Þjóðviljinn - 08.09.1984, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 08.09.1984, Blaðsíða 7
 ■■ LEiKLISTARSKÓU ÍSLANDS: Hopurinn sem vinnur að .Grænfjoðrungi' asamt Helgu skolastjora Ljosm. eik. Kolbrun með japanskan kvenmaska Einar Jon með hetjumaska Með haustnóttum taka skólar borgarinnar til starfa að nýju og eru þeir býsna marg- víslegir. Einn „vinsælasti" skóli borgarinnar ef umsækj- endur eru taldir, (aðeins 10- 20% umsækjenda kemst inn) er líklega Leiklistarskóli ís- lands. Leiklistarskólinn er rík- isskóli og lögboðið að ekki skuli vera fleiri en 8 nemendur í hverjum bekk, en umsækj- endur eru jafnan 50-60 talsins og þurfa þeir að gangast undir ströng og erfið inntökupróf. Hvorki er það þó vænlegur at- vinnumarkaður með há laun í boði né vel búinn skóli sem dreg- ur að nemendur, ef að líkum lætur. Byrjunarlaun fastráðinna leikara eru aðeins 14-15 þúsund krónur á mánuði. Aðeins örfáir leikarar fá fastráðningu af þeim fjölda sem útskrifast og sjaldnast fyrr en eftir margra ára barning. Aðbúnaður skólans er heldur varla sérlega aðlaðandi, hann hefur ekkert fast húsnæði og í vetur eru heimilisföng Leiklistar- skóla íslands ekki færri en 7, allt bráðabirgðahúsnæði. í vetur eru nemendur samtals 22 talsins. „Við erum mjög ánægð yfir að hafa aðgang að þessu húsi, en vonumst þó til að komast í eigið húsnæði áður en allt of langt líð- ur. Kópavogsbær hefur sýnt húsnæðismálum skólans mikinn áhuga og mun láta okkur í té æf- ingasvið við Félagsheimili Kópa- vogs í vetur. Miðbæjarskólinn, sem hefur verið okkar aðal aðset- ur undanfarin ár, verður í vetur nýttur fyrir hluta Vesturbæjar- skólans og þar með neyðumst við til að vera með kennsluna út um allan bæ. Húsnæðið í Lækjar- götunni, þar sem gamli Fóstru- skólinn var til húsa, höfum við aðeins í vetur, svo nú er brýnt að gera gangskör í húsnæðismálum skólans til frambúðar“, sagði Helga Hjörvar, skólastjóri Leik- listarskólans þegar við litum inn á æfingu hjá 4. bekknum, Nem- endaleikhúsinu, í Lindarbæ á dögunum. Nemendurnir, sem eru 8 talsins, voru þá á æfingu hjá Hauki Gunnarssyni, leikstjóra. Hann leikstýrir fyrsta verkefni vetrarins, „Grænfjöðrungi“ eftir Carlo Gozzi og voru nemendurn- ir í kennslustund um stílleikhús. Haukur var íklæddur japönskum búningi, nokkrir nemendanna höfðu fengið japanskan maska, en í sýningunni verða notaðar hálfgrímur og brúður. Leikmynd gerir Guðrún Sigríður Haralds- dóttir, grímur og búninga Dom- enique Polain, lýsingu annast David Walters, sem lýst hefur allmargar sýningar í Nemenda- leikhúsinu undanfarin ár. Hann er nú nýkominn frá Ástralíu (hann er raunar Ástralíumaður) og fer þangað aftur eftir áramótin að vinna sem ljósahönnuður. Frumsýningin á „Grænfjöðr- ungi“er fyrirhuguð25. október, síðan tekur Nemendaleikhúsið væntanlega þátt í „Jónsmessu- næturdraumi" í samvinnu við L.R. Síðasta verkefnið verður svo „Fugl sem flaug á snúru“ eftir Nínu Björk Árnadóttur. Þá var flutt í vikunni útvarpsleikrit með Nemendaleikhúsinu og 1. des- ember verður sýnd í sjónvarpi dagskrá sem þau fluttu í Norræna húsinu í fyrra undir heitinu „Reykjavík er perla“. Hinir 8 verðandi leikarar heita: Alda Amardóttir, Barði Guðmunds- son, Einar Jón Briem, Jakob Þór Einarsson, Kolbrún Ema Péturs- dóttir, Rósa Þórsdóttir, Þór Túl- inius og Þröstur Gunnarsson. UMSJÖN: ÞÓRUNN SIGURÐARDÓTTIR Laugardagur 8. september 1984 ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.