Þjóðviljinn - 08.09.1984, Page 15
Að skjóta í tunglið
Á krossgötum
(Shoot the Moon, Bandaríkin, 1982)
Handrit: Bo Goldman
Stjórn: Alan Parker
Kvikmyndun: Michael Seresin
Aðalleikendur: Diane Keaton, Albert
Finney.
Sýnd i Nýja Bíói.
Hjónabandsvandamál milli-
stéttafólks virðast vera í tísku í
bandaríska kvikmyndaheiminum
um þessar mundir. Kvikmyndir
um þetta efni berast hingað hver
um aðra þvera, og það verður að
segjast að þær verða æ mann-
eskjulegri og líklega betri. Það er
margt gott hægt að segja um
Shoot the Moon, til dæmis.
Myndin vekur áhuga strax í upp-
hafi, með frábærum inngangi þar
sem við komum að húsi Dunlap-
fjölskyldunnar í ljósaskiptunum,
skoðum umhverfið og læðumst
inn í húsið á eftir kvikmynda-
tökuvélinni, heyrum raddir en
sjáum engan nema Albert Finney
sem situr hnugginn og einn í einu
herberginu. Smám saman segir
vélin okkur - án orða - alla þá
sögu semsegjaþarf:hérerhjóna-
band í upplausn.
Síðar í myndinni eru einnig
nokkur mjög áhrifarík augna-
blik, sem gefa henni aukið gildi:
t.d. atriðið þar sem Diane Keat-
on liggur í baði og raular gamalt
bítlalag sem við vitum að minnir
hana á eiginmanninn sem er far-
inn frá henni. Það gerist ekkert,
nema það sem gerist innra með
konunni í baðinu, en það nægir
Iíka til að gera atriðið eftirminni-
legt.
George Dunlap er rithöfundur
sem stendur á hátindi frægðar
sinnar (hann fær verðlaun strax í
myndarbyrjun). Hann og Faith,
kona hans, eiga fjórar hressar
dætur á skólaaldri. En hjóna-
bandið er í upplausn. George er
farinn að halda framhjá og flytur
að heiman til ungrar einstæðrar
móður með eitt barn. Hann
reynir að byrja nýtt líf með nýja
fjölskyldu en það sér náttúrlega
hver heilvita maður eins og skot
að hann hefði heldur átt að vera
kyrr heima hjá sér. Og svona til
að enginn fari nú að fá samúð
með „hinni konunni" er hún látin
segja eitthvað á þessa Ieið: „ef
þetta gengur ekki hjá okkur, Ge-
orge minn, þá fæ ég mér bara ein-
hvern annan“.
Þegar George er farinn ber að
garði hjá Faith ungan mann,
Frank, sem býðst til að setja upp
tennisvöll við húsið hennar og fær
höfðinglegar móttökur. Ekki líð-
ur á löngu áður en Faith er líka
búin að yngja upp hjá sér, svona
eins og til að uppfýlla jafnréttis-
kröfur. Þar með vaknar afbrýði-
semin í George, því auðvitað má
enginn snerta konuna hans,
jafnvel þótt hann sé fluttur frá
henni.
Þama er George reyndar rétt
lýst: hann er afbrýðisamur og
eigingjam. Það hrjáir hann ein-
hver sálarkreppa, og grái fiðring-
urinn er partur af henni. Maður-
inn er allur í hnút, það er degin-
um ljósara. Hann getur varla tjáð
sig nema með ofbeldi af ein-
hverju tagi, eins og best kemur
fram þegar hann ræðst inn i húsið
og fer að berja elstu dóttur sína
með herðatré; og svo auðvitað í
lokaatriðinu. Albert Finney túlk-
ar þessa sálarkreppu óhugnan-
lega vel.
Diane Keaton er afar sjarmer-
andi leikkona og sýnir hér mjög
vel ýmsar geðsveiflur hinnar for-
smáðu eiginkonu, einkum í upp-
hafi myndarinnar.
Eitt helsta einkenni hinna nýju
bandarísku vandamálamynda er
hversu stór hlutur barnanna er í
þeim, og Shoot the Moon er gott
dæmi um það. Skilnaðurinn er
ekki einkamál hjónanna, hann er
líka mál barnanna. Afstaða barn-
anna er skýr: þau vilja hafa báða
foreldrana hjá sér. Og áhorfand-
inn hlýtur að fylgja þeim að mál-
um, enda er það greinilega ætlun
handritshöfundar og leikstjóra.
Stundum verður það beinlínis of
áberandi þegar þeir eru að stýra
samúð áhorfenda í ákveðinn
farveg, eins og t.d. í atriðinu með
„hinni konunni“ sem áður var
vitnað til. Eftir allar þessar tilfær-
ingar getur aðeins verið um einn
„hamingjuríkan endi“ að ræða,
sem sé að hjónin taki saman aft-
ur. En til þess að þetta liggi ekki
alltof berlega í augum uppi er
endirinn gerður dramatískur í
meira lagi.
Shoot the Moon er áhugaverð
kvikmynd, uppfull af skemmti-
legum athugunum á mannlegu at-
ferli við gefnar aðstæður. Dæt-
urnar fjórar gefa myndinni
hressilegan blæ og eru oft óborg-
anlegar eins og börn eru venju-
lega. Boðskapur myndarinnar er
ekki sérlega frumlegur, ætli hann
rúmist ekki allur í spakmælinu
gamla: enginn veit hvað átt hefur
fyrr en misst hefur.
Bolholti 6
símar 687480
og 687580
Barnadansar - hreyf ileikir og
dans
Gamlir og nýir samkvæmisdansar
Suöur-amerískir dansar
Brons - Silfur- Gull flokkar
Upprifj unarf lokkar fyri r hjón
„Kaffikvörnin" Eldri borgarar
dansa á eftirmiðdögum
Allir þessir flokkar byrja
l.október
Afhending skírteina laugardag
29. september og sunnudag 30.
september í Bolholti 6 frá kl. 13 -
19 báða dagana.
Innrítun er í Bolholti 6, símar 687480 og
687580 daglega frá kl. 14 - 19.
Afhending skírteina sunnudaginn 16. sept.
í Bolholti 6, kl. 14-19.
HfrT* HfrC*
Fjölbreytt námskeið að hefjast mánudaginn 17.
september 1984.
Okkar dansar eru spes
Guffi - Mikki mús og Jóakim
Jass-leikskóli fyrir 4-9 ára börn
Jass-dans
Jass-ballett m.a. úr „Fame“
Step-Tap-dans fyrir 6 ára og eldri
Akrobatik
BREAK
Böð og sól á staðnum
Þetta er dans fyrir stráka og stelpur, ungar stúlkur og herra og Jass fyrir konur á
besta aldri
Kennslustaðir:
Bolholt 6
Tónabær
Gerðuberg
Þrekmiðstöðin, Hafnarfirði
DANSKENNARASAMBAND ISLANDS
Er trygging fyrir réttri tilsögn í dansi