndir af hverjum líkama
sem vera skyldi. - En þessi list er
svo mörgum vandkvæðum bund-
in, og aðferðin við hana svo
margbrotin, að vér þorum ekki
að ráðast í að lýsa henni.“
Hvernig var Ijósmyndaaðferð
Daguerre?
„Aðferðin var í stórum drátt-
um fólgin í því að silfurnítrat var
borið á koparplötu og yfirborð
hennar, síðan gert ljósnæmt með
joðblöndu. Platan var því næst
lýst í myndavél, framkölluð í
kvikasilfursblöndu og gerð var-
anleg („fixeruð") með því að
baða hana í heitri matarsaltsupp-
lausn. Hver mynd var einstök,
þ.e. ekki hægt að fjölfalda hana.
Þegar Helgi Sigurðsson byrjaði
að kynna sér ljósmyndaaðferð
Daguerre um 1845 voru aðeins 6
ár liðin frá því fyrstu daguerreo-
týpurnar voru teknar.“
Hvernig ætli Islendingar hafí
tekið þessari nýjung?
„Ef marka má munnmæli, þá
virðist Helgi Sigurðsson lítið ann-
að hafa haft upp úr ljósmyndum
sínum en að það var hlegið að
honum. Sem dæmi er þessi saga
sem birtist í Þjóðviljanum 1903
undir fyrirsögninni Smælki:
„Síra Helgi Sigurðsson... var
einhverju sinni að fást við ljós-
myndasmíði, og tók þá, meðal
annars, mynd af föður sínum; en
ekki tókst þá betur til, en svo, að
þar sem höfuðið átti að vera, sást
fjóshaugur á myndinni, og varð
Sigurði gamla þá þetta eitt að
orði: Ljótur hefi jeg verið, en
aldrei svona ljótur.“
Aðrar álíka sögur voru sagðar
hér á landi, og erlendis voru við-
tökurnar á sama veg, en þar birt-
ist háðið að auki í óteljandi skop-
myndum, sem t.d. sýndu fyrir-
sætuna reyrða í hnakkajárn og
þessháttar."
„Annar íslenski ljósmyndarinn
var Siggeir Pálsson sem var jafn-
aldri Helga. Hann lærði að taka
daguerreotýpur í Christianiu (nú
Osló). Hann gerðist ljósmyndari
á Eskifirði sem þá var þorp með
aðeins fáum húsum. Hann virðist
ekki hafa átt sjö dagana sæla sem
ljósmyndari. Áhugi manna á að
láta taka af sér mynd lítill og
nauðsynleg efni torfengin."
Hvað um þá sem fylgdu í kjöl-
far þessarra frumherja?
Nicoline Weywadt. Ljósmyndari: J.
Holm-Hansen.
„Fyrir 1895 er vitað um rúm-
lega 30 íslendinga sem tóku
myndir hér gegn greiðslu. Af
þeim var tæplega helmingur bú-
settur á Austfjörðum og konurn-
ar í hópnum voru sex, þar af voru
fjórar austfirskar.
Frumkvöðullinn
Nicoline Weywadt
Af austfirskum ljósmyndurum
ber nafn Nicoline Weywadt
óneitanlega hæst og kemur þar
margt til,“ segir Inga Lára. „Hún
var fædd 1848 og var eitt af 14
börnum Nielsar P. E. Weywadt
faktors hjá verslun Örums &
Wulff á Djúpavogi og Sophie
Brochdorf, dóttur Morten Han-
sens Tvede sýslumanns í S-Múla-
sýslu. Heimilið var glaðvært og í
nánari snertingu við umheiminn
en almennt tíðkaðist. T.d. er sagt
að fyrsta saumavélin sem kom á
Austurland hafa komið á
Wey wadtheimilið.
Nicoline sigldi til Kaupmanna-
hafnar og lærði þar ljósmyndun
1871-72. Hún varð fyrsti íslenski
kvenljósmyndarinn. Á þessum
tíma var enginn ljósmyndari
Camera obscura eða myrkurhús frá 19. öld.
Fósturdóttir Nicoline
lærði einnig
Ijósmyndun
Nicoline ól upp, ásamt móður
sinni, systurdóttur sína Hansínu
Björnsdóttur sem var fædd 1884.
Hún sigldi til Kaupmannahafnar
árið 1902 til að læra ljósmyndun
og stundaði ljósmyndun um
nokkurra ára skeið, eða þar til
hún giftist árið 1911.“
Hvernig aðstæður höfðu þær
til Ijósmyndunar?
„Weywadtfjölskyldan flutti að
Teigarhorni þegar Niels lét af
verslunarstjórn 1881. Þar var
byggður myndaskúr við húsið
með glervegg og glerþaki til að
næg birta fengist við myndatök-
urnar. Húsið á Teigarhorni
stendur enn. Teigarhorn er enn í
eigu afkomenda Weywadts og
þeim er það að þakka að svo
mikið hefur varðveist af myndum
Nicoline og Hansínu og munum
tengdum ljósmyndarekstrinum."
Hvernig ætli kvenljósmyndur-
um hafí verið tekið á þessum
tíma?
„Anna Schiöth rak ljósmynda-
stofu á Akureyri frá 1878-99. Það
er athyglisvert að nafnstimpill
ljósmyndastofunnar bar ávallt
upphafsstafi eiginmanns hennar,
Hendriks Schiöth bakara, og
fyrstu tíu árin auglýsti hann stof-
una í sínu nafni, þó að vitað sé að
hann kom aldrei nálægt mynda-
tökum. Þetta segir nokkuð um
stöðu hennar sem iðnaðarmanns
í ljósmyndun."
Glötuð myndasöfn
Því miður hafa ekki allir sýnt
jafnmikla framsýni og fjöl-
skyldan á Teigarhorni í varð-
veislu gamalla mynda.
í því sambandi nefnir Inga
Lára myndasafn Lárusar Gísla-
sonar (1885-1950), sem notað var
sem uppfyllingarefni undir
stakkstæði í Vestmannaeyjum,
og safn Eyjólfs Jónssonar á
Seyðisfirði (1890-1944), sem
hafnaði i Fjarðará, eftir að
Seyðisfjarðarkaupstaður hafði
hafnað tilboði um að eignast
safnið eftir dauða Eyjólfs.
Enginn veit hvaða verðmæti
glötuðust þar fyrir sakir
skammsýni eða fákunnáttu.
GGÓ
Inga Lára Baldvinsdóttir,
and.mag. starfar viö skrán-
igu myndasafnsins, en hún
krifaði kandídatsritgerð sína
m fyrstu íslensku Ijósmynd-
rana.
Inga Lára, hvar fínnum við
eistu heimildir á prenti á íslensku
um ljósmyndun?
„Fyrsta umfjöllun á prenti sem
vitað er um er í eðlisfræði eftir
J.G. Fischer, en hún var gefin út
af Hinu íslenska bókmenntafé-
lagi árið 1852. Þar er nákvæm lýs-
ing á „camera obscura“ eða
myrkurhúsi, sem er trékassi með
linsu framan á og innbyggðum
spegli sem varpar mynd þeirri
sem linsan nemur, upp á gler -
„NÝJUFILM
STJORNURNAR
FRAKODAK!
Nýju 35 mm litfilmurnar frá Kodak.
KODACOLOR VR.skila hlutverki sinu
meðsóma við ólíkustu skilyrði
litljósmyndunar. enda eiga þær ekki
langt að sækja frábæra
Jithæfileika" sina.
K0daC0^^ i^w.
acolor^
KÖÓACCH OR VR Jði) KOOACOLOH VH 400
crjiÖ t)ölha;(aslá. Hún ef rnjáo ljösna?iil oo tin
t«»&ur |«1n vel við miM li'Wnayg sKiíai a(ai jit
jöfn birtuskilyrðl seni stöikuöi mynduni.
óvajntai uppákomur.
KOOAKOLOR VI) 100
iír sii skarpasta. mjög
tlnkorna oy þvi einkai
vel lallln til staskkunai
KODACOLOR VR 1000
er sú allra tjOsnisemasta
Tilma nýrra mögu-
lelka.
FÓTÓHÚSiÐ
Filmur ogframköllun:
Kodak og Fuji
Myndavélar:
Pentax Kosina, Fujica og Maniga
Linsur: Kosina Zoom. Fyrir Pentax allar gerðir
(líka skrúfaðar linsur), Praktica, Olympus, Min-
olta, Canon og Nikon.
70-210 mm á kr. 7770
og 28-70 mm á kr. 6500.
Stækkarar á góðu verði.
Allt til svarthvítrar vinnslu.
Albúm og myndarammar.
Sendum í póstkröfu.
Fótóhúsið Bankastræti sími:21556.
12 SfÐA - ÞJÓÐVIUINN Fimmtudagur 5. júlí 1984
Flmmtudagur 5. júlí 1984 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 13