Þjóðviljinn - 08.08.1984, Blaðsíða 11
UTIHATIÐIR
Um 40 manns voru að hlusta á hljómsveitina Kukl í Viðey um fimmleytið á laugardaginn þegar Þjóðviljamenn voru þar á ferð. Mynd -eik.
Viðeyjarhátíðin
Mikill sigur
þrátt fyrir allt
„Þaö er rétt að sú hugmynd
hefur komið upp að endurtaka
Viðeyjarhátíð eftir hálfan
mánuð. Mér finnst það
reyndar ekki alveg nógu snið-
ugt vegna þess hversu dimm-
ir hratt. Aftur á móti vonast ég
til að við fáum að endurtaka
útihátíð í Viðey næsta sumar.
Mannvirkin eru til staðar og nú
höfum við fengið dýrmæta
reynslu í skipulagningu, sagði
Magnús Kjartansson við
Þjóðviljann í gær. Hann stóð
fyrir útihátíðinni í Viðey ásamt
Eggerti Sveinbjörnssyni. Á
sunnudaginn var ákveðið að
aflýsa frekari skemmtiat-
riðum.
Þjóðviljinn fór í fámennið í
Viðey á laugardaginn. Aðeins
200-300 manns höfðu keypt sig
inn á hátíðina, að sögn Magnús-
ar. Fáir þeirra sáust á ferli á
laugardaginn, höfðust menn við í
tjöldum sínum eða veitingatjöld-
um, aðrir höfðu skroppið í bæ-
inn.
„Það er mikil ábyrgð að standa
fyrir svona hátíð. En ef einhverjir
kunna að bregðast við vandanum
þá erum það við sem höfum í ára-
tugi verið í skemmtanabransan-
um og umgengist unga fólkið.
Þess vegna held ég að við höfum
getað hætt við hátíðina án þess að
sárindi hafi orðið hjá krökku-
num, sagði Magnús Kjartansson.
Gæslumenn og annað starfslið
í Viðey hafði mikið að gera að-
faranótt sunnudags við að að-
stoða fólk við að halda tjöldunum
uppi. „Fólk lenti í vosbúð og vit-
leysu“, sagði Magnús. „Eina
leiðinlega áttin í Viðey, suð-
austanáttin, þurfti vitanlega að
kóróna hátíðina. Það varð til þess
að á sunnudagsmorgun tíndist
fólk heim á leið. 20-30 manns
voru eftir í rigningu og þoku um
hádegi“.
„Nei, þau fengu ekki endur-
greitt. Ég ræddi við þau og bauð
þeim að vera áfram í stóru tjaldi
sem við kyntum með hitablásara.
Þau fengu fríar samlokur og síga-
rettur að vild. Þeim sem fóru í
land bauð ég aðstoð við að kom-
ast inn á dansleiki í bænum. Þau
tóku vel í það á leiðinni í bæinn en
virtust síðan hætta við þegar í
land var komið. Þau skildu vel að
erfitt var að halda skemmtiat-
riðum áfram. Til dæmis er hrein-
lega hættulegt að spila á raf-
magnshljóðfæri í jafn miklum
raka og var á sunnudaginn, alltaf
getur leitt út“.
„Það voru sterk öfl í bænum á
móti þessari útisamkomu í Við-
ey“, sagði Magnús. „Þjóðminja-
vörður, Náttúruverndarráð og
neikvæð skrif í Mogganum urðu
til þess að fólk var farið að
ímynda sér unglingana í Viðey
hrapandi fyrir björg og syndandi í
sjónum.
Lögreglan virtist afbrýðisöm
vegna þess að borgarráð sam-
þykkti útihátíðina án þess að lög-
reglan væri með í ráðum. Lög-
reglustjóri var einn þeirra sem
skrifaði í Morgunblaðið gegn hát-
íðinni.
Ég á eftir að fara í gegnum
blaðaskrif og auglýsingar til að
komast að því hvers vegna slíkt
fámenni varð hjá okkur“.
„Nú eru mannvirki á staðnum,
vatnsleiðslur, salerni og fleira.
Annar danspallurinn ætti
auðveldlega að standast vetrar-
veðrin. Ég lít á það sem mikinn
sigur að leyfi fékkst fyrir þessum
hátíðahöldum. Þau fóru líka vel
fram. Þess vegna ætti að vera
hægt að endurtaka þetta og
skipuleggja þá betur. Við þurfum
t.d. að taka til athugunar að hægt
verði að kaupa sig inn fyrir styttri
tíma. Fólk var óánægt með að
greiða 1.300 krónur ef það ætlaði
ekki að vera alla hátíðina".
Magnús sagðist bjartsýnn á næstu
Viðeyjarhátíð sem yrði væntan-
lega haldin á öðrum tíma en um
Verslunarmannahelgi. -JP
„Hérna eru ógeðslega fáir og í gærkvöldi var ógeðslega mikið fyllerí en fínt
stuð“, sögðu Móeiður Anna, Ingibjörg og Æsa Björk. Þær komu á föstudaginn
út í Viðey. Sögðust vera 14 ára og hafa þurft að standa í harðri baráttu heima
fyrir áður en leyfi fékkst til fararinnar. Mynd -eik.
Hjá Hjálparsveit skáta í Reykjavík var lítið um að vera. Þau sáu um slysavaktina í Viðey og höfðu ekki lent í öðru en að
gera að hendi eftir að einn mótsgesta haföi ætlað að skera rauf í pulsubrauð og skorið of djúpt. Fáeinir tognuðu á fæti en
ekki alvarlega. Mynd -eik.
ÞJOÐVILJINN - SÍÐA 11