Þjóðviljinn - 08.08.1984, Blaðsíða 4
LEIÐARI
Fylgiskreppa Framsóknar
Málgagn Framsóknarflokksins var
seinheppið í leiðara á laugardaginn. Þar skein
í gegn óánægja með frásagnir Þjóðviljans af
átökum í herbúðum ríkisstjórnarinnar og hug-
leiðingum ýmissa forystumanna Sjálfstæðis-
flokksins um nauðsyn þess að skipta um for-
sætisráðherra. Huggun leiðarahöfundar NT
fólst í fullyrðingu um að þessi skrif Þjóðviljans
skiptu engu máli því „stjórnarandstaðan er í
svo litlu áliti að meðal almennings er enginn
áhugi á stjórnarskiptum“ eins og það var orð-
að í NT. Seinheppni Framsóknarmálgagnsins
fólst hins vegar í því að sama dag birti Morgun-
blaðið niðurstöður úr skoðanakönnun Hag-
vangs sem sýnir að stjórnarandstaðan hefur
verulega unnið á síðustu þrjá mánuði á sama
tíma og stjórnarflokkarnir hafa tapað.
Þessi skoðanakönnun er áfall fyrir ríkis-
stjórnina, sérstaklega forystuflokk hennar
Framsóknarflokkinn. Samkvæmt niðurstöð-
unum er Framsóknarflokkurinn nú með minna
fylgi en Alþýðubandalagið. „Smáflokkamir"
tveir sem svo hafa verið nefndir - Bandalag
jafnaðarmanna og Samtök um kvennalista -
eru til samans með nokkurn veginn sama fylgi
og Framsóknarflokkurinn.
Hagvangskönnunin sýnir því að forystu-
flokkur ríkisstjórnarinnar býr nú við mikla fylg-
iskreppu. Alþýðubandalagið eitt sér eða
Bandalag jafnaðarmanna ásamt Kvennalista
eru nú jafnfætis Framsóknarflokknum að fylgi.
Stjórnarandstaðan í heild hefur rúmlega tvö-
falt meiri stuðning en flokkur forsætisráðher-
rans. Hún er með 35.6% fylgi en Framsókn-
arflokkurinn aðeins 14.7%. Leiðarahöfundur
Framsóknarmálgagnsins hefði því átt að
spara sér stóru orðin.
Niðurstöður þessarar könnunar leiða fleira
athyglisvert í Ijós. Ef kosið hefði verið í júlí hefði
Framsóknarflokkurinn tapað rúmlega þriðj-
ungi allra þingmanna sinna. Tap flokksins
hefði orðið eins mikið og í fylgishruninu mikla
1978. Þá varð Framsóknarflokkurinn minnsti
flokkur landsins og fékk aðeins um 14% at-
kvæða. Þær kosningar komu í kjölfar sam-
stjórnar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar-
flokksins sem réðst harkalega á kjör launa-
fólks líkt og núverandi ríkisstjórn hefur gert.
Hagvangskönnunin sýnir að fylgisgrund-
völlur Framsóknarflokksins er kominn á sams
konar hættustig og í fyrri samsteypustjórn með
Sjálfstæðisflokknum.
Framsóknarflokkurinn hefur haldið áfram
að tapa frá því að síðasta Hagvangskönnunin
fór fram í apríl. Á sama tíma hefur Alþýðu-
bandalagið sótt verulega á og Bandalag jafn-
aðarmanna bætt við sig. Alþýðuflokkurinn hef-
ur staðið í stað og Samtök um kvennalista
misst nokkuð fótfestu út um land en haldið
henni í Reykjavík. Könnunin sýnir einnig
minnkandi fylgi Sjálfstæðisflokksins, sérstak-
lega í Reykjavík. Er það athyglisvert í Ijósi þess
að markaðskreddumennirnir hafa ráðið þar
ferðinni.
Könnunin sýnir að Alþýðubandalagið hefur
bætt verulega stöðu sína á landsbyggðinni
eða um 70%. í Reykjavík er breytingin hins
vegar minni, um 50%. Hvort tveggja sýnir að
hin markvissa og málefnalega gagnrýni á að-
gerðir ríkisstjórnarinnar hefur hlotið verulegan
hljómgrunn. Niðurstöðurnar sýna þó að
nauðsynlegt er að taka enn betur á í þeim
efnum.
Hagvangskönnunin er fyrst og fremst veru-
legt áfall fyrir Framsóknarflokkinn. Hún stað-
festir þá skoðun, sem sett var fram í Innsýnar
grein Þjóðviljans um helgina, að meðan for-
sætisráðherrann kætist í kúrekaklæðnaði
vestan hafs, sér þjóðin mistökin, sundrungina
og frestanastílinn sem setja svip á ríkisstjórn-
ina. Fólkið hefur dregið þá réttu ályktun að
refsa Framsóknarflokknum, forystuflokki ríkis-
stjórnarinnar, á eftirminnilegan hátt.
KUPPT 0G SKORIÐ
Ráðstafanir til að koma i veg
fyrir að landið sporðreisist
Myndin var Icikmmynd af byggdinni. því ad hann ci —
SUNNUDAGS
BIAÐlj^-
A
Nr rftÍMtJóraariaaar kywtar.
skuldasofnunm þjóðinni yfir
hofuó. þar vcm Albcrtsgaiið
var lika leysl mcð erlendri
skuldasofnun rikisins.
Hér varð þvl að gcra vissar
ráðstafamr til samdráttar.
Sumar þcirra styrkja einnig
logaraútgerðina. því að þxr
Ounnars i norooosen - f>í~
myndi atvmnurekstunnn . a
landsbyggðinm vera kominn i
kalda kol Þá varri sannarlega
hargt að tala um. að landtð væri
að sporðreisast
Mikihrœai
ríkisstjómar-
Efnahagsráðstafanir þxr.
sem rfkisstjórnin grcip tiJ í
byrjun þessarar viku, hóAu
þann megintilgang. að koraa f
málamiðlun. scm sumum
ksmonnum þeirra getur
t varhugavcrð Reynslan
[verður að skera úr því, hver
útkoman verður.
Vonir standa þó til þcss, að
með þessu vinnist tvennt. Ann-
ars vegar batni heldur staða
sjávanitvcgsins og nokkuð
dragi ur því, að landið sporð-
reisist. Hins vegar dragi frekar
úr skuldasofnuninni við
útlónd.
MJsvísunin
Er landið að sporðrelsasf?
Sporð-
reisnin
Á NT hafa menn um hríð horft
hugstola á forsíðumynd í Sunnu-
dagsblaði Þjóðviljans á dögunum
- en þar er landið að sporðreisast
vegna stríðs straums fólks til
höfuðborgarsvæðisins. Engu lík-
ara en grónir Framsóknarmenn
sjái í slíkri mynd og þeim skrifum
sem hún vekur athygli á eins kon-
ar menetekel : þú ert veginn og
léttvægur fundinn. Þú - það er að
segja Framsóknarflokkurinn,
sem hefur talist dreifbýlisflokk-
urinn mesti, en hefur um hríð
staðið í aðlögunarferli af sama
tagi og því sem á sínum tíma
breytti Bændaflokki Kekkonens í
Finnlandi í Miðflokkinn. Og
fylgja því breytingaskeiði höfuð-
verkir margvísiegir eins og vænta
mátti.
Veikar vonir
Eitt dæmi um þrautir þessar af
allmörgum er grein sem Þórarinn
Þórarinsson ritstjóri skrifaði í
blað sitt um helgina um efna-
hagsráðstafanir ríkisstjórnarinn-
ar. Hann byrjar á því helgisiða-
haldi varnarmanna ríkisstjórna,
að ef önnur stjórn (í þessu tilfelli
stjórn Gunnars Thoroddsens,
sem Framsóknarmenn sátu vitan-
lega í) hefði haldið áfram sínu
vafstri - þá hefði landið svo sann-
arlega sporðreistst. En nú er
Framsókn sem sagt komin í betri
félagsskap en hún þá var, og því
eru nú gerðar ráðstafanir sem
Þórarinn vonar að stefni í aðra
átt. Þegar hann hefur hringsólað
um skeið í kringum nauðsyn
„bráðabirgðaráðstafana" sem
hann kallar svo lýsir hann svo á-
setningi þeirra sem að þeim
standa:
„Vonir standa þó til að með
þessu vinnist tvennt. Annars veg-
ar batni heldur staða sjávarút-
vegsins og nokkuð dragi úr því að
Iandið sporðreisist. Hins vegar
dragi frekar úr skuldasöfnun við
útlönd".
Það er ljóst að ekki er nú þessi
von sterk hjá Þórarni. Hann
treystir sér ekki til að fara lengra
en vona að það „dragi nokkuð úr
því að landið sporðreisist“. Þetta
er allt erfitt. Það er eiginlega til-
vistarnauðsyn fyrir Framsókn-
armenn að trúa á það að það sem
verið er að gera komi m.a. í veg
fyrir byggðaröskun og haldi hjól-
um sjávarútvegsins gangandi.
Það sem við sjálfir gerum hlýtur
að vera rétt, annars værum við
ekki að því. Hins vegar gæti það
vel hugsast að við vildum gera
eitthvað annað, og því er það
kannski tóm tjara sem við erum
að gera. Þórarinn segir:
Öfug
áhrif
„Tilgangurinn með þessum að-
gerðum á að vera sá að draga úr
þenslu og innflutningi en við-
skiptahallinn við útlönd hefur
farið sívaxandi.
Að mati margra Framsóknar-
manna er það hæpið að vaxta-
hækkun nái framangreindum til-
gangi. Hér eru nú ríflegir raun-
vextir og veldur því vafalítið
margt annað þenslunni en að
ekki fáist raunvextir af innlánsfé.
Hins vegar má óttast, að vaxta-
hækkunin geti leitt til verðhækk-
ana, þyngt rekstur atvinnuvega
og hleypt fjöri í launakröfur".
Þórarinn heldur áfram með
efasemdir sínar um að bráða-
birgðaráðstafanirnar með vaxta-
hækkunum og fleiru, komi sjáv-
arútveg dreifbýlisplássanna til
góða. Hann segir:
„Það er ljóst mál, að atvinnu-
vegirnir standa mjög misjafnt að
vígi, þegar lánsfé er á eins konar
uppboði. Verslunin og önnur
milliliðastarfsemi geta látið
vaxtahækkun ganga strax út í
verðlagið. Þetta geta sjávarút-
vegurinn og aðrir útflutningsat-
vinnuvegir ekki, því að þeir eru
háðir verðlagi á erlendum mörk-
uðum. Hér er því gífurlegur að-
stöðumunur“:
Hið góða
sem ég vil
Og þegar nú öllu er á botninn
hvolft og því síðan snúið við aft-
ur: hver er nú merkingin í þessum
þrautum Þórarins?
Að því er best verður séð feta
vangaveltur hans þessar slóðir
hér:
- Ef Steingrímur hefði haldið
áfram í vondum félagsskap við
Alþýðubandalagið og aðra ber-
synduga, þá hefði ísland sporð-
reistst alveg (undanskilið: og
Framsóknaratkvæðin týnst á
mölinni)
- Nú er Steingrímur í öðru og
betra kompaníi og mun grípa til
karlmannlegra ráðstafana til að
koma í veg fyrir stöðvun sjávarút-
vegsins, sem er forsenda þess að
menn haldist við dreifbýli.
-Ráðstafanirnar eru nauðsyn-
legar en þær munu ekki koma að
tilætluðu gagni, vegna þess að
Sjálfstæðismenn menga þær með
vaxtafrelsi sínu.
- Ráðstafanirnar sem munu
bjarga dreifbýlinu munu ekki
bjarga sjávarútveginum heldur
gera honum erfiðara fyrir.
- Samt verða þessar ráðstafanir
gerðar vegna þess að stjórnín er
svo ábyrg - og undir lokin er látin
uppi sú fróma ósk, að Seðlabank-
inn fylgist með því, að sá fjandi
sem ríkisstjórnin hefur hleypt
lausum, geri engan óskunda.
Um allt þetta má segja með
orðum skáldsins sem tók að sér
að ríma ódauðleg orð postulans:
Hið góða sem ég vil það geri ég
ekki en geri hitt sem helst ég
skyldi forðast. _ÁB
ÞJÚÐVILJINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfuféiag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Fróttastjórar: Óskar Guðmundsson, Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Álfheiður Ingadóttir, Guðjón Friðrikssson Halldóra Sigur-
dórsdóttir Jóna Pálsdóttir Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Mörður
Árnason, Súsanna Svavarsdóttir, Víöir Sigurðsson (íþróttir), össur Skarp-
héðinsson.
Ljósmyndír: Atli Arason, Einar Karlsson.
Útlit og hönnun: Bjöm Brynjúlfur Björnsson Svava Sveinsdóttir, Pröstur
Haraldsson.
Framkvæmdastjóri: Guörún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir.
Auglýsingastjóri: Ólafur Þ. Jónsson.
Auglýsíngar: Margrét Guðmundsdóttir, Ragnheiður Óladóttir,
Anna Guðjónsdóttir.
Afgreiðslu8tjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Símavarsla: Ásdís Kristinsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
Innheimtumaður: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafur Björnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 22 kr.
Sunnudagsverð: 25 kr.
Áskriftarverð á mónuði: 275 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Miðvikudagur 8. ágúst 1984