Þjóðviljinn - 08.09.1984, Síða 16
Nœsta vika
Leifur með eitt verka sinna. Ljósm. eik.
Hallgrímur Helgason sýnir í Nýlistasafninu.
Nýlistasafnið
Egill, Mozart
og Rummenigge
Leifur Breiðfjörð í Listasafni íslands
og steingervingar"
„Lífsblóm
„Lífsblóm og steingervingar"
nefnist sýning á glerverkum Leifs
Breiöfjörð, sem opnuð verður
þann 15. september. Hér er um
að ræða 30 verk sem Leifur hefur
unnið fyrir Listasafnið og verða
þau seld til ágóða fyrir safnið á
100 ára afmæli þess. Ætlunin er
að gefa út í tilefni afmælisins
vandaða bók um verk í eigu
safnsins og mun ágóða af sölu
verka Leifs verða varið til þeirrar
útgáfu.
„Það er nokkuð síðan þessi
hugmynd vaknaði. Verkin eru
unnin í Þýskalandi á kostnað
safnsins og þannig hefur verið
hægt að koma þessu við. Ég hef
fylgst með vinnunni ytra eftir að
þeir fengu ýtarlegar vinnuteikn-
ingar frá mér, ég valdi glerið og
þeir skera síðan og blýleggja
myndirnar. Þetta verkstæði er
mjög fullkomið og þar er verið að
vinna gluggann í dómkirkjuna í
Edinborg, sem mér var falið að
gera,“ sagði Leifur þegar við hitt-
um hann við að hengja verk sín í
glugga listasafnsins. Vinnuteikn-
ingar verða sýndar á veggjunum.
„Þessi verk eru ekki mjög stór
og ég vona að með ágóða af sölu
þeirra verði hægt að minnast veg-
lega afmælis safnsins. Það er hart
að svona stofnun skuli vera í hálf-
gerðu fjársvelti, því þótt suma
dreymi um að listir megi reka
styrkjalaust, virðist gleymast að
af opinberum listastofnunum er
mikils krafist, allt á helst að vera
ókeypis og því fer fjarri að þessar
stoftianir geti verðlagt verk og
þjónustu að vild,” sagði Leifur'
Hann sagði ennfremur að hann
hefði miklu meira en nóg að gera
og gæti ekki sinnt öllum verk-
beiðnum, en með því að láta
vinna verkin endanlega ytra
kemst hann þó yfír meira en ella.
Hann sýndi síðast einn 1975, en
hefur oft tekið þátt í samsýning-
um. Gefin verður út vönduð sýn-
ingarskrá með sýningu Leifs, en
henni lýkur 30. september.
Leifur tileinkar sýninguna minn-
ingu föður síns, Agnars B.
Breiðfjörð, sem lést á sl. ári.
Vakin er athygli á því að sökum
þverrandi birtu í haustmánuðin-
um september er sýningin aðeins
opin til 18.00 daglega (frá 13.30)
eða á meðan birtan að utan nær
að lýsa upp verkin í gluggunum.
-ÞS
Að kvöldi næstkomandi föstu-
dags, hins 14. september, klukk-
an 20, mun Hallgrímur Helgason
opna sína aðra einkasýningu í
hinum vistlegu húsakynnum Ný-
listasafnsins að Vatnsstíg 3b.
Á sýningunni verða 24 oh'u-
málverk í litum, öll máluð á þessu
ári utan tvö. Meðal titla eru t.d.
„Spuming um mann“, „Guð á
Bandaríski trompetleikarinn og
tónskáldið Leo Smith er væntan-
legur til landsins og verður hér í
mánuð við tónleikahald, fyrir-
lestra og kennslu í boði Gramm-
útgáfunnar. Hann er talinn einn
fremsti höfundur nýrra hljóma í
samtíma-jazztónlist og mikill
fengur að komu hans til landsins.
Umsagnir Jazz-tónlistarblaða
um Leo Smith em á þessa leið:
„Hann er einn af mikilvægustu
tónlistamönnum heimsins í dag“.
Mýrdalssandi“ og„Johnny goes
to Hollywood". Einnig sýnir
Hallgrímur okkur 20 teikningar
af útlendum og innlendum karl-
mönnum, lífs og liðnum, þekkt-
um sem óþekktum, eins og Agli
Skallagrímssyni, Mozart, og Karl
Heinz Rummenigge. Sýningin
mun aðeins standa til 23. þessa
mánaðar, en er hinsvegar opin á
hverjum degi frá kl. 14-22.
„Hann lætur sér ekkert óviðkom-
andi í tónlistarheiminum og hann
vinnur að samtengingu áhrifa í
tónlist alls heimsins".
Tímaritið Downbeat kaus
hann einn af mikilvægustu jazz-
tónlistarmönnum í árlegri skoð-
anakönnun hjá tónlistargagnrýn-
endum sínum. Hann er frum-
legur lagahöfundur og skapandi
tónlistarmaður á allan hátt.
Leo Smith heimsótti ísland
1982, þá í boði Jazzvakningar, og
vöktu dúettónleikar hans með
víbrafónleikaranum Bobby
Naughton talsverða athygli. Eins
og áður segir dvelst Smith að
þessu sinni hér á landi í mánuð og
mun leika einleikstónleika á
trompet og slagverk í Norræna
húsinu 13. sept. Fyrirhugað erað
frumflytja þrjá strengjakvartetta
eftir Leo Smith í Norræna húsinu
23. september. íslenskir hljóð-
færaleikarar munu koma fram
undir stjóm Smith. Fleiri tón-
leikar verða kynntir síðar, en á
þessu stigi er ömggt um tónleika
Leo Smith með íslenskum jazz og
rokktónlistarmönnum á Hótel
Borg 4. október undir yfirskrift-
inni „World Music“ eða
heimstónlist. Leo Smith mun
einnig halda námskeið í spuna-
leik og tónsmíðum í tónlistar-
skóla F.Í.H. á Gramm, en allar
nánari upplýsingar um námskeið-
ið verða veittar í Gramminu,
Laugavegi 17.
Falleg hús eiga skilið það besta -
líka þessi með flötu þökin.
Breytum ekki útliti þeirra að óþörfu.
Sarnafit þakdúkur hefur þegar levst vanda fjölmargra húseigenda til frambúðar. Það er allt
að helmingi ódýrara að endurnýja þakið með Sarnafilþakdúki en að hækkaþað upp með sperrum
og klæðningu. A uk þess heldur húsið upphaflegu útliti, útlitinu sem arkitektinn ætlaðist tilaðþað
héldi um aldur og ævi.
10 ÁRA ÁBYRGO FAGTÚN HF., LÁGMÚLA 7. 105 REYKJAVlK, SlMI 28230
Leo Smith vœntanlegur
Opið í dag
frá kl. 10 - 1$.
Vörumarkaðurinn hf.
Eiðstorgi 11, sími 29366
sími 86111