Þjóðviljinn - 21.07.1984, Side 3

Þjóðviljinn - 21.07.1984, Side 3
FRETTIR ABR Skundum á Þingvöll Sumarferð Alþýðubandalags- ins í Reykjavík verður að þessu sinni farin til Þingvalla, þarsem alþingi var forðum háð, sagði Kristján Valdimarsson fram- kvæmdastjóri ABR í stuttu spjalli við Þjóðviljann í gær. - Ætlunin er að farið verði frá Reykjavík kl. 9 árdegis 19. ágúst. Ekið verður sem leið liggur um Mosfellsheiði til Þingvalla. Aðal áningastaður ferðarinnar verður á Efri-Völlum. Valinkunnir menn munu segja frá þjóðgarðin- um, sögu Þingvalla og lýsa þar staðhátturh. Eftir hádegi verður boðið uppá vandaða dagskrá í tali og tónum og formaður Alþýðu- bandalagsins mun ávarpa föru- nautana.Ekki verður börnunum gleymt, því farið verður í leiki og þrautir leystar. Verðið ætti ekki að fæla fólkið frá þátttöku í þessari ferð. Fyrir fullorðna kostar það 350 krónur en fyrir börn sem taka sæti 150 krónur. Okkur Alþýðubanda- lagsmönnum þótti tilhlýðilegt á þessum tímum hverfandi sjálf- stæðisvitundar að sækja hið forna þing heim, sagði Kristján Vald- imarsson framkvæmdastjóri ABR að lokum. ac Efnahagsvandinn Alþýðubandalagið fjallar um sjávarútvegs- vandann Þingflokkur Alþýðubandalags- ins og framkvæmdastjórn halda þriðja fund sinn um efnahags- vandann á mánudaginn. Að þessu sinni mun aðallega verða fjallað um vanda sjávarútvegsins í landinu. Að undanförnu hefur efna- hagsstefna ríkisstjórnarinnar leitt til mikils vanda á landsbyggðinni, - sérstaklega aðgerðarleysi ríkis- stjórnarinnar í málefnum sjávar- útvegsins, sagði Svavar Gests- son, formaður Alþýðubandalags- ins við Þjóðviljann í gær. Að und- anfömu hafa verið haldnir tveir fundir um efnahagsmálin al- mennt, en að þessu sinni munum við fjalla sérstaklega um sjávar- útveginn og hvernig bregð? * skuli við, sagði Svavar að lok Stefán Ögmundsson, prentari, forystumaður í stéttasamtökum launafólks um langt árabil er 75 ára sunnudaginn 22. júlí. Þjóð- viljinn óskar honum hjartanlega tU hamingju á þessum tímamót- um. Kjarabarátta Sagt upp í sífellu Félöginsegjaupp, aflasérheimildar, boðatilfunda. Tvöfélög hafa hafnað uppsögn Ióða önn eru þau verkalýðsfél- aganna sem ekki hafa þegar sagt upp samningum að funda um málið. Tvö félög innan Sambands byggingarmanna hafa þegar sagt upp, og allflest hinna eru með heimild félagsfundar til uppsagn- ar. Velflest félög innan Málm- og skipasmíðasambandsins hafa heimilað uppsögn. Iðja í Reykja- vík hefur sagt upp og Iðja á Akur- eyri er með heimild. Uppsögn var felld í Verka- lýðsfélagi Borgarness með þrem- ur atkvæðum um daginn, og í gær var uppsögnin felld á jöfnu í fé- lagi starfsfólks í veitingahúsum, og eru þetta einu félögin sem enn hafa hafnað uppsögn svo spurnir hafi hafst af. Dagsbrún hefur sagt upp, enn- fremur Framtíðin og Hlíf í Hafn- arfirði, Jökull Ólafsvík, Stjarnan Grundarfirði, Fram Sauðár- króki, Vaka Siglufirði, Verka- lýðsfélögin á Húsavík og Raufar- höfn, Verkalýðsfélag Fljótsdals- héraðs, félögin í Neskaupstað, á Eskifirði, á Reyðarfirði, á Höfn, Verkalýðsfélag Vestmannaeyja, Þór á Selfossi sem urðu fyrstir til stjórn félagsins í Keflavík. At- kvæðagreiðsla var í gær í gangi í Stykkishólmi og á Eyrarbakka. Framsókn í Reykjavík hefur heimild, ennfremur hefur Verka- lýðsfélag Akraness lagt til upp- sögn. Fundir verða á næstunni hjá Sókn í Reykjavík, Val í Búðar- dal, Einingu á Akureyri, Snót í Vestmannaeyjum og hjá félaginu í Hveragerði. Ekki tókst að ná í nándarnærri öll félög í gær til upplýsingar. Ig/m 1. september Borgar- starfsmenn segja upp samningum Starfsmannafélag Reykjavík- urborgar segir upp samningum 1. september. Uppsögnin var sam- þykkt samhljóða í fulltrúaráði í fyrradag. Haraldur Hannesson, formað- ur starfsmannafélagsins, sagði að það hefði verið samþykkt sam- hljóða á fundi fulltrúaráðs í fyrra- dag að segja upp samningum 1. september n.k. Viðkomandi aðil- um verður tilkynnt um uppsögn- ina á næstunni. _ jj§ Iðja Reykjavík Segir upp samningum Fundur í stjórn og trúnaðar- mannaráði Iðju, félags iðnverka- fólks í Reykjavík, samþykkti í fyrrakvöld að segja samningum félagsins lausum frá og með I. september n.k. Fyrr í þessum mánuði hafði fé- lagsfundur í Iðju veitt stjórn og trúnaðarmannaráði umboð til þess að segja upp samningum. Iðja á Akureyri á eftir að taka ákvörðun um uppsögn samninga en stjóm og trúnaðarmannaráði félagsins hefur verið veitt heimild til uppsagnar. -Ig- Starfsfólk veitingahúsa Fellt r ■ ■■ m a jofnu Fundur í félagi starfsfólks á veitingahúsum felldi í gær með jöfnum atkvæðum að stjóm fél- agsins yrði falið að leita eftir samningum við atvinnurekendur um kjarabætur. Ef slíkar um- ræður bæm ekki árangur yrði samningum sagt upp. Áður hafði verið felld tillaga félagsmanns um að samningum yrði þegar sagt upp. Félagsmenn samþykktu hins vegar með nokkmm meirihluta tillögu um að segja ekki upp núgildandi samningum. Á fundinum greiddu 46 félagar atkvæði. Vigfús Vigfússon fyrir framan hús Steypustöðvarinnar í Ólafsvík, sem snjóflóð fór í gegnum í vetur. Nú er unnið að endurbyggingu stöðvarinnar. Mynd- eik. Steypustöð Uppbygging eftir snjóf lóð Bœtur úr viðlagasjóði hafa ekkifengist til Steypustöðvar- innar í Ólafsvík. Járnbentur veggursem tekur við ómœldri þyngd og grjótgarður ífjallið. Við höfum loksins fengið leyfi til að endurbyggja hús steypu- stöðvarinnar. Það hefur gengið illa að fá samþykki stjórnvalda til að endurbyggja á þessum sama stað aftur, vegna þess að sqjóflóð- ið kom hérna niður. Ég hef búið hérna í 40 ár og aldrei komið skriða á þessum stað allan þann tíma. En það er til ákvæði í lögum um að ekki megi endurbyggja at- vinnuhúsnæði og við fáum leyfíð með ákveðnum skilyrðum, sagði Vigfús Vigfússon hjá Steypustöð- inni í Ólafsvík við Þjóðviljann í fyrradag. Snjóflóð fór í gegnum stöðina í febrúar sl. Þá urðu geysimiklar skemmdir á húsinu sem snjó- skriða ruddist gegnum. Bflar gjöreyðilögðust, þar á meðal 2 steypubflar. „Við höfum ekki fengið bætur nema fyrir það sem var tryggt", sagði Vigfús. „Það var húsið og steypubfll sem var inni í því, hann var kaskótryggður. Blöndunar- tæki stöðvarinnar og fleira var ótryggt. T.d. tökum við bflana af númerum yfir háveturinn. Við höfum enn ekki fengið neinar bætur úr Viðlagasjóði“. Tveir steypubílar sem eyöilögðust í snjóflóðinu. Sá sem er framar á myndinni stóð kaskótryggður inni í-húsinu og fyrir hann hafa því fengist bætur., Hinn er enn óbættur. Mynd - eik. Vigfús sagði að snjóflóðavarn- ir væru nauðsynlegar á þessum stað vegna þess að neðan vegar eru fiskvinnslufyrirtæki sem einnig þarf að verja. Sagði hann að við endurbyggingu steypu- stöðvarinnar væri nú steyptur 50 cm þykkur jámbentur gafl sem á að taka við ómældri þyngd. Auk þess á að koma grjótrauf í hlíðina til þess að kljúfa skriður, þannig að hún skipti sér og komi ekki óklofin á húsið. Einnig verður vinnusvæði Steypustöðvarinnar fært. „Við önnum allri steypu á út- nesinu og enginn vafi er á að Steypustöðin á framtíð fyrir sér“, sagði Vigfús Vigfússon. -jP Leugardagur 21. júlí 1984 ÞJÓÐVIUINN - SÍDA 3

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.