Þjóðviljinn - 08.09.1984, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 08.09.1984, Blaðsíða 17
TÓNLIST Á miðvikudaginn verða sett í umferð Erðanúmúsík Fjórir hraðir púlsar Neðanjarðarböndin eru loks- ins að koma upp á yfirborðið og láta í sér heyra. Það var reyndar mál til komið enda eru þessar gömlu hljómsveitir alveg að gera út af við mann. Þetta er svosem ágætis fólk, einsog þeir sem voru í Egó og Utangarðsmönnum, en spiluð alveg þrællélega músik. Þessi gullvægu orð mælir eng- inn annar en forkólfur nýjasta tónlistarforlags landsmanna, Erðanúmúsik, en sá er Gunnar Hjálmarsson. Forlagið er um þessar mundir að senda frá sér kynngimagnaða tónsnældu með lögum eftir neðanjarðarliðið á tónlistarsviðinu. Snældan heitir Rúllustiginn og á henni eru 27 lög eftir 10 hljóm- sveitir, enda er snældan heilar ní- utíu mínútur. Þar gefur að heyra meðal annars lagið mannskepnur með Vonbrigðum, Fan Houtens Kókó leikur næturvélina og tákn- myndir úr skýrlífi, Hana er með lagið dansandi verur, Ást með dansskóla Heiðars Ástvaldssonar Gunnar Hjálmarsson, liðsoddur Erðanúmúsík, sem gefur út Rúll- ustlgann: „Gömlu hljómsveltirnar að gera útaf við mann“. Ljósm. -elk. og dagblaðið, Svart Hvítur Draumur með fjóra hraða púlsa, Slagverkur með mömmu, Háveg- ur með stingdu mig og Spilli- köttur með í kaffi hjá láru. „Hún er skítódýr en á þessu stigi málsins er ekki alveg víst hvar hún verður seld. Allar betri búðirnar verða þó ábyggilega með Rúllustigann. Annað væri hneyksli." „Snældan gefur mjög góða mynd af því sem hefur verið að gerast og er að gerast hjá neðan- jarðarböndunum. Þetta er góð músik fyrir stóran hóp af fólki, enda eru þetta tíu hljómsveitir. Mjög fjölbreytt. Eiginlega get ég ekki skilið að nokkur sem hefur snefil af áhuga á því sem er að gerast í músíkinni geti látið þetta fara fram hjá sér. Síðan fylgir mjög rækilegur og veglegur kynningarbæklingur með snæld- unni. Ef mönnum líkar þetta ekki, þá geta þeir bara étið það sem úti frýs (og það er ekki ís)“. NYR PEPfflSGASEÐILL OGNÝMYNT Á grundvelli laga um gjaldmiðil íslands nr. 22 frá 23. apríl 1968 mun Seðlabanki íslands gefa út og setja í umferð hinn 12. september nk. eitt þúsund króna peningaseðil og tíu króna mynt af svofelldri gerð: 10 KRÓNA MYNT Stærð myntarinnar er 27,5 mm í þvermál og 1,78 mm að þykkt, og hún er 8 g að þyngd. Myntin er slegin úr kopar/nikkel, og er rönd hennar riffluð. Á framhlið myntarinnar eru landvættirnar eins og á 5 króna myntinni, verðgildi í bókstöfum, „Island“ og útgáfuár. Á bakhlið er mynd af fjórum loðnum og verðgildi myntarinnar í tölustöfum. 1000 KRÓNA SEÐILL Stærð: 150 x 70 mm FRAMHLIÐ Aðallitur: fjólublár Á spássíu (upptalning efnis ofan frá og niður): Á myndfleti (upptalning frá vinstri): Upphæð í tölustöfum Númer seðilsins með bókstafnum E fyrir framan, svart Vatnsmerki ber mynd Jóns Sigurðssonar forseta Tilvísun í lög Seðlabanka Islands Undirskriftir tveggja bankastjóra í senn Útgefandi Seðlabanki Islands Borði, unninn út frá myndefni á rekkjurefli í Þjóðminjasafni Islands Blindramerki, 2 lóðrétt upphleypt strik Oryggisþráður þvert í gegnum seðilinn Upphæð í bókstöfum, leturgerð af skímarfonti úr Brynjólfskirkju, Skálhölti Grunnur, fjöllita Mynd af Brynjólfi Sveinssyni Skálholtsbiskupi (1605-1675) Númer, prentað í rauðu, neðst til hægri Upphæð í tölustöfum, lóðrétt, efst til hægri BAKHLIÐ Aðallitir: fjólublár og gulbrúnn Á myndfleti (upptalning frá vinstri): Á spássíu (upptalning ofan frá): Upphæð í tölustöfum neðst til vinstri Sneiðing af Brynjólfskirkju efst til vinstri Brynjólfskirkja í Skálholti, séð að vestan Grunnmynstur sama og í borða á framhlið Upphæð í tölustöfum Vatnsmerki Mynd af hring úr eigu Brynjólfs Sveinssonar Laugardagur 8. september 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.